Morgunblaðið - 02.12.2013, Side 20

Morgunblaðið - 02.12.2013, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 2013 Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Bílaþjónusta Veitingastaðir Heitt og kalt jólahlaðborð Ódýrt og girnilegt! Fyrir jólagleðina heima eða á vinnustaðnum Nánar á sjavarbarinn.is s. 517 3131 • Síldarréttir • Sjávarréttafantasía • Purusteik • Hangikjöt • Kjúklingur • Heit sósa, brúnaðar kartöflur og kartöflujafningur • Fjölbreytt grænmeti og ferskt salat • Kaldar sósur og úrval af brauði Kr. 1.990 á mann SumarhúsHúsviðhald Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Glerjun og gluggaviðgerðir Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum smíðaverkefnum. Kortaaðgangskerfi fyrir húsfélög/ sameignir - engir lyklar. Glugga- og hurðaþjónustan, s. 895 5511, smidi.is Hljóðfæri Þjóðlagagítarpakki: kr. 23.900. Gítar, poki, ól, auka- strengir, stilliflauta og kennslu- forrit. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27, s. 552 2125. www.gitarinn.is, gitarinn@gitarinn.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is s. 551-6488. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Atvinnuhúsnæði Skrifstofuherbergi til leigu Lítil og meðalstór skrifstofuherbergi með aðgangi að interneti, kaffistofu og wc, miðsvæðis í Reykjavík. Upplýsingar í síma: 899-3760. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl ✝ Gerda MartaJónsson fæddist í Kaupmannahöfn 29. maí 1924. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 13. nóvember 2013. Hún var dóttir hjónanna Lilly og Vilhelm Hansen. Gerda átti tvö systkin, þau Vil- helm og Bitten. Þau eru bæði látin. Gerda átti einnig hálfbróður, Eigil, og er hann enn á lífi. Eiginmaður Gerdu var Grím- ur Jónsson læknir, f. í Reykja- vík 28. september 1920, d. 23. mars 2004. Grímur var sonur hjónanna Jóns Hjaltalíns Sig- urðssonar prófessors og Ragn- heiðar Grímsdóttur Thor- arensen. Grímur lést 23. mars 2004. Gerda og Grímur gengu í hjónaband 3. júní 1949. Börn þeirra eru: 1) Grímur Jón Grímsson, maki Helga Guðjóns- og Davíð Þór. Bergljót og Gunnar eiga sex barnabörn. 6) Egill Grímsson, maki Guðrún Garðarsdóttir; börn þeirra eru Elín Helga og Svava. Gerda ólst upp í Kaupmanna- höfn. Stuttu eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk fór Gerda til Íslands. Hingað var hún komin til starfa á Vífils- staðahæli. Þar lágu leiðir henn- ar og Gríms saman. Gerda fylgdi manni sínum í hans störf- um og víða lágu leiðir. Grímur var aðstoðarlæknir á Vífils- staðahæli 1949-1950, var náms- kandídat á Landspítalanum 1950 til 1951. Hann var aðstoð- arlæknir á Avnstrup í Dan- mörku 1951 til 1953, aðstoð- arlæknir á Arvika Sanatorium og lungnasjúkrahúsi 1953 til 1954, aðstoðarlæknir á Vífils- stöðum 1955. Grímur var skip- aður héraðslæknir í Reykhóla- héraði 1955-1956, héraðslæknir í Laugaráshéraði 1956 til 1966 og héraðslæknir í Hafnarfjarð- arhéraði frá 1966 til 1988. Á þessari löngu leið fylgdi Gerda manni sínum, ásamt ört stækk- andi barnahóp.Var hún manni sínum stoð og stytta í hans störfum. Útför Gerdu hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. dóttir; börn þeirra Guðjón, Grímur og Kristín Alda. Grím- ur Jón og Helga eiga átta barna- börn. 2) Lárus Grímsson, maki Jó- hanna Daðey Krist- mundsdóttir; börn þeirra eru Þórdís Harpa, Gerða Kristín, Karen Ýr og Jóhanna Ragn- heiður. Lárus og Jóhanna Dað- ey eiga sex barnabörn. 3) Þór- arinn Grímsson, maki Sigrún Sæmundsdóttir; börn þeirra eru Gerður, Sólveig og Berglind. Þórarinn og Sigrún eiga sjö barnabörn. 4) Jónína Ragnheið- ur Grímsdóttir, maki Ágúst Ólafsson; börn þeirra eru Guð- björg Inga, Ágúst Már og Grím- ur Örn. Jónína Ragnheiður og Ágúst eiga sjö barnabörn. 5) Bergljót Grímsdóttir, maki Gunnar Jóhann Friðriksson; börn þeirra eru Kristján Gunn- ar, Arne Kristinn, Kristín María Kveðja til mömmu. Elsku mamma okkar er dáin. Löng og erfið veikindi mörkuðu síðustu sporin hennar og hún var orðin mjög þreytt. Á kveðjustund koma svo ótal- margar hugsanir fram; minningar skjóta upp kollinum, samveru- stundir rifjast upp. Mamma okkar gerði allt sem hún tók sér fyrir hendur af heilum hug. Hún var fljót að öllu; sama hvað það var, að prjóna, að elda mat, að færa hús- gögn, listinn gæti orðið langur en látum hér við sitja. Mamma var þannig, að alltaf var hægt að leita til hennar, með lítil mál og stór. Hún kunni að hlusta og þú áttir alltaf hauk í horni þar sem mamma var. Hún var heima- vinnandi alla tíð og aldrei kom maður heim að tómu húsi. Þegar unglingsárin gengu í garð var mamma okkar besti vinur. Hún hafði skilning á því hvað þýtur um unga hugi og hafði gaman af því að spjalla við okkur krakkana þegar komið var seint heim á kvöldin. Á þennan skemmtilega hátt gat hún líka fylgst svolítið með og tekið stöðuna á sínu fólki, ef þörf var á. Eftir að við uxum úr grasi og stofnuðum okkar eigin fjölskyldur voru mamma og pabbi aldrei langt undan. Alltaf var hægt að leita til mömmu, hún átti ráð undir rifi hverju. Hún studdi við bakið á okk- ur og hjálpaði á hvern þann máta sem hún gat. Þegar við hugsum til baka rifj- ast margt upp. Flestar þessara minninga eru fullar af hlátri og gleði, því hún mamma var með af- skaplega létt skap og sá spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Þannig er gott að minnast mömmu; glöð og hlæjandi, falleg og hraust. Við erum óendanlega þakklát fyrir hana mömmu og allt sem hún gerði fyrir okkur. Söknuðurinn er vissulega sár en tími hennar var kominn. Nú er hún með pabba og þau haldast í hendur og láta sér líða vel í birtunni. Margt þú hefur misjafnt reynt, mörg þín dulið sárin. Þú hefur alltaf getað greint, gleði bak við tárin. (J.Á.) Með ást og virðingu. Jónína, Bergljót og Egill Grímsbörn. Kveðja til tengdamömmu „Guðrún; heldur þú að það sé til líf eftir dauðann?“ Þessari spurn- ingu varpaði hún Gerda tengdó fram fyrir mörgum árum. Við sát- um saman yfir kaffibolla og vorum að spjalla um allt milli himins og jarðar. Ég hugsaði mig um skamma stund og svaraði því svo til, að ég hreinlega bara vissi ekki svarið við þessari spurningu. Þá sagði hún tengdamóðir mín að bragði: „Púffhhh, vonandi ekki. Þá þarf maður að byrja að puða allt upp á nýtt.“ Gerda var spaugari af lífi og sál; það var alltaf stutt í grínið hjá henni og hún á mörg ógleymanleg tilsvör, sem urðu af hinum ýmsu til- efnum. Hún var svo sannarlega engin tepra og gat auðveldlega spjallað um hlutina á kjarnyrtu máli, þannig að ekki var vafi á neinu. Hún tengdó mín var með stórt hjarta. Ef eitthvað bjátaði á var gott að leita til hennar. Hún gat ein- hvern veginn bent á, að flest lagast og hlutirnir myndu verða í lagi. Gerda mátti ekkert aumt sjá, það var sko „vist og sikkert“ eins og hún sagði svo oft. Ef hún gat hjálp- að, þá gerði hún það af heilum hug. Tengdaforeldrar mínir komu oft í sumarbústað, sem við Egill leigð- um við Álftavatn í Grímsnesinu. Þau höfðu fyrir vana að gista eina nótt. Þá fóru þeir feðgar að píska Álftavatn með veiðistöngum á með- an við tengdamamma