Morgunblaðið - 08.03.2014, Page 36

Morgunblaðið - 08.03.2014, Page 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 Slag eða heilablóð- fall er þriðja stærsta dánarorsökin í heim- inum, á eftir krabba- meini og hjartaáfalli. Tölur hafa sýnt að árlega eru um 410 einstaklingar greind- ir með einkenni slags hér á landi, þar af um 360 í fyrsta sinn. Áfall er ekki end- irinn! Því er nauðsynlegt að bregðast rétt og skjótt við til að koma í veg fyrir að afleiðingarnar verði þeim mun meiri. Hver sá sem kennir sér slags t.d. með svima, jafnvægisleysi, flökurleika, óútskýrða þreytu eða er með upp- köstum ætti að byrja á því að líta í spegil og vita hvort hann sé með einhverja sjóntruflun, auk þess ef hann er með einhverja lömun í andliti eða útlimum – þá skal hann leita læknis strax eða hringja í 112! Því miður leita ekki allir læknis er fá þessi einkenni, þar sem dæmi eru um að þau gangi til baka (T.I.A. eða „forslag“). Það þýðir þó ekki að þeir þurfi þá ekki að leita sér læknis, heldur þvert á móti eiga þeir að láta athuga þetta sem fyrst. Það að horfast í augu við sjálfan sig á þessu augnabliki getur verið dauðans alvara, áfallið er dunið yfir. Hver og einn ber ábyrgð á sjálfum sér. Því er ár- íðandi að viðkomandi bregðist rétt og skjótt við og sé yfirvegaður þar til hjálpin berst. Því miður gefa ekki allir sig fram við lækni þegar áfallið dynur yfir og eru því ekki sjáanlegir í sjúkraskrám heilbrigðiskerfisins og eru jafnvel ekki til frásagnar. Því er nauðsynlegt fyrir hvern og einn að vera á verði og þekkja þessi einkenni og vera meðvitaður um slagið og að hann sé ekki með óheil- brigðu líferni að skapa sér áhættuþætti er leitt gætu til slags, s.s. með of háum blóð- þrýstingi, gáttatifi, of- fitu, reykingum, streitu, óhollu mat- aræði, óhóflegri neyslu vímuefna o.s.frv. Yfirvöld hafa eftir mætti reynt í gegnum heilbrigðiskerfið og háskólasamfélagið að ná til allra, til þess að minnka kostnaðinn við endurhæfinguna undir yfirskrift- inni: „Snemmtæk íhlutun um at- vinnutengda endurhæfingu“. Þetta er ekki einsdæmi hér á landi og hefur Heilaheill, félag slagþol- enda, aðstandenda og fagaðila hér á landi, unnið að þessum verk- efnum er varða forvarnir, með- höndlun og endurhæfingu í tengslum við erlend samtök og sem félagið er aðili að, SAFE (Stroke Alliance for Europe í tengslum við WSO-World Stroke Organization) , Slagforeningene i Norden og Nordiske Afasiråd, sem Danir veita forystu um þessar mundir. Borið saman við önnur lönd stendur velferðarkerfið hér á landi sig vel gagnvart þessum sjúkdómi og á sumum sviðum jafnvel betur. Slag er dauðans alvara Eftir Þóri Steingrímsson Þórir Steingrímsson » Afleiðingarnar geta verið alvarlegar eftir slag, jafnvel valdið dauða. Það er mismun- andi eins og mennirnir eru margir og áfallið er því ekki endirinn. Höfundur er formaður Heilaheilla. Nú stendur yfir enn ein kjaradeilan við kennara og virðist sem hart verði barist. Kenn- arar vilja einfaldlega meira kaup. Menna- málaráðherra er sam- mála því að bæta þurfi kjör kennara en leggur áherslu á að nota verði tækifærið til að hag- ræða, stytta nám og gera það markvissara. Viðbrögð forystumanna kennara við þeirri hugmynd komu svo sem ekki á óvart: Einn þeirra lýsti því svo að hann hefði ekki hugmynd um það hvert ráðherrann væri að fara. Flestir sem um þessi mál hugsa yf- irleitt viðurkenna að það verður að hækka laun kennara. Hins vegar þarf ekki að fara langt aftur í tímann til að fá beint