Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 08.03.2014, Qupperneq 44
44 MINNINGAR Afmæli MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2014 AKUREYRARKIRKJA | Hátíðar- messa kl. 11. Prestar eru sr. Hildur Eir Bolladóttir og sr. Svavar Alfreð Jóns- son. Ragnheiður Skúladóttir leikhús- stjóri prédikar. Kór Akureyrarkirkju syngur. Organisti er Eyþór Ingi Jóns- son. Sunnudagaskólinn hefst með stund í Akureyrarkirkju kl. 11 og svo færir hópurinn sig niður í Safnaðar- heimilið. Umsjón sr. Sunna Dóra Möll- er og Hjalti Jónsson. Kaffi og kleinur í Safnaðarheimilinu að messu og sunnudagaskóla loknum. ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Söngur, biblíusögur og mikil gleði. Rebbi refur kemur í heimsókn. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts undir stjórn Snorra Heimissonar leikur. Prestur sr. Þór Hauksson ásamt Ingunni Björk Jóns- dóttur djákna. Undirleikur Kjartan Jós- efsson. Kaffi og safi að lokinni guðs- þjónustu. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni annast samverustund sunnudaga- skólans. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Gídeonfélagar kynna útgáfustarf sitt. Kaffisopi að messu lokinni. Sjá askirkja.is. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga- skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Fjóla og Finnur Sig- urjón. BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 14. Altarisganga. Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalar- nesi | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Gunn- ar Kristjánsson prédikar og þjónar fyrir altari, Páll Helgason leikur á orgelið, félagar úr Karlakór Kjalarness leiða söng. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson, kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magnússon. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Steinunnar Leifs- dóttur. Kaffi, djús og ávextir í safnað- arheimili á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Lífleg samvera með bæn, lofgjörð og fræðslu. Foreldrar, afar og ömmur eru hvött til þátttöku með börnunum. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaða- kirkju syngur undir stjórn Jónasar Þór- is kantors. Messuþjónar aðstoða. Prestur sr. Pálmi Matthíasson. Mola- sopi eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Sól- veig Einarsdóttir. Kór Digraneskirkju. Helgistund kl. 15. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Hugleiðing og vitnis- burður. Tónlist: Kór Digraneskirkju og Sólveig Einarsdóttir. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Feðgarnir Björn Al- exander Þorsteinsson og Þorsteinn Siglaugsson lesa ritningarlestrana, en Björn Alexander fermist nú í vor í Dóm- kirkjunni. Barnastarfið: börnin koma í kirkjuna en fara síðan í fylgd fræðara upp á kirkjuloftið, samvera, sögur, söngur og leikir. Ólafur Jón Magnús- son og Sigurður Jón Sveinsson annast barnastarfið. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormars dómorganista. EIÐAKIRKJA | Fyrsta sunnudag í föstu er messa kl. 14. Kór kirkjunnar undir stjórn Kristjáns Gissurarsonar, organista leiðir almennan safnaðar- söng. Prestur er Sigríður Rún Tryggva- dóttir. Eftir messu er boðið upp á kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. FELLA- og Hólakirkja | Messa kl. 11. Séra Svavar Stefánsson þjónar fyrir altari, Ólöf Margrét Snorradóttir, guðfræðingur, prédikar. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan söng undir stjórn Guðnýjar Einarsdótt- ur organista. Kirkjuvörður Kristín Ing- ólfsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Hreins og Péturs, allir að koma í búningi. Dýrfirðingamessa kl. 14. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Skarphéðinn Þór Hjartarson leikur á pí- anó og Guðmundur Pálsson á bassa. Basar Kvenfélagsins verður í safnað- arheimilinu að lokinni guðsþjónustu. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudaga- skóli kl. 11 þar sem kennt verður um örkina hans Nóa. Mikill söngur, brúðu- leikrit og hressing í lokin. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Messa kl. 20. Tónlistarmennirnir Gunnar Gunn- arsson, píanóleikari, Tómas R. Einars- son, kontrabassaleikari og Ásgeir Ás- geirsson, gítarleikari sjá um tónlistina ásamt Sönghóp Fríkirkjunnar. Stundin er í umsjón sr. Hjartar Magna Jóhanns- sonar. Hugljúf kvöldstund á ljúfum nót- um við kertaljós og hugleiðingar séra Hjartar Magna. Kvöldmessurnar í Frí- kirkjunni eru með léttu yfirbragði þar sem tónlistin leikur stórt hlutverk. GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Val- mar Väljaots. Sunnudagaskólinn kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Séra Petrína Mjöll Jóhann- esdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Söngfjelagið syngur. Organisti: Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli kl. 11 á neðri hæð. Prestur séra Vigfús Þór Árnason. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari: Stefán Birkisson. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og barnastarf í Guðríð- arkirkju sunnudaginn 9. mars kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Organisti Ester Ólafsdóttir og kór Guð- ríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Aldísar R. Gísladóttur og Ruth Rúnars- dóttur. Meðhjálpari Kristbjörn Árna- son. Kirkjuvörður Ólafur Hjálmarsson. Kaffisopi eftir messu. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjöl- skylduguðsþjónusta og sunnudags- kóli kl. 11. Barnakór Hafnarfjarðar- kirkju syngur undir stjórn Helgu og Önnu. Sunnudagaskólinn tekur þátt í guðsþjónustunni. Umsjón hafa sr. Jón Helgi, Arnór og Anna Elísa. Kaffisopi á eftir. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Birgir Ágeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarf er á sama tíma í umsjá Ingu Harðardóttur æskulýðs- fulltrúa. Tónleikar Mótettukórs Hall- grímskirkju kl. 17. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Barnastarf í umsjá Arnars og Öllu Rún- ar. Organisti Kári Allansson. Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs- þjónusta með passíusálmum kl. 11. Sr. Halldór Reynisson þjónar. Félagar í Kór Hjallakirkju syngja undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista. Aðalsafnaðarfundur strax að lokinni guðsþjónustu. Sunnudagaskóli kl. 13. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sameiginleg samkoma með Hjálpræð- ishernum í Reykjanesbæ kl. 14. Kommandör Peder Refsti talar og kennir út frá efninu „Að gefa af hjarta“. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | „Drottinn gerðu hljótt í hjarta mínu“. Uppskeruhátíð tónlistardaga kórs Hólaneskirkju í máli og tónum, kl. 14. Aðalheiður Þorsteinsdóttir organisti og Anna Sigríður Helgadóttir söngkona hafa um helgina verið með raddþjálf- unarnámskeið fyrir kórinn. Fáum við að njóta uppskerunnar með fjölbreyttri tónlist, þar sem Sálmar 2013 skipa stóran sess. Það verður tónlistarhátíð með helgiathöfn sem séra Bryndís Val- bjarnardóttir leiðir. Sunnudagaskólinn er kl. 11. Veitingar eru í boði á eftir samveru. HVALSNESSÓKN | Æskulýðsmessa í Safnaðarheimilinu í Sandgerði kl. 14. Barnakórinn syngur, Áttundirnar syngja. Barn borið til skírnar. Létt kaffi eftir messu í boði unglinga. Eftir mess- una verða stöðvar með föndri, perlum, fræðslu um trú og tónlist o.fl. Prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma og brauðsbrotning kl. 11. Ester Karin Jacobsen prédikar. Kaffi og samfélag eftir samkomuna. Sam- koma á ensku hjá Alþjóðakirkjunni kl. 14. English speaking service. Kvöld- samkoma kl. 18. Helgi Guðnason pré- dikar. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Gestir að þessu sinni eru Oddfellowbræður og systur. Sr. Erla Morgunblaðið/Sigurður Ægisso Egilsstaðakirkja Orð dagsins: Freisting Jesú. (Matt. 4) Það var sam- staða hjá ís- lensku þjóðinni um að starfs- heitið „ljós- móðir“ væri feg- ursta orð íslenskrar tungu. En þrátt fyrir fegurð orðsins var ljósmóð- urnámið ekki fyrsta ósk Stein- unnar um fram- tíðarstarf. Ljósmæðraskól- inn varð fyrir valinu af fjárhagslegum ástæðum en bernsku- og þroskaár Stein- unnar voru í kreppunni miklu laust fyrir miðja 20. öld. Steinunn fæddist 9. mars árið 1924 og á ekki langt að sækja alla sína góðu eig- inleika. Móðir hennar, Steinunn Magnúsdóttir, þótti með afbrigðum tón- elsk og söngvin og gat að auki spilað nánast á hvaða hljóðfæri sem var. Hún dó frá sex börnum sínum eftir langvarandi veikindi, en Steinunn var þá á ferming- araldri. Faðir hennar, Finnbogi Guðmundsson, var sjómað- ur sem gerði út eigin bát. Hann var þekktur róttækur verkalýðssinni og hug- sjónamaður. Steinunn var alltaf ákveðin að fara í eitt- hvert nám en þegar í ljós kom að stúlkur þyrftu að vera orðnar tvítugar til að fá inngöngu í Ljósmæðra- skólann sagði hún við föður sinn: „Pabbi minn, ég verð að komast inn núna því þegar ég er orðin 20 ára gæti ég verið trúlofuð og allt komið í vit- leysu.“ Faðir hennar skrifaði Vilmundi Jóns- syni landlækni hvort nokkur möguleiki væri á að taka stúlkuna svo unga í skól- ann. Landlæknir svaraði að það mætti skoða ef mikilsmetinn og góðkunnur borgari í Bolungarvík stað- festi að hún hefði til þess vit, skynsemi og ráðvendni. Ekki stóð á slíkri staