Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.03.2014, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 ✝ Björn Jón Sig-tryggsson fæddist á Seyð- isfirði 5. maí 1937. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 2. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Páll Sig- tryggur Björnsson frá Gilsárteigi í Eiðaþinghá, f. 22.5. 1902, d. 11.12. 1991, og María Ólafsdóttir frá Hvassafelli í Borgarfirði syðri, f. 28.10. 1905, d. 21.8. 1979. Systkini Björns eru: Guðborg Björk, f. 28.7. 1931, Klemens Baldvin, f. 12.3. 1935, d. 2.4. 2012, Kristinn Reynir, f. 13.4. 1943, Arndís, f. 28.4. 1945, og Sigurbjörn, f. 16.2. 1948, d. 9.7. 2009. Eiginkona Björns var Guðrún Borghildur Þórisdóttir, f. 28.11. 1934 í Garðshúsi á Seyðisfirði, d. 2.3. 2012. Foreldrar hennar voru Þórir Daníelsson sjómaður, f. 20.7. 1909, d. 7.12. 1964, og Ragnheiður Jónsdóttir, f. 22.8. 1897, d. 6.7. 1981. Börn Björns og Guðrúnar eru: 1) Birna, f. 29.4. 1960, maður hennar er Stefán G. Lín Geirsdóttir, f. 14.5. 1989, barn hennar er Röskva María, f. 18.10. 2011. 6) Daníel, f. 21.6. 1973, maki hans er Jóhanna Magnúsdóttir, f. 23.2. 1976, börn þeirra eru Bjarki Sólon, f. 25.9. 2002, og Gabríel, f. 16.4. 2007. Björn gekk í Barnaskóla Seyðisfjarðar og síðar í Alþýðu- skólann á Eiðum. Hann vann ým- is störf. Á síldarárunum vann hann á síldarplönunum. Hann var bankagjaldkeri um langt skeið. Á síðari árum gekk hann til almennrar verkamannavinnu. Áhugamál Björns voru hestar og tónlist og söng hann í sam- kórnum Bjarma á Seyðisfirði. Einnig spilaði hann á harm- ónikku og spilaði í harm- ónikkuklúbbi á Seyðisfirði. Björn og Guðrún gengu í hjónaband hinn 26. desember 1959 og bjuggu þau alla sína tíð á Seyð- isfirði. Fyrstu búskaparár sín bjuggu þau í Baldurshaga. Hinn 7. apríl 1968 flutti fjölskyldan í sitt eigið húsnæði á Múlavegi 31 þar sem þau bjuggu allt til ævi- loka. Björn var mjög stoltur afi og þótti ákaflega vænt um öll barnabörnin og barna- barnabörnin sín. Hann hafði ein- stakt lag á þeim og gaf sér tíma til að spjalla við þau eða dunda við ýmsa skemmtilega hluti. Björn verður jarðsunginn frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 8. mars 2014, og hefst athöfnin klukkan 14. Gunnarsson, f. 15.3. 1962, börn þeirra a) Smári Björn, f. 23.8. 1981, maki Svala Ásgeirsdóttir, f. 11.5. 1977, barn þeirra er Mábil, f. 21.10. 2011, b) Ólaf- ur Grétar, f. 18.11. 1984, maki Guðrún Magnúsdóttir, f. 1.11. 1987, börn þeirra eru Magnús Gunnar og Stefán Rúnar, f. 4.6. 2007, Sunneva Rós, f. 4.4. 2010, c) Hafþór Örn, f. 15.12. 1988, maki Svanhvít Valtýsdóttir, barn þeirra er Viktor Ingi, f. 25.2. 2013. 2) Ragnheiður Þóra, f. 25.8. 1961, barn hennar Borghildur Dóra, f. 1.5. 1984, maki Svein- björn Guðmundsson, f. 27.7. 1983, barn Borghildar er Svavar Máni, f. 8.4. 2005, barn Borghild- ar og Sveinbjörns er Birta Nótt, f. 27.11. 2009. 3) Páll Sigtryggur, f. 10.10. 1962, börn hans Anika, f. 3.7. 1992, og Harpa, f. 23.9. 1994. 4) Pétur, f. 13.6. 1964, börn hans eru Erlingur Þór, f. 11.2. 1990, Heiða María, f. 2.1. 2001, og Jón Valberg, f. 11.4. 2004. 5) María, f. 31.5. 