Morgunblaðið - 29.11.2013, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013
Lækjargötu og Vesturgötu
KAUPAUKI
Með öllum margskiptum glerjum* fylgir
annað par FRÍTT með í sama styrkleika.
Tilvalið sem sólgleraugu eða varagleraugu.
* Margskipt gler á við Varilux, Multifocal, Progressive og tvískipt gler
Módel: Kristín Jóna Hilmarsdóttir
Umgjörð: Lindberg Spirit
Ljósmynd/María Maronsdóttir
Nemendur í 8. til 10. bekk í
Sunnulækjarskóla á Selfossi bök-
uðu 7.600 smákökur á rúmum
fjórum tímum í gær. Smákök-
umaraþonið er árlegur viðburður í
skólanum en afrakstur bakstursins
var settur í pakkningar og svo
fara unglingarnir um bæinn og
gefa kökurnar víðsvegar t.d. til
kirkjunnar og eldri borgara.
Ikea gaf skólanum 50 kíló af
degi til bakstursins en bakaðar
voru sex tegundir: vanilluhringir,
piparkökur, engiferkökur, sælgæt-
iskökur, hindberjatoppar og
súkkulaðibitakökur. Á myndinni
má sjá Brynhildi og Guðrúnu
Petru baka vanilluhringi.
Smákökumaraþon í Sunnulækjarskóla
Borgarráð Reykjavíkurborgar sam-
þykkti í gær breytingar á deili-
skipulagi, annars vegar fyrir gömlu
höfnina og Vesturbugt, og hins veg-
ar fyrir Nýlendureitinn svokallaða.
Breytingarnar voru samþykktar
fyrr í þessum mánuði í umhverfis-
og skipulagsráði borgarinnar.
Breytingin á gömlu höfninni og
Vesturbugt var samþykkt með
fimm atkvæðum fulltrúa Besta
flokksins, Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í borgarráði, þeir
Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan
Magnússon, sátu hjá við afgreiðslu
málsins en létu bóka athugasemdir.
Telja þeir að með nýju deiliskipu-
lagi sé verið að loka á tengsl gamla
Vesturbæjarins við höfnina. Of lítil
áhersla sé á opin svæði og gert sé
ráð fyrir of fáum bílastæðum við
hverja íbúð á svæðinu.
Enn fremur benda þeir á að
Graeme Massie arkitektar, sem
áttu vinningstillöguna í opinni hug-
myndasamkeppni um rammaskipu-
lag gömlu hafnarinnar, hafi sent frá
sér tilkynningu um að stóra þætti í
vinningstillögunni sé ekki að finna í
deiliskipulaginu.
Tillagan um breytingar á deilu-
skipulagi Nýlendureitsins var einn-
ig samþykkt með fimm atkvæðum
Besta flokksins, Samfylkingarinnar
og Vinstri grænna. Helsta breyting
deiliskipulags Nýlendureits felst í
smækkun reitsins. Ákveðið hefur
verið að falla frá því að færa
Mýrargötu norður fyrir Slipp-
félagshúsið, Mýrargötu 2-4.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu
einnig hjá við afgreiðslu þessa máls
en lögðu einnig fram tillögu um að
skoða hvort hægt sé að koma rúss-
nesku rétttrúnaðarkirkjunni fyrir á
rúmbetri stað. Þeirri tillögu var vís-
að til meðferðar umhverfis- og
skipulagsráðs.
Deilt um breytingar á Ný-
lendureit og Vesturbugt
Borgarráð sam-
þykkti breytingar
á deiliskipulagi
Ljósmynd/Rússneska rétttrúnaðarkirkjan
Troðið Teikning af rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni, horft til norðurs yfir
slippsvæðið, frá Nýlendugötu. Lagt er til að færa kirkjuna á rúmbetri stað.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/