Morgunblaðið - 02.12.2013, Blaðsíða 23
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013
Þórhallur Bjarnarson biskupfæddist í Laufási við Eyja-fjörð 2.12. 1855. Hann var
sonur Björns Halldórssonar, pró-
fasts og skálds í Laufási, og k.h.,
Sigríðar Einarsdóttur.
Bróðir Þórhalls var Vilhjálmur
Bjarnarson, trésmiður og stórb. á
Rauðará við Reykjavík, faðir Hall-
dórs, skólastjóra á Hvanneyri, föður
Þórhalls sem var forstjóri Holl-
ustuverndar ríkisins. Halldór var
einnig faðir Valgerðar, móður
Sveins Runólfssonar landgræðslu-
stjóra. Dóttir Vilhjálms var Laufey,
amma Guðmundar Páls Arnarsonar
sem varð heimsmeistari í brids.
Eiginkona Þórhalls var Val-
gerður, dóttir Jóns Halldórssonar,
hreppstjóra á Bjarnastöðum í Bárð-
ardal, og Hólmfríðar Hansdóttur
húsfreyju, en fósturfaðir Valgerðar
var Tryggvi Gunnarsson banka-
stjóri.
Börn Þórhalls og Valgerðar voru
Tryggvi forsætisráðherra, Svava,
húsfreyja á Hvanneyri, Björn, bú-
stjóri í Laufási, og Dóra forsetafrú.
Þórhallur varð stúdent við Lærða
skólann 1877, lauk prófi í hebresku
við Prestaskólann sama ár, lauk
cand.phil.-prófi við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1878, prófi í kirkju-
feðrafræði 1880 og embættisprófi í
guðfræði 1883.
Þórhallur var stundakennari við
Lærða skólann og Barnaskólann í
Reykjavík 1883-84, var prófastur í
Reykholti í Borgarfirði 1884, prest-
ur á Akureyri frá 1885, var skipaður
kennari við Prestaskólann 1886 og
flutti þá til Reykjavíkur. Hann var
skrifari Péturs Péturssonar biskups
og aðstoðarmaður Hallgríms Sveins-
sonar biskups en var sjálfur biskup
Íslands frá 1908 og til æviloka.
Þórhallur var alþm. Borgfirðinga
1894-1900 og 1902-1908 fyrir Heima-
stjórnarmenn. Hann rak búskap á
býli sínu, Laufási í Reykjavík sem
hann kenndi við Laufás í Eyjafirði,
en Laufásvegur heitir eftir býli Þór-
halls og stendur hús hans enn við
Laufásveg. Þá var hann áhugamað-
ur um skipulag og fegrun Reykja-
víkur og stofnaði Prýðifélag Reykja-
víkur. Þórhallur lést 15.12. 1916.
