Morgunblaðið - 01.03.2014, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 01.03.2014, Qupperneq 51
Þjóðleikhússins 1990-2001, sat í stjórn Grænlandssjóðs frá 1987, í stjórn Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi, NAPA, um árabil, sat í Flugráði 1987-2001 og var stjórn- arformaður Sjóminjasafns Íslands um árabil frá 1987. Árni sat í fjárveitinganefnd Al- þingis 1983-87, í fjárlaganefnd 1983- 87 og 1991-2001, í samgöngunefnd 1991-2001 og 2007-2013 og var for- maður hennar 1999- 2001, sat í menntamálanefnd 1991-2001, í fé- lagsmálanefnd 2007-2013, sat í Ís- landsdeild Vestnorræna ráðsins 1994-2001 og 2007-2013 og var for- maður nefndarinnar 1996-2001 og varaformaður frá 2007. Árni hefur haft frumkvæði að og stýrt framkvæmdum fjölmargra verkefna á sviði sögu og menningar, s.s. byggingu bæjar Eiríks rauða og Þjóðhildarkirkju á Grænlandi, Staf- kirkjunnar í Vestmannaeyjum, Herjólfsbæjarins í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum og Þorláksbúðar í Skálholti, svo eitthvað sé nefnt. Út hafa komið eftirtaldar bækur eftir Árna: Eldar í Heimaey, 1973; Kvistir í lífstrénu, samtalsþættir, 1982; Kristinn í Björgun, 1986; Fleiri kvistir, samtalsþættir, 1987; Þá hló þingheimur, ásamt Sigmund, 1990; Enn hlær þingheimur, 1991, Lífsins melódí, 2004 og Kristinn á Berg, 2005. Auk þess hefur hann rit- að fjölda bókarkafla og mörg hundr- uð greinar í innlend og erlend blöð og tímarit og gjarnan birt eigin ljós- myndir með þeim en hann á 50.000 mynda ljósmyndasafn. Út hafa komið eftirfarandi hljóm- plötur með Árna: Eyjaliðið; Milli lands og Eyja; Þú veist hvað ég meina; Ég skal vaka (lög Árna og fleiri við ljóð Halldórs Laxness); Vinir og kunningjar; Stórhöfða- svítan; Gaman að vera til I og II, og Fullfermi af sjómannalögum I og II. Hann hefur samið nær hundrað sönglög og texta, tvær svítur fyrir sinfóníuhljómsveit, Stórhöfðasvít- una og Sólarsvítuna og er nú að ljúka upptöku á plötum með 130 barnalögum, flestum þeim þekkt- ustu sl. hálfa öld. Þá hefur hann gert tugi myndverka í grjót, stál og fleiri efni. Í tilefni afmælisins heldur Árni upptökutónleika í Salnum í Kópa- vogi með landsþekktum tónlist- armönnum. Þar verða leikin og sungin 40 gullfalleg íslensk sönglög með undirtektum salarins en textum verður varpað á tjald. Fyrir tónleikana verður boðið upp á gúllassúpu og frumsýnd Sól- arsvítan sem Sinfóníuhljómsveit Úkraínu tók upp í sumar. Fjölskylda Eiginkona Árna er Halldóra Fil- ippusdóttir, f. 17.2. 1941, flugfreyja. Hún er dóttir Filippusar Tóm- assonar trésmíðameistara og Lilju Jónsdóttur húsfreyju en þau eru bæði látin. Sonur Árna og Halldóru er Breki, f. 10.5. 1977, atvinnuflugmaður, bú- settur í Vestmannaeyjum en sonur hans er Eldar Máni. Dætur Árna frá fyrra hjónabandi með Margréti Oddsdóttur eru Helga Brá, f. 25.8. 1966, starfsmaður við HÍ, búsett í Reykjavík en maður hennar er Jón Gunnar Þorsteinsson og eru dætur þeirra Margrét Lára og Þórunn Helena; Þórunn Dögg, f. 15.1. 1968, kennari og starfar við ferðaþjónustu, búsett í Hafnarfirði en maður hennar er Jón Erling Ragnarsson og eru dætur þeirra Una, Andrea og Telma. Stjúpsonur Árna er Haukur A. Clausen, f. 9.10. 