Morgunblaðið - 02.12.2013, Qupperneq 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013
✝ Toma Andru-saityte fæddist
í Radviliskis í
Litháen 11. mars
1986. Hún lést í
Reykjavík 4. nóv-
ember 2013.
Toma lauk námi
frá Radviliskio Liz-
deikos Gimnazija í
Litháen. Eftir
skólagöngu flutti
Toma til Kalmar í
Svíþjóð þar sem hún dvaldi í
nokkur ár. Til Íslands flutti hún
árið 2007 og festi hér rætur, en
móðir hennar, Marija Anzeliene,
hafði tímabundna búsetu hér á
landi vegna vinnu.
Toma lauk
grunnnámi flug-
freyju og flugþjóna
frá Flugskóla Ís-
lands árið 2012.
Hún starfaði við
hótel og veit-
ingastörf hér á
landi. Toma lætur
eftir sig son, And-
rzej Andrusaitis, f.
13. september
2010.
Útför Toma fór fram frá
Kristskirkju, Landakoti, 27.
nóvember 2013. Hún verður
jarðsett í Litháen.
Ég á erfitt með að trúa því að
þetta skuli vera raunveruleikinn,
hvað lífið getur verið alvarlegt þó
að við neitum stundum að svo sé.
Í dag streyma tár niður kinnarn-
ar á mér á meðan ótti, ráðaleysi,
gremja og söknuður þjóta í gegn-
um hver einustu efnaskipti sem
eiga sér stað í líkama mínum. Ég
beið eftir því að vakna frá þessum
slæma draumi þegar ég heyrði af
andláti Tomu, sem síðar reyndist
vera lífið sjálft eins og það getur
verið átakanlegt á stundum.
Maður veit aldrei hvaða verkefni
bíða manns í þessu jarðneska lífi
sem geta verið misjafnlega erfið.
Spurningin er ávallt sú hvernig
maður tekst á við þau verkefni
þegar þau koma fram í dagsljós-
ið. Nú hefur Toma fengið hvíldina
sína þar sem ekkert af þessum
jarðnesku verkefnum bíða henn-
ar lengur heldur annars konar
verkefni sem við, sem eftir sitj-
um, fáum að kynnast þegar okkar
tími kemur.
Toma flutti hingað til Íslands
sem var hálfgerð skyndiákvörð-
un. Hún ætlaði fyrst um sinn að
heimsækja móður sína, sem var
þá búsett hér á landi, en ætlaði þó
ekki að staldra við nema í nokkr-
ar vikur. Raunveruleikinn varð
annar þar sem Ísland varð henn-
ar annað heimaland þar sem hún
kvaddi okkur nokkrum árum síð-
ar. Erfiðast er að fá svar við öll-
um þeim spurningum sem
brenna á manni þegar ung mann-
eskja fellur frá.
Það sem ég hef lært er að lífið
er ekki leit að hinni fullkomnu
hamingju heldur verður maður
að finna hamingjuna innra með
sér og vera þakklátur fyrir það
sem maður gerir og hefur í dag.
Í dag er ég þakklátur að hafa
fengið að kynnast Tomu, hún
mun alltaf vera kafli í mínu lífi
sem ég mun horfa jákvæðum
augum á og nota þá reynslu og
þann styrk sem ég hef fengið til
að halda áfram í lífinu.
Í lokin vil ég koma fram þakk-
læti mínu til allra þeirra sem
stóðu að sálumessunni sem fór
fram frá Landakotskirkju. Sér-
stakar þakkir vil ég senda til
Rúnars Geirmundssonar, séra
Patricks Breen, Jurgita Mo-
tiejnait, Renata Pratusyté og
fjölskyldu Tomu sem búsett er í
Litháen. Þau gáfu okkur sem
þekktum Tomu hér á Íslandi
tækifæri til þess að kveðja Tomu
og einnig tækifæri til að þakka
fyrir okkur með fallegri athöfn.
Mig vantar svör,
á ekki fleiri tár.
Engill ræður för
þegar ég verð gamall og grár.
Veröldin er grimm
hvað sem hefur skeð.
Þó nóttin þín sé dimm
vakir engill yfir þér.
Þegar mig kennir til
þá veit ég og skil
einhver æðri en ég er hér
sem vakir yfir mér.
Hún farin frá þér er
einn og yfirgefinn.
Einhver vakir yfir þér
þá hverfur frá þér efinn.
Þér leið ekki vel
á fasi þínu sást
þín gríma örþunn skel
þú gafst alla þína ást.
Rangt eða rétt?
að elska er aldrei létt
Engill, hann er hér
hann vakir yfir mér.
(Ásbjörn Morthens.)
Megi Guð leiðbeina og gefa
litla gullmolanum þínum, And-
rzej, styrk og kraft í sinni fram-
tíð. Guð blessi þig og varðveiti
þig, Toma. Þú gleymist aldrei.
Takk fyrir allt saman.
Þinn vinur,
Gunnar Magnús
Halldórsson Diego.
