Morgunblaðið - 01.03.2014, Side 11

Morgunblaðið - 01.03.2014, Side 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2014 DAGSKRÁ 12.30 Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á menntatorgi. 13.00 Setning. Margrét Kristmannsdóttir, varaformaður Samtaka atvinnulífsins. 13.10 Svo lengi lærir sem lifir. Dr. Andreas Schleicher, yfirmaður menntamála hjá Efnahags- og framfarastofnuninni OECD. 13.40 Frá handahófskenndri fræðslu til faglegrar fræðslustefnu. Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor. 14.05 Samspil fyrirtækja og menntakerfis. Aðalheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs. Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á menntatorgi. 15.00 Mikilvægi iðn- og tæknimenntunar. Bolli Árnason, framkvæmdastjóri Meitils og GT Tækni. 15.25 Hvað vill unga fólkið og hvers vegna? Niðurstöður nýrrar rannsóknar meðal framhaldsskólanema. Dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir. 16.00 Menntaverðlaun atvinnulífsins 2014. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhendir verðlaunin. 16.30 Ráðstefnulok. Ráðstefnustjóri er Eggert B. Guðmundsson, forstjóri N1. Vinsamlegast skráið þátttöku á vef SA: www.sa.is Mánudaginn 3. mars á Hilton Reykjavík Nordica kl. 13.00-16.30 ur lærir ekki á því og hvaða áskor- anir felast í því,“ útskýrir hann. Ekki kennsla heldur sköpun Benni segir að tónlistarsköp- unin sé ekki eiginleg kennsla því ver- ið sé að búa til tónlist. „Ef ég ætla að búa til tónlist með nemanda get ég ekki sagt honum hvernig tónlist hann á að búa til. Það er margt spennandi sem kemur þarna inn í. Til dæmis sé ég það ekki ganga upp að maður geti verið með agastjórn- un. Ég get ekki skipað nemanda að gera tónlist eins og ég vil því þá missir það algjörlega marks,“ segir Benedikt „Ég hef verið að skoða hvað gerist þegar maður fer inn í bekk, býr til tónlist og beitir ekki aga, hvað er erfitt við það og hver árangurinn er. Um það snýst mastersritgerðin mín.“ Rannsóknin stækkar Skólasystir Benedikts í list- kennslunni hefur haft til rannsóknar aðgengi fatlaðra að tónlistarnámi. „Við unnum eitt stutt verkefni í fyrra sem mér fannst mjög spenn- andi og kveikti áhugann hjá mér. Við fengum að búa til verkefni innan skólans þar sem við erum með nám- skeið í samstarfi við Fjölmennt og ég er í raun að gera það sama og ég hef verið að gera með unglingunum. Skólasystir mín kemur þar inn með sérþekkingu í að vinna með fötl- uðum,“ segir Benedikt. Hann segir að þau hafi, eins og í tónlistarsköpuninni með ungling- unum, fundið út hvað virkar og hvað ekki, hverjir kostir slíks náms eru og að sköpunin sjálf sé í brennidepli. Að baki hugmyndinni liggja miklar og djúpar vangaveltur um listina og frumkraftana að baki sköpun. „Hvað gerist ef maður skipu- leggur allt starfið út frá sköp- unarferlinu og tekur allan annan strúktúr út? Ég er ekki með nein markmið um að þau læri einhverjar tóntegundir, skala eða neitt í þá veru. Þetta er í rauninni eins og önn- ur skapandi verkefni og þá er það jafnvonlaust að skipuleggja nákvæmlega hvað á að fara fram og að ákveða hvað á að gera á næstu hljómsveitaræfingu. Maður getur ákveðið hvernig maður ætlar að vinna en ekki hvað gerist,“ segir Benedikt. Meira talað en framkvæmt Ein helsta ástæða þess að Bene- dikt fór út í rannsóknir af þessum toga er sú að mikil áhersla er lögð á sköpun í námskrám og mikið um hana rætt. „Mér fannst dálítið spennandi að skoða hverjar áskor- anirnar eru