Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 50
50 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 SMELLT EÐA SKRÚFAÐ, VIÐ EIGUM BÆÐI Þú getur verið afslappaður og öruggur við grillið með AGA gas. Öruggur um að þú ert að nota gæðavöru og að þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú nýtir þér heimsendingarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú heimsækir söluaðila AGA. Farðu á www.gas.is og finndu nálægan sölustað eða sæktu öryggisleiðbeiningar og fáðu upplýsingar um AGA gas. www.GAS.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er kominn tími til þess að njóta ávaxta erfiðisins. Passaðu að falla ekki fyrir einhverjum háskalegum – stolta skúrkinum eða yfirlýsta flekaranum. 20. apríl - 20. maí  Naut Það getur verið einmanalegt að bera of mikla ábyrgð og hafa of mikla stjórn á hlutunum. Gefðu þér nokkra daga til að hugsa málið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er vandi að velja og því meiri þeim mun fleira sem í boði er. Reyndu ekki að eyðileggja málið með því að þykjast geta sóst eftir meiru. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Matur er mannsins megin en of mikið má af öllu gera svo þú skalt fara þér varlega á þessu sviði sem öðrum. Fórnir fela í sér að maður veit aldrei hverjar niðurstöð- urnar verða. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einbeittu þér að því að breiða út áhrif þín og taka á þig meiri ábyrgð. Komdu fólki á óvart, hristu upp í hlutunum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú eru það fjármálin og fjölskyldan sem þú þarft að beina athyglinni að. Einhver heima fyrir þarf á þér að halda, gefðu þér tíma til þess að hlusta. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það eru þessir mörgu smáu hlutir sem á endanum skapa frið og ró. Hreyfingin er holl og samvistin við náttúruna er gefandi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt þú hafir margt á þinni könnu er engin ástæða til þess að láta að- varanir annarra sem vind um eyru þjóta. Krabbi hjálpar þér að taka til hendinni þegar þú veist ekki hvað gera skal næst. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú munt njóta þess að fara í stutta ferð í dag. Líf þitt gæti fyllst af dóti sem gerir ekkert annað en að koma í veg fyrir að þú sækist eftir raunverulegum og innihaldsríkum markmiðum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú færð meiri athygli með því að láta lítið á þér bera, en aðrir fá fyrir að standa í kastljósinu. Bíddu í nokkra daga og sjáðu til hvort ástandið lagast. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ást og leikur eru þér efst í huga í dag. Nýttu þér þennan áhuga því þér gengur vel í því sem þú tekur þér fyrir hendur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert ekki sömu skoðunar og yf- irmaður þinn um málefni fyrirtækisins og aðra hluti sem því tengjast. Mundu umfram allt að vera heiðarleg/ur við sjálfa/n þig. Síðasta laugardag var þessigáta eftir Svein Víking í Vísnahorni: Galli hulinn oftast er. Eyrum við þótt kveði hátt. Nafn á synd í heimi hér. Háir þeim sem eiga fátt. Hjörtur Hjálmarsson á Flateyri átti tvær lausnir: Í okkar þjóð er einhver brestur ei þótt glymji héraðsbrestur meðal annars er sá brestur uppivöðsluleysis brestur. Síðari lausnin var svona: Í bresti berja hæpið held ég, héraðsbrestur leynist vart, bresta minna gjarna geld ég, gleðst ei sá er brestur margt. Guðmundur Arnfinnsson skrif- aði mér og sagði, að sér hefði orðið á í messunni við ráðningu á gátunni um bóndann