Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014
HYUNDAI I30 COMFORT DIESEL 06/2009, ekinn
41 Þ.km, 5 gíra, Einn eigandi! Verð 2.150.000. Raðnr.283765
á www.BILO.is
SUBARU IMPREZA 2,0R 11/2007, ekinn 112 Þ.km,
sjálfskiptur. Verð 1.980.000. Raðnr.283659 á www.BILO.is
BMW540i. 04/2000, ekinn 223 Þ.KM, sjálfskiptur,
leður, lúga o.fl. Verð 1.590.000. Raðnr.251534 á www.BILO.is
LANDROVERDISCOVERY BASE 38“
06/1998, ekinn 209 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
Verð 990.000. Raðnr.284404 á www.BILO.is
OPEL ASTRA ENJOY TURBO 09/2008,
ekinn 82 Þ.km, 6 gíra. Verð 1.940.00. TILBOÐ 1.590.000.
Raðnr.251732 á www.BILO.is
SUZUKI GRANDVITARA XL-7 11/2006, ekinn 90
Þ.km, sjálfskiptur, 7 manna. Verð 1.990.000. Raðnr.284328
á www.BILO.is
TOYOTA IQ 1.0 SOL 03/2010, ekinn 38 Þ.km, 5 gíra.
Verð 1.690.000. Raðnr.250342 á www.BILO.is
JEEP GRAND CHEROKEE LIMITED 4X4
Árgerð 2004, ekinn 121 Þ.km, sjálfskiptur. Toppeintak!
Verð 1.170.000. Raðnr.251649. á www.BILO.is
SUBARU IMPREZA STI 06/2009, ekinn 30 Þ.km,
yfir 500 hestöfl, 6 gíra. Skemmtilegt í dótakassann!
TILBOÐSVERÐ 4.990.000. Raðnr.251834 á ww.BILO.is
HONDA JAZZ 1,4I LS 11/2005, ekinn 89 Þ.km,
sjálfskiptur. Einn eigandi! Verð 1.160.000. Raðnr.251830 á
www.BILO.is
FORD F350 CREW4x4 Árgerð 2005, 37“ breyttur,
ný dekk. ekinn 176 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, leður, lúga,
pallhús. Verð 3.390.000. Raðnr.283597 á www.BILO.is
DODGE RAM2500 QUAD 4X4ST 12/2006, ekinn
130 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, einn eigandi, innfluttur nýr!
Verð 3.350.000. Raðnr.251805 á www.BILO.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Aðstoðummeð ánægju
Það er ástæða til að
fagna jákvæðum við-
horfum til íslensks
táknmáls (ÍTM) sem
birtast í grein Krist-
jáns Sverrissonar, for-
stöðumanns Heyrnar-
og talmeinastöðvar Ís-
lands, í Morgunblaðinu
8. febrúar sl. Mál-
efnaleg og opin um-
ræða um aðgengi
heyrnarlausra barna að íslensku
táknmáli og um kuðungsígræðslu
(KÍ) er löngu tímabær. Við í sam-
félagi heyrnarlausra á Íslandi og í
heiminum upplifum nú, í gegnum
áherslu á tækninýjungar, að tákn-
málsbannsdraugurinn sé kominn aft-
ur. Árið 1880, á heimsráðstefnu í Míl-
anó um kennslu heyrnarlausra, var
tekin sú afdrifaríka ákvörðun fyrir
heyrnarlausa um allan heim að
banna táknmál. Þessi sama ráðstefna
ICED, sem haldin var í júlí 2010, sá
ástæðu til að fordæma táknmáls-
bannið og biðja heyrnarlausa um all-
an heim afsökunar á mistökum Míl-
anóráðstefnunnar. Jafnframt voru
þjóðir heims hvattar til að muna sögu
táknmálsbannsins, að tryggja
menntun heyrnarlausa og við-
urkenna og bera virðingu fyrir öllum
tungumálum. Í þessa sögu vísar
Kristján þegar hann segir „ótti
heyrnarlausra er skiljanlegur í ljósi
sögunnar, en við verðum að treysta
því að við endurtökum ekki mistök
fortíðarinnar“.