í æð áktök þjóðarinnar um gildi skólagöngu og menntunar og það hvort „bókvitið verði í askana lát- ið“. Hún var kostuleg frásögn Jóns Björnssonar nýlega í Ríkisútvarpinu um það þegar sett var upp nefnd árið 1927 til að ráða bót á því vandamáli hve margir nemendur væru farnir að innritast í Háskóla Íslands. Benti nefndin á að þegar háskólinn var stofnaður árið 1911 hefðu 45 nem- endur hafið nám „sem hefði verið hólflegt en nú væru þeir orðnir 150“. Taldi nefndin þetta vera úr öllu hófi enda dygði að fjórir byrjuðu ár hvert í læknisfræði, fjórir í guðfræði, þrír í lagadeild en nægjanlegt væri að einn nemandi hæfi nám í íslenskum fræð- um við skólann þriðja hvert ár. Ekki var þó farið að þessum vel ígrunduðu tillögum nefndarinnar. En aftur til nútímans. Í Vísi 3. des- ember síðastliðinn mátti lesa þessa fyrirsögn: „Herfileg niðurstaða úr nýrri PISA-könnun“ og nýlega sagði sérfræðingur OECD að hér á landi væri einkunnaskrið í íslenska skóla- kerfinu. Þegar ég rakst á bók um PISA- könnunina eftir bandaríska blaða- manninn Amöndu Ripley1) ákvað ég að kynna mér málið. Að lestri loknum get ég ráðlagt öllum að kynna sér þessa bók, ekki síst skólastjórn- endum. Hvað segir svo þessi ágæta bók? Frá árinu 2000 hafa milljónir ung- menna í meira en 40 löndum tekið þetta al- þjóðlega PISA-próf. Sérfræðingar eru sam- mála um að þessi próf gefi samanburðarhæfa mynd af færni nemenda þótt ekki séu þau óum- deild. Erfitt hefur reynst að skýra hvað veldur þessum mun á milli landa en hefðbundnar skýringar, t.d. mismunandi efna- hagur foreldra og félagslegar að- stæður unglinganna hafa reynst mun veigaminni en talið hefur verið. Höf- undurinn fylgdist með þremur bandarískum ungmennum sem fóru sem skiptinemar til Finnlands, S- Kóreu og Póllands. Almennt kom þeim á óvart hve miklu meiri kröfur skólakerfi gistilandanna gerðu til þeirra samanborið við Bandaríkin. Þrátt fyrir það voru allar ytri að- stæður í gistiskólunum miklu verri en þau áttu að venjast og var svört tafla og krít helsta hjálpartæki kenn- aranna. Pólland fær sérstaka umfjöllun í bókinni vegna þess að ekkert land hefur tekið meiri framförum í PISA- könnuninni og eru Pólverjar nú í fremstu röð. Þessi árangur er einkum þakkaður Miroslaw Handke, efnafræðiprófessor, sem tók við emb- ætti menntamálaráðherra Póllands árið 1997. Hann hratt af stað róttæku umbótastarfi á pólska skólakerfinu með nýrri námskrá og stöðluðum prófum. Árangurinn lét ekki á sér standa. En það sem fljótt á litið virtist vera hvað óljósast í þessu ferli var þó það sem skilaði mestum árangri: Að gera mun meiri kröfur til frammi- stöðu nemendanna en þekkst hafði áður. Umbæturnar mættu mikilli mótstöðu pólskra kennara og sér- fræðingar í skólamálum spáðu því að þessar kerfisbreytingar myndu enda með ósköpum. Finnland og S-Kórea fá einnig mikla umfjöllun í bókinni. Svo virðist sem S-Kórea hafi náð góðum árangri með því að gera gríðarlegar og í raun ómannúðlegar kröfur til unglinganna, nokkuð sem yfirvöld reyna nú að vinda ofan af með markvissum hætti. Saga Finnlands er með allt öðrum hætti. Þar er hefð fyrir því að gera miklar menntunarkröfur til kennara sem eru vel launaðir. Finnar sem þjóð taka menntun mjög alvarlega enda flykkjast skólafrömuðir nú til Finnlands til að kynna sér skólamál. Eftir lestur bókarinnar virðist full ástæða til þess að endurskoða við- tekin sannindi um það hvernig góður árangur næst í skólastarfinu. Til dæmis þá fullyrðingu að því fámenn- ari