Toma
Andrusaityte
✝ Reynir ÁgústÁrnason fædd-
ist í Reykjavík 25.
ágúst 1963. Hann
lést mánudaginn
18. nóvember
2013.
Foreldrar hans
voru Hanna Krist-
jánsdóttir, f. 23.4.
1922, d. 5.10.
1979, og Árni
Hlöðver Árnason,
f. 19.12. 1927, d. 11.1. 1980.
Reynir var yngstur sex
systkina. Elst Sigríður, þá
Hrefna, látin 2011,
Alfreð, Viðar og
Sigurgeir.
Reynir ólst upp
á Meistaravöll-
unum og vann ým-
is störf, s.s. við
fiskvinnslu, sölu-
mennsku og síð-
ustu ár við leigu-
bílaakstur.
Reynir Ágúst
Árnason verður
jarðsungin frá Grafarvogs-
kirkju í dag, 2. desember 2013,
og hefst athöfnin kl. 13.
Leiðin lá úr Camp Knox á
Meistaravellina. Þar ólst Reyn-
ir upp, átti góða tíma og hafa
æskufélagarnir haldið hópinn.
Er mamma dó fluttist Reynir
til Alla bróður, aðeins 16 ára og
var í góðri umönnun hjá Alla og
Steinu. Það má segja að hann
og Siggi sonur þeirra hafi alist
upp saman, þeir urðu miklir
vinir og hélst sú vinátta alla tíð.
Seinna kom Reynir til okkar
Sirrýjar vestur til Bolungarvík-
ur. Þar undi hann sér vel og
kynntist mörgum. Það urðu
alltaf fagnaðarfundir þegar
Reynir kom í heimsókn og
höfðu strákarnir okkar gaman
af að hlusta og taka þátt sam-
ræðum.
Reynir keyrði leigubíl síð-
ustu ár og áttum við góða stund
saman í sumar þegar ég tók
leigubíl frá flugvellinum og
Reynir við stýrið. Hann kom
heim í kaffi og það voru okkar
síðustu stundir saman.
Þeir segja mig látinn, en ég lifi
samt,
Og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum ber þar að hafna.
Frá hjarta mínu berst falleg rós,
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og gleði ég senda mun ljós,
sem ykkur er ætlað að gleðja.
(Höf. ók.)
Reynir ferðaðist mikið, fór
mikið til Asíu og var óhræddur
að fara ókunnar slóðir.
Elsku Reynir, nú ert þú far-
in í þitt síðasta ferðalag. Guð
veri með þér.
Viðar Ernir.
Reynir Ágúst
Árnason
✝ GuðmundurHelgason
fæddist í Reykja-
vík 1. desember
1927. Hann lést 19.
nóvember 2013.
Guðmundur var
yngsta barn
hjónanna Helga
Guðmundssonar,
bankastjóra, f.
1890, d. 1972, og
konu hans, Kar-
ítasar Ólafsdóttur, f. 1894, d.
1951. Systkini Guðmundar
voru Þóra, f. 1922, d. 1996,
Ólafur, f. 1924, d. 1997 og
Kristín, f. 1925, d. 2013.
Guðmundur kvæntist 21.
febrúar 1948 Katrínu Sverr-
isdóttur Thoroddsen, f. 1928.
Hún lést 22. mars 2012. For-
eldrar Katrínar voru Sverrir
Skúlason Thoroddsen, banka-
fulltrúi, f. 1904, d. 1982, og
kona hans, Helga Laufey Eyj-
ólfsdóttir, f. 1905, d. 1983.
Systkini Katrínar: Theódóra, f.
1929, Guðmundur Hrafn, f.
1936, d. 1936, Guðmundur
Hrafn, f. 1937, Kristín Ólína, f.
1940, d. 2013 og Helga Ragn-
hildur, f. 1944.
Katrín og Guðmundur eign-
uðust sex börn. Þau eru Helgi,
f. 1947, kvæntur
Oddnýju Ósk-
arsdóttur, Katrín,
f. 1949, Sverrir, f.
1950, kvæntur
Ástu Kristínu H.
Björnsson, Guð-
mundur, f. 1954,
kvæntur Önnu
Friðriksdóttur,
Eyjólfur, f. 1957,
kvæntur Emilíu
Maríu Gunn-
arsdóttur, og Guðrún, f. 1960, í
sambúð með Páli Alfreðssyni.
Barnabörnin eru 17 og barna-
barnabörnin eru 19.
Guðmundur lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1947 en síðan prófi í
rafvirkjun frá Iðnskólanum í
Reykjavík. Hann nam síðan
tæknifræði við Tækniháskól-
ann í Stokkhólmi og útskrif-
aðist þaðan sem rafmagns-
tæknifræðingur 1955. Hann
starfaði hjá Rafmagnsveitum
ríkisins 1955-1967 og hjá
Landsvirkjun 1967-1992. Hann
var rekstrarstjóri Landsvirkj-
unar frá árinu 1984 allt þar til
hann lét af störfum í árslok
1992.
