Morgunblaðið - 01.03.2014, Blaðsíða 54
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það er vel hægt að álykta semsvo að samstarf St. Vincentog David Byrne á plötunni
Love This Giant (2012) hafi gert sitt
til að kynda undir eftirvæntingunni
eftir þessari plötu, sem hefur verið
talsverð. Það spilar alveg örugglega
inn í en um leið vissu þeir sem hafa
fylgst með St. Vincent frá upphafi
að eitthvað rosalegt væri í vændum.
St. Vincent, eða Annie Clark, hefur
verið að fínstilla list sína hægt og
örugglega í gegnum fjórar plötur
núna og natnin og þolinmæðin er
farin að bera ríkulegan ávöxt. Og
ekki hefur staðið á viðbrögðunum.
Eitt tilkomumesta verk ársins er
fram komið, og það í bláendann á
febrúar.
Sperrt
Fólk varð fyrst vart við St. Vin-
cent, sem fæddist árið 1982 í Okla-
homa, er hún var meðlimur í Po-
lyphonic Spree og einnig í sveit
Sufjan Stevens. Hún var músíkölsk á
unglingsárum og tók þátt í leik-
listar- og tónlistarlífi Dallasborgar
þar sem hún ólst upp. Hún stundaði
nám í hinum virta Berklee í þrjú ár
en hætti námi. Þá var hún komin á
kaf í alls kyns tónlistardútl og slóst í
för með risabandinu Polyphonic
Spree árið 2004. Tveimur árum síð-
ar hóf hún leika með Sufjan Stevens
og var þá með fyrstu stuttskífuna
sína í farteskinu, Paris is Burning.
Fyrsta breiðskífan, Marry Me, kom
svo út 2007 og vakti eftirtekt að Vin-
cent lék á heil 13 hljóðfæri á plöt-
unni. Innihaldið marglaga skríti-
popp og nöfnum eins og Kate Bush
og David Bowie var stillt fram í lýs-
ingum auk þess sem áhrif frá fyrr-
verandi vinnuveitendum eru vel
merkjanleg. Næsta plata, Actor
(2009), var innblásinn af kvikmynda-
tónlist, einkanlega barnamyndum
frá Disney að sögn Vincent sem not-
aði þær til að stilla sig af eftir mikið
tónleikaferðalagaflandur. Platan
vakti mikla athygli og gagnrýn-
endur hrifust af því hversu auðvelt
St. Vincent átti með að hræra saman
ólíkum stefnum, straumum og
áherslum þannig að út kæmi sann-
færandi og heilsteypt verk. Eyru
þeirra sem þykjast hafa vit á tónlist
voru nú að fullu sperrt.
Hélt hún nú ótrauð áfram og
2011 kom Strange Mercy út og voru
viðtökurnar enn betri en áður. Sjálf
var hún eitursvöl og lýsti því yfir að
„ég get ekki sagt að þetta sé það
besta sem ég hef gert en góð er
hún“.
Horft í roðann
Hvítserkur St. Vincent, réttu nafni Annie Clark, er fjölkunnug og
hljóðfæri af margvíslegum toga leika í höndum hennar.
Ári síðar leiddu hún og David
Byrne svo saman hesta sína eins og
áður er getið. Í upphafi ætluðu þau
bara að leika á einum litlum tón-
leikum en samstarfið vatt upp á sig,
heil plata og tónleikaferðalag og
meðal annars heimsóttu þau land
elds og ísa í fyrra.
Partíplata?
Nýja platan var tekin upp í
heimaborg hennar Dallas og sá John
Congleton (The Mountain Goats,
Modest Mouse) um upptökustjórn en
hann vann og að tveimur síðustu
plötum. Þá vann hún einnig náið
með tveimur slagverksleikurum,
þeim Homer Steinweiss (Dap-Kings)
og McKenzie Smith (Midlake). „Ég
vissi að „grúvið“ yrði að vera yfir
um og allt í kring,“ segir Vincent í
fréttatilkynningu. „Mig langaði til
að búa til partíplötu sem þú gætir
leikið í jarðarför.“
» Og ekki hefurstaðið á viðbrögð-
unum. Eitt tilkomu-
mesta verk ársins er
fram komið, og það í
bláendann á febrúar.
Fjórða plata St. Vincent, samstarfskonu David Byrne, er
samnefnd henni Dómar eru allir á einn veg; meistaraverk
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2014
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Laugardagur 1. mars kl. 14 og 15: Ókeypis barnaleiðsögn
Sunnudagur 2. mars frá 14-16: Áttu forngrip? Sérfræðingar Þjóðminjasafns
greina gripi almennings. Aðeins 40 manns komast að með 1-2 gripi hver.
