Morgunblaðið - 02.12.2013, Blaðsíða 4
100 ÁRA4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
Köben
frá aðeins kr.
9.900 Aðra leið, til eða frááfangastað, með sköttum.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Formenn ríkisstjórnaflokkanna voru
sammála um að í 100 daga ferðalagi
Morgunblaðsins um landið í tilefni af
aldarafmæli þess endurspeglist
bjartsýni og jákvæður tónn sem sé
ríkjandi á landinu, þegar þeir ræddu
við Harald Johannessen, ritstjóra
blaðsins, í beinni útsendingu á mbl.is í
gær. Hægt er að sjá upptöku af fund-
inum á mbl.is.
„Það er töluverð bjartsýni ríkjandi,
kraftur og vilji til að framkvæmda og
byggja upp. Það sem hefur kannski
skort er að fólk fái jákvæða hvata.
Það er markmið þessarar ríkis-
stjórnar að breyta því,“ sagði Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
sætisráðherra.
Haraldur spurði þá Bjarna út í
hvernig væri hægt að auka fjöl-
breytni í atvinnulífi á landsbyggðinni.
Fjármálaráðherra lagði áherslu á að
vissir grundvallarþættir þyrftu að
vera í lagi til að fjölbreytnin yrði
meiri. Samgöngur væru lykilatriði
sem og menntun og tryggt fjar-
skiptanet. „Heimurinn skreppur allur
saman og fjarlægðir hverfa þegar við
virkjum þá möguleika sem tæknin
færir okkur. Ég tel að rafræn stjórn-
sýsla og fjarskiptanet um allt landið
geti umbylt þróuninni,“ sagði Bjarni
og nefndi dæmi um opinber störf sem
hefðu verið færð snurðulaust út á
landsbyggðina frá höfuðborginni.
Aðgerðir til skuldaniðurfellinga
sem formenninnir kynntu á laug-
ardag komu skiljanlega mikið til tals í
umræðunum í gær. Haraldur spurði
þá meðal annars hvaða áhrif þeir
teldu aðgerðirnar hafa á kjarasamn-
ingaviðræður sem eru framundan.
„Það hlýtur að hafa jákvæð áhrif.
Menn sjá þarna merki um viðsnúning
á ýmsum sviðum efnahagslífsins og
augljóst að verið sé að koma til móts
við heimilin og bæta hag þeirra,“
sagði Sigmundur Davíð og lagði
áherslu á að samningar leiddu til
raunverulegrar kaupmáttaraukn-
ingar.
Bjarni tók undir þetta og var bjart-
sýnn á framhaldið. Hugarfarsbreyt-
ing hefði átt sér stað hjá aðilum
vinnumarkaðarins undanfarið. Þá sé
krónan stöðugri en í langan tíma, rík-
issjóður sé í þokkalegu jafnvægi auk
þess sem aðilar vinnumarkaðarins
leiti leiða til að tryggja stöðugleika.
„Ég tel að það kunni að vera að ger-
ast núna að við séum að fá stjörnunar
til að raðast upp rétt fyrir góða hluti,“
sagði Bjarni.
„Stjörnurnar að raðast rétt upp“
Bjartsýni, kraftur og vilji til framkvæmda ríkjandi að mati forsætisráðherra Tryggt fjarskipta-
net auki fjölbreytni atvinnulífs landsbyggðarinnar Skuldaaðgerðir jákvæðar fyrir kjarasamninga
Morgunblaðið/Ómar
Hringnum lokað Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræða við Harald Jo-
hannesen, ritstjóra Morgunblaðsins, í Hörpu í gær. Með fundinum lauk 100 daga hringferð Morgunblaðsins.
Þunglamalegt regluverk er stórt
vandamál á Íslandi, sérstaklega
fyrir minni fyrirtæki, og nánast
ómögulegt er fyrir framtakssamt
fólk að stofna fyrirtæki á sínu sviði
að sögn forsætisráðherra. Hann
sagði að til stæði að endurskoða allt
regluverk til að bregðast við þessu
og koma í veg fyrir að sú þróun
héldi áfram.
Horft væri til Bretlands til dæmis
í þessum efnum, og hefði verið
skoðað að koma upp regluráði með
aðilum vinnumarkaðar til að hindra
að reglugerðafargan yrði atvinnu-
lífi fjötur um fót.
Dýr íblöndun eldsneytis
Sigmundur Davíð sagði Íslend-
inga einnig hafa verið kaþólskari
en páfann í því að innleiða ESB-
reglugerðafargan sem hingað
streymdi í gegnum EES-samning-
inn. Hann sagði að það viðmið hefði
verið sett að ekki kæmi inn frekari
íþyngjandi reglur án þess að aðrar
samsvarandi dyttu út á móti.
Haraldur Johannessen ritstjóri
spurði þá út í frumvarp um íblönd-
unarefni í eldsneyti í þessu sam-
hengi. Sigmundur Davíð svaraði að
innleiðing þess væri afar dýr og að
hann ætti von á að efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis brygðist við
því.
