Morgunblaðið - 02.12.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
Við erum byrjuð að taka á móti
pöntunum í síma 562 2772,
ostabudin@ostabudin.is
og á ostabudin.is
Hringdu núna og pantaðu
Haldið var í órjúfanlega jólahefð í gær þegar ljós Óslóarjólatrésins voru
tendruð á fyrsta degi aðventu. Jólatréð er gjöf til Reykjavíkur frá Ósló. Jón
Gnarr borgarstjóri tók þátt í að fella tréð í skóglendi utan við Ósló. Um 62
ára skeið hefur þessi athöfn markað upphaf jólaundirbúnings í borginni.
Upphaf jólaundirbúnings í Reykjavík
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gleði og fjör þegar ljós Óslóartrésins voru tendruð á Austurvelli
Karlmaður fæddur árið 1991
fannst látinn á steyptu plani í
Þingholtunum í
Reykjavík að-
faranótt sunnu-
dags.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Friðriki Smára
Björgvinssyni,
yfirmanni rann-
sóknardeildar
hjá lögreglunni á
höfuðborgar-
svæðinu, féll maðurinn af þaki
þriggja hæða byggingar við götu í
Þingholtunum.
Að sögn Friðriks er talið að
maðurinn hafi látist á milli klukk-
an fjögur og fimm að morgni
sunnudags.
Engir sjónarvottar voru að at-
vikinu.
Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki leikur grunur á að um sak-
næmt athæfi hafi verið að ræða
heldur er talið að maðurinn hafi
látist af slysförum. vidar@mbl.is
Fannst lát-
inn í Þing-
holtunum
Féll fram af
þaki byggingar
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Verðskrá í Hlíðarfjalli á Akureyri
hefur hækkað um 15-17% frá síðasta
vetri. Að sögn forstöðumanns Hlíð-
arfjalls er sveitarfélagið að verja
grunnþjónustu í bænum með gjald-
skrárhækkunum.
Dagskort kostar nú 4.000 kr. en
var 3.300 kr. síðasta vetur. Vetrar-
passinn kostar 39.000 kr. en kostaði
áður um 33.000 kr. Honum er þó
hægt að deila með öðrum ólíkt því
sem var í fyrra. Að sögn Guðmundar
Karls Jónsson, forstöðumanns í Hlíð-
arfjalli, kostar tugi milljóna króna að
reka skíðasvæðið á hverju ári en bæj-
arfélagið velji að verja fjármunum til
reksturs þess. Hann bendir á það að
enn sé þó ódýrt að fara á skíði hér á
landi. „Verðskráin á Íslandi er ein sú
ódýrasta í heimi. Þá erum við ekki að
miða við höfðatölu,“ segir Guð-
mundur í gamansömum tón. „Þegar
þú ert farinn að kaupa þér fjöldægra
miða er lyftukortið komið í um 2.662
krónur,“ segir Guðmundur.
Þyrfti að hækka um 30%
Aðspurður ályktar Guðmundur að
miðað við núverandi rekstrar-
fyrirkomulag þyrfti að hækka verð-
skrána um 30% til viðbótar svo hægt
væri að reka skíðasvæðið án þess að
bærinn myndi greiða fé með því.
„Þetta eru skíðasvæðin öll að glíma
við, hvort sem það er á höfuðborgar-
svæðinu, hér eða annars staðar.
Þetta er afþreying en skíðaíþróttin er
dýrt sport. Bæði hvað varðar búnað
og rekstur,“ segir Guðmundur.
Hækkanir í Hlíðarfjalli
til varnar grunnþjónustu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlíðarfjall Verðskráin í Hlíðarfjalli
hefur hækkað frá því í fyrra.
Ódýrt á skíði
óháð höfðatölu
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Fyrirtæki í málmiðnaði gætu boðið
helmingi fleiri iðnnemum upp á
námssamning sem lýkur með sveins-
prófi. Nú eru um 80 nemendur á
samningi í málmtækni en hægt væri
að taka við allt að 150, samkvæmt
þeim upplýsingum sem Katrín Dóra
Þorsteinsdóttir, forstöðumaður hug-
verka og mannauðs hjá Samtökum
iðnaðarins, hefur fengið frá fyrir-
tækjum í málmiðnaði.
Viðvarandi skortur hefur verið á
fólki með menntun í málmtækni und-
anfarin ár. Skortur er í fleiri grein-
um, s.s. í rafiðnaði en staðan er mis-
munandi á milli iðngreina.
Katrín Dóra segir að kannanir SI
hafi sýnt fram á að þörf væri á að um
1.100 manns útskrifuðust úr iðnnámi
á ári í stað 500-600 manns nú.
„Hér er landlægur áhugi á að allir
fari í bóknám,“ segir Katrín Dóra.
Fólk sem er að velja sér háskólanám
þurfi að velta fyrir sér hvaða tæki-
færi bíði að námi loknu. Í sjálfu sér sé
öll menntun af hinu góða. „En það er
ekki endilega akkur í háskólanámi ef
það eru ekki tækifæri í þeim greinum
sem fólk velur,“ segir hún.
Verknámi úthýst
Ársæll Guðmundsson, skólameist-
ari Iðnskólans í Hafnarfirði, segir að
ein af skýringinum á því að svo fáir
séu í iðnnámi sé sú að nánast sé búið
að útrýma öllu verknámi úr grunn-
skólum. „Eftir 10 ára nám sem er allt
á bókina eiga þeir síðan að velja um
hvort þeir fari í bóklegt nám, sem
þeir þekkja, eða í verklegt nám sem
þeir þekkja ekki,“ segir hann. Þeir
einu sem fái raunverulega kynningu
á iðnnámi séu þeir sem eiga foreldra
sem eru iðnaðarmenn. »16
Gætu tekið tvöfalt fleiri á
samning í málmiðnaði
Hugsi um tækifæri að loknu námi Iðnnámið lítt kynnt
Morgunblaðið/Ernir
Smíða Nám er líka vinna.
Mikið kuldaskeið er í vændum um allt
land næstu daga. Að sögn Teits Ara-
sonar, veðurfræðings hjá Veðurstofu
Íslands, getur frostið farið í allt að 20
stig víða um land. Skammt er stórra
högga á milli því á Seyðisfirði, Ak-
ureyri, Vopnafirði og víðar á Austur-
landi mældist hitinn yfir 10 gráðum í
gær. Í dag og á morgun verða él um
vestanvert landið en í kjölfarið er bú-
ist við afar kaldri norðanátt á mið-
vikudag. „Hún kemur beint norðan úr
Íshafi en kuldakastið mun sennilega
ná hámarki á fimmtudag,“ segir Teit-
ur. Algengast er að frostið verði á
bilinu 7-13 stig um allt landið.
Meiri vindur verður austanlands en
vestan en mestur kuldi verður þar
sem verður lygnt og léttskýjað.
„Slíkar aðstæður eru t.a.m. mjög
algengar í Mývatnssveit en þar verð-
ur sennilega vindur núna og skýjað.
En það eru staðir á Suður- og Vest-
urlandi þar sem frostið getur farið
niður í 20 stig,“ segir Teitur.
vidar@mbl.is
Kuldaboli norðan
úr Íshafi á leiðinni
Frostið gæti farið undir 20 stig
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kuldi Betra er að dúða sig á næst-
unni því von er á miklu frosti.