Morgunblaðið - 08.03.2014, Side 14

Morgunblaðið - 08.03.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 Til að standa í skilum með útborg- unina var ákveðið að gefa út 50 króna skuldabréf en ekki tókst að greiða stimpilgjöldin fyrr en nokkru síðar. Landinu fylgdi íbúðarhús, stórt fjós og hlaða. Ólafur Sigurðsson, sem á sínum tíma var formaður Vals, átti mikinn þátt í kaupunum á landinu og skrif- aði eftirfarandi í Valsblaðið: „Þó að kaupin hafi verið gerð er takmark- inu ekki náð. Þau eru aðeins upp- hafið. Upphaf þess starfs sem á að tryggja félaginu fagran og fullkom- inn samastað, þar sem unnt verði að einbeita allri orku félagsins að hin- um eiginlegu verkefnum þess, íþróttaiðkunum sakir fullkominna ytri skilyrða og efnahagslegs sjálf- stæðis … Við verðum að gera til hans meiri kröfur en nokkurn tíma hafa verið gerðar hér á landi í þess- um efnum, svo miklar að þær stand- ist kröfur tímans um næstu 100 ár a.m.k.“ Dodge-bifreið í vinning Í Valsbókinni er birtur kafli úr viðtali við Jóhannes Bergsteinsson, sem var meðal leikmanna í fyrsta Íslandsmeistaraliði Vals árið 1930. Þar segir m.a.: „Við vorum stöðugt að leita að framtíðarsvæði fyrir Val, en það gekk seint. Ákveðið var í borgarstjórn að hvert félag í Reykjavík fengi einn völl hlið við hlið í Öskjuhlíðinni, en ég veit ekki hvernig átti að framkvæma slíkt. Við Ólafur fórum á fund háttsettra manna og vildum fá úthlutun strax en það gekk ekki eftir. Á þessum tíma frétti Ólafur að Hlíðarendi væri til sölu. Mörgum þótti ekki björgulegt að leggja út í kaupin, en við bjuggum til 50 króna skuldabréf, sem við seldum til Vals- manna og með þeim hætti eignuð- umst við Hlíðarenda. Þess má geta að mánaðarlaun verslunarmanna á þessum árum voru um 250-300 krónur. Það var oft fundað um þessi kaup því mörgum fannst félagið ekki ráða við þessa fjárfestingu. Nokkru eftir kaupin kom upp til- laga um að selja Hlíðarenda, en sem betur fer náði hún ekki fram að ganga. Geir í Hlíð leigði túnið fyrir kýrnar sínar til að byrja með og það létti undir með okkur. Við héldum happdrætti á stríðsárunum sem gaf okkur um 80.000 krónur. Við höfð- um keypt Dodge-bifreið af kaup- félagsstjóra, sem notuð var í vinn- ing.“ Kaupin á Hlíðarenda ollu nokkr- um deilum innan félagsins og ádeil- um útífrá. Skorað var á bæjarstjórn að taka þúsund króna árlegan styrk af félaginu sem færi svo gáleysis- lega með fé sitt. Innanfélagsmenn vildu einhverjir selja landsvæðið. Óánægjuraddir þögnuðu ekki fyrr en 1944 er Hlíðarendanefnd skilaði af sér tæplega 100 þúsund króna hagnaði af bílhappdrætti og hluta- veltu. Fáir kröfðust greiðslu Í samtali við Frímann Helgason í Valsblaðinu 1971 segist Hólmgeir Jónsson, sem var fyrsti gjaldkeri Hlíðarendanefndarinnar, ekki minn- ast þess að hafa innleyst nema tvö eða þrjú bréf. „Síðan kom svo stríð- ið og verðgildi peninganna rýrnaði, 50 krónur urðu lítils virði og munu fáir hafa krafizt greiðslu fyrir bréf sín,“ segir Hólmgeir. Hugsað til hundrað ára  Stórhuga Valsmenn keyptu Hlíðarenda 1939 fyrir 30 þúsund krónur  Mesta gæfuspor félagsins  Mikið átak  Kaupin voru m.a. fjármögnuð með útgáfu skuldabréfa, happdrætti og leigu á túni Breytingar Myndin er tekin frá Öskjuhlíðinni á svipuðum tíma og Valur keypti jörðina að Hlíðarenda árið 1939. Pólarnir eru handan íbúðarhússins á Hlíðarenda og fjær er Landspítalinn. Ljósmynd/Knattspyrnufélagið Valur Ljósmynd/Knattspyrnufélagið Valur Sjálboðaliðar Mikil vinna var við að hreinsa grjót af Haukalandssvæðinu í Öskjuhlíð svo völlur yrði tilbúinn á 25 ára afmæli Vals 1936. Frá vinstri: Andreas Bergmann, Sigurður Ólafsson, Jón Bergmann og Karl Jónsson. Nýjar umbúðir – sama innihald Náttúruolía sem hundar elska Við Hárlosi Mýkir liðina Betri næringarupptaka Fyrirbyggir exem Betri og sterkari fætur Polarolje „Hundurinn minn var búinn að vera í meðferðum hjá dýralækni í heilt ár vegna húðvandamála og kláða, þessu fylgdi mikið hárlos. Hann var búinn að vera á sterum án árangus. Reynt var að skipta um fæði sem bar heldur ekki árangur. Eina sem hefur dugað er Polarolje fyrir hunda. Eftir að hann byrjaði að taka Polarolje fyrir hunda hefur heilsa hans tekið stakkaskiptum. Einkennin eru horfin og hann er laus við kláðann og feldurinn orðinn fallegur.“ Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi Sími 698 7999 og 699 7887 Knattspyrnufélagið Valur var stofnað 1911 og tengdist starfi KFUM náið. Árið 1908 var stofnuð unglingadeild innan KFUM í Reykjavík og var séra Friðrik Frið- riksson leiðtogi deildarinnar. Á þessum tíma fæddist hugmynd hjá KFUM-drengjunum að stofna knattspyrnufélag en nokkur slík fé- lög höfðu þá verið stofnuð í Reykja- vík; KR 1899, Víkingur og Fram 1908. Það var síðan 11. maí 1911 sem haldinn var fundur á lesstofu KFUM þar sem sex piltar stofnuðu Fótboltafélag KFUM en nafninu var þegar sama ár breytt í Val. Sagt er að þegar þessir stofn- endur félagins voru að vinna við að laga völlinn sinn á stórgrýttum Mel- unum hafi fálki sveimað yfir höfð- um þeirra og þar fengu þeir þá hug- mynd að kalla félagið Val. Fyrsti Valsvöllurinn var vígður haustið 1911. Séra Friðrik hafði farið á fund Páls Einarssonar bæjarstjóra, sem veitti leyfi fyrir vellinum. Valsmenn fengu ekki notið vall- arins nema í tvö ár, því skyndilega lá leið járnbrautar yfir svæðið á leið með grjót úr Öskjuhlíð í hafnargerð í Örfirisey. Völlurinn var þá færður lítillega svo teinarnir lentu utan vallar. Það reyndist skammgóður vermir því árið 1917 var byrjað að reisa loftskeytastöð á Melunum og teygði styrktarstöng sig það langt inn á völlinn að ekki var hægt að nota hann til æfinga. Haukaland í Öskjuhlíð Þegar æfingavöllur Vals á Mel- unum var tekinn af félaginu 1926 undu félagsmenn því illa og unnu forystumenn félagsins ötullega að því að félaginu yrði bætt það tjón með nýju landi. Eftir langa mæðu fékk félagið loks úthlutað svæði við rætur Öskjuhlíðar sem nefndist Haukaland. Haustið 1935 útbjuggu Valsmenn völl á svæðinu í sjálf- boðavinnu og var það mikið og erf- itt verk. Þetta nýja svæði átti eftir að valda straumhvörfum hjá félag- inu. Barningur á Melunum og flutningur í Öskjuhlíð  Fálki sveimaði yfir og þar varð Vals-nafnið til Nýr malarvöllur var vígður á Hlíð- arenda 1949 og 1953 var grasvöll- ur tekinn í notkun. Íþróttahús var fullgert á Hlíðarenda 1960. Árið 1971 var hafist handa við und- irbúning að nýjum grasvelli og bættum aðbúnaði áhorfenda. Val- ur varð fyrst Reykjavíkurfélaga til þess að leika heimaleiki á eigin grasvelli en hann var vígður 1981. Árið 1987 var annað íþróttahús tekið í notkun ásamt vallarhúsi og félagsheimili. Framfarir á Hlíðarenda VELLIR OG ÍÞRÓTTAHÚSBAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Knattsyrnufélagið Valur keypti jörðina Hlíðarenda árið 1939 og var kaupverðið 30 þúsund krónur, sem samkvæmt framreikningi er um 6,7 milljónir króna að núvirði. Kaupin á landinu voru mikið átak fyrir félagið og hugsa Valsmenn af virðingu og hlýhug til þeirra stórhuga manna sem lögðu í þetta verkefni. Nú hef- ur verið skipulögð íbúðarbyggð á svæðinu og jafnframt eru áform um frekari uppbyggingu íþróttamann- virkja á Hlíðarenda. Gangi áformin eftir mun það færa félaginu og aðstandendum þess miklar tekjur á næstu árum. Í bókinni Áfram, hærra!, sem er rituð af Þorgrími Þráinssyni og gef- in var út á 100 ára afmæli Vals árið 2011, er talsvert fjallað um kaupin á Hlíðarenda. Þar segir meðal ann- ars: „Þegar litið er yfir 100 ára sögu Vals og þá rúmlega 100 Íslands- og bikarmeistaratitla, sem Valur hefur unnið til í meistaraflokki karla og kvenna í knattspyrnu, handknatt- leik og körfubolta, er einn við- burður talinn öðrum fremri; kaupin á Hlíðarenda árið 1939. Það var mesta gæfuspor félagsins. Samning- urinn var undirritaður 9. maí það ár.“ Kaupin aðeins upphafið Mestur hluti landsins var tún, en allt landið var 5,1 hektari að stærð. Kaupverðið var 30 þúsund krónur og skyldi borga út 5.000 kr. Í þá daga voru þetta miklar upphæðir fyrir fátækt félag með tóman sjóð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.