sátum í sól- baði og dreyptum á hvítvíni og þá var sko gaman. Gerdu fannst gott að vera í birtu og hlýju og lék á als oddi og þessar minningar eru mér mjög kærar og skemmtilegar. Gerda og Grímur eignuðust sex börn og menn geta rétt ímyndað sér að það hefur verið fútt og fjör á heimilinu þegar mannskapurinn var að vaxa úr grasi. Tengdó mín sagði mér margar sögur af krakka- skaranum og greinilegt, að sumar voru skemmtilegri en aðrar, en þegar upp var staðið og hún búin að segja mér svaðilfarasögu af ein- hverju systkinanna, þá hló hún og Gerda Marta Jónsson sagði: „Jösses, maður var nú ekki að hlæja stundum, en núna er þetta bara skemmtilegt.“ Ég var stundum að bulla við hana á dönsku; enda sjálf af dönsk- um komin, og þá gátum við báðar hlegið; hún að bullinu í mér og ég lærði nú ýmislegt þar, sem maður getur hlegið að ennþá. Lífið hennar Gerdu var eigin- maðurinn og börnin, seinna svo tengdabörn og barnabörn. Hún þurfti að takast á við gleði og sorg- ir, enginn kemst víst hjá því á langri ævi. Þrátt fyrir að hafa verið orðin afar veik og lasburða, þá spaugaði hún nokkrum dögum fyr- ir andlát sitt, elsku tengdó. Ég elskaði hana tengdamömmu – af því að hún var eins og hún var. Ég vona að það sé líf eftir dauðann; þá fer ég eftir minn dag og leita hana uppi og við skellum okkur í sólbað með þartilgerðum veiting- um. Allir saman, saman. Þetta sagði eldri dóttir okkar Egils oft þegar hún var smákríli og Gerdu fannst það svo sniðugt og sagði þetta oft sjálf. Þá verða allir saman, saman. Með þökk og auðmýkt í hjarta. Guðrún Garðarsdóttir. Elsku amma mín. Að setjast nið- ur og skrifa minningargrein um ömmu sína fyllir augun enn og aft- ur af tárum. Hugurinn fer á flug, mörg ár aftur í tímann, og maður rifjar upp allar yndislegu minning- arnar sem við eigum um þig, elsku amma. Þú varst alltaf svo flott frú, áttir flotta kjóla og alltaf með hárið nýlagt, svo „elegant“. Það var svo rólegt og gott að koma í heimsókn til ykkar afa, oftast sast þú og prjónaðir eða saumaðir út og afi las bók eða blöðin, svo mikil ró yfir öllu. Ég man hvað mér þótti þetta allt saman vera fallegt sem þú varst að gera og hvað þú varst dugleg að klára hverja myndina á fætur ann- arri. Ég held að ég hafi fengið þennan mikla fönduráhuga frá þér. Sérstaklega man ég eftir tímanum sem við bjuggum hjá ykkur á Jó- fríðarstaðaveginum. Það sumarið var ég í unglingavinnunni og hljóp heim á hverjum degi rétt um fjögur til að horfa á sápuóperuna Santa Barbara með þér. Okkur fannst svo gaman að fylgjast með þessu drama en afi fussaði yfir því að við værum að eyða tímanum í að horfa á þetta rugl. Ég var tíður gestur hjá ykkur þegar ég kom einu sinni í viku, þreif húsið og svo sátum við og spjölluðum um heima og geima. Þú gast sagt mér endalausar sögur af pabba og systkinunum. Af þeim að dæma var greinilega engin logn- molla á þeim bænum. Ekki fannst unglingnum mér heldur slæmt að fá vasapening fyrir og oft gaukaðir þú að mér smáaukapening fyrir að vera dugleg. Mér fannst ég vera orðin svo fullorðin þegar ég fékk að passa húsið ykkar í Lyngberginu þegar þið fóruð til útlanda. Ég passaði upp á að allt væri „spikk og span“, eins og þú sagðir alltaf á dönsku, þegar þið kæmuð heim. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú kenndir mér og gafst mér. Minn uppáhaldsskartgripur frá þér er krossinn sem ég mun varðveita og geyma en hann hefur oft veitt mér mikinn styrk og nota ég hann bara við sérstök tækifæri sem eru mér kær. Ég veit að þú horfir niður núna og brosir því að þú veist hvað hann hefur mikla þýðingu fyrir mig. Núna ertu komin á betri stað og loksins komin í faðm elsku afa. Þú talaðir svo oft um það hvað þú hlakkaðir til að hitta hann aftur, ástina þína. Við kveðjum þig með söknuði en minning okkar um sterka og góða konu lifir. Sólveig Þórarinsdóttir. Elsku amma. Þótt ég viti í hjarta mínu að þú sért komin á góðan stað þar sem afi bíður eftir þér er samt sárt að vita til þess að við munum ekki sjá þig aftur né njóta nærveru þinnar. Þegar ég lít yfir farinn veg koma upp í hugann margar góðar minn- ingar, þá sérstaklega þegar afi var enn á lífi og ykkar fallega líf saman. Mikil saumakona varstu og eru mörg fallegu verkin þín til sönnun- ar um það, voru þar jólasveinarnir í miklu uppáhaldi. Einnig kenndir þú mér nokkur spilin og þótti mér ekkert skemmti- legra en að spila við þig rommý, þó svo þú hafir nú örugglega leyft mér að vinna nokkuð oft. Elsku amma, megi Guð vernda þig og styrkja fjölskylduna okkar á þessum erfiðu tímum og pössum við pabba sérstaklega vel fyrir þig. Blessuð sé minning þín, elsku amma mín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Berglind Þórarinsdóttir. 13. nóvember síðastliðinn kvaddi ein af mínum uppáhalds- persónum í þessu lífi. Skrýtin til- finning, en einhvernveginn var ég búinn að kveðja. Þegar ég rifja upp minningarn- ar um okkur get ég ekki annað en hlegið. Þú vildir alltaf meina að hláturinn lengdi lífið og að nú ætti ég að hætta þessum fíflalátum, hvað ég væri eiginlega að reyna? Halda þér þangað til þú yrðir 100 ára. Samviskubitið nagar pínu núna. Öll skiptin sem við spiluðum. Ég lærði svosem ekkert merkilegt á þeim kvöldum annað en það að treysta aldrei gömlum dönskum konum í spilum. Og svo hlógum við bara. Hláturinn var okkar meðal. Alltaf þegar ég kom í heimsókn til þín þá fékk ég innilegt faðmlag, koss á kinn og svo fylgdi: „Pjási minn, ertu kominn.“ Þú kallaðir mig Pjási. Frá því ég fæddist þangað til núna, 31 árs maður. Alltaf Pjási og enginn gat fengið þig ofan af því að kalla mig Pjása. Sem var í góðu lagi mín vegna enda þekki ég ekki annað en að vera kallaður það heima hjá þér. Svo var það danskan í bland við ís- lenskuna. Það var ekki allra að skilja mállýskuna þína og ekki gekk þeim það vel, dönskukenn- urunum mínum sem reyndu alla mína skólatíð að kenna mér dönsku. Ég hélt nú ekki. Þau hlytu að vera eitthvað galin. Ég var alinn upp af danskri frú og ætlaði ekki að fara að hlusta á kenningar þeirra um rétta dönsku. Svo var leynikveðjan. Að ulla á hvort annað án þess að aðrir gætu séð. Þú varst mögnuð. Þegar ég bjó hjá þér haustið 2008, vorum við vön að tala saman á kvöldin um heima og geima. Eitt kvöldið stendur þó uppúr. Þegar þú sagðir mér frá því hvað þú saknaðir afa. Ég skildi þá hvað þú varst einmana. Ég sneri stólnum þínum að plötuspilaranum, fór og fann gamlar plötur frá ykkur afa og spilaði fyrir þig. Við sátum það kvöld til miðnættis. Þú sagðir mér frá hvernig þið kynntust, giftust, byrjuðuð að búa. Þú sagðir mér frá hvernig hlutirnir voru í gamla daga miðað við í dag. Ég sá þá hvað þú varst orðin þreytt. Gerda Marta Josefa Hansen, takk fyrir allt og þá sérstaklega hláturinn. Nú færðu loks að hvíl- ast. Við hittumst hlæjandi á betri stað. Þinn, Arne Kristinn Arneson (Pjási). HINSTA KVEÐJA Kveðja til ömmu. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku amma okkar í Hafnó, við þökkum þér fyr- ir allt. Elín Helga og Svava Egilsdætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.