Merkir Íslendingar
Þórhallur
Bjarnarson
85 ára
Hólmdís Jóhannesdóttir
Stella Guðnadóttir
80 ára
Guðbjörg Ágústsdóttir
Halldóra Andrésdóttir
Sigríður Einarsdóttir
75 ára
Bergljót Ólafsdóttir
Einar Örn Gunnarsson
Gunnsteinn Sigurðsson
Reynir Jónsson
Sigurjóna M. Lúthersdóttir
70 ára
Agnes Gamalíelsdóttir
Arnór Guðmundsson
Erla Vilhjálmsdóttir
Jóhanna Axelsdóttir
Pétur Björnsson
Sveinborg Daníelsdóttir
Þorsteinn Jónsson
Þórir Kjartansson
60 ára
Guðbjörg Gústafsdóttir
Guðný Dóra
Ingimundardóttir
Halldóra Guðrún
Ólafsdóttir
Helga Hauksdóttir
Jón Kristján Árnason
Ólafur H. Óskarsson
Ragnheiður Jónsdóttir
Þórarinn R. Ásgeirsson
50 ára
Anna Rúnarsdóttir
Arinbjörn Viggó Clausen
Ágústa Þóra Johnson
Carmelita Cajag Mayubay
Guðberg Þórhallsson
Halldóra Emilsdóttir
Helga Guðmundsdóttir
Hrefna Steinarsdóttir
Jón Trausti Guðlaugsson
Kristín Pálsdóttir
Krzysztof Stefan Midor
Sigríður Gunnsteinsdóttir
Sigurlaug Egilsdóttir
40 ára
Ásgerður Magnúsdóttir
Hulda Nanna Lúðvíksdóttir
Ian Glenn Munoz
Jóhanna Kristín
Þorvarðardóttir
Jónína Björk Þorvaldsdóttir
Natalía Ólafsson
Steinar Karl Kristjánsson
30 ára
Andri Arnarson
Auður Lúðvíksdóttir
Derri Paul Harries
Stephens
Erna Karen Óskarsdóttir
Maritza Solange Japke
Sepulveda
Sindri Arnarson
Til hamingju með daginn
30 ára Sveinbjörn ólst
upp í Reykjavík, er búsett-
ur á Selfossi, lauk sveins-
prófi í húsasmíði og starf-
ar við smíðar.
Maki: Bryndís Erlings-
dóttir, f. 1985, hjúkr-
unarfræðingur.
Dætur: Sóldís Lilja, f.
2010, og Guðrún Birna, f.
2013.
Foreldrar: Gunnar Hrafn
Sveinbjörnsson, f. 1960,
og Þórdís Þórarinsd., f.
1960, bændur á Efri-Hóli.
Sveinbjörn Ari
Gunnarsson
30 ára Bessý ólst upp á
Húsavík en er nú búsett á
Reyðarfirði, er að mála
þar abstraktmyndir og er
heimavinnandi um þessar
mundir.
Sonur: Alexander Gabrí-
elsson, f. 2009.
Foreldrar: Sigurhanna
Vilhjálmsdóttir, f. 1963,
listakona á Akureyri, og
Hólmgeir Hermannsson,
f. 1957, sem starfrækir
ferðaþjónustu á Stað-
arhóli í Aðaldal.
Bessý
Hólmgeirsdóttir
30 ára Kristín ólst upp í
Borgarnesi, er nú búsett í
Reykjavík, er stúdent og
förðunarfræðingur og er
sölumaður hjá Hár ehf.
Maki: Brynjar Berg Guð-
mundsson, f. 1987, hljóð-
maður í Hörpu.
Börn: Heiðar Berg, f.
2011, og Sara Björg, f.
2012.
Foreldrar: Björgvin Óskar
Bjarnason, f. 1945, og
Inga Lára Bragadóttir, f.
1951.
Kristín Sif
Björgvinsdóttir
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
var rannsóknarprófessor þar 1998-
2000. Hann var auk þess aðjúnkt
við Háskólann í Bergen í Noregi
1997-2000, var forstöðumaður upp-
lýsingatæknisviðs Urðar -Verðandi
- Skuldar 2000-2001 og í hlutastarfi
þar til 2004, var prófessor í tölv-
unarfræði við HÍ 2001-2007 og hef-
ur verið prófessor í tölvunarfræði
við HR frá 2007.
Magnús var formaður Rannsókn-
arráðs HR 2011-13 og er staðgeng-
ill deildarforseta tölvunar-
fræðideildar HR. Hann er gjaldkeri
Vísindafélags Íslendinga, hefur
skipulagt ráðstefnur hér á landi og
erlendis, hefur setið í fagráðum
rannsóknarsjóða og í stjórn Ís-
lensk-japanska félagsins.
Magnús fékk Hvatningaverðlaun
Vísinda- og tækniráðs 2001, fékk
fyrstu Rannsóknarverðlaun HR
fyrir nokkrum árum og hefur nú
nýverið fengið Öndvegisstyrk
Rannsóknarsjóðs Vísinda- og
tækniráðs vegna rannsókna á sviði
þráðlausra neta.
Stundar hlaup, jóga og karate
Þegar spurt er um áhugamál eru
rannsóknir Magnúsar hans ær og
kýr. Hann færist hins vegar undan
því að lýsa þeim í almennum, fáein-
um orðum: „Það er nú svolítið erfitt
vegna allrar stærðfræðinnar sem
þar kemur við sögu.
En auk þess að vera með hugann
við fjölskylduna og rannsókn-
arverkefni mín hef ég alltaf haft
áhuga á því að hreyfa mig mikið.
Ég hjólaði mikið erlendis og eftir að
ég kom heim hjólaði ég til og frá
vinnu í 12 ár eða svo, allan ársins
hring. Ég hef hins vegar dregið
töluvert úr hjólreiðunum nú í seinni
tíð, hvað sem verður í framtíðinni.
Nú læt ég mér yfirleitt nægja að
hjóla til vinnu á vorin þegar snjóa
leysir.
Eftir að ég dró úr hjólreiðunum
fór ég að hlaupa í staðinn og það
geri ég reglulega. Auk þess stunda
ég jóga, fyrst og fremst sem lík-
amsrækt, en ég hef líka prófað jóga
sem hugleiðslutækni. Loks æfi ég
karate af og til.
Á kvöldin er svo gott að þjálfa
puttana með því að spila á píanóið
sér til gamans.“
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar er Yayoi
Shimomura, f. 22.5. 1959, tölv-
unarfræðingur. Foreldrar hennar
eru Ikuo Shimomura, f. 5.9. 1927,
eigandi að fiskvinnslufyrirtæki í
Nagoya í Japan, og Setsuko Shi-
momura, f. 15.6. 1934, d. 30.4. 2012,
húsfreyja í Nagoya í Japan.
Börn Magnúsar og Yayoi Shi-
momura eru Halldóra Miyoko
Magnúsdóttir, f. 12.3. 1988, ljós-
myndari í París; Tómas Ken Magn-
ússon, f. 2.6. 1992, nemi í tölv-
unarfræði; Þóra Sayaka Magnús-
dóttir, f. 15.12. 1993, nemi.
Systkini Magnúsar eru Valgerður
Halldórsdóttir, f. 7.1. 1969, þýðandi
í Reykjavík, og Bjarni Vilhjálmur
Halldórsson, f. 28.11. 1973, stærð-
fræðingur hjá deCODE, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Magnúsar eru Halldór
S. Magnússon, f. 30.4. 1942, fyrrv.
framkvæmdastjóri og síðar for-
stöðumaður hjá Íslandsbanka, og
Kristín Bjarnadóttir, f. 20.9. 1943,
prófessor emeritus við mennta-
vísindasvið HÍ.
Úr frændgarði Magnúsar M. Halldórssonar
Magnús M.
Halldórsson
Elísabet Halldórsdóttir
húsfr. á Hesteyri
Eiríkur Benjamínsson
útvegsb. á Hesteyri
Kristín Eiríksdóttir
húsfr. í Rvík
Bjarni Vilhjálmsson
þjóðskjalavörður í Rvík
Kristín Bjarnadóttir
prófessor emeritus í Garðabæ
Kristín Árnadóttir
húsfr. í Hátúni
Vilhjálmur Stefánsson
útvegsb. í Hátúni á Norðfirði
Hávarðína Hávarðsdóttir
húsfr. í Bolungarvík
Valdemar Samúelsson
útvegsb. á Ósi í Bolungarvík
Halldóra Valdemarsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Magnús Bergsson
bakari og útgerðarm. í Vestmannaeyjum
Halldór S. Magnússon
viðskiptafræðingur í Garðabæ
Þóra Magnúsdóttir
frá Miðseli í Rvík
Bergur Jónsson
skipstj. á Kútter Surprise
Afmælisbarnið Magnús Már Hall-
dórsson.