Síðasta sýningarhelgi: Viður við og við á Torgi
Þriðjudagur 4. mars kl. 12: Fyrirlestur Árna Hjartarsonar jarðfræðings
um Hallmundarhrun- og kviðu.
Nýr ratleikur um Silfur Íslands í Bogasal
Betur sjá augu – Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 í Myndasal
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár - grunnsýning
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17.
Listasafn Reykjanesbæjar
KRÍA /KLETTUR / MÝ
TERN / CLIFFS / SWARM
Svava Björnsdóttir
25. jan. - 9. mars
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
GERSEMAR - DÝR Í BÚRI 8.11. - 11.5. 2013
FORM, LITUR, LÍKAMI: HÁSPENNA / LÍFSHÆTTA
Magnús Kjartansson
Sýningin opnar laugardaginn 8. mars kl. 11
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin, HÚSAFELL ÁSGRÍMS. Opið sunnudaga kl. 14-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Sýningin, BÖRN AÐ LEIK
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Þitt er valið
síbreytileg sýning
valin af almenningi
Leiðsögn
sunnudaginn 2. mars kl. 15
H N I T
Haraldur Jónsson
Þriðjudag 4. mars kl. 12
Hádegistónleikar
Helga Rós Indriðadóttir sópran
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Verið
velkomin
Viðmið
Paradigm
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Leiðsagnir föstudaga kl. 12.10
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Málþing verður haldið í dag kl. 13-
16 í Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi, í tengslum við sýningu á
verkinu Undirstöðu eftir Katrínu
Sigurðardóttur sem var framlag
Íslands á Feneyjatvíæringnum í
fyrra. Fjallað verður um arkitekt-
úr í verkum Katrínar og mun
listamaðurinn ræða ítarlega um
verkið sem er nú til sýnis í Hafn-
arhúsi.
Julian E. Bronner, blaðamaður
hjá hinu virta listtímariti Art-
forum, mun ræða um verkið við
Katrínu og haldnar verða pall-
borðsumræður sem fjórir arkitekt-
ar sem hafa unnið með Katrínu að
verkum hennar taka m.a. þátt í.
Þátttakendur á málþinginu eru
Pétur H. Ármannsson arkitekt,
Sigrún Birgisdóttir, deildarforseti
Hönnunar- og arkitektúrdeildar
Listaháskóla Íslands, Julian E.
Bronner, Hólmfríður Ósmann
Jónsdóttir og Hrefna Björg Þor-
steinsdóttir, arkitektar hjá Arki-
búllunni. Einar Örn Benediktsson,
formaður menningar- og ferða-
málasviðs Reykjavíkurborgar,
flytur inngang.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Undirstaða Gestir virða fyrir sér verk Katrínar í Hafnarhúsi.
Blaðamaður Artforum á málþingi
Tónleikar til heiðurs tónskáldinu
Gunnari Reyni Sveinssyni, sem lést
árið 2008, verða haldnir í dag kl. 17
í Háteigskirkju. Gunnar fæddist ár-
ið 1933 og hefði því orðið áttræður í
fyrra. Mörg þekkt verk eftir Gunn-
ar verða flutt á tónleikunum sem
Kvintett Reynis Sigurðssonar og
Kammerkór Mosfellsbæjar standa
að og eru þeir á vegum Listafélags
Háteigskirkju. Í Kvintett Reynis
Sigurðssonar eru auk Reynis, sem
spilar á víbrafón, Sigurður Flosa-
son á saxófón og flautu, Andrés Þór
Gunnlaugsson á gítar, Gunnar
Hrafnsson á bassa og Pétur Grét-
arsson á slagverk. Símon H. Ív-
arsson flytur einleik á gítar og
Heiðrún Guðvarðardóttir syngur
einsöng við undirleik Símonar.
Kammerkór Mosfellsbæjar syngur
nokkur kórverk Gunnars með
áherslu á lög hans við ljóð eftir
Halldór Laxness. Á fyrri hluta tón-
leikanna verða flutt lög sem samin
voru af ýmsu tilefni, t.d. fyrir leik-
sýningar, kvikmyndir og tónleika.
Til heiðurs
Gunnari
Tónskáldið Gunnar Reynir Sveins-
son árið 2003. Hann lést árið 2008.
Morgunblaðið/Sverrir