1959, tölvuforritari, búsettur í Reykjavík. Hálfsystkin Árna, sammæðra, eru Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir, f. 3.1. 1950, kaupkona; Þröstur Bjarnhéðinsson, f. 13.5. 1957, stund- ar veitinga- og hótelrekstur; Elías Bjarnhéðinsson, f. 6.7. 1964, tölvu- fræðingur. Foreldrar Árna voru Ingibjörg Á. Johnsen, f. 1.7. 1922, d. 21.7. 2006, kaupmaður í Vestmannaeyjum, og Poul C. Kanélas, nú látinn, var bú- settur í Detroit í Bandaríkjunum, af grískum ættum. Stjúpfaðir Árna var Bjarnhéðinn Elíasson, f. 27.8. 1921, d. 8.10. 1992, skipstjóri og útgerð- armaður í Vestmannaeyjum. Úr frændgarði Árna Johnsen Árni Johnsen Poul C. Kanélas af grískum ættum Ingibjörg Jónsdóttir húsfr. í Suðurgarði Jón Guðmundsson b. í Suðurgarði í Eyjum Margrét Marta Jónsdóttir húsfr. í Suðurgarði í Eyjum Árni Johnsen útvegsm. í Suðurgarði í Eyjum Sigfús M.J. Johnsen bæjarfógeti í Eyjum Baldur G. S. Johnsen læknir og forstöðum. Helbrigðiseftirlits ríkisins Gísli J. Johnsen útgerðarm. og stórkaupm. í Eyjum og Rvík Ingibjörg Á. Johnsen kaupmaður í Vestmannaeyjum Sigfús J.Á. Johnsen kennari og félagsmálastj. Anna Sigríður Árnadóttir Johsen húsfr. í Eyjum Jóhann Jörgen Johnsen kaupm. og útvegsm. Í Eyjum Árni Sigfússon bæjarstj. í Reykjanesbæ Gylfi Sigfússon forstj. Eimskipa- félags Íslands Sif Sigfúsdóttir fyrrv. borgarfulltr. Sigríður Gísladóttir húsfr. í Eyjum og Rvík Soffía Gísladóttir Árnason húsfr. í Rvík Gísli Ísleifsson hrl. Gísli J. Ástþórsson blaðam., ritstj. og teiknari Árni Ísleifsson hljóðfæraleikari ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2014 Valur Arnþórsson bankastjórifæddist á Eskifirði 1.3. 1935.Foreldrar hans voru Arnþór Jensen, pöntunarfélagsstjóri á Eski- firði, og k.h., Guðný Anna Péturs- dóttir húsfreyja. Arnþór var sonur Peters Jensen, kaupmanns og útgerðarmanns á Eskifirði. Móðir Peters var Jóhanna Pétursdóttir, systir Kjartans, afa Aðalsteins Jónssonar, útvegsmanns á Eskifirði. Móðir Arnþórs var Þór- unn Markúsdóttir, systir Einars, föður Maríu Markan söngkonu. Guðný Anna var dóttir Péturs, prests í Eydölum, bróður Guðnýjar, ömmu Gísla Magnússonar píanóleik- ara. Móðir Guðnýjar Önnu var Hlíf, systir Soffíu, ömmu Magnúsar Thor- oddsen hæstaréttardómara. Hlíf var dóttir Boga Smith, smiðs á Arnar- bæli á Fellsströnd. Eftirlifandi eiginkona Vals er Sig- ríður Ólafsdóttir og eignuðust þau fimm börn. Valur lauk landsprófi frá Eiðum og samvinnuskólaprófi, var við nám í trygginga- og verslunarfræðum í London 1955-56 og við sænska sam- vinnuskólann, Vår Gård, 1965. Valur var skipulagður, vel látinn og vinsæll stjórnandi og helsta von- arstjarna SÍS þegar erfiðleikar voru farnir að steðja að kaupfélögunum. Hann starfaði hjá Samvinnutrygg- ingum 1953-65, varð fulltrúi kaup- félagsstjóra Kaupfélags Eyfirðinga 1965, var kaupfélagsstjóri KEA 1971-89 og bankastjóri Landsbank- ans frá ársbyrjun 1989. Valur sat í bæjarstjórn Akureyrar 1970-78, var forseti bæjarstjórnar 1974-78, stjórnarformaður Laxár- virkjunar, sat í Orkuráði og stjórn Landsvirkjunar, var ritari stjórnar SÍS og síðan stjórnarformaður 1978- 89, stjórnarformaður margra fyrir- tækja á vegum KEA, varaformaður stjórnar Samvinnutrygginga hf., Endurtryggingafélags Samvinnu- trygginga hf., Andvöku og Olíu- félagsins hf. og stjórnarformaður Plasteinangrunar hf., Kaffibrennslu Akureyrar og Útgerðarfélags KEA. Valur lést 13.10. 