Morgunblaðið - 02.12.2013, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það stefnir í átakalítinn dag hjá þér
en það þýðir ekki að þú getir slegið slöku við.
Eitthvað sem sagt er í óeiginlegri merkingu er
skilið bókstaflega.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur með ákveðni og þolinmæði
náð þeim áfanga sem þú hefur lengi stefnt
að. Haltu áfram á sömu braut og þú uppskerð
ríkulega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu ekki að beita brögðum til
að stjórna öðrum. Vilji er allt sem þarf til
vinnings. Meiri tími út af fyrir þig, er forsenda
hamingju í sambandi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki gott að láta tilfinning-
arnar hlaupa með sig í gönur. Lífið kemur til
þín þegar þú reynir ekki of mikið til þess og
bíður ekki í úthugsuðum stellingum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Kannski áttar þú þig á því hversu mikill
kærleikur umvefur þig dagsdaglega. Vertu því
óhrædd/ur að taka að þér erfið verkefni sem
aðrir leggja ekki í.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinur kemur þér hugsanlega stórkost-
lega á óvart í dag. Hlustaðu eftir þeim góðu
hugmyndum sem eru á sveimi allt í kringum
þig. Láttu það eftir þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að byrja nýtt samband er að sumu leyti
ekki ólíkt því að kveikja eld. En þótt gaman sé
að rifja upp fortíðina þá er það samt fram-
tíðin sem þú þarft að hafa efst í huga.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Kappsemi þín í vinnunni kemur í
veg fyrir að þú sjáir heildarmyndina. Settu
þér takmörk á útgjöldin og haltu þig við þau.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er töluvert álag á þér núna
bæði í einkalífi og starfi. Þú ert þessi trausti
og öruggi starfskraftur sem óhætt er að fela
hvaða verkefni sem er.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur áhrif á fólk og lætur því
líða á vissan hátt. Nú verðurðu að gera upp
við þig hver staðan er heima fyrir og hverju
þú vilt bindast.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Almenn upprifjun á sambandi eða
aðstæðum leiðir þig að ákveðinni niðurstöðu
– þú þarft að grípa til uppbyggilegra aðgerða
án tafar. Það er kjarninn sem máli skiptir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú áttar þig á leiðum til þess að njóta
góðs af stórum stofnunum eða hinu op-
inbera. Mundu að uppörvun er vænlegri til ár-
angurs en skammir. Kynntu þér aðstæður og
vertu við öllu búin/n.
ÁAlþingi hefur verið mikið ortaf ýmsum tilefnum. Ingvar
Gíslason fyrrverandi mennta-
málaráðherra lætur fjúka í kvið-
lingum og er gott limruskáld.
Guðni Ágústsson þótti löngum gott
yrkisefni. Ingvar orti:
Kát er hryssa, kýr og ær,
kímir gylta og huðna
þegar varaformann fær
Framsókn á við Guðna.
Bók Guðna „Léttur í lund“ er
skemmtileg aflestrar og prýðir það
bókina og bætir að þar eru margar
stökur um og eftir stjórnmálamenn.
„Glaðnar yfir presti, býst við jarð-
arför“ er fyrirsögn á smellinni frá-
sögn af Gunnlaugi Stefánssyni í
Heydölum, sem kjörinn var á þing
1978 fyrir Alþýðuflokkinn, en hann
er bæði hestamaður og æðarbóndi.
Sá gamansami hagyrðingur Páll
Pétursson orti:
Ríður hrossum, reytir dún,
rífst á þingi, hvass á brún.
Svo er hann að syngja messu
sá er ekki lengi að þessu.
Guðni rifjar upp, að Vilhjálmur
Hjálmarsson á Brekku tók þá
ákvörðun, þegar hann varð
menntamálaráðherra, að vín yrði
ekki veitt í veislum hans enda bind-
indismaður. Andrés Eyjólfsson í
Síðumúla, sem sat á þingi fyrir
Framsóknarflokkinn 1951-1956,
orti:
Valdaferill verði þinn
vorri þjóð til nytja.
En veislur þínar, Villi minn,
vil ég ekki sitja.
Faðir Guðna, Ágúst Þorvaldsson,
sat á þingi fyrir Framsóknarflokk-
inn 1956-1974. Þegar hann lét af
þingmennsku kvaddi Friðjón Þórð-
arson hann með þessari stöku, sem
lýsir þeim báðum vel:
Seint verða lúnir sómamenn,
sjást úti á túni og hlöðum.
Fáni við hún er uppi enn,
Ágúst á Brúnastöðum.
