Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
Aðalsteinn Ingólfsson listfræð-
ingur hefur safnað saman all-
mörgum portrettmyndum af ís-
lenskum rithöfundum frá ýmsum
tímum. Þær hafa verið hengdar
upp á veggi Gunnarshúss, höf-
uðstöðva Rithöfundasambands Ís-
lands, Dyngjuvegi 8. Í tilefni þess
verður Gunnarshús opið gestum í
dag, laugardag, milli klukkan 15
og 17.
Aðalsteinn mun við það tækifæri
halda tölu um hin ólíku listaverk,
Pétur Ármannsson talar um Gunn-
arshús, þessa stílhreinu byggingu
Hannesar Davíðssonar arkitekts,
og Kristín Steinsdóttir, formaður
RSÍ, talar um veru sambandsins í
húsinu. Fyrir utan málverk og
höggmynd af Gunnari Gunn-
arssyni, sem bjó í húsinu, gefur
meðal annars að líta portrett
Magnúsar Á. Árnasonar af Jóni úr
Vör, teikningu Alfreðs Flóka af
Jóhanni Hjálmarssyni og málverk
Jóns Engilberts af Þórbergi Þórð-
arsyni.
Umfjöllun þremenninganna
hefst klukkan 15, aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Steinn Ein myndanna sem Kristján
Davíðsson málaði af Steini Steinarr.
Málverk af höfundum
sett upp í Gunnarshúsi
Ljóðskáldið Stórt málverk Baltas-
ars Samper af Sigfúsi Daðasyni.
Ofvitinn Jón Engilberts túkaði Þór-
berg Þórðarson í þessu verki.
Þorpsskáld Jón úr Vör ungur í mál-
verki eftir Magnús Á. Árnason.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Á tónleikum Borgars Magnasonar
kontrabassaleikara og Páls Ivans
frá Eiðum, flytjanda og tónskálds, í
Hafnarborg á sunnudagskvöld
klukkan 20 verður hefðbundnum
hugmyndum um uppbyggingu tón-
verka í dúr og moll varpað fyrir
róða og unnið út frá annars konar
forskrift fyrir hljóðfæraleikarana.
Tónleikana kallar félagarnir „Sam-
ræðu um tákn“ og eru þeir hluti
Hljóðanar, tónleikaraðar sem er
helguð tónlist frá 20. og 21. öldinni
þar sem hugmyndaauðgi og listræn
glíma tónskálda leiða áheyrendur
inn á áður ókunnar slóðir.
„Verkin sem við flytjum byggjast
hvert á sinni nótnaskrift,“ segir
Borgar. „Í dag er búið að opna
nótnaskrift fyrir hverju sem er,
nánast, og í hverju verki er verið að
nálgast þessi samskipti tónskálds
og túlkanda með nýjum hætti.“
Á meðal höfunda verka eru þeir
Borgar og Páll Ivan, Earl Brown og
Matthew Shlomowitz.
„Við frumflytjum þrjú verkanna.
Að vissu leyti eru þessir tónleikar
farvergur fyrir hljóðheim okkar
Páls Ivans og við völdum inn í dag-
skrána verk sem myndu gefa okkur
sem fjölbreytilegust færi á að rann-
saka hann. Eitt af verkunum á dag-
skránni er „December 1952“ eftir
Earl Brown. Það er hvað frægast af
verkum sem byggjast á „graphic
notation“, nótnaskrift sem er í
rauninni myndlist sem maður túlkar
og styðst við útskýringar tónskálds-
ins á því hvað hann er að fara. Þetta
er hvað opnasta verkið og hljómar
aldrei í tvö skipti eins. Annað verk
er eftir Shlomowitz og það byggist
á mjög nákvæmum arkitektúrískum
strúktúr; við ákveðum hvaða efni
við setjum inn en þurfum síðan að
fara eftir mjög nákvæmu ferli.
Þá frumflytjum við verk eftir
mig, þar sem þetta blandast saman,
að hluta hefðbundin nótnaskrift en
einnig skrifaðar skýringar til leið-
beiningar. Nóturnar að verki Páls
Ivans sem við frumflytjum eru hins
vegar í formi vídeóverks, hreyfi-
myndar sem er varpað á vegg og
við lesum það um leið og áhorf-
endur.“
Dagskráin endar á verki sem
Borgar pantaði frá Haraldi Jóns-
syni myndlistarmanni og Haraldur
tekur þátt í að flytja ásamt aðstoð-
arfólki.
„Í verkum Haraldar birtist svo
sterk tilfinning fyrir tempói og
strúktúrum og hann bjó til þetta
frábæra verk,“ segir Borgar. „Á
neðri hæð Hafnarborgar er sýning
á myndverkum Haraldar og það
sem hann samdi fyrir okkur kallast
í raun á við hana.“
Borgar segir að framsækin og til-
raunakennd tónlist njóti sífellt meiri
vinsælda, ekki síst meðal yngri
hlustenda. „Þetta er orðið „mein-
strím“ – það er orðið sjálfsagt að
takast á við formið. Við erum ekki
lengur utangarðs,“ segir hann og
hlær.
„Það er orðið sjálfsagt
að takast á við formið“
Samræða um tákn á tónleikum í Hafnarborg á sunnudag
Flytjendurnir Páll Ivan frá Eiðum og Borgar Magnason í Hafnarborg. Þeir vinna með fjölbreytilegar nótur.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Þú færð SKECHERS karlmannsskó í: Skór.is, Kringlunni og Smáralind
Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport, Reykjavík
Outlet Skór, Reykjavík | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi
Blómsturvellir, Hellisandi | Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri
Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Versl. Skógum,
Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó,
Vestmanneyjum | Skóbúðin, Keflavík
ÞAÐ FER BETUR
UM FÓTINN
SKECHERS MEMORY
FOAM INNLEGG
ÞÚ FINNUR STRAX
MUNINN OG ÞÆGINDIN
Menntaskólinn v/Hamrahlíð verður með opið hús
miðvikudaginn 12. mars frá kl. 17:00-19:00
Námsframboð skólans, inntökuskilyrði
og félagslíf verður kynnt.
10. bekkingar og forráðamenn þeirra
eru sérstaklega velkomnir.
MENNTASKÓLINN
V/HAMRAHLÍÐ
OPIÐ HÚS
miðvikudaginn 12. mars 2014