1966, barn hennar er Irma Það eru erfið spor að kveðja foreldra sína hinstu kveðju. Fyrir tveimur árum kvöddum við elsku- lega mömmu, eða hinn 2. apríl 2012. Nákvæmlega tveimur árum síðar stend ég í þeim sporum að kveðja þig elsku pabbi minn. Ekki bjóst ég við að þú færir svona snöggt frá og á erfitt með að sætta mig við að þú sért farinn. Ótal minningar vakna. Alltaf gafstu þér góðan tíma til að verja með mér. Þegar ég var lítill patti spiluðum við mikið saman. Í hjól- hýsaferðunum okkar áttum við einstaklega ljúfar og góðar stund- ir. Sjónvarpslausu fimmtudags- kvöldin eru mér minnisstæð. Þú varst mikill dýravinur eins og mamma, alltaf var köttur eða hundur á heimilinu og hændust þau öll að ykkur. Hundar voru í miklu uppáhaldi hjá þér og eftir að mamma dó var Labbi, og síðar Zorro, þitt haldreipi og einn besti félagi. Strákarnir okkar fengu að njóta þeirra kosta sem þú hafðir. Þú gafst þeim alltaf tíma, hvort sem það var við spjall, grín eða leik. Það var ósjaldan sem þú sótt- ir kubba- og bílakassann eða tin- dátana og settist með þeim og lékst við þá. Það er merkilegt hvað hægt var að gera lítinn dóta- kassa ótrúlega spennandi. Þú hafðir lag á því. Eitt af því einstaka í fari þínu var endalaus þolinmæði og átti hún það jafnvel til að gera aðra óþolinmóða. Þessi einstaki kostur þinn var líklega hluti af öðrum kosti sem þú hafðir sem var þrjóska. Hún var alveg endalaus en nánast undantekningalaust á góðan máta, því þú varst sann- gjarn og hlustaðir á rök. Annað sem einkenndi þig var umburðar- lyndi og ósérhlífni. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Það voru auðvitað erfiðir tímar í þínu lífi eins og lífi annarra. Þeg- ar ég kom fyrst heim til þín eftir að þú varst farinn settist ég inn í svefnherbergið ykkar mömmu. Það var skrítin tilfinning og mjög erfið. Á veggnum við rúmið þitt hangir bæn sem ég þykist vita að þú hafir reynt að tileinka þér: Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Elsku besti pabbi minn. Það eru þung spor að kveðja þig. Þessari stundu hef ég alltaf kviðið fyrir, stund sem markar tímamót í lífi sérhverrar manneskju. Ég reyni að sætta mig við missinn með því að hugsa um að þú sért kominn til þeirrar manneskju sem þú elskaðir og dáðir. Ég þykist vita að það séu fagn- aðarfundir hjá þér og mömmu núna á öðrum stað. Gabríel er viss um að amma Gunna hafi bak- að köku og sett í ísskápinn til að eiga fyrir þig þegar þú kemur til hennar. Bjarki Sólon, Gabríel og Jóhanna sakna afa Kúdda óend- anlega mikið. Betri afa og tengdapabba var ekki hægt að eiga. Þú gefur ömmu Gunnu stórt knús frá okkur. Þín alltaf mun ég minnast fyrir allt það góða sem þú gerðir, fyrir allt það sem þú skildir eftir, fyrir gleðina sem þú gafst mér, fyrir stundirnar sem við áttum, fyrir viskuna sem þú kenndir, fyrir sögurnar sem þú sagðir, fyrir hláturinn sem þú deildir, fyrir strengina sem þú snertir, ég ætíð mun minnast þín. (FDV) Ég mun alltaf elska þig og geymi þig ávallt í hjarta mínu. Þinn litli kútur, Daníel. Meira: mbl.is/minningar Elsku afi/pabbi. Tárvot eru mín augu, því skyndilega þú mig kvaddir. Þú varst alltaf hetjan mín og minn klettur, og öllum þú varst svo góður. Nú inni í mér er tómarúm, sem ekki verður hægt að fylla. Þú varst mér sem faðir og kenndir mér svo margt, þú hjálpaðir mér í gegnum lífið. Stóran hluta af hjarta mínu þú alltaf átt, fullt er það af söknuði og ást, þig ég mun ávallt elska og aldrei þér gleymi, við góðar minningar eigum margar saman. Nú í sumarlandið ertu kominn, og heldur þar í elsku ömmu/mömmu hönd. Aftur mun ég ykkur hitta, þegar