Morgunblaðið - 18.12.2013, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2013
✝ SigríðurBjarnadóttir
fæddist í Reykjavík
15. mars 1929. Hún
lést á Elli- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 8. desember
2013.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ásta
Magnúsdóttir, f.
1902, d. 1997, og
Bjarni Guðmunds-
son læknir, f. 1898, d. 1973. Tví-
burasystir hennar var Hildur,
sem lést 2009. Guðmundur og
Þóra Margrét lifa systur sínar.
Sigríður lauk gagnfræðaprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri,
prófi frá Húsmæðrakenn-
araskóla Íslands, frekara námi í
kjólasaum og hönnun frá Haand-
arbejdets Fremme í Kaupmanna-
höfn, ennfremur í
Edinborg og seinna
framhaldsnámi
kjólameistara í
Þýskalandi og Sví-
þjóð. Hún vann í
mörg ár sem kjóla-
meistari í Mark-
aðnum í Reykjavík,
rak eigin sauma-
stofu og kenndi
kjólasaum og hönn-
un við Iðnskólann í
Reykjavík í fjöldamörg ár.
Árið 1957 giftist hún Sveini
Þorvaldssyni, f. 1926, d. 2005,
byggingartæknifræðingi og
kennara við Iðnskólann í Reykja-
vík, frá Skúmsstöðum í Vestur-
Landeyjum.
Útför Sigríðar fer fram í dag,
18. desember 2013, frá Fossvogs-
kirkju kl. 13.
Horfin er nú þessu jarðlífi Sig-
ríður systir mín kær, oftast kölluð
Sigga, og leitar nú á slóðir eigin-
manns síns og foreldra.
Sigga ólst upp í foreldrahúsum
þar til hún hleypti heimdraganum
undir tvítugt til framhaldsnáms
og atvinnu.
Hún lauk barnaskólanámi, sem
þá hét fullnaðarpróf, frá barna-
skólanum á Flateyri, gagnfræða-
prófi við Menntaskólann á Akur-
eyri, kennaraprófi við
Húsmæðrakennaraskóla Íslands,
kjólameistaraprófi við Haandar-
bejdets Fremme í Kaupmanna-
höfn, frekara nám í þeim efnum
sótti hún til Edinborgar, Þýska-
lands og Svíþjóðar. Hún kenndi
um tíma við Húsmæðraskólann á
Ísafirði og vann um árabil sem
kjólameistari í Markaðnum í
Reykjavík, rak eigin saumastofu,
en lengst af kenndi hún við Iðn-
skólann í Reykjavík.
Á námsárum sínum í Kaup-
mannahöfn kynntist hún Sveini
Þorvaldssyni frá Skúmsstöðum í
Vestur-Landeyjum, f. 1926, og
giftist honum 1957. Sveinn stund-
aði þá nám í byggingatæknifræði.
Þau stofnuðu heimili í Reykjavík
og bjuggu þar allan sinn búskap
og unnu bæði við kennslu við Iðn-
skólann í Reykjavík. Þann veg
voru þau stöðugt samstiga, jafnt í
vinnu sem og í frístundum, sam-
rýmd sem frekast gat orðið, bæði
höfðingjar heim að sækja; hlý og
létt og gestrisin og glöð hvort í
öðru.
Helstu áhugamál þeirra utan
vinnunnar voru framar öðru úti-
vist, náttúruskoðun, ökuferðir og
gönguferðir um fjöll og óbyggðir
landsins. Urðu þar af margar
ógleymanlegar útileguferðir, en
eins og gengur sumar blautar og
kaldar svo sem veðráttan býður
hverju sinni, en alltaf skemmti-
legt.
Ekki er ég gjörkunnugur lifn-
aðarháttum eða matvenjum ann-
ars lífs, en líklegt þætti mér að
Svenni lyfti glasi til að fagna end-
urfundunum við Siggu sína.
Guðmundur Bjarnason.
Kveðja frá Klæðskera-
og kjólameistarafélaginu
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Höndin þín, Drottinn, hlífi mér,
þá heims ég aðstoð missi,
en nær sem þú mig hirtir hér,
hönd þína eg glaður kyssi.
Dauðans stríð af þín heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja,
meðtak þá, faðir, mína önd,
mun ég svo glaður deyja.
Minn Jesús, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta eg geymi,
sé það og líka síðast mitt,
þá sofna eg burt úr heimi.
(Hallgrímur Pétursson)
Selma Gísladóttir, for-
maður Klæðskera- og
kjólameistarafélagsins.
Kveðja frá samstarfs-
mönnum við Iðnskólann í
Reykjavík
Sigríður Bjarnadóttir, kær vin-
kona og starfsfélagi um árabil, er
látin. Hennar kennaraferill við
Iðnskólann í Reykjavík hófst fyrir
rúmum þrjátíu árum en þá hafði
hún starfað lengi við iðn sína,
kjólasaum. Þegar kom að stofnun
fataiðnabrautar við skólann var
leitað til Sigríðar og hún beðin að
fara utan til Svíþjóðar og mennta
sig frekar og undirbúa skipulagn-
ingu á náminu. Það sýnir það álit
og traust sem hún naut meðal
skólamanna og félaga í fataiðn-
greinum.