Morgunblaðið/Ómar
Flókið Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson vill einfaldara regluverk.
Íslendingar „kaþólskari en
páfinn“ með reglugerðir
„Þessi aðgerð sem var kynnt [í
fyrradag] er í rauninni ákveðinn
lokapunkturinn á fortíðina. Nú
tökum við bara baksýnisspeglana
af og horfum inn í framtíðina,“
sagði Sigurður Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs (ÍLS)
eftir umræðurnar í gær þar sem
skuldaaðgerðirnar bar töluvert á
góma.
Hann sagði mikla vinnu fram-
undan hjá ÍLS vegna aðgerðanna.
Næsta árið yrði mjög litað af
þeim.
Ísland að verða borgríki
Mikilvægt er að borgin sé sam-
keppnishæf við það sem er í boði
erlendis til þess að fólk vilji áfram
búa á Íslandi. Þetta sagði Kjartan
Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, þegar hann var
spurður út í innviði landsins að
loknum umræðunum í gær.
„Ísland er smám saman að
breytast í borgríki. Ég held að það
líði ekki á löngu að 80% lands-
manna verði hér á suðvesturhorn-
inu. Það skiptir öllu máli til fram-
tíðar hvernig okkur tekst að búa
að þegnunum hér á þessu svæði
og búa þeim góð lífskjör svo þeir
geti hugsað sér að búa hér
áfram,“ sagði Kjartan.
Næsta árið mikið lit-
að af skuldaaðgerð
Kjartan
Magnússon
Sigurður
Erlingsson
Fullveldisdag-
urinn var í gær
en 95 ár eru nú
liðin frá því að
Ísland öðlaðist
fullveldi frá
Danmörku.
Haraldur rit-
stjóri spurði þá
Sigmund Davíð
og Bjarna hvort mikil hátíðarhöld
væru framundan á 100 ára full-
veldisafmælinu.
Forsætisráðherra lofaði heil-
miklu fjöri og sagði jafnframt að
halda mætti meira upp á fullveld-
isdaginn. „Þetta er stórmerki-
legur dagur í sögu landsins. Að
Ísland, þessi eyja með rétt um
100.000 íbúa í Atlantshafinu, hafi
náð að verða fullvalda ríki árið
1918 þegar ekki voru mörg full-
valda ríki er býsna merkilegt og
grundvöllur gríðarlegs framfara-
skeiðs. Það eru fá dæmi um við-
líka framfarir í einu samfélagi
eins og menn sáu gerast á Íslandi
eftir að landið varð fullvalda á
20. öldinni,“ sagði Sigmundur
Davíð.
Fullveldið grundvöll-
ur framfaraskeiðs
Iðnaðarráðuneytið er nú með frum-
varp í vinnslu til að bregðast við
misháum húshitunarkostnaði á
landinu og koma til móts við svo-
nefnd köld svæði. Þetta sagði
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra í umræðunum í gær.
Hann sagðist eiga von á því að
hægt væri að hrinda því af stað nú í
vetur til að draga úr kostnaði íbúa
á þessum svæðum.
Frumvarp um hús-
hitunarkostnað
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði það
koma fyllilega til greina að taka upp aðgangsgjald á
einstökum ferðamannastöðum en það færi eftir
stöðum hvaða útfærsla væri best. Forðast bæri þó
að koma upp þunglamalegu kerfi til að innheimta
tekjur af ferðamönnum með nýju sérstöku gjaldi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra
nefndi í umræðunum um aukinn ferðamannastraum
til landsins að arðsemi af ferðaþjónustunni hefði í
flestum tilfellum ekki verið viðunandi. Nota þyrfti
tækifærin nú til þess að auka arðsemina, meðal
annars með því að dreifa ferðamannastraumnum yf-
ir allt árið og víðar um landið. „Það væri þannig
skemmtilegt að sjá beint flug til Akureyrar eða Eg-
ilsstaða til að hafa gáttirnar inn í landið fleiri,“
sagði Sigmundur Davíð.
Bjarni sagði mikilvægt að ekki væri hringlað með
starfsumhverfi ferðaþjónustunnar og því hefði
hækkun virðisaukaskatts á gistingu verið aftur-
kölluð. Hann nefndi tónlistarhúsið Hörpu og ráð-
stefnuhald þar sem dæmi um tekjumöguleika í
ferðaþjónustu til framtíðar. Miklir möguleikar væru
á að laða ráðstefnuhaldara hingað til lands vegna
heppilegrar legu landsins miðja vegu á milli Banda-
ríkjanna og Evrópu.
Kemur til greina að rukka aðgangsgjald
FORSÆTISRÁÐHERRA TELUR ARÐSEMI AF FERÐAÞJÓNUSTU EKKI VIÐUNANDI
Náttúrugjald Bjarni Benediktsson sagðist ekki vilja þung-
lamalegt kerfi til að innheimta gjöld af ferðamönnum.