1990 er einka- flugvél sem hann flaug fórst í Skerjafirði. Merkir Íslendingar Valur Arnþórsson Laugardagur 90 ára Baldvin Einarsson 85 ára Ásdís H. Jóhannsdóttir Guðný Ágústsdóttir Hákon Torfason 80 ára Dagbjört Þórðardóttir Sæunn Kristjánsdóttir 75 ára Guðlaug H. Þorbergsdóttir Herbert Ármannsson María Ármannsdóttir 70 ára Einar Sturlaugsson Guðjón Jóhannsson Helga Árnadóttir 60 ára Fannlaug S. Snæbjörnsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Hulda Sigríður Skúladóttir Jón Brands Theódórs Tryggvi Ingvar Ólafsson 50 ára Ása Kristín Margeirsdóttir Guðbjörg E. Friðfinnsdóttir Guðný Fjóla Árnmarsdóttir Hrönn Pétursdóttir Jóhanna B. Þórhallsdóttir Jóhannes Freyr Baldursson Kristín Sigríður Þórðardóttir Sigrún Elíasdóttir Sigurjón Ingvi Hauksson Svandís Georgsdóttir Unnur Óskarsdóttir Úlfhildur J. Sigurðardóttir 40 ára Aníta Björk Helgadóttir Arnkell Logi Pétursson Benedikt Jónsson Bozena Katarzyna Nowacka Bryndís Ásmundsdóttir Eva Lind Þuríðardóttir Gunnlaugur Árnason Halldór Ólason Helga Dröfn Þórarinsdóttir Jóhann Örn Þórarinsson Jónas Oddur Jónasson Krzysztof Tomasz Mieszaniec Rosemarie Hermilla Haraldsson Sólrún Júlíusdóttir Úrsúla Ragna Ásgrímsdóttir Þorkell Máni Pétursson 30 ára Annecke Macrander Bjarni Þór Steindórsson Ester Inga Alfreðsdóttir Geir Ingi Sigurðsson Hafsteinn Bergmann Árnason Halldór Fannar Halldórsson Hjalti Þór Hreinsson Hugborg Hjörleifsdóttir Ingibjörg Einarsdóttir Margrét Birgitta Davíðsdóttir Margrét Magnúsdóttir Matthildur Sunna Þorláksdóttir Pétur Magnús Pétursson Silja Jóhannesdóttir Steinunn Anna Kjartansdóttir Steinunn Þyri Þórarinsdóttir Svanur Þór Halldórsson Tryggvi Rósmundsson Sunnudagur 80 ára Aage Petersen Ágústa Markúsdóttir Ásgeir Karlsson Bjarney Kristín Viggósdóttir Ingibjörg Jónsdóttir 75 ára Ásgeir Stefánsson Dagný Kjartansdóttir Elsa Hanna Ágústsdóttir Guðlaug I. Arilíusardóttir Kristján Magnússon Orri Hrafnkelsson Sigurður Gizurarson Sigurveig Þóra Árelíusdóttir Svava S. Gestsdóttir Valborg Rakel Gunnarsdóttir 70 ára Edda Hinriksdóttir Grétar Kristjónsson Sveinn Snæland 60 ára Bergsteinn Vigfússon Guðni Kjartan Þorkelsson Ingibjörg Bjarnadóttir Jens Sigurðsson Jón Sigurpáll Salvarsson Kolbrún Ingólfsdóttir Sigurjón Páll Högnason 50 ára Bergsteinn Gunnarsson Guðný Ingimarsdóttir Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir Guðrún Vilhjálmsdóttir Helgi Kristófer Helgason Hulda Rós Rúriksdóttir Jasinta Kerketta Sigtryggur Ásgrímsson Sæmundur Helgason Thelma Hansen Þorsteinn J. Vilhjálmsson 40 ára Einar Bjarnason Gísli Örn Sturluson Guðmundur Jóhannes Guðmundsson Guðni Þór Ragnarsson Heiðar Már Hlöðversson Hjörný Snorradóttir Kolbrún Anna Björnsdóttir Magnea Sigríður Sverrisdóttir Magnús Þór Guðjónsson Malgorzata Lis Waraporn Chanse 30 ára Aðalsteinn Ragnar Benediktsson Ari Jónsson Bernharður Guðmundsson Edda Lára Lúðvígsdóttir Einar Grímsson Fjölnir Fjalarsson Ívar Már Svanbergsson Jothimani Sathiyamoorthy Jónína Pálmarsdóttir Kristjana Jokumsen Rósa Stefánsdóttir Sóley Fjalarsdóttir Steven John Clark Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.