minni lífsins göngu lýkur, þá við verðurm aftur öll saman. (Dóra) Veittu mér kraft, ó, Guð, til þess að sjá eilífðina í hverri rós, komandi dag í hverjum blómknúppi, vorkomuna í sérhverju snjóföli, að fyrirheit regnbogans brosi við mér í sérhverju stormviðri! Þegar að þér er þrengt og allt hefur snúist gegn þér, þar til þér um síðir finnst að þú munir ekki þola við mínútu lengur – þá máttu ekki gefast upp, því einmitt þá er komið að þeim stað og stund þegar breyting mun verða á. (Dæda) Áður en það er um seinan, pabbi. Skáld þau oft vilja gráta er feður í jörðu þau láta, Í kistum þeir liggja nett. Þau minningar lifa upp á nýtt, sem feðrum hjálpar lítt og breytir ei röngu í rétt. En ljóðmælsku á ég ei til, svo afsaka strax ég vil alla árekstra svo heitið geti, alla lygi og alla leti, allar þráhyggjur í mér, allar áhyggjur hjá þér. Betra er að lifa en skrifa um horfna ást um slíkt ei fást, því þeir úr minningu munu ei mást meðan hjörtu vor áfram tifa. Ég hef alltaf tekið þér sem sjálfsögðum hlut. Pabbar, hélt ég, vissu allt um stjörnurnar og höfin og fjarlæga tíma og staði. Þeir kunnu margar frábærar sögur. Þeir höfðu ein- mitt réttu, þægilegu röddina til að lesa sögur fyrir háttinn. Þeir kenndu börnum sínum að blístra. Þeir bjuggu til leikföng handa þeim. Þeir gátu leikandi létt hnýtt sjómannahnúta. Þeim var alltaf treystandi til að semja lítil ævintýri. Þeir gátu gert við hvað sem var. Þeir voru þolinmóðir og ástríkir og áttu alltaf afgangs- skiptimynt. Feður gerðu allan heiminn öruggan. Nú veit ég auð- vitað að ég var ekki bara í hópi þeirra gæfusömu. Ég átti alveg einstöku láni að fagna. Elsku pabbi. Þín dóttir, Ragnheiður Þóra. Elsku pabbi minn. Nú ert þú kominn til mömmu eftir stutta bið. Söknuðurinn er sár því kallið kom svo skyndilega, þótt við viss- um að kannski væri ekki langt að bíða. Þú barst þig alltaf svo vel þegar við töluðum saman í síma, alltaf allt í lagi, en ég vissi betur. Það hafði dregið af þér síðasta ár, en við héldum kannski við hefðum aðeins meiri tíma. Þú varst alltaf svo ljúfur, það var hinn sanni þú, elsku kallinn minn. Ég minnist æskunnar sem var bæði upp og niður eins og gengur og gerist. Ég man hönd þina á vanga mínum, og þegar þú sagðist elska mig og okkur, börnin þín. Ég man þegar ég var barn og unglingur og kom heim úr skólanum í löngu-frímín- útum, og drakk alltaf smákaffi úr glasinu þínu sem var alltaf fyrir ofan vaskinn á eldhúsborðinu, því mér þótti ilmurinn af rakspíran- um þínum svo góður! Ég man líka þegar þú sagðir að fötin mín myndu upplitast ef ég bryti þau ekki saman á kvöldin, ég trúði þér. Kannski þess vegna geng ég alltaf vel um fötin mín! Það er þér að þakka að ég kann að fyrirgefa eins og þú. Öll erum við eitthvað gölluð en þannig eigum við að vera, fyrirgefningin hjálpar okkur að horfa fram á veginn og halda áfram með lífið í sátt og samlyndi. Þú varst mín stoð og stytta, minn súperpabbi, verndari og fræðari, allt sem ég gat óskað mér því án þín væri ég ekki eins og ég er. Ég elska þig alltaf pabbi minn og minning þín lifir í hjarta mér alla tíð. Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga, því er ver. Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Við gætum sungið, gengið um, gleymt okkur með blómunum. Er rökkvar ráðið stjörnumál. Gengið saman hönd í hönd, hæglát farið niður á strönd. Fundið stað, sameinað beggja sál. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Þín Birna. Björn Jón Sig- tryggsson (Kúddi) Látinn er dr. the- ol. sr. Arngrímur Jónsson rétt tæp- lega 91 árs að aldri. Undirritaður varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast vináttu hans, góð ráð og leiðsögn í 35 ár. Fyrir mikið er að þakka er við kveðjum nú. Sr. Arngrímur var um margt einstakur maður. Trúfesti hans, hollusta og eindrægni í þjónust- unni við hina heilögu leyndardóma trúarinnar var fágæt. Allt það mikla starf var honum lofgjörð í þakklæti til Hins Hæsta. Ungur komst hann til lifandi trúar og aðeins 23 ára að aldri tók hann vígslu til postullegrar þjón- ustu. Stefnufestan var óbilandi og bætti hann þjónustuárum við eftir formleg starfslok svo segja má að prestsþjónusta hans hafi spannað hálfa öld. Framlag hans til endurreisnar Síra Arngrímur Jónsson ✝ Síra Arn-grímur Jóns- son, dr. theol, fæddist 3. mars 1923. Hann lést 25. febrúar 2014. Útför hans fór fram 4. mars 2014. hinnar sístæðu messu hér á landi var ómetanlegt. Sérstak- lega má nefna setu hans í nefndum, greinaskrif, fræða- störf og fræðslu á því sviði. Veigamikið framlag hans til al- mennrar þekkingar á guðfræði og sögu tilbeiðslunnar er meðal annars bókin Litúrgía: Þættir úr sögu messunn- ar. Undirritaður naut persónu- legrar leiðsagnar hans í þeim fræðum um árabil. Sem persóna var sr. Arngrímur eftirminnilegur öllum þeim sem honum kynntust. Hann hafði skýr- ar og ákveðnar skoðanir, einkum í því sem honum var hjartfólgnast sem var þjónustan við Guðsríkið og innstu þætti lífs trúarinnar sem er tilbeiðslan sjálf. Alla tíð var hann vandlætingasamur um kirkj- una og bar málefni hennar fyrir brjósti til síðustu stundar. Í einkalífi sínu var hann mikill gæfumaður, átti trausta og vand- aða eiginkonu, Guðrúnu Sigríði Hafliðadóttur, sem lést árið 2005, og áttu þau vel gerð og umhyggju- söm börn og barnabörn. Um leið og við hjónin þökkum fyrir vináttu liðinna ára biðjum við fjölskyldu hans og ástvinum öllum Guðs blessunar á kveðjustundu. Gunnlaugur Garðarsson og Sigríður Halldórsdóttir. Ég minnist þess sem unglingur á Uxahrygg þegar séra Arngrím- ur sótti um prestsembættið í Odda 1946. Það voru tíðindi í sveitinni, en þó ekki óvænt, þegar séra Er- lendur Þórðarson lét af embætti. Hinum unga presti, aðeins 23 ára gömlum, var nokkur vandi á hönd- um, að taka við prestþjónustu af séra Erlendi, sem þjónað hafði í Odda í 28 ár og notið mikils trausts og almennra vinsælda. En Arngrími var vel tekið og vann hann fljótt til vinsælda og trausts meðal sóknarbarnanna. Foreldrar mínir voru stuðningsmenn séra Arngríms við kjör hans og fljót- lega eftir það þróaðist sterk vin- átta milli þeirra og ungu prests- hjónanna í Odda, séra Arngríms og frú Guðrúnar Hafliðadóttur. Ég minnist þess, að eftir að for- eldrar mínir brugðu búi og fluttu til Selfoss 1948, komu prestshjón- in í Odda jafnan við hjá foreldrum mínum, þegar þau áttu leið um Selfoss á ferðum sínum. Foreldrar mínir nutu þessarar sönnu vináttu þeirra til enda lífdaga þeirra. Haustið 1947 ákváðu prestshjónin að taka nokkra unglinga í nám ut- an skóla. Ég var einn af þeim sem settust á skólabekk í Odda, 16 ára gamall, og las fyrsta bekk gagn- fræðaskóla þar. Við vorum fjórir nemendurnir þennan vetur og við héldum til í Odda og vorum þar einnig í