Morgunblaðið - 02.12.2013, Síða 22

Morgunblaðið - 02.12.2013, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013 Afmælisgjöfina fékk ég fyrir helgina þegar dóttir okkar, Ing-unn, ól dreng sem er þriðja barnabarnið. Það er kraftaverkþegar barn fæðist og betri gjöf er varla hægt að fá,“ segir Bjarni Gíslason, upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, sem er 52 ára í dag. Sem endranær á aðventu stendur kirkjan fyrir jólasöfnun og því sem aflast er varið til verkefna í Afríkulöndum. Menntun og gerð vatnsbrunna í Eþíópíu hefur lengi verið áherslumál í þessu þjón- ustustarfi kirkjunnar og hvað því viðvíkur er Bjarni á heimavelli. Foreldar hans, Gísli Arneklsson og Katrín Guðlaugsdóttur sinntu hjálparstarfi og kristniboði ytra í ellefu ár, það er frá 1961 til 1972, og þar í landi ólst Bjarni upp. „Æskan í Eþóípíu mótaði lífssýn mína. Þar hafa margir úr litu að spila, aðstæður fólks eru erfiðar en eigi að síður er það æðrulaust. Á þeim sextíu árum sem Íslendingar hafa starfað í þessu landi hafa hins vegar góðir hlutir gerst og það sýnir vel hverju fámenn þjóð getur áorkað. Í pólitíkinni hefur heyrst að við Íslendingar ættum að einbeita okkur að hjáparstarfi hér heima í stað Afríku. Mér finnst þetta hins vegar ekki vera spurning um annaðhvort. Skyldur okkar ná yfir öll landamæri,“ segir Bjarni sem er kennari að mennt en hef- ur einnig numið fleira. Kona hans er Elísabet Jónsdóttir hjúkr- unarfræðingur og eiga þau fimm börn. sbs@mbl.is Bjarni Gíslason er 52 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Veröldin „Það er kraftaverk þegar barn fæðist og betri gjöf er varla hægt að fá.“ Bjarni Gíslason, glaður með þriðja afabarnið. Æskan í Eþíópíu mótaði lífssýn mína Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hafnarfjörður Árni Reynir fæddist 29. mars kl 23.40. Hann vó 3.310 g og var 49 cm langur. Foreldreldrar hans eru Guðleif Ósk Árnadóttir og Guð- mundur Snorri Sigurðsson. Nýir borgarar Reykjavík Fríða Lára fæddist 21. júní kl. 16.16. Hún vó 13 merkur og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigríður Elísa Eggertsdóttir og Gunnar Steinn Aðalsteinsson. M agnús fæddist í Reykjavík 2.12. 1963 og ólst þar upp í Hlíðunum og síðan í Hvassaleit- inu til 10 ára aldurs. Hann bjó í Garðabæ í tvö ár og síðan í Stykk- ishólmi fram að menntaskóla- árunum í MH. Hann lauk þaðan stúdentsprófi 1982, lauk B.Sc.-prófi í tölvunarfræði og stærðfræði 1985, starfaði á tölvudeild Kristjáns Ó. Skagfjörð í eitt ár, stundaði fram- haldsnám við Rutgers University í New Jersey í Bandaríkjunum og lauk þaðan doktorsprófi í tölv- unarfræði 1991. Magnús var aðstoðargistiprófess- or við Tokyo Institute of Techno- logy 1991-92 og við Japan Advanced Institute of Science and Technology 1992-95. Hann starfaði við Raunvís- indastofnun Háskólans frá 1995 og Magnús Már Halldórsson, prófessor í tölvunarfr. við HR – 50 ára Eiginkona og börn Frá vinstri: Tómas Ken, Halldóra Miyoko, Yayoi Shimomura og Þóra Sayaka. Á kafi í rannsóknum á sviði þráðlausra neta Í Japan Magnús ásamt eiginkonu og dætrum í þeirra fínasta pússi. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Tilboð á rúðuþurrkum Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is Með h verju m tve imur trico rúðuþ urrku m fylgja 5 lítra r af Vaski rúðuv ökva

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.