á Kaupangi í Eyjafirði með því að tilgreina rangt föðurnafn: Gilt ég vildi veita svar í vísnagátu spjalli, kveðskapurinn klúður var, en Kolbeinn varð mér að falli. Guðmundur hafði ábúendatalið ekki við höndina: Brunninn viðarbútur einn, beinvaxinn hann er sem teinn. Og getur hvort tveggja staðist að mínu viti, Kolbeinn og Ás- brandur. Síðan bætir Guðmundur við og er nú vafalaust, að lausnin er rétt: Gáta snjöll oss gleður enn, gefst að nýju frestur. Birtist okkur svarið senn, sem er, hygg ég, brestur. Hér kemur vísnagáta eftir Pál Jónasson í Hlíð: Hann er til að herða ró, hlutur jakans upp úr snjó, myndast oft í sinu sá sumra manna höku á. Ráðning birtist eftir viku. Gam- an væri að fá sendar gátur. Páll yrkir um Tálfuglinn (Famous Grouse): Hún tælir þá lyngrjúpan rauða, ríka menn bæði og snauða, en ég er þjóðrækinn maður, og þorrablótsglaður, og sýp bara Svartadauða. Halldór Blöndal, halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vangaveltur um spurningar og svör Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... samstiga par. LÖGREGLU- BÚÐINÚTSALA STORKNAÐ BLÓÐ 249 KR. STÖK HÁR BROTNAR TENNUR 749 KR. BEINFLÍSAR 449 KR./KG ÝMSIR LÍKAMSHLUTAR BÍLAÞVOTTASTÖÐ ODDI, HÆTTU AÐ GELTA AÐ SPEGLINUM.VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! VOFF! VOFF!VOFF! URRRRR! HRÓLFUR, ÞÚ ERT OF ALVARLEGUR ... ÞÚ ÞARFT AÐ VERA AÐEINS LÉTTARI Á ÞÉR ... SVONA UM ÞAÐ BIL 25 KÍLÓUM LÉTTARI! GET ÉG EKKI KOMIÐ EINU SINNI TIL ÞÍN ÁN ÞESS AÐ ÞÚ SETJIR ÚT Á ÞYNGD MÍNA?! Það er einn maður sem Víkverjiþreytist seint á að mæra. Það er David nokkur Attenborough. Vart þarf að taka fram að mánu- dagskvöld eru þau bestu í vikunni því þá er náttúrulífsþáttur hans um Afríku á dagskrá RÚV. Víkverji nýtur þess að heyra rödd hans skýra frá þeim fyrirbærum sem birtast á skjánum og greina undur náttúrunnar á skýran og skilmerki- legan hátt. x x x Það sem meira er að í þáttunumer myndatakan einstök. Mynda- tökumennirnir sem ná að festa at- ferli dýranna á filmu hafa í raun unnið einstakt afrek. Það er mjög gefandi að fá að sjá þá á bak við tjöldin. Þar eru að störfum menn (Víkverja sýnist nefnilega flestir vera karlmenn í hópunum) sem ganga í gegnum ýmislegt til þess eins að ná einstökum myndum; myndum sem jafnvel hafa ekki náðst áður. Þeir eru bitnir af alls kyns skordýrum og annarri óværu sem gjarnan fylgir Afríkudvöl. Þeir leggja líf sitt jafnvel að veði, sam- anber eitt skipti þegar verið var að festa atferli fíla um nótt á filmu. Þá mátti myndatökumaðurinn dúsa langt uppi í tré heila nótt. Atgang- urinn var slíkur að myndavélabún- aðurinn var í stórhættu – en fíla- hjörðin náðist á filmu og þá var markmiðinu náð. x x x Skyldi engan undra því meiriástríða og elja en hjá Attenbor- ough er vandfundin. Hann er enn að miðla til okkar undrum náttúrunnar og slær ekki af þrátt fyrir að vera orðinn býsna aldraður. Þetta kallar maður góða endingu í starfi. En það sem þarna er að verki er að vinna og áhugamál sameinast í eitt. Víkverji álítur, eftir að hafa lesið hina stórmerkilegu bók The Ele- ment, How finding your passion changes everything eftir sir Ken Robinson, að meistari Attenbor- ough hljóti að hafa verið að stórum hluta fyrirmynd Robinsons. Boð- skapur bókarinnar er í raun einfald- ur: Finndu það sem gerir þig ham- ingjusaman og gerðu það að ævistarfi þínu. víkverji@mbl.is Víkverji Hjá Guði er hjálpræði mitt og veg- semd, minn örugga klett og athvarf mitt hef ég í Guði. (Sálmarnir 62:8)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.