Útför Guðmundar fór fram í
kyrrþey 28. nóvember 2013.
Enn fækkar vinum mínum og
jafnöldrum, því nú hefur kvatt
okkur Guðmundur Helgason,
„Gummi“, en hann var helsti vinur
minn frá því að við lásum saman
utanskóla fyrir inntökupróf í
Menntaskólann í Reykjavík. Fyrr
höfðum við haft nokkuð saman að
sælda, eins og við mánaðarlangt
sundnámskeið á Álafossi 1936.
Það árið kom kóngurinn og kann-
aði hópinn. Að vísu hafnaði Krist-
ján X því að skála við okkur í lýsi,
en Sigurjón á Álafossi lét okkur
nefnilega skála við gesti og hvern
við annan í þeim vökva úr fullum
eggjabikurum. Vinskapur okkar
hefur svo haldist óskertur gegn-
um árin, en jafnframt vorum við
svilar, því Stína systir hans var
gift Einari bróður mínum og jók
það jafnvel á samskiptin.
Ævistarf mitt var ferða-
mennska, því sem flugstjóri hjá
ýmsum flugfélögum var ég á flugi
um allar álfur heims. En þrátt fyr-
ir ferðalög mín, voru ferðalög okk-
ar Gumma með konum okkar,
Katrínu (Trinsu) og Hrefnu ár-
viss, ýmist innanlands eða utan.
Var þá gist í tjöldum, á hótelum
eða sumarbústöðum, sem oft til-
heyrðu Rafveitunum, en hans ævi-
starf var við þær stofnanir. Eru
endurminningar um þær ferðir
ógleymanlegar, hvort sem farið
var t.d. til Steingrímsfjarðar,
Húsavíkur, Barcelóna eða Búda-
pest.
Faðir Gumma var Helgi Guð-
mundsson bankastjóri, sem hafði
verið verzlunarfulltrúi Íslands í
Barcelóna snemma á öldinni, sem
leið. Því var hugur Gumma nærri
því landi og hafði spánska borg-
arastyrjöldin á hann varanleg
áhrif. Hann hélt ákaft með lýð-
veldissinnum og var því að sjálf-
sögðu gegn falangistum Frankós
og öðrum fasistaöflum, enda sam-
rýmdist það hans pólitísku lífssýn.
Með kveðju frá fjölskyldu og
systkinum,
Ragnar G. Kvaran.
Guðmundur
Helgason
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BERGÞÓRA JENSEN,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Droplaugar-
stöðum föstudaginn 22. nóvember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 4. desember kl. 13.00.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Árni Árnason,
Sigríður Anný Gunnlaugsdóttir, Ægir Breiðfjörð,
Steinunn Gunnlaugsdóttir, Brjánn Árni Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, stjúpmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR,
áður Dalbraut 27,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 3. desember kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
félag langveikra barna.
Magnús Stefánsson, Lilja Kristinsdóttir,
Ólafía Ragnarsdóttir, Björgvin Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur sonur minn, faðir, tengdafaðir, afi,
og bróðir,
VIÐAR GÍSLASON,
Gautavík 27,
Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut 23. nóvember.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 4. desember kl. 13.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Krabbmeinsfélagið.
Dagbjört Ólafsdóttir,
Andrés Viðarsson, Margrét Helga Skúladóttir,
Telma Svava Andrésdóttir,
Svanbjörg Gísladóttir,
Ester Gísladóttir,
Þórir Gíslason.
✝
Okkar kæri bróðir,
JÓHANNES GUNNLAUGSSON
frá Bakka í Víðidal,
Mjölnisholti 6,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 23. nóvember, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn
4. desember kl.13.00.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
Elísabet Gunnlaugsdóttir,
Aðalheiður R. Gunnlaugsdóttir,
Ragnar Gunnlaugsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
ÁSGEIR KJARTANSSON,
Strýtuseli 1,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
þriðjudaginn 19. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Skógarbæjar
fyrir hlýtt viðmót og góða umönnun.
Pálína Gunnmarsdóttir,
Ásgeir Þór Ásgeirsson,
Sólveig Ásgeirsdóttir og Dagný Lilja.
Elsku maðurinn minn, sonur, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUNNAR HELGI EMILSSON
húsasmíðameistari
Aratúni 17, Garðabæ,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi 31.
október. Kveðjustund fór fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir færum við Tryggva B.
Stefánssyni,starfsfólki LSH, deild 11E og
líknardeildar Kópavogs.
Anna Kr. Thomsen,
Hrefna Ólafsdóttir, Emil Geir Guðmundsson,
Emil Geir Gunnarsson,
Elna Ósk Gunnarsdóttir, Anders Billing,
Viktor Gunnar Billing, Ester Anna Billing.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
ZOPHONÍASAR FRÍMANNSSONAR
frá Syðsta-Mó í Fljótum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar fyrir
hlýhug og yndislega umönnun.
Sigurbjörg Sveinsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.