fæði. Arngrímur reyndist hinn besti kennari. Á köldum dög- um þennan vetur gat verið kalt í gamla húsinu í Odda, þá sagði Arngrímur stundum í léttum dúr, að við ættum að læra okkur til hita. Auk námstímans áttum við nemendurnir margar góðar stundir hjá prestshjónunum. Oft voru fjörugar umræður við mat- arborðið og á kvöldin um þjóðmál- in eða mál sem vörðuðu héraðið, sem þau þekktu lítið en voru mjög áhugasöm um að setja sig sem best inn í og kynnast sóknarbörn- unum og afkomu þeirra sem best. Dvöl mín í Odda varð raunar lengri en þessi eini vetur, því sum- arið 1950 var ég ráðinn kaupamað- ur, en prestshjónin höfðu þá kom- ið upp nokkrum búskap í Odda. Ég var oft fylgdarmaður séra Arngríms þetta sumar þegar hann þurfti að bregða sér milli bæja. Ég var þá kominn með bílpróf og ekki spillti það þessum ferðum með Arngrími, að hann leyfði mér oft að sitja undir stýri á jeppanum hans. Ég tel það eitt af gæfuspor- um í lífi mínu, að hafa átt samleið með prestshjónunum Guðrúnu og séra Arngrími í Odda. Það var gott og lærdómsríkt að vera ung- lingur á heimili þeirra. Fyrir það get ég aldrei fullþakkað, en geymi með mér góðar minningar frá þessum tíma. Arngrímur lét end- urbæta kirkjuna og mála utan sem innan, listavel svo að hún er innan dyra með fegurstu sveita- kirkjum, og auðsýnir helgidóm- inn, sem Oddakirkja er í hugum svo margra. Séra Arngrímur og Guðrún störfuðu í Odda í 18 ár og sagði Arngrímur að þau ár hefðu verið bestu ár ævi þeirra. Nú þeg- ar dagsverki þessara sómahjóna er lokið hér í hinu jarðneska lífi, kusu þau að vera lögð til hinstu hvíldar í kirkjugarðinum í Odda. Þar ríkir hljóðlát helgi sem þau hlúðu að og ræktuðu af einlægni. Ég og Hanna kona mín sendum börnum þeirra hjóna og fjölskyld- um innilegar samúðarkveðjur. Magnús L. Sveinsson. Hann var skarpur guðfræðing- ur, vellæs á aðstæður í samfélag- inu, nákvæmur og skorinorður predikari, laus við leiðinlegar aukasetningar, en markviss og trúr boðberi fagnaðarerindis Drottins. Helgihald, siðir og hefð- ir voru honum sannkölluð list, enda hálfrar aldar sífelldur lær- dómur og einlæg iðkun á því sviði einstök og mörgum fyrirmynd. Hann var einbeittur kennari, skemmtilegur og látlaus, vildi nemendum sínum allt það besta, en laðaði fram það besta mögu- lega hjá þeim. Við vorum allmörg, sem hann tók að sér, á eigin veg- um, leiðbeindi og hvatti til góðra verka. Glettni augna hans fylgdi okkur alltaf síðan. Við eigum hon- um margt að þakka. Þjóðkirkjan efldist og varð sannari en ella af þjónustu hans. Sóknarbörnum sínum var hann trúr og stéttinni sómi. Nú er hann burtsofnaður sá trúi þjónn. Friður Guðs sé yfir honum og varðveiti sálu hans. Guð blessi ykkur börnin hans og fjöl- skylduna alla. Birgir Ásgeirsson, prófastur í Reykjavík vestra. HINSTA KVEÐJA Ég kveð þig elsku afi með söknuði en miklu þakklæti fyrir að hafa átt jafn kærleiksríkan og góð- an mann eins og þig að. Bóel Sigríður Guðbrandsdóttir. HINSTA KVEÐJA. Fyrir hönd Prestafélag Íslands minnist ég sr. Arn- gríms Jónssonar heiðurs- félaga með virðingu og þakklæti. Nú hverfi oss sviðinn úr sárum að sjatni öll beiskja í tárum, því dauðinn til lífsins oss leiðir, sjá, lausnarinn brautina greiðir. (Þýð. Sigurbjörn Einarsson) Aðstandendum votta ég innilega samúð. Guðbjörg Jóhannesdóttir, formaður PÍ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.