Óhætt er að fullyrða að fataiðn-
brautin hafi frá upphafi verið
mjög vel skipulögð og vinsæl. Góð-
ir námsmenn hafa hlotið þar af-
bragðsmenntun á þessu sviði.
Menntun sem lyft hefur klæð-
skurði og kjólasaumi hérlendis og
verið mikilvægur þáttur í nýsköp-
un íslensks fataiðnaðar og fata-
hönnunar.
Sigríður var vel liðinn og far-
sæll kennari. Hjá henni fór saman
mikil þekking og færni í iðninni og
hæfileiki til að ná vel til nemenda.
Hún sýndi þeim virðingu og traust
en gerði líka miklar kröfur, ekki
síst til sjálfrar sín. Uppskeran var
eftir því og áfram heldur hennar
merka og góða starf því flestir nú-
verandi kennarar fataiðnbrautar-
innar eru gamlir nemendur henn-
ar.
Tengsl Sigríðar við Iðnskólann
ná reyndar lengra aftur en starf
hennar þar. Eiginmaður hennar,
Sveinn Þorvaldsson, sem lést árið
2005, hafði starfað við skólann í
um tvo áratugi þegar hún hóf þar
kennslu. Þau kynntust á námsár-
um sínum í Kaupmannahöfn um
miðjan sjötta áratug síðustu aldar.
Það er óhugsandi fyrir okkur vini
þeirra að nefna annað án þess að
nefna hitt svo samrýmd voru þau.
Sigga og Svenni, voru órjúfanleg
heild í okkar huga og fullt jafn-
ræði var með þeim. Bæði afburða-
skemmileg og elskuleg. Hrókar
alls fagnaðar hvar sem þau voru.
Það birti í kennarastofunni og á
mannamótum þegar þau mættu
enda bæði mjög sterkir og já-
kvæðir persónuleikar. Þau voru
einstakir gestgjafar og oft var
boðið til veislu í Geitlandið.
Fyrir um fjörutíu árum hófu
nokkrir starfsfélagar og vinir að
ferðast saman reglulega. Þar voru
þau Sigga og Svenni í fararbroddi
og svo fór að hópurinn byggði tvö
sumarhús til sameiginlegra nota í
Laugardalnum. Minningarnar frá
byggingartímanum þar sem
Sveinn stjórnaði verkum og svo
frá ótal ferðum á Apavellina eru
dýrmætar. Þátttaka þeirra í því
ævintýri er okkur mikils virði og
vináttan efldist.
Þau hjónin ræktuðu vel ættar-
tengslin og ferðuðust mikið með
systkinum sínum og þeirra fjöl-
skyldum. Á Lödu Sport var
ferðast um allt land með tjaldvagn
í eftirdragi. Oft voru þetta svað-
ilfarir í tvísýnu veðri yfir ár og
ófærð, ferðir sem kröfðust áræðis
ekki síst að teknu tilliti til stærðar
og vélarafls farartækisins.
Þau tóku virkan þátt í fé-
lagsstarfi eldri borgara. Léku t.d.
með þeim hópi í íslenskri kvik-
mynd. Já, þau kunnu svo sannar-
lega að lífa lífinu lifandi.
Þegar Sveinn féll frá var missir
Sigríðar mikill. Hún hélt þó ótrauð
áfram, en nú síðustu árin missti
lífið smám saman lit sinn og nú
hafa þau hjón aftur sameinast.
Góð og mikilhæf kona er gengin.
Við minnumst hennar með virð-
ingu, þakklæti og kærleika og
vottum fjölskyldunni samúð.
Frímann I. Helgason.
Fallin er í valinn ein okkar sem
útskrifuðumst úr Húsmæðra-
kennaraskóla Íslands vorið 1950,
Sigríður Bjarnadóttir, og er henn-
ar sárt saknað.
Það var eftirminnileg stund er
við hittumst fyrsta daginn í skól-
anum. Þarna voru ungar stúlkur
komnar víða að af landinu, fullar
áhuga og eftirvæntingar. Kennsl-
an byrjaði fljótlega og nýstárleg
verkefni biðu okkar hvert af öðru.
Þau voru ærin og sum erfið. Innan
hópsins voru duglegar stúlkur og
líf og fjör í hverju horni. Sigríður
var með þeim yngstu í hópnum og
kát í lund og kraftmikil. Þegar leið
á námstímann urðu námsefnin
þyngri og verkefnin fjölbreyttari,
bæði bókleg og verkleg. Allt lék í
höndum hennar og hin góða, glað-
lega og ljúfa lund hennar létti and-
rúmsloftið í kringum hana, og
þess nutum við hinar. Þarna bund-
umst við allar vináttuböndum,
sem hafa enst okkur vel allt til
þessa dags. Hún var um árabil
kennari í matreiðslu við Hús-
mæðraskólann á Ísafirði. Síðan
tók hún sig til og lærði kjólasaum
bæði hér á landi og í Kaupmanna-
höfn. Hún stundaði síðan kjóla-
saum og kenndi jafnframt við Iðn-
skólann.
Hún giftist vini sínum og sam-
kennara, Sveini Þorvaldssyni
byggingarfræðingi. Þau voru
samhent, gestrisin og góð heim að
sækja. Þess nutum við skólasyst-
ur hennar oft. Að leiðarlokum er
margs að minnast. Við eftirlifandi
skólasystur úr HKÍ þökkum
henni allar ánægjulegar samveru-
stundir og biðjum henni Guðs
blessunar.
Sigríður Kristjánsdóttir.
Sigríður
Bjarnadóttir
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINN B. INGASON,
Kvistavöllum 29,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 13. desember.
Útför frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
20. desember kl. 15.00.
Birna Ólafsdóttir,
María Þórunn Helgadóttir, Gissur Kristjánsson,
Ævar Sveinsson, Berglind Þ. Steinarsdóttir,
Íris Inga Sigurðardóttir, Mikael Jónsson,
Ólafur Guðlaugsson, Aðalheiður Runólfsdóttir,
Hlynur Guðlaugsson, Kristín S. Baldursdóttir.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
DAVÍÐ GUÐMUNDSSON,
Hæðargarði 33, Reykjavík,
áður bóndi í Miðdal í Kjós,
sem lést laugardaginn 7. desember verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn
18. desember kl. 13.00.
Fanney Þ. Davíðsdóttir,
Hulda Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Grímsson,
Kristín Davíðsdóttir, Gunnar Rúnar Magnússon,
Guðbjörg Davíðsdóttir,
Katrín Davíðsdóttir, Sigurður Ingi Geirsson,
Sigríður Davíðsdóttir, Gunnar Guðnason,
Guðmundur H. Davíðsson, Svanborg Anna Magnúsdóttir,
Eiríkur Davíðsson, Solveig Unnur Eysteinsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
SONJA SIGRÚN NIKULÁSDÓTTIR,
lést á heimili sínu að morgni laugardags
14. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Pétur Guðmundsson,
Sigrún Sæmundsdóttir, Steinar Már Gunnsteinsson,
Ólöf Pétursdóttir, Eyþór T. Heiðberg,
Alda Rose Cartwright, Pétur Már Guðmundsson,
Eva Ýr Heiðberg,
Hreiðar Þór Heiðberg,
Máni Steinsson Cartwright,
Urður Ylfa Pétursdóttir Cartwright.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ANNA MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR,
lést í Seljahlíð, Reykjavík, laugardaginn
14. desember.
Útför verður auglýst síðar.
Guðjón Bjarki Sverrisson, Særún Þorláksdóttir,
Heimir Þór Sverrisson, Sigríður Guðmundsdóttir,
Guðlaugur Gylfi Sverrisson, Halla Unnur Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku faðir minn, tengdafaðir og afi,
SIGURGRÍMUR GUÐMUNDSSON,
vélstjóri,
Hjallatanga 12,
Stykkishólmi,
lést á Heilbrigðisstofnun Akraness
föstudaginn 13. desember.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 21. desember kl. 14.00.
Guðrún Sólveig Sigurgrímsdóttir, Páll Ágúst Jónsson,
Þuríður Erla Helgadóttir,
Sigurjón Páll Helgason,
Lilja Lind Helgadóttir,
Veigar Jóhann Pálsson,
Jón Hólm Pálsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÁSTA INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR
frá Höfða í Fljótshlíð,
verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju
laugardaginn 21. desember kl. 14.00.
Erna M. Sveinbjarnardóttir, Jón S. Garðarsson,
Sigurlín Sveinbjarnardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku sonur okkar, bróðir og barnabarn,
SVEINN ZOËGA,
lést á heimili sínu mánudaginn
16. desember.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
laugardaginn 21. desember kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Gjafasjóð Rjóðursins,
reikningsnr. 513-26-22241, kt. 640394-4479.
Gunnar Zoëga, Valdís Guðlaugsdóttir,
Jenný Zoëga
Guðlaugur Jónsson, Sigríður Þorsteinsdóttir,
Jón Gunnar Zoëga, Guðrún Björnsdóttir.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÍÐUR GÍSLADÓTTIR,
Austurgerði 7,
Kópavogi,
lést laugardaginn 14. desember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 27. desember kl. 13.00.
Sólveig Jónasdóttir,
Ósk Ásgeirsdóttir, Marinó Eggertsson,
Gísli Hauksson, Ágústa Kristófersdóttir,
Erna Hauksdóttir, Skúli Halldórsson,
Valdís Hauksdóttir, Rúnar Ólafur Axelsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda
inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka
og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjón-
arfólki minningargreina viðvart.
Minningargreinar