Morgunblaðið - 29.11.2013, Page 35

Morgunblaðið - 29.11.2013, Page 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013 Vandvirkir Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti er eitt fegursta mannvirki Reykjavíkur. Mikilvægt er að umhverfi hennar sé snyrtilegt og vandað sé til verka þegar hellur eru lagðar við guðshúsið. Golli Í allmörg ár hefur staðið til í velferð- arráðuneyti og nú heil- brigðisráðuneyti að gera þjónustusamninga við öldrunarstofnanir landsins. Samningar þessir áttu að vera í höndum Sjúkratrygg- inga Íslands skv. lögum nr. 112/2008. Í 56. gr. laganna segir að ákvæði IV. kafla laganna, Samn- ingar um heilbrigðisþjónustu, komi til framkvæmda eigi síðar en 1. júlí 2009. Svo sem ekkert athugavert við það sem slíkt að fresta þessu einu sinni í upphafi lagasetningar. Það sem vekur hins vegar athygli er að þessum kafla laganna hefur ítrekað verið frestað með útgáfu sérstakra laga þar sem frestunin ein er innihald laganna. Fyrst í desember 2009 er gildistöku IV. kaflans frestað til 1. janúar 2011. Þá er í desember 2010 aftur frestun á gildistökunni til 1. janúar 2012. Enn og aftur er gildistöku frestað í desember 2011 til 1. janúar 2013. Síðasta frestun var gerð í desember 2012 til 1. janúar 2015. Með ítrek- uðum frestunum er komið í veg fyrir að Sjúkratryggingar Ís- lands geri þjónustu- samninga við þá sem reka öldrunarheimili landsins. Skýringar á þessu geta verið margar. Ég tel þó að einungis tvær komi til greina á þessum síendurteknu frest- unum. Annars vegar treysta stjórnvöld ekki Sjúkratrygg- ingum Íslands til að gera þessa samninga eða að stjórnvöld vita að þessir samningar koma til með að kosta ríkissjóð mun hærri fjár- hæðir en greitt er fyrir þessa þjón- ustu í dag. Fyrrnefnda skýringin er ótrúverðug þar sem starfsfólk SÍ hefur margra ára reynslu af gerð sambærilegra samninga og þar vinnur margt mjög hæft starfs- fólk. Eftir stendur þá seinni skýr- ingin sem ég hef reyndar haldið fram í mörg ár. Ráðuneyti velferð- ar-, heilbrigðis- og fjármála vita nefnilega sem er að þegar verður farið að semja, hvenær svo sem það verður, þá kemur í ljós að sú þjónusta sem öldrunarheimilin veita í dag kostar mun meira en ríkið greiðir fyrir í dag, enda hafa allflest öldrunarheimili landsins verið rekin með halla undanfarin ár. Nú stekkur heilbrigðisráðneytið eflaust til og segir kröfulýsingar, sem birtar hafa verið á heimasíðu ráðuneytisins og fjalla um þær kröfur sem ráðuneytið gerir til öldrunarheimilinna varðandi veit- ingu þjónustunnar, vera ígildi þjón- ustusamnings. Skilyrði og lýsingar á því hvernig þjónusta á að vera á öldrunarheimilum, sem birtar eru einhliða á heimasíðu ráðuneytis, geta aldrei talist vera skriflegur samningur. Það væri svona svipað og að halda því fram að umdeildar sjónvarpsauglýsingar SA um tveggja prósenta launahækkun sem birst hafa undanfarið væru ígildi samnings – og að ASÍ væri þar með búið að samþykkja þessa tveggja prósenta launahækkun. Það sjá allir að slíkt gengur einfaldlega ekki upp. Grund hefur sinnt öldr- unarþjónustu frá árinu 1922 og Hrafnista í Reykjavík frá árinu 1957. Aldrei hafa verið gerðir skrif- legir samningar um rekstur þess- ara heimila en þau til samans fá um þrjá milljarða á ári frá ríkisvaldinu til rekstrar heimilanna. Svipaða sögu er að segja um flest öldr- unarheimili landsins. En ítrekaðar frestanir á gerð skriflegra þjónustusamninga er ekki það ótrúlegasta í þessu máli. Afstaða Ríkisendurskoðunar til þeirrar staðreyndar að greiddir eru margir milljarðar króna út úr rík- issjóði á hverju ári án skriflegra samninga þar um, án þess að stofn- unin grípi til viðeigandi ráðstafana, vekur enn meiri furðu. Sú ágæta stofnun hefur oft bent á minna al- varleg tilvik varðandi greiðslur úr ríkissjóði og samningsleysi stofnana sem fá greitt úr ríkissjóði. Hvað varðar þessa ótrúlegu linkind Rík- isendurskoðunar hef ég enga skýr- ingu á henni en fróðlegt væri að fá að vita. Eftir Gísla Pál Pálsson »Hvað varðar þessa ótrúlegu linkind Ríkisendurskoðunar hef ég enga skýringu á henni en fróðlegt væri að fá að vita. Gísli Páll Pálsson Höfundur er formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Tugmilljarðar greiddir úr ríkissjóði en engir samningar Morgunblaðið/Golli „Sú þjónusta sem öldrunarheimilin veita kostar mun meira en ríkið greiðir fyrir í dag,“ segir greinarhöfundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.