Morgunblaðið - 02.12.2013, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
REKSTRAR- OG
ÖRYGGISVÖRUR
VERKTAKANS
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
Gull með afhendingu í febrúar
bætti við sig um 1% í viðskiptum á
föstudag og endaði í 1.250,40 döl-
um. Þrátt fyrir þessa hækkun
lækkaði málmurinn yfir nóvember-
mánuð um nærri 6,55, að því er
MarketWatch greinir frá.
Hefur hlutfallsleg lækkun gulls
ekki verið meiri síðan í júní þegar
málmurinn veiktist um 12,2%. Frá
ársbyrjun hefur gull lækkað um
rúmlega 25%. Gullverð náði há-
marki í setember 2011 í röskum
1.900 dölum á únsuna.
Nóvember var líka slæmur fyrir
silfurmarkað. Silfur með afhend-
ingu í mars hækkaði um 1,7% á
föstudag en dugði það ekki til að
bæta upp lækkunina í mánuðinum
sem nam samtals tæpum 10%.
Hráolía með afhendingu í janúar
hækkaði um 0,4% á föstudag og
endaði í 92,72 dölum á fatið. Nam
lækkunin í nóvember 3,7%. Mark-
aðsgreinendur rekja lækkun hrá-
olíu til flöskuhálsa í eldsneytis-
framleiðsluferlinu. Framleiðsla
hráolíu hafi aukist en olíuvinnsla
ekki haldið í við þróunina og því
safnist upp umframbirgðir af hrá-
olíu sem þvinga verðið niður.
ai@mbl.is
AFP
Skínandi Starfsmaður sýnir agnarsmáa gullplötu fengna úr gull-sjálfsala í
Medellin, Kólumbíu. Gullverð hefur lækkað um fjórðung það sem af er ári.
Mesta mánaðarlækkun
gulls síðan í sumar
Hráolía lækkar vegna flöskuhálsa í olíuvinnslu
Kínverska innkaupastjóravísitalan í
nóvember mældist 51,4 stig og er
óbreytt frá októbermánuði. Er þetta
nokkru sterkari mæling en búist
hafði verið við en markaðs-
greinendur reiknuðu með 51,1 stigi.
Kínverska innkaupastjóra-
vísitalan er mæld á skala þar sem
mæling undir 50 stigum sýnir sam-
drátt en mæling yfir 50 stigum
aukningu.
Búist hafði verið við vægri lækk-
un þar sem aðrar mælingar höfðu
bent til samdráttar í útlánum, hæg-
ari lagerveltu hjá fyrirtækjum og
óvissu varðandi eftirspurn á heims-
vísu.
Reuters segir að markaðurinn
muni taka því vel að innkaupastjóra-
vísitalan var umfram væntingar
enda gefi það til kynna að stjórnvöld
í Kína séu þá betur í stakk búin til að
ráðast í þær umfangsmiklu breyt-
ingar á skipulagi hagkerfisins sem
kynntar voru í nóvember og miða
eiga að auknu frelsi á markaði.
ai@mbl.is
AFP
Shanghaí Innkaupastjóravísitalan
mælist sterk í nóvember.
Tölur enn sterkar
í kínverskum iðnaði
Álitsgjafar virðast skiptast í tvær
fylkingar um ágæti þeirrar þróunar
sem orðið hefur á verði bitcoin síð-
ustu vikurnar og
mánuðina. Ann-
ars vegar eru
þeir sem telja
skarpa verð-
hækkunina skóla-
bókardæmi um
bólu og spákaup-
mennsku á með-
an aðrir spá því
að Bitcoin sé rétt
að byrja og þar sé á ferðinni tíma-
mótagjaldmiðill sem eigi mikið inni.
Sumir segja bitcoin gjaldmiðil
framtíðarinnar á meðan aðrir tala
um „stafræna túlípana“ og vísa þar í
frægt atkvik í hagsögunni þegar
mikil bóla myndaðist á hollenska túl-
ípanamarkaðinum árið 1637.
Á sunnudag var meðalverð bitcoin
í kringum 1.152 dali en var í radíus
við 800-900 dala markið fyrir viku
og kringum 200 dala markið í byrjun
nóvember. Hefur bitcoin því hækkað
nærri sexfalt í verði yfir mánuðinn.
Reuters greinir frá að á miðviku-
dag hafi rafræni gjaldmiðillinn um
stund verið í hærra verði en gull-
únsan.
Leitar að milljarði á haugunum
Forbes og AFP greina frá hvernig
þessi mikla hækkun hefur orðið þess
valdandi að breskur tölvufiktari,
James Howells að nafni, er núna að
róta í ruslahaugum bæjarins New-
port í Wales. Árið 2009 keypti Ho-
wells 7.500 bitcoin-einingar þegar
gjaldmiðillinn var nánast verðlaus.
Geymdi hann gögnin sem þarf til að
nálgast bitcoin-myntirnar á hörðum
diski, sem hann svo henti í hugs-
unarleysi fyrr á árinu. Án harða
disksins getur Howells ekki nálgast
bitcoin-safnið sitt sem á markaðs-
verði helgarinnar ætti að vera um
8,6 milljóna dala virði, jafnvirði rétt
rösklega milljarðs króna.
ai@mbl.is
Áfram hækkar bitcoin
Kostar nærri jafn mikið og gullúnsa
Nærri sexfaldaðist í verði í nóvember
Kóði Bóla eða bylt-
ing? Bitcoin er á
miklu flugi Tölur frá bandarískum smásölum
benda til þess að jólavertíðin hafi
byrjað af meiri krafti en í fyrra. Salan
á „svarta föstudag“, stóra útsöludag-
inn strax á eftir þakkargjörðardegi,
dróst saman um 13,2% samkvæmt
mælingum ShopperTrak, en saman-
lögð salan í byrjun þakkargjörðar-
helgarinnar var 2,3% meiri en í fyrra.
Mest var aukningin í vesturhluta
Bandaríkjanna þar sem salan batnaði
um 6% milli ára. Vonskuveður dundu
á norðausturhluta Bandaríkjanna
skömmu fyrir þakkargjörðardag og
hafði þau áhrif að salan dróst saman
um 7%.
MarketWatch segir tölurnar sýna
að neyslumynstrið í upphafi jólasölu-
tímabilisins er að breytast og fleiri
velja að heimsækja verslanir á þakk-
argjörðardag en að verja deginum
heima fyrir með kalkúnasteik og ætt-
ingjum.
Sundurliðaðar tölur hafa þegar
borist frá Wal-Mart-keðjunni sem af-
greiddi ríflega tíu milljón viðskipta-
vini á föstudag, frá því búðir voru opn-
aðar kl. 6 að morgni þangað til þeim
var lokað kl. 10.
Seldust m.a. tvær milljónir sjón-
varpstækja, 1,4 milljónir spjaldtölva
og 1,9 milljónir af dúkkum.
Metsöluvaran í ár kemur á óvart,
en 2,8 milljón handklæði seldust í
verslunum Wal-Mart á svarta föstu-
dag. Gátu viðskiptavinir fengið eitt
baðhandklæði eða sex viskustykki á
1,74 dali, jafnvirði um 200 kr.
ai@mbl.is
AFP
Kraðak Margir Bandaríkjamenn notuðu tækifærið á föstudag til að kaupa sér eitthvað skemmtilegt með góðum af-
slætti. Viðskiptavinir standa í röð í stiga aðalverslunar Apple á Manhattan, ólmir að nýta sér tilboðin.
Jólasalan vestan-
hafs fer vel af stað
Handklæði, sjónvörp og spjaldtölvur ruku út hjá Wal-Mart