Morgunblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 50
50 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2013 Bæjarfulltrúinn og ritstjórinn Rósa Guðbjartsdóttir er 48 ára ídag. „Mér finnst hver einasti afmælisdagur vera stór, þó svoþetta sé ekki stórafmæli, og frábært að geta fagnað svona mörgum árum. Dagurinn verður mjög litaður af mikilli vinnu, ég er ritstjóri og „altmulig-manneskja“ hjá bókaforlaginu Bókafélagið. Það er mjög annasamur dagur í dag en jólabókaflóðið er að byrja. Það er ýmislegt sem þarf að klára þannig að dagurinn verður hlað- inn. Ég verð samt væntanlega með fangið fullt af jólasmákökum í dag. Við efndum til samkeppni um bestu heilsuréttasmákökuna í tengslum við bókina „Nýir heilsuréttir fjölskyldunnar“. Samkeppnin var um bestu en hollari útgáfu af smákökum, því maður er japlandi á þessu alla aðventuna, þannig að það er ekki verra að hafa þær hollar. Höfundur bókarinnar átti hugmyndina að því að halda þessa keppni og dómnefndin mun hefja störf í dag. Ég er mjög mikið afmælisbarn og held vel upp á afmælisdaga í fjölskyldunni. Þar sem ég er dálítið upptekin held ég ekki veislu sjálf, en milli kl. sex og átta verður jóla- fögnuður hjá sjálfstæðisfélaginu Fram í Hafnarfirði þar sem ég ætla að komast í jólagírinn með mínum félögum þar. Svo veit maður aldrei hvort mér verður boðið út að borða, sérstaklega þegar maður vekur svona athygli á þessu. Svo held ég kannski almennilega upp á afmæl- ið seinna um helgina,“ segir Rósa. gunnardofri@mbl.is Rósa Guðbjartsdóttir er 48 ára í dag Smákökur á afmælinu Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafn- arfirði og ritstjóri, fagnar afmælinu á annars annasömum degi. Með fangið fullt af jólasmákökum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Stóra-Ásgeirsá Sigríður Emma fædd- ist 16. febrúar. Hún vó 4.070 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir og Magnús Ásgeir Elíasson. Nýir borgarar Eskifjörður Sara Antonía fæddist 23. mars. Hún vó 3.500 g og var 50,5 cm löng. Foreldrarnir eru Sveindís Björg Björgvinsdóttir og Friðþjófur Tóm- asson. S karphéðinn Þór fæddist í Kópavogi 29.11. 1963 og ólst þar upp. Hann var í Kópavogsskóla og Víg- hólaskóla og lauk stúd- entsprófi frá MK 1984. Skarphéðinn stundaði píanónám við Tónlistar- skóla Kópavogs frá átta ára aldri til tvítugs, útskrifaðist úr tón- menntakennaradeild Tónlistarskól- ans í Reykjavík 1987 og stundaði söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Halldóri Vilhelms- syni og Sieglinde Kahmann. Skarphéðinn hefur verið tón- menntakennari frá 1987 og kennir nú við Kópavogsskóla. Allan þann tíma hefur hann einnig verið sjálf- stætt starfandi tónlistarmaður. Skarphéðinn hefur verið organisti við Fríkirkjuna í Hafnarfirði frá 2003, hefur sungið með ýmsum Skarphéðinn Þór Hjartarson, organisti og tónm.kennari – 50 ára Hjónin Skarphéðinn Þór, ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Sigríði Loftsdóttur sem er þroskaþjálfi. Organisti, útsetjari, kennari og söngvari La Boheme Skarphéðinn sem Parpignol og Þóra Einarsdóttir sem Musetta. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is 54 54 300 • SMIÐJUVEGUR 7 • KÓPAVOGUR Eina glerverksmiðjan á landinu með vottaða framleiðslu RENNIHURÐIR Á KYNNINGARVERÐI Sparar pláss Öruggt og traust Einfalt í uppsetningu Tilbúnar til afgreiðslu vegghengdar agila 50 rennihurðabrautir með hertu 8mm sýruþveignu gleri og fingurgróp á frábæru verði, 99.500 kr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.