sem bekkir eru því betri verði ár- angur nemenda. PISA sýnir að þetta á einungis við um yngstu nemend- urna. Þá virðist ljóst að gæði kennsl- unnar skiptir miklu meira máli fyrir árangur nemendanna en almennur aðbúnaður. Hins vegar eru gömul sannindi staðfest: Það að foreldrarnir lesi fyrir börn sín bætir árangur þeirra í skólanum og einnig það að börn alist upp við það að bóklestur sé hluti af heimilislífinu. Við stöndum nú á mikilvægum tímamótum í þróun skólastarfs hér á landi. Gremja hefur farið stigvaxandi og vígbúnaður er í fullum gangi. Nú verður að skoða þessi mál í heild sinni. Enginn ætti að ganga til þessa leiks með fastar og óbifanlegar skoð- anir. Ég mæli með því að menn lesi bók Amöndu Ripely áður en þeir fara í blóðugan slag. 1). Amanda Ripey, 2013. The Smar- test Kids in the World- and how they got that way. Simon &Schuster, New York, NY 10020, 306 bls. Enn um PISA og íslenskt skólastarf Eftir Grím Þ. Valdimarsson » Frá árinu 2000 hafa milljónir ungmenna í meira en 40 löndum tekið þetta alþjóðlega PISA-próf. Grímur Þ. Valdimarsson Höfundur er ráðgjafi í fiskimálum hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu. Hvern ætlar þú að gleðja í dag Margir eiga þá bernskuminningu að hafa gengið í forskóla. Hér í Ólafsvík var það fyrir daga leikskólans að roskin kona setti á stofn lestrarskóla og rak um árabil í litla húsinu sínu sem nefnt var Snæfell. Þessi kona hét Krist- jana Einarsdóttir. Því var skólinn hennar alltaf kall- aður Sjönuskóli. Eins og gefur að skilja var ým- islegt í Sjönuskóla sem ekki stæðist regluverk nútímans þó á þeim tíma fengist enginn um það. Þarna voru allmörg börn saman komin í litlu rými. Elsti sonur minn segist muna að hafa stundum setið á eldavélinni eða uppi á borði og muna vel alla skóna í forstofunni. Hann segir, að börnin hafi nær alltaf verið stillt, enda mjög heitt í litla húsinu. Og víst er um hjartahlýjuna. Börnin voru alltaf glöð og svo ánægð, að all- nokkur þeirra hittust fyrir tíu árum og minntust þessarar samveru. Börn- in höfðu frá ýmsu að segja þegar þau komu heim úr skólanum. Annar sonur minn sagði eitt sinn við mömmu sína að stelpur væru al- veg glataðar í sprænukeppni. Ein stelpan hefði heimtað að fá að vera með en staðið sig illa. Skólahald Kristjönu segir merkilega sögu. Hún fæddist inn í sára fátækt sem mun svo hafa orðið hennar förunautur. Með stofnun skólans sýndi hún bæði hugkvæmni og skynsemi. Þannig gat hún sameinað áhuga sinn og vinnuna og séð sér farborða að nokkru. Krist- jana hlaut þakklæti samfélagsins og einhvern smástuðning fyrir fram- takið. Til dæmis varð það undir lok starf- seminnar að Lionsklúbbur Ólafs- víkur heiðraði hana á fundi sínum. Gamla konan kom á fundinn í sínu besta skarti, hlaðin skrauti. Þessi lág- vaxna kona hafði nefnilega til að bera mikla reisn sem hóf hana yfir fátækt og mótlæti. Ekki spillti fyrir á fund- inum að félagar klúbbsins voru þá á sínum bestu árum og Kristjana hafði ávallt auga fyrir því. Þessi dagur var ein af sigurstundum skólastjóra Sjönuskóla. Allir Sjönuskólar eru lítil hús úr timbri klukka á vegg og Drottinn blessi heimilið hæglát gömul kona sem bendir með stórum prjóni á stafi og orð í kennslubók sem heitir Ungi lítli mamma eða stóra systir sækja þig og þú másar alla leiðina heim engin próf þú bara manst alltaf. HELGI KRISTJÁNSSON, Ólafsvík. Leiðbeint með prjóni Frá Helga Kristjánssyni Helgi Kristjánsson Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.