Helgi Seljan, lengi þingmaður
Austfirðinga, orti eftir að Guðni
hafði flutt jómfrúrræðu sína á Al-
þingi:
Mér að skapi mjög svo er
málflutningur slíkur,
festulegur, fylginn sér,
föður sínum líkur.
Skemmtilegur kafli er um Jó-
hannes Kristjánsson eftirhermu, en
þeim Guðna þykir svipa saman og
fyrir hefur komið að ruglast hefur
verið á þeim. „Skáldin ortu um okk-
ur eins og bræður eða tvífara, m.a.
Hjálmar Jónsson,“ segir Guðni:
Ræðuna mína ljúfur les,
leiddur á nýjan stig.
Ég er að leika Jóhannes
og Jóhannes leikur mig.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stökur og stjórnmálamenn
Í klípu
„NEI, ÞÚ MÁTT EKKI FARA! OG EKKI
FLEIRI SPURNINGAR! ERU ÞETTA ÞAKK-
IRNAR SEM ÉG FÆ FYRIR AÐ LEYFA ÞÉR
AÐ HVÍLA SÆRÐU HÖNDINA?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bíða eftir að sjá
bílljósin hans.
NÝGIFT
NÝ-
SKILINN
LÍSA ER Í
HEIMSÓKN!
HÚN ER AÐ SKIPULEGGJA
FATASKÁPINN MINN.
FINNNUR ÞÚ
REYKJALYKT?
JÁ,
LOKSINS
FRJÁLS!
EFTIR MARGRA MÁNAÐA UNDIRBÚNING ERUM VIÐ
TILBÚNIR TIL AÐ LEGGJAST Í RÁNFERÐ TIL ALLRA
RÍKUSTU KASTALA EVRÓPU! VIÐ LEGGJUM AF STAÐ UM
LEIÐ OG SENDIBOÐINN MINN KEMUR AFTUR!
HRÓLFUR GLEYMDI
NESTINU SÍNU.
Þá er desember runninn upp, enneina ferðina. Með sínar vetrar-
sólstöður og tilheyrandi myrkur. Og
jólin.
Víkverji er líklega í meðallagi mikið
jólabarn – hefur gaman af ljósunum,
samverustundunum og góða matnum,
en leiðist stressið og aukna álagið sem
fylgir alla jafna aðdraganda jóla.
x x x
Jólahefðir eru skemmtilegt fyrir-bæri, og finnast svo að segja í
hverri fjölskyldu sem heldur á annað
borð jól. Þær geta snúist um hvað er á
borðum, í hvaða röð pakkarnir eru
teknir upp, hvar fjölskyldan kemur
saman, hver býður heim á jóladag eða
jafnvel í hvaða röð jólakortin eru lesin
upp.
Ein af jólahefðum Víkverja er að
klára jólagjafainnkaupin á Þorláks-
messu. Það er reyndar ekki sérlega
góð hefð. Víkverji telur það hins vegar
alveg nauðsynlegt að leyfa jólaand-
anum að hreiðra um sig í sálu sér áður
en hann hugleiðir hvað vinir og ætt-
ingjar fá í pakka undir sitt tré.
Sem er auðvitað argasta bull.
Víkverji ætlar því að lofa bót og
betrun og fara að skrifa jólagjafalista
eigi síðar en í dag. Og svo fer hann í
innkaupaleiðangur um helgina. Eða
næstu helgi. Alveg í síðasta lagi
helgina eftir það.
x x x
Annars gleður það Víkverja af-skaplega mikið hversu mörg jóla-
ljós eru þegar komin upp. Það veitir
ekkert af því, hér á hjara veraldar, að
bæta smá birtu í skammdegið.
Fyrir nokkrum árum tóku Íslend-
ingar sig saman og höfðu kveikt á jóla-
ljósum frameftir janúarmánuði, sumir
jafnvel lengur. Það er góður siður, en
þó hljóta að vera takmörk á hversu
lengi jólaljós eiga við.
Fyrir mörgum árum leigði Víkverji
íbúð í fjölbýlishúsi. Hann flutti inn í
febrúar og í apríl bankaði kona úr
stjórn húsfélagsins uppá. Hún spurði
Víkverja hvort hann ætlaði ekki að
fara að taka seríuna niður af svöl-
unum. Svölunum sem Víkverji hafði
ekki einu sinni komið út á, og vissi því
ekki að þar væri sería. „Sko, þetta
truflar mig ekkert,“ sagði konan, „en
gamla fólkið í blokkinni er farið að tala
um þetta.“ víkverji@mbl.is
Víkverji
Eins og hirðir mun hann halda hjörð
sinni til haga, taka unglömbin í faðm
sér og bera þau í fangi sínu en leiða
mæðurnar. (Jesaja 40:11)
ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð