Morgunblaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Tilboð sjóðsstýringarfyrirtækisins
Landsbréfa í svonefnt Magma-
skuldabréf, sem er í eigu Orkuveitu
Reykjavíkur (OR), hefur fallið úr
gildi. Fyrirtækinu tókst ekki að fjár-
magna kaupin fyrir 30. ágúst síðast-
liðinn, eins og vonir stóðu til. Orku-
veitan er þó enn opin fyrir tilboðum í
bréfið en að sögn Eiríks Hjálmars-
sonar, upplýsingafulltrúa OR, hafa
bæði erlendir og innlendir fjárfestar
sýnt því áhuga.
OR eignaðist bréfið þegar kanad-
íska orkufyrirtækið Magma Energy
keypti hlut þess í HS Orku árið 2009.
Lokagjalddagi bréfsins er í desember
árið 2016 en það var bókfært á 8,1
milljarð króna í árshlutareikningi OR
í lok septembermánaðar. Er bréfið
tryggt með veði í hinum seldu hluta-
bréfum Magma í HS Orku.
Í sumar samþykkti stjórn Orku-
veitunnar 8,6 milljarða króna tilboð
Landsbréfa í bréfið og ætlaði sjóðs-
stýringarfyrirtækið að inna 5,2 millj-
arða króna greiðslu af hendi hinn 30.
ágúst. „Þeir ætluðu sér tiltekinn tíma
til að ljúka þessari fjármögnun en
náðu því síðan ekki,“ segir Eiríkur í
samtali við Morgunblaðið.
Verðmötin lægri en tilboðið
Framkvæmdastjóri Landsbréfa,
Sigþór Jónsson, vildi ekki tjá sig um
málið þegar eftir því var leitað.
Fram kom í tilkynningu frá fyrir-
tækinu í sumar að það myndi bjóða
helstu viðskiptavinum sínum, einkum
íslenskum stofnanafjárfestum og fag-
fjárfestum, að taka þátt í fjármögn-
uninni í gegnum fagfjárfestasjóð á
vegum Landsbréfa. Haft var eftir
Sigþóri að fyrirtækið teldi skulda-
bréfið vera spennandi fjárfestingar-
kost.
Eiríkur segir að Orkuveitan hafi
fengið nokkur fyrirtæki til að verð-
meta skuldabréfið sem og tilboð
Landsbréfa. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins áætlaði Íslandsbanki
að núvirði bréfsins gæti legið á bilinu
6,7 til 7,6 milljarðar króna en mat HF
Verðbréfa og Summu ehf. hljóðaði
upp á 6,1 til 7,6 milljarða króna. Það
er mun lægri upphæð en Landsbréf
hugðust greiða fyrir bréfið.
Eins og áður sagði var bréfið bók-
fært á 8,1 milljarð króna í lok sept-
ember í ársreikningi Orkuveitunnar.
Um síðustu áramót var það hins veg-
ar bókfært á 9,7 milljarða króna. Ei-
ríkur segir skýringuna vera þá að
bréfið sé tengt álverði, það er að höf-
uðstóll þess sé vísitölutengdur ál-
verðsvísitölu. „Lágt álverð hefur því
bein áhrif á virði bréfsins,“ útskýrir
hann.
Síðustu ár hefur verð á áli einmitt
verið undir miklum þrýstingi vegna
umframframleiðslu og mikilla upp-
safnaðara birgða af áli í kjölfar efna-
hagskreppunnar 2008. Undanfarin
fjögur ár hefur álverð lækkað um
meira en 30% og hefur það ekki verið
lægra frá því á árinu 2009. Þá gætu
breyttar viðskiptareglur á málm-
Ekki tókst að fjárm
Tilboð Landsbréfa í Magma-skulda-
bréf Orkuveitunnar hefur fallið úr gildi
Magma-skuldabréfið
» Tilboð Landsbréfa í Magma-
skuldabréfið, sem er í eigu
Orkuveitu Reykjavíkur, hefur
fallið úr gildi.
» Fyrirtækinu tókst ekki að
fjármagna kaupin fyrir 30.
ágúst.
» Tilboð Landsbréfa hljóðaði
upp á 8,6 milljarða króna.
» Nokkur fjármálafyrirtæki
höfðu áætlað að núvirði bréfs-
ins gæti legið á bilinu 6,1 til 7,6
milljarðar króna.
» Bókfært virði bréfsins hefur
lækkað á árinu vegna lækkandi
álverðs.
» Það var 9,7 milljarðar í árs-
lok 2012 en 8,1 milljarður í lok
septembermánaðar.
» Nokkrir fjárfestar hafa sýnt
bréfinu áhuga.
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
kunna tillögur stjórnvalda um skulda-
niðurfellingar verðtryggðra íbúðalána
að leiða til þess að auka þurfi framlög
ríkissjóðs til Íbúðalánasjóðs um 10
milljarða króna á næstu fjórum árum,
eigi að viðhalda núverandi eiginfjárhlut-
falli sjóðsins í 2,5%.
Bloomberg-fréttaveitan sagði frá
málinu síðasta fimmtudag og var þá
haft eftir Dariu Zhakarovu, sem fer fyrir
sendinefnd AGS, að ríkisstjórnin gæti
þurft að leggja sjóðnum til 40 milljarða
króna til að viðhalda núverandi hlutfalli.
Rangt var haft eftir henni og hefur frétt
Bloomberg nú verið leiðrétt. Lögbundið
eiginfjárhlutfall Íbúðalánasjóðs er 5%.
10 milljarðar en ekki 40
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+01-/.
+21-1
3+-4/
+0-13
+/-,/5
+.+-+,
+-+31/
+/1-3.
+,2-3
++,-,5
+12-+1
++2-33
3+-5..
+0-1/,
+/-/3/
+.+-5.
+-+..
+/1-/,
+,2-,5
3+3-.034
++,-1.
+12-,5
++2-54
3+-51,
+1-2.3
+/-//1
+.+-1
+-+.,.
+02-31
+,+-+
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Breski lyfjarisinn
GlaxoSmithKline
hefur ákveðið að
hætta að greiða
læknum fyrir að
kynna lyf sem fyr-
irtækið framleiðir
auk þess að hætta
að greiða sölufólki
fyrir fjölda lyfja-
ávísana sem gerðar eru á lyf fyrirtæk-
isins.
Þetta kom fram hjá forstjóra fé-
lagsins í fyrradag. Með þessu mun
fyrirtækið hætta að nota umdeildar
aðferðir í lyfjageiranum sem hafa ver-
ið þekktar síðustu áratugina.
Fyrirtækið hefur lengi greitt lækn-
um og heilbrigðisstarfsfólki fyrir að
mæta á ráðstefnur og greitt allan
kostnað vegna ferðalagsins. Nýleg
skýrsla komst að því að fyrirtækið
hefði á síðasta ári eytt 40 milljónum
punda, jafnvirði 7,6 milljarða króna, í
slík útgjöld í Bretlandi.
Breytingarnar munu að fullu ganga
í gegn árið 2016. Þær koma í kjölfar
ásakana um að GlaxoSmithKline hefði
notað 320 milljón punda sjóð til að
múta læknum og heilbrigðisstarfsfólki
í Kína með beinum mútugreiðslum
eða þjónustu vændiskvenna gegn því
að vísa á lyf fyrirtækisins. Í kjölfar
ásakananna hefur sala fyrirtækisins í
Kína minnkað mikið.
Hætta að
greiða
læknum
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Tilboðsverð kr. 106.900
Jólagjöfin í ár!
fy
heita sú
kriftarbó
VD diskur
lgja með
Lífstíðareig
ð fylgir Vitamix sle
jarmál og sv
k og
ar ig
ps
D
Me
p
r
n!
ávexti, gr
nánast hvað
y
klaka og
alla
noð d
Bý