Ég tek undir þessi orð Kristjáns
og um þau erum við sammála. Þau
lýsa jákvæðum viðhorfum og góðum
vilja til að virða sögu og menningu
döff og íslenska táknmálið en þau
endurspegla ekki skiln-
ing á umræðunni um
mikilvægi tvítyngis
(ÍTM og íslenska) fyrir
heyrnarlaus börn, börn
með KÍ og heyrn-
arskert börn.
Við erum sammála
um að öll börn sem fæð-
ast heyrnarlaus eða
með skerta heyrn eigi
rétt á að alast upp í um-
hverfi þar sem þau geta
tileinkað sér mál sem er
forsenda þorska og
menntunar. Framkvæmdin hjá HTÍ
hefur aftur á móti ekki verið í sam-
ræmi við þessa sýn. Það er t.d. ekki
rétt að öllum börnum sem fæðast
heyrnarlaus og foreldrum þeirra sé
vísað í kennslu í táknmáli. Ég hef hitt
foreldra með heyrnarskert börn sem
vissu ekki af mikilvægi íslensks tákn-
máls fyrr en af tilviljun að þeim var
sagt frá því í afmælisveislu, fermingu
eða öðrum stöðum. Ég hef líka hitt
barn með kuðungsígræðslu sem var
mállaust (hafði hvorki vald á íslensku
eða ÍTM) því það hafði ekki fengið
aðgang að ÍTM.
Foreldrar þurfa að fá stuðning og
ráðgjöf um máltöku strax og grunur
um heyrnarskerðingu vaknar. Tím-
inn frá fæðingu og fyrstu árin er svo
mikilvægur barninu fyrir allt lífið.
Það er alls ekki nóg að fyrstu árin
fari í að reyna að gefa barninu ein-
hvers konar heyrn. Ef máltakan fer
ekki strax af stað byrja ekki að
myndast í heilanum þær taugabraut-
ir og mynstur sem eru grunnur
mannlegs máls. Barn sem fær að-
gang að táknmáli frá fæðingu byrjar
að mynda sitt fyrsta tákn við 6-8
mánaða aldur og oftast er það komið
með góðan táknforða til samskipta
við eins árs aldur eða mun fyrr en
heyrandi börn á raddmáli. Þessi
staðreynd veldur því að margir for-
eldrar heyrandi barna læra táknmál
og nota það við börn frá fæðingu til
þess að geta fyrr átt samskipti við
þau.
Önnur ástæða fyrir mikilvægi
táknmáls fyrir börn með skerta
heyrn er að stundum virka hjálp-
artæki eins og kuðungísgræðsla eða
heyrnartæki ekki eins og ætlast var
til. Þetta getur í versta tilviki orðið til
þess að börnin eignast ekkert mál
þegar þau fá ekki aðgang að íslensku
táknmáli. Eins og fyrr segir hef ég
hitt börn sem fengu kuðungs-
ígræðslu ung og ólust upp fyrstu árin
sín án táknmáls án þess að ná mál-
töku. Þessi börn töpuðu tíma sem
aldrei er hægt að vinna upp aftur.
Með aðgengi að táknmálssamfélagi
hefðu þau getað verið í góðum sam-
skiptum í stað þess að berjast við að
eignast eitt móðurmál allt of seint.
Ef til vill of seint til að tileinka sér
mál.
Hversu miklu hafa þessi börn tap-
að sem aldrei verður unnið upp?
Hver ber ábyrgð á því?
