Morgunblaðið - 02.12.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.12.2013, Blaðsíða 4
100 ÁRA4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys tá n fy rir va ra . Köben frá aðeins kr. 9.900 Aðra leið, til eða frááfangastað, með sköttum. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Formenn ríkisstjórnaflokkanna voru sammála um að í 100 daga ferðalagi Morgunblaðsins um landið í tilefni af aldarafmæli þess endurspeglist bjartsýni og jákvæður tónn sem sé ríkjandi á landinu, þegar þeir ræddu við Harald Johannessen, ritstjóra blaðsins, í beinni útsendingu á mbl.is í gær. Hægt er að sjá upptöku af fund- inum á mbl.is. „Það er töluverð bjartsýni ríkjandi, kraftur og vilji til að framkvæmda og byggja upp. Það sem hefur kannski skort er að fólk fái jákvæða hvata. Það er markmið þessarar ríkis- stjórnar að breyta því,“ sagði Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, for- sætisráðherra. Haraldur spurði þá Bjarna út í hvernig væri hægt að auka fjöl- breytni í atvinnulífi á landsbyggðinni. Fjármálaráðherra lagði áherslu á að vissir grundvallarþættir þyrftu að vera í lagi til að fjölbreytnin yrði meiri. Samgöngur væru lykilatriði sem og menntun og tryggt fjar- skiptanet. „Heimurinn skreppur allur saman og fjarlægðir hverfa þegar við virkjum þá möguleika sem tæknin færir okkur. Ég tel að rafræn stjórn- sýsla og fjarskiptanet um allt landið geti umbylt þróuninni,“ sagði Bjarni og nefndi dæmi um opinber störf sem hefðu verið færð snurðulaust út á landsbyggðina frá höfuðborginni. Aðgerðir til skuldaniðurfellinga sem formenninnir kynntu á laug- ardag komu skiljanlega mikið til tals í umræðunum í gær. Haraldur spurði þá meðal annars hvaða áhrif þeir teldu aðgerðirnar hafa á kjarasamn- ingaviðræður sem eru framundan. „Það hlýtur að hafa jákvæð áhrif. Menn sjá þarna merki um viðsnúning á ýmsum sviðum efnahagslífsins og augljóst að verið sé að koma til móts við heimilin og bæta hag þeirra,“ sagði Sigmundur Davíð og lagði áherslu á að samningar leiddu til raunverulegrar kaupmáttaraukn- ingar. Bjarni tók undir þetta og var bjart- sýnn á framhaldið. Hugarfarsbreyt- ing hefði átt sér stað hjá aðilum vinnumarkaðarins undanfarið. Þá sé krónan stöðugri en í langan tíma, rík- issjóður sé í þokkalegu jafnvægi auk þess sem aðilar vinnumarkaðarins leiti leiða til að tryggja stöðugleika. „Ég tel að það kunni að vera að ger- ast núna að við séum að fá stjörnunar til að raðast upp rétt fyrir góða hluti,“ sagði Bjarni. „Stjörnurnar að raðast rétt upp“  Bjartsýni, kraftur og vilji til framkvæmda ríkjandi að mati forsætisráðherra  Tryggt fjarskipta- net auki fjölbreytni atvinnulífs landsbyggðarinnar  Skuldaaðgerðir jákvæðar fyrir kjarasamninga Morgunblaðið/Ómar Hringnum lokað Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræða við Harald Jo- hannesen, ritstjóra Morgunblaðsins, í Hörpu í gær. Með fundinum lauk 100 daga hringferð Morgunblaðsins. Þunglamalegt regluverk er stórt vandamál á Íslandi, sérstaklega fyrir minni fyrirtæki, og nánast ómögulegt er fyrir framtakssamt fólk að stofna fyrirtæki á sínu sviði að sögn forsætisráðherra. Hann sagði að til stæði að endurskoða allt regluverk til að bregðast við þessu og koma í veg fyrir að sú þróun héldi áfram. Horft væri til Bretlands til dæmis í þessum efnum, og hefði verið skoðað að koma upp regluráði með aðilum vinnumarkaðar til að hindra að reglugerðafargan yrði atvinnu- lífi fjötur um fót. Dýr íblöndun eldsneytis Sigmundur Davíð sagði Íslend- inga einnig hafa verið kaþólskari en páfann í því að innleiða ESB- reglugerðafargan sem hingað streymdi í gegnum EES-samning- inn. Hann sagði að það viðmið hefði verið sett að ekki kæmi inn frekari íþyngjandi reglur án þess að aðrar samsvarandi dyttu út á móti. Haraldur Johannessen ritstjóri spurði þá út í frumvarp um íblönd- unarefni í eldsneyti í þessu sam- hengi. Sigmundur Davíð svaraði að innleiðing þess væri afar dýr og að hann ætti von á að efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis brygðist við því. Morgunblaðið/Ómar Flókið Sigmundur Davíð Gunn- laugsson vill einfaldara regluverk. Íslendingar „kaþólskari en páfinn“ með reglugerðir „Þessi aðgerð sem var kynnt [í fyrradag] er í rauninni ákveðinn lokapunkturinn á fortíðina. Nú tökum við bara baksýnisspeglana af og horfum inn í framtíðina,“ sagði Sigurður Erlingsson, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs (ÍLS) eftir umræðurnar í gær þar sem skuldaaðgerðirnar bar töluvert á góma. Hann sagði mikla vinnu fram- undan hjá ÍLS vegna aðgerðanna. Næsta árið yrði mjög litað af þeim. Ísland að verða borgríki Mikilvægt er að borgin sé sam- keppnishæf við það sem er í boði erlendis til þess að fólk vilji áfram búa á Íslandi. Þetta sagði Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks, þegar hann var spurður út í innviði landsins að loknum umræðunum í gær. „Ísland er smám saman að breytast í borgríki. Ég held að það líði ekki á löngu að 80% lands- manna verði hér á suðvesturhorn- inu. Það skiptir öllu máli til fram- tíðar hvernig okkur tekst að búa að þegnunum hér á þessu svæði og búa þeim góð lífskjör svo þeir geti hugsað sér að búa hér áfram,“ sagði Kjartan. Næsta árið mikið lit- að af skuldaaðgerð Kjartan Magnússon Sigurður Erlingsson Fullveldisdag- urinn var í gær en 95 ár eru nú liðin frá því að Ísland öðlaðist fullveldi frá Danmörku. Haraldur rit- stjóri spurði þá Sigmund Davíð og Bjarna hvort mikil hátíðarhöld væru framundan á 100 ára full- veldisafmælinu. Forsætisráðherra lofaði heil- miklu fjöri og sagði jafnframt að halda mætti meira upp á fullveld- isdaginn. „Þetta er stórmerki- legur dagur í sögu landsins. Að Ísland, þessi eyja með rétt um 100.000 íbúa í Atlantshafinu, hafi náð að verða fullvalda ríki árið 1918 þegar ekki voru mörg full- valda ríki er býsna merkilegt og grundvöllur gríðarlegs framfara- skeiðs. Það eru fá dæmi um við- líka framfarir í einu samfélagi eins og menn sáu gerast á Íslandi eftir að landið varð fullvalda á 20. öldinni,“ sagði Sigmundur Davíð. Fullveldið grundvöll- ur framfaraskeiðs Iðnaðarráðuneytið er nú með frum- varp í vinnslu til að bregðast við misháum húshitunarkostnaði á landinu og koma til móts við svo- nefnd köld svæði. Þetta sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra í umræðunum í gær. Hann sagðist eiga von á því að hægt væri að hrinda því af stað nú í vetur til að draga úr kostnaði íbúa á þessum svæðum. Frumvarp um hús- hitunarkostnað Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði það koma fyllilega til greina að taka upp aðgangsgjald á einstökum ferðamannastöðum en það færi eftir stöðum hvaða útfærsla væri best. Forðast bæri þó að koma upp þunglamalegu kerfi til að innheimta tekjur af ferðamönnum með nýju sérstöku gjaldi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra nefndi í umræðunum um aukinn ferðamannastraum til landsins að arðsemi af ferðaþjónustunni hefði í flestum tilfellum ekki verið viðunandi. Nota þyrfti tækifærin nú til þess að auka arðsemina, meðal annars með því að dreifa ferðamannastraumnum yf- ir allt árið og víðar um landið. „Það væri þannig skemmtilegt að sjá beint flug til Akureyrar eða Eg- ilsstaða til að hafa gáttirnar inn í landið fleiri,“ sagði Sigmundur Davíð. Bjarni sagði mikilvægt að ekki væri hringlað með starfsumhverfi ferðaþjónustunnar og því hefði hækkun virðisaukaskatts á gistingu verið aftur- kölluð. Hann nefndi tónlistarhúsið Hörpu og ráð- stefnuhald þar sem dæmi um tekjumöguleika í ferðaþjónustu til framtíðar. Miklir möguleikar væru á að laða ráðstefnuhaldara hingað til lands vegna heppilegrar legu landsins miðja vegu á milli Banda- ríkjanna og Evrópu. Kemur til greina að rukka aðgangsgjald FORSÆTISRÁÐHERRA TELUR ARÐSEMI AF FERÐAÞJÓNUSTU EKKI VIÐUNANDI Náttúrugjald Bjarni Benediktsson sagðist ekki vilja þung- lamalegt kerfi til að innheimta gjöld af ferðamönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.