við að framkvæma þetta dálítið „extreme“ því mér finnst meira talað en framkvæmt í þessum málaflokki. Það eru pælingar um að mönnum líki við hugtakið en ekki allt sem því fylgir. Óreiðan í skólastof- unni, allt í rugli, enginn agi og allt frekar óþægilegt fyrir alla. Það er ein pæling,“ útskýrir Benedikt. Vinnunni með sex manna hópn- um lýkur í vor og því fullsnemmt að tjá sig um árangurinn, enda skil- greiningaratriði hvort og hvernig eigi að meta árangur við sköp- unarvinnu. „Það væri alveg hægt að halda því fram að það væri algjört klúður að flytja ekki verkin sem samin voru fyrir framan hóp af fólki og árang- urinn því dæmdur lélegur. En í stærra samhengi er það sem skiptir máli hvað krakkarnir læra. Mesti árangur sem ég veit um í svona starfi er að krakki fari heim til sín og það hafi kviknað einhver áhugi. Hann átti sig til dæmis á að sér hafi gengið vel að semja rapptexta og fer heim til sín að vinna í því. Það er hæsta stigið af árangri, eins og ég sé það,“ segir Benedikt H. Her- mannsson. Hann verður ásamt fjölda annarra nemenda í HR að kynna nám sitt en þétt dagskrá verð- ur í skólum víða og hana má sjá á vefnum www.haskoladagurinn.is. Tónlistarsköpun Benedikt vinnur að áhugaverðu lokaverkefni. Morgunblaðið/G.Rúnar Verkáfanga í endurnýjun Hverfis- götu verður fagnað í dag með gleði- dagskrá sem hefst kl. 14 en þá fer skrúðganga með lúðraþyt, þar sem lúðrasveit Samma „fönkar“ upp karnivalstemninguna og sirkusfólk ekur um hjólastíga á freistandi Lukkuhjóli sem hægt er að festa á eigin miða, síðan verður dregið úr potti Lukkuhjólsins kl 14.30. Skrúð- gangan leggur upp frá Bíó Paradís, gengið að Frakkastíg, þaðan að Klapparstíg og endað við Bíó Para- dís. Alveg tilvalið að hita upp ösku- dags-grímubúningana með þátt- töku í skrúðgöngunni. Stutt dagskrá verður í kjölfarið við Bíó Paradís þar sem borgarstjórinn, Jón Gnarr, mun opna götuna form- lega og boðið verður upp á veit- ingar frá Austur-Indíafélaginu. Ei- ríkur Fjalar flytur hátíðarræðu sem er bæði leikin og sungin en Laddi mun leiða viðstadda í allan sannleikann um Hverfisgötu. Þjóð- þekkt miðborgarrotta flytur frum- saminn brag og búast má við að ein- hverjir bresti í söng og almenna gleði í tilefni dagsins. Fornbíla- akstur gleður augu og eyru og plötusnúðarnir Taj Mahal & Ab- dullahRAJ hræra saman indverskri Bhangra-tónlist og íslenskum þjóð- stefjum. Í Bíó Paradís verða af þessu til- efni sýndar klassískar Reykjavíkur- ræmur, s.s. 101 Reykjavík, Sódóma Reykjavík, Rokk í Reykjavík og Rotterdam Reykjavík. Ókeypis er inn á þessar sýningar í tilefni dags- ins og hefjast fyrstu sýningar kl. 15:30. Nýrri Hverfisgötu fagnað í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Sammi Hann og lúðrablásarar hans kunna að koma fólki í gott skap. Mikið stuð og ókeypis í bíó Í dag kl. 15 verður opnuð á aðalsafni Borgarbókasafns við Tryggvagötu sýning á myndasögum sem bárust í árlega myndasögusamkeppni safns- ins og Myndlistaskólans í Reykjavík. Í ár er þemað hinn ástsæli Andrés önd og félagar, í tilefni af 80 ára af- mæli Andrésar. Um fjörutíu sögur bárust í keppnina, en verðlaun eru veitt í tveimur aldurshópum, 10-15 ára og 16-20+. Í dag verða einnig veitt verðlaun fyrir þær sögur sem þóttu skara fram úr. Gera má ráð fyr- ir fjölbreyttum sögum og myndum. Sýning á myndasögum sem bárust í samkeppni Myndasögur Höfundar eru ungir. Ýmsar útfærslur af Andrési önd

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.