Kristján veltir því upp hvort for-
eldrar sem hafni kuðungsígræðslu
séu með því að svipta barn sitt rétti
til heyrandi talmáls, rétt eins og
heyrnarlausir voru áður sviptir rétti
til táknmáls? Þessar vangaveltur
endurspegla að mínu mati einkenni
þeirrar orðræðu þegar rætt er um ís-
lenska táknmálið, menningu og sögu
okkar döff og mikilvægi raunveru-
legs tvítyngis fyrir döff börn og börn
með skerta heyrn. Orðræðan minnir
okkur döff á táknmálsbannið því hún
beinist fyrst og fremst að tali en ekki
máli. Það er mikilvægt að gera sér
grein fyrir því að mál er ekki sama
sem tal. Málið á miklu dýpri rætur í
heilanum. Það skiptir nefnilega engu
máli hver miðillinn er sem málið fer í
gegnum heldur að heilinn byrji að
þroskast. Sem dæmi má nefnda döff
börn sem eiga döff foreldra, þau fá
mál frá fyrsta degi og þau þroskast á
fullkomlega eðlilegan hátt. Orðræð-
an minnir okkur döff á táknmáls-
bannið meðal annars vegna þess að
áhyggjur forsvarsmanna HTÍ bein-
ast að þeim sjálfum sbr. vangaveltur
Kristjáns um hvort heilbrigðisstarfs-
menn kunni að eiga það á hættu að
börnin komi síðar og stefni heilbrigð-
iskerfinu fyrir að hafa ekki veitt þeim
þá heyrn sem nútímalæknisfræði er
fær um að veita þeim. Áhyggjurnar
hafa ekki beinst að þeim börnum sem
ekki fá táknmál, þær hafa ekki beinst
að þeim börnum sem hafa hvorki náð
fullum málþroska í íslensku né ís-
lensku táknmáli (eru mállaus), þær
beinast ekki að þeim foreldrum sem
ekki læra íslenskt táknmál jafnvel þó
svo þeir fái upplýsingar um mik-
ilvægi þessi í alhliða þroska barnsins.
Að sjálfsögðu er ekki aðalatriði
hvort einhverjum í kerfinu verði
stefnt heldur er velferð barnanna að-
alatriði. Þar kemur að ábyrgð HTÍ
sem greinir heyrn barnsins. Það er á
ábyrgð HTÍ að fyrsta ráðgjöf til for-
eldra sé veitt á hlutlausan hátt en
áherslan sé ekki eingöngu á fræðslu
um kuðungsígræðslu. Þessar hlut-
lausu upplýsingar verða að verða til í
faglegu teymi og þær verða að vera
veittar af virðingu við foreldra, við
döff fólk, við íslenskt táknmál, við
menningu döff fólks ekki síður en við
heyrandi mál og menningu, tækni og
lækna.
Ég finn fyrir því innan samfélags
okkar döff að skortur er á trausti til
HTÍ. Döff tala um og þau finna fyrir
því að ekki er borin virðing fyrir máli
okkar og menningu. Þessu verður að
breyta. Ég trúi því að ef á HTÍ væri
fyrir hendi raunverulegur skilningur
á döff samfélagi og íslensku táknmáli
og það sýnt í framkvæmd að íslenskt
táknmál er hluti af heyrnarleysi og
heyrnarskerðingu þá væri staðan
önnur.
Ég þekki það vel að vera döff. Ég
hef mikla reynslu af að vinna með
börnum í þeirri stöðu. Ég veit hversu
mikils virði íslenskt táknmál er okk-
ur öllum og ég veit að börn með kuð-
ungísgræðslu og önnur börn með
skerta heyrn þurfa á því að halda að
verða tvítyngd á íslenskt táknmál og
íslensku til að koma í veg fyrir að
hindranir verði á alhliða þroska
þeirra. Við erum því sammála um að
börn eigi rétt á því að ná sem bestum
alhliða þroska. Við þurfum því að
taka höndum saman og tryggja rétt
allra barna, sem fara í kuðungs-
ígræðslu og þeirra sem hafa skerta
heyrn, til að læra táknmál og þróa
það í samfélagi með öðrum. Sömu-
leiðis eiga börnin sem alast upp við
íslenskt táknmál og fara ekki í kuð-
ungsígræðslu að fá að læra íslensku.
Foreldrar eiga ekki að þurfa að velja
annaðhvort íslensku eða íslenskt
táknmál. Bæði málin þurfa að standa
börnunum til boða.
Eftir Júlíu G.
Hreinsdóttur » Árið 1880, á heims-
ráðstefnu í Mílanó
um kennslu heyrnar-
lausra, var tekin sú af-
drifaríka ákvörðun fyrir
heyrnarlausa um allan
heim að banna táknmál.
Júlía G. Hreinsdóttir
Höfundur er fagstjóri og
MA-nemi í náms- og
kennslufræði Háskóla Íslands.
Réttindi barna með kuðungsígræðslu