Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. KEMUR HEILSUNNI Í LAG EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA Baldur Arnarson Helgi Bjarnason Stefán Gunnar Sveinsson Fyrrverandi formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands segist hafa ákveðið að bankinn skyldi greiða málskostnað Más Guðmundssonar seðlabankastjóra vegna málarekst- urs hans gegn bankanum vegna launamála. Núverandi bankaráðs- menn vilja skoða málið og formað- urinn ætlar að gefa sér tíma í það. Már höfðaði málið eftir að kjara- ráð hafði lækkað laun hans og ann- arra embættismanna á grundvelli laga nr. 87/2009. Már taldi að ekki hefði verið heimilt að skerða laun hans og starfskjör eftir skipun í embætti, en tapaði málinu fyrir bæði héraðsdómi og Hæstarétti. Úr- skurðað var að málskostnaður félli niður, það er að báðir aðilar bæru sinn kostnað. Hagsmunamál Seðlabankans Lára V. Júlíusdóttir, hæstaréttar- lögmaður og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands 2009 til 2013, staðfesti með yfirlýsingu í gær frétt Morgunblaðsins um að bankinn hefði greitt málskostnað Más. Hún rifjar upp að bankaráðið hafi beðið Andra Árnason hrl. um lögfræðilega álitsgerð um réttarstöðu seðla- bankastjóra. Niðurstaða hans hafi verið að ekki væri hægt að breyta launum seðlabankastjóra á skipun- artíma og því kæmi úrskurður kjararáðs ekki til framkvæmda fyrr en að honum liðnum. Má Guðmunds- syni hafi ekki tekist að fá kjararáð til að staðfesta niðurstöðu álitsins. „Eina leiðin til að fá úr þessu skorið var fyrir dómstólum. Það var ekki síður hagsmunamál Seðlabankans sjálfs að fá úr þessu skorið en þess einstaklings sem á hverjum tíma gegnir embætti seðlabankastjóra. Í ljósi þessa var sú ákvörðun tekin að bankinn stæði straum af öllum kostnaði vegna málsins,“ segir í yf- irlýsingu Láru. Nánar aðspurð sagði Lára að hún hefði tekið ákvörðunina. Spurð hve- nær sagði hún að erfitt væri að tíma- setja það. „Ég tók hana ekki á ein- hverju einu augnabliki. Hún varð til og þetta leiddi hvað af öðru.“ Að- spurð hvort hún hefði haft umboð til þess að taka þessa ákvörðun segir Lára að hún telji sig hafa haft stuðn- ing meirihluta bankaráðsins fyrir henni, en vísaði til yfirlýsingar sinn- ar að öðru leyti. Athygli vekur að Seðlabankinn sóttist eftir því fyrir dómi á báðum dómstigum að Már greiddi máls- kostnað bankans. Lára segir að það sé eðlileg krafa sem sé höfð uppi í öllum dómsmálum. Málið ekki tekið upp á fundi Ragnar Árnason, hagfræðipró- fessor og fulltrúi í bankaráði Seðla- bankans þá og nú, telur að ákvörðun um endurgreiðslu málskostnaðar seðlabankastjóra hafi verið tekin í lok júnímánaðar 2013, á síðustu dög- um þess bankaráðs sem Lára var í forsæti fyrir í umboði fyrri ríkis- stjórnar. Þess má geta að nýtt bankaráð var kosið á Alþingi 5. júlí og þar urðu mikil mannaskipti. Spurður um umboð formanns bankaráðsins til að ákveða útgjöldin segir Ragnar: „Mér vitanlega hefur hún ekki leitað eftir umboði banka- ráðsins. Málið hafi ekki verið tekið upp á fundi. Þess vegna gerir hún þetta upp á sitt eindæmi. Ég tel að bankaráðið hafi ekki haft minnstu ástæðu til að ætla að þetta yrði gert.“ Lára segir í yfirlýsingu sinni að bankaráðið hafi verið upplýst um stöðu dómsmálsins og hafi haft öll tök á að fylgjast með málinu. [E]n ég sem formaður ráðsins hafði megin- umsjón með rekstri málsins fyrir hönd bankans og átti í samskiptum við þá sem önnuðust málarekstur- inn, eftir þörfum.“ Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráð- herra og alþingismaður sem var varaformaður bankaráðsins, segist ekki geta tjáð sig um málið. Hann hafi ekki forsendur til þess, vegna þess að hann hafi ekki fundargerðir bankaráðsins undir höndum eða önnur nauðsynleg gögn. Málið verði skoðað „Ég á von á því að núverandi bankaráð taki þetta mál til skoðunar og hugleiði hvort það hafi skert hag bankans og hvort almannafé hafi verið notað á óeðlilegan hátt,“ segir Ragnar Árnason þegar hann er spurður um hugsanleg eftirmál. Um áhrif málsins á stöðu Más Guð- mundssonar seðlabankastjóra segir hann: „Það er alvarlegt að upp geti komið mál sem veikja það trúnaðar- traust sem bankinn verður að hafa í samfélaginu. Hann verður að vera hafinn yfir allan vafa um réttmæta meðferð á fé.“ Þarf að afla upplýsinga Ólöf Nordal, formaður bankaráðs Seðlabankans, segir að hún hafi fyrst heyrt af málinu í fjölmiðlaum- fjöllun gærdagsins. Hún vildi ekki tjá sig um málið á þessu stigi, þar sem bankaráðið þyrfti að afla upp- lýsinga fyrst. „Ég tel að það sé best að menn skoði hvernig málið er í pottinn búið og gefi sér tíma í það.“ Ólöf tekur fram að málið hafi verið í tíð fyrra bankaráðs. „Þetta mál hef- ur aldrei komið inn á borð núver- andi bankaráðs og aldrei verið rætt þar.“ Blaðamenn Morgunblaðsins hafa ítrekað reynt að hafa samband við Má Guðmundsson vegna málsins en hann hefur ekki svarað. Mál Más verði tekið fyrir  Fyrrverandi formaður bankaráðs ákvað greiðslu málskostnaðar fyrir Má  Leitaði ekki eftir umboði bankaráðs  Verður að vera hafinn yfir allan vafa Lára V. Júlíusdóttir Már Guðmundsson Ólöf Nordal Morgunblaðið/Ómar Málskostnaður Seðlabankinn greiddi allan málskostnað Más Guðmunds- sonar seðlabankastjóra í málaferlum gegn bankanum vegna launamála. Ragnar Árnason Talsvert líf er enn í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi þótt ekki hafi orðið stórfelldur síldardauði þar í vetur. Mikið er af fugli á firðinum, en einnig selur, og nýtur góðs af síldinni sem enn er í firðinum. Mikið er af dílaskarfi í Kolgrafafirði og er hann í æti, segir Jens Magnús Jakobsson sem þar var á ferð á dög- unum. Nokkrir dílaskarfar sem skotnir voru fyrir utan brú voru fullir af æti. Nokkrir höfðu tekið með sér nesti þegar þeir voru skotnir, voru með heilar síldar í háls- inum. Þegar þeir voru teknir upp rann síldin út í gogginn. Miklar ráðstafanir voru gerðar í haust til að draga úr hættu á síldardauða þegar stórar síldartorfur gengu inn í fjörðinn. Meðal annars var reynt að smala henni út með sprengingum. helgi@mbl.is Dílaskarfurinn geymir nestið sitt í hálsinum Ljósmynd/Jens Magnús Jakobsson Æti Nægt æti er fyrir dílaskarfinn í Kolgrafafirði.  Mikið líf í Kolgrafafirði og fuglinn nýtir sér síldina Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, mun hitta utanríkismála- nefnd Alþingis á þriðjudagsmorg- un á stuttum fundi. Kasparov verður staddur hérlendis vegna Reykjavíkur- skákmótsins sem nú er í fullum gangi. Birgir Ármannsson, formað- ur utanríkismálanefndar, segir að sú hugmynd hafi komið upp í nefndinni að forvitnilegt væri að heyra álit skákmeistarans á pólitísku ástandi í Rússlandi og nágrenni, en Kasparov hefur verið í forystu stjórnarand- stöðunnar gegn Vladimír Pútín, Rússlandsforseta. Því var haft sam- band við hann og þessu komið í kring. „Við töldum rétt að heyra hans sýn á þessi mál. Hann hefur verið virkur þátttakandi í pólitísku lífi í Rússlandi, og þess vegna væri forvitnilegt að heyra hans sjónarmið vegna þess sem er að gerast,“ segir Birgir. sgs@mbl.is Kasparov ræðir við nefndina Garry Kasparov  Kemur vegna Reykjavíkurmótsins Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokks- ins, sagði í gær á heimasíðu sinni að eins og málið liti út hefði Alþingi verið sagt ósatt um málið í skriflegri fyr- irspurn hans á Alþingi og sem þáverandi fjármálaráðherra, Katrín Júlíusdóttir svaraði 31. janúar 2013. Katrín segir að ekkert rangt hafi komið fram í svari sínu, þar sem það hafi verið miðað við úrskurð hér- aðsdóms, eftir að málinu hafði verið áfrýjað til Hæsta- réttar. Þetta voru því bestu upplýsingar sem fjár- málaráðuneytið hafi haft um málið, en þær komu frá Seðla- bankanum. „Í svarinu er fyr- irvari um kostnaðinn vegna þess að málið var enn fyrir Hæstarétti.“ Katrín segir að ákvörðunin um að greiða málskostnaðinn hafi ekki ver- ið borin undir ráðuneytið enda sé Seðlabankinn sjálf- stæð stofnun. Upplýsing- arnar frá SÍ KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Veðurstofan varar við stormi, meira en 20 metrum á sekúndu, á Suðausturlandi og á miðhálendinu síðdegis á dag en norðvestantil í kvöld. Einnig er búist við mikilli úr- komu suðaustanlands síðdegis í dag. Það verður því ekkert ferða- veður víða um landið og vegfar- endur því hvattir til að kynna sér vel færð og veður áður en lagt verð- ur í hann. Á morgun snýst til norðanáttar og þá er spáð hvössum vindi og hríðarveðri á Vestfjörðum og Norð- urlandi og óskemmtilegu ferða- veðri. Morgunblaðið/Ómar Veður Brim var úti fyrir Gróttu í gær. Stormviðvörun og ekkert ferðaveður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.