Morgunblaðið - 02.12.2013, Side 32

Morgunblaðið - 02.12.2013, Side 32
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 336. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Paul Walker látinn 2. Athugaðu hvort þín einkamál séu birt 3. Lést í bílslysi í Taílandi 4. Rooney með tvö í jafntefli »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Strengjasveit Helgu Þórarinsdóttur við Tónlistarskóla Seltjarnarness heldur árlega jólatónleika sína á Bókasafni Seltjarnarness í dag kl. 17.30. Meðal efnis á tónleikunum er Jólakonsert Corellis, „Það aldin út er sprungið“ eftir Praetorius og strengjakvartett eftir Mozart. Strengjasveit Helgu á jólatónleikum  Ný heimildar- mynd um hrein- dýrin á Austur- landi verður frumsýnd í Slátur- húsinu á Egils- stöðum á morgun kl. 20. Saga hrein- dýranna er rakin og lýst er lífsbar- áttu þeirra í harðri náttúru. Gerð myndarinnar tók þrjú ár og dýrunum var fylgt í gegnum allar árstíðir. Ás- geir hvítaskáld gerði myndina. Mynd um íslensku hreindýrin frumsýnd  Rúnar Óskarsson klarinettuleikari og Antonia Hevesi píanóleikari leika íslensk jólalög og verk eftir Mozart á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun klukkan 12. Rúnar hefur leikið víða um Evrópu, m.a. í Noregi, Danmörku, Belgíu, Þýskalandi og Hol- landi, auk þess sem hann hefur leikið inn á geisla- diska. Íslensk jólalög á tón- leikum í Hafnarborg Á þriðjudag Suðvestan og vestan 10-18 m/s og éljagangur, en bjartviðri eystra. Frost 0-6 stig. Á miðvikudag Snýst í norðanátt, víða 5-13 og kólnar í veðri. Él nyrðra og stöku él vestantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og vestan 8-15 m/s og él, en létt- ir til austantil á landinu. Hiti víða um frostmark og vægt frost inn til landsins. VEÐUR „Þessi helgi gekk mjög vel. Ég gerði ekki alltof flókin stökk heldur mína rútínu og fínpússaði hana og reyndi að gera hana fullkomna í staðinn fyrir erfiðari stökk sem hefðu kannski ekki tekist,“ segir skauta- drottning Íslands, Vala Rún Magnúsdóttir úr Skauta- félagi Reykjavíkur, en hún varð um helgina Íslands- meistari í listdansi á skaut- um. »6 Vala Rún meistari í listdansi „Þetta er svo sem engin frétt. Náungi í Portsmouth sem er „involveraður“ í félagið hringdi í mig og spurði hvort ég ætl- aði ekki að henda nafninu mínu í hatt- inn,“ sagði Her- mann Hreið- arsson við Morgunblaðið í gær. Breska blaðið Sunday Mir- ror hafði þá greint frá því að þeir Hermann og David James væru á meðal þeirra sem vildu taka við sem knatt- spyrnustjórar enska D- deildarliðsins Portsmouth. »1 Hermann og James orðaðir við Portsmouth Bikarmeistarar Stjörnunnar eru úr leik í Powerade-bikarkeppninni í körfuknattleik karla eftir tap fyrir Njarðvík í ljónagryfjunni í Njarðvík í gærkvöldi. Haukar er komnir áfram í keppninni eftir að hafa lagt Snæ- fellinga, 90:84, í hörkuleik. Einnig eru Þór úr Þorlákshöfn, Tindastóll, ÍR og Fjölnir komin áfram eftir að hafa lagt andstæðinga sína. »2 Bikarmeistararnir lágu í Njarðvík ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is „Við kláruðum fyrr en við áttum upphaflega von á, en ég nennti þó ómögulega að fara að slappa af á sól- arströnd á Balí, mig langaði bara að komast heim að vinna úr þessari lífs- reynslu,“ segir Vilborg Arna Giss- urardóttir, létt í bragði aðspurð hvort ekki sé gott að geta loksins slakað á, eftir að hafa lokið við að klífa hæsta fjall í Eyjaálfu, Carstensz Pyramid, sem er 4.884 metra hátt og stendur á eyjunni Papúa Nýju-Gíneu. Búin með þrjá tinda af sjö Vilborg er nú búin að klífa þrjá af sjö hæstu tindum heims og hefur hún sett sér að klára þá alla fyrir lok maí 2014. Næst liggur leiðin á Vin- son Massif á Suðurskautslandinu og segist hún vera spennt fyrir að fara þangað aftur, en líkt og kunnugt er lauk hún í janúar síðastliðnum ein- sömul göngu á suðurpólinn, alls 1.140 kílómetra leið á 60 dögum. „Suðurpóllinn hefur mikið tilfinn- ingalegt gildi fyrir mér og margir sömu einstaklingar verða mér nú innan handar, ég hlakka mikið til að hitta þau aftur.“ Risavaxnar köngulær og rottur Af tindunum sjö telst Carstensz Pyramid tæknilega erfiðasti tind- urinn að klífa, þar sem mikið er um bratt klettaklifur. „Ég var fyrirfram einna spenntust fyrir þessu fjalli, þar sem ég hafði í raun enga reynslu í farteskinu sem ég gat heimfært yfir á það verkefni. Á meiri- hluta fjallanna gengur þú í ís og snjó, eitt- hvað sem þú getur tengt við, en frumskógurinn er eitthvað sem ég hafði aldrei prófað áður,“ segir Vilborg. Í hópnum hennar voru sex manns og komust fimm þeirra á toppinn, en ein þurfti að hætta við sökum hæð- arveiki. Hópurinn kláraði gönguna fyrr en upphaflega var áætlað þar sem þeim var ráðlagt að ganga ekki í gegnum frumskóginn á leiðinni upp sökum óstöðugs ástands á svæðinu, fóru þau því í þyrlu upp í fyrstu búðir. Hópurinn gekk þó í gegnum frumskóginn á leiðinni nið- ur og segir Vilborg það hafa verið ótrúlega lífsreynslu. „Þarna eru engir slóðar og þú gengur bara um á trjárótum og í leðju sem oft nær þér upp að hnjám, þarna var mikið af rottum og risavöxnum köngulóm. Þær voru þó ekki eitraðar, það var nú ágætt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því.“ Stefnir nú aftur á suðurpólinn  Búin að klífa þrjá af sjö hæstu tindum heims Ljósmynd/Vilborg Arna Gissurardóttir Á toppnum „Ég upplifi ekki mestu spennuna á sjálfum toppnum, heldur frekar þegar ég er komin aftur niður og finn að verkefninu er lokið. Leiðin aftur niður er oft erfiðust og þá verða oftast slysin,“ segir Vilborg. Vilborg stefnir á að ljúka verkefni sínu á tindi Everest-fjalls í maí 2014, en þá mun hún hafa klifið hæsta fjall hverrar heimsálfu. Hún ætlar þó ekki að sitja auðum hönd- um að því loknu, heldur stefnir á að klára svokall- aða „Adventure Grand Slam“- áskorun. Í því felst að klífa tindana sjö auk þess að fara á bæði suður- og norður- pólinn. Mun norðurpóllinn því einn standa út af hjá Vilborgu. Aðeins ellefu manns í heiminum hafa lokið þeirri áskorun, og þar á meðal aðeins ein kona. „Ég er að horfa á að fara fljótlega á norður- pólinn. Það er svipað langt að fara og á suðurpólinn, um tveggja mán- aða leiðangur, en á þó að vera erf- iðara,“ segir Vilborg. Ætlar fljótlega á norðurpólinn STEFNIR Á „ADVENTURE GRAND SLAM“-ÁSKORUNINA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.