Morgunblaðið - 02.12.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.12.2013, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013 - örugg bifreiðaskoðun um allt land Þú gætir eignast nýjan Spark ef þú drífur bílinn í skoðun! Þeir sem koma með bílinn í skoðun fyrir lok dags þ. 22. des. eiga möguleika að eignast stórglæsilegan Chevrolet Spark sem verður dreginn út þ. 23. des. 2013. Aðalvinningur er splunkunýr Chevrolet Spark árg. 2014 HAPPDRÆTTI GÓÐÞJÓNUSTAOG HAGSTÆÐKJÖR ÁSKOÐUNUM Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is MERINO + NÝTT OG SPENNANDI GARN FRÁ LANGYARNS SJÓN ER SÖGU RÍKARI VERIÐ VELKOMIN Minnum á prjónakaffið í kvöld Fagleg almanna- tengsl grundvallast á staðreyndum og byggj- ast á vandaðri upplýs- ingagjöf sem miða fyrst og fremst að því að upp- lýsa á hlutlausan hátt, eyða ranghugmyndum og hafa áhrif á jákvæða umræðu og rétta fjöl- miðlun. Yfirklór, hálf- sannleikur eða hrein ósannindi komast ávallt upp og gera slæma stöðu verri en hún var í upp- hafi. Sú vísa verður aldrei of oft kveð- in að fyrirtæki, stofnanir, sveitar- stjórnir og félagasamtök þurfa að vanda vel þær upplýsingar sem frá þeim fara í veigamiklum málum til þess að forðast deilur, vonda umræðu og átök ólíkra hagsmunahópa. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi í þessum efnum sem öðrum. Það var t.d. fróðlegt að fylgjast með frammi- stöðu og málflutningi fulltrúa Garða- bæjar og Vegagerðarinnar í átök- unum um nýja veginn sem nú er búið að marka í gegnum Garðahraun. Það var líka athyglisvert að fylgjast með því hvernig KSÍ klúðraði miðasölunni á umspilsleikinn á dögunum og varð í einu vetfangi að höfuðóvini knattspyrnuáhugafólks og veikti trú- verðugleika sinn meðal almennings. Þótt fótbolti og vegagerð eigi ekki mikið sameiginlegt er margt líkt með þessum tveimur vondu málum. Þau voru bæði fyrirsjáanleg og í báðum tilvikum gafst nægur tími til þess að undirbúa í þaula aðgerða- og kynn- ingaráætlun. Það virðist ekki hafa verið gert og flest grundvallarlögmál almannatengsla voru þverbrotin hjá báðum aðilum. Það er alveg ljóst að báðir þessir aðilar standa eftir með laskaða ímynd og skertan trúverð- ugleika. Um árabil var vitað að nýr Álfta- nesvegur í gegnum Gálgahraun/ Garðahraun í Garðabæ yrði afar um- deildur. Skoðanakönnun MMR leiddi í ljós að 25,1% landamanna var hlynnt veglagningunni en 42,2% voru andsnúin framkvæmdinni. Þetta mik- il andstaða við framkvæmdina undir- strikar mikilvægi vandaðra vinnu- bragða. Að knýja mál áfram í krafti stærðar og valds er sjaldan til góðs. Það fer öfugt ofan í almenning. Oft er því bæði gott og rétt að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Án þess að ræða við helstu and- stæðinga framkvæmdanna og reyna að ná sátt í málinu áður en vinnuvél- arnar tóku til starfa var ljóst að fram- undan væru átök við Hraunavini eins og raunin varð. Viðbrögð Garða- bæjar, Vegagerðarinnar og innanrík- isráðuneytisins bera vitni um að eng- in aðgerðaáætlun virðist hafa verið gerð til þess að mæta málflutningi og sjónarmiðum Hraunavina og samúð almennings með þeim endurspegl- aðist bæði í samfélagsmiðlum og hefðbundnum fjölmiðlum. Sannleikurinn er grundvallarregla í allri upplýsingagjöf. Það var því slæmt fyrir Garðabæ þegar í ljós kom að staðreyndir voru ekki réttar í fréttatilkynningu sem bærinn sendi frá sér um að Bjarni Benediktsson, þáverandi bæjarfulltrúi í Garðabæ og hagsmunaaðili í málinu, hefði „ávallt vikið sæti þegar málefni jarðarinnar Selskarðs voru á dagskrá skipulags- nefndar Garðabæjar“. Garðabær þurfti því að leiðrétta mál sitt eftir að tilkynningin hafði verið birt í fjöl- miðlum. Ávallt skal sannreyna það sem sagt er, fjölmiðlar gera það eins og þetta dæmi sannar. Upplýsingamiðlun á að vera hnit- miðuð og hreinskiptin, t.d. til þess að snúa vörn í sókn og hefja ímynd- arlega uppbyggingu eftir að áfall dynur yfir. Upplýsingar sem við lát- um frá okkur fara þurfa að vera sann- ar og framsetningin skýr þannig að ekki sé unnt að misskilja orð eða draga af þeim rangar ályktanir. Þetta tókst ekki hjá framkvæmdastjóra KSÍ í miðasölumálinu. Hann var langt í frá trúverðugur í fjölmiðlavið- tölum. Hann bæði tók á sig fulla ábyrgð á ákvörðuninni og um leið kenndi hann ráðgjöf miðasölufyr- irtækisins um tímasetningu miðasöl- unnar. Miðasalinn sendi strax frá sér yfirlýsingu þar sem þessum ásök- unum var hafnað. Framkvæmdastjóri KSÍ fór illa undirbúinn í viðtöl sem hleypti illu blóði í almenning. Að verða margsaga dregur úr trúverðugleika og skilyrt afsökunarbeiðni virkar illa á fólk. „Ég biðst afsökunar, en…“ sagði fram- kvæmdastjórinn margoft í viðtölum. Í almannatengslum tryggir maður ekki eftirá. Gegnheilt orðspor og ásjóna er dýrmæt eign sem tekur langan tíma að byggja upp en örskamma stund að eyðileggja ef menn fara öfugt að í við- kvæmum og umdeilanlegum málum. Almannatengsl eru viðvarandi for- gangsmál stjórnenda, því eins og seg- ir í orðatiltækinu: Í upphafi skal end- irinn skoða. Löskuð ímynd og skertur trúverðugleiki Eftir Jón Hákon Magnússon og Þor- stein G. Gunnarsson » Sannleikurinn er grundvallarregla í allri upplýsingagjöf. Jón Hákon Magnússon Höfundar eru ráðgjafar hjá KOM al- mannatengslum. Þorsteinn G. Gunnarsson Útvarp Saga er auðvitað fyrst og fremst stöðin hennar Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra, þótt fleiri málsmet- andi menn hafi komið að upp- haflegri stofnun hennar og merki- leg er ugglaust sú saga á bak við það að BBC World Service er nú send út á upp- runalegri bylgju- lengd Útvarps Sögu. Allt í boði Jóns Ólafssonar ímynda ég mér, enda var hann aðalmaðurinn á út- varpsmarkaðnum í þá daga. Að- alstöðin horfin um það leyti að mig minnir, allt að breytast enn eina ferðina – Arnþrúður og fleira gott fólk samt komið með sína stöð á nýrri rás (99,4) sem þróaðist í þessa prýðilegu útvarpsstöð, þótt útsend- ingargæðin þyrftu langan þróun- artíma, fyrir fullkomnun, fyrirfinn- ist hún. Pétur Gunnlaugsson lögmaður er vafalaust sá maður sem staðið hefur Arnþrúði næst við uppbyggingu þessa merka menningarfyrirbrigðis sem stöðin er og því væri afar leitt til þess að vita, ef það yrði hann sem skemmdi stöðina með ýktum und- irtektum við daglega (sic) innhringj- endur sem auðheyrilega eru margir hverjir í vondum málum – beiskir, reiðir og vonsviknir, fordómafullir jafnvel og þröngsýnir líka, heyrist manni. Þeir svæsnustu segja gjarn- an „ha“ í sama tón og tuddar bölva í, bundnir á bás í fjósi. Umræðan á Útvarpi Sögu nýlega (25. 11.) um kvótasetningu á makríl og Kolgrafafjarðaratburðina varð hálfgerður farsi og einna hæst lét í Pétri – hann ætlar sko að standa sig sem stjórnarandstæðingur, eins og hann lofaði strax eftir kosningarnar í vor. En ætti hann nú samt ekki að varast að láta óþolinmóða, skamm- sýna og bitra viðmælendur æsa sig upp í beinni útsendingu? Þetta er í þokkabót allt endurflutt samvisku- samlega í sólarhring með reglulegu millibili. Ég heyrði þessi ósköp í endurflutningi – en hefði hvort eð er ekki nennt að blanda mér í þau um- ræðustjórnmál. Gaman er hins veg- ar að hlusta á góð viðtöl Péturs við hið ólíkasta fólk, ekki síst alþing- ismenn og ráðherra. Varfærin og skynsamleg skref fjölmálaráðherrans í téðum málum, þykja mér sýna að þar fer greindur og góður dýralæknir með vald sem honum er vel trúandi fyrir; æs- ingalaus við ígrundun mikilsverðra mála sem varða framtíðarheill ís- lensku þjóðarinnar. Ekki kannski svo ólíkur Arnþrúði sjálfri sem er snillingur í að róa niður kexruglaða innhringjendur er ættu að láta sér nægja að hringja inn svona einu sinni í mánuði. PÁLL PÁLMAR DANÍELSSON, leigubílstjóri. Útvarp Saga í hættu? Frá Páli Pálmari Daníelssyni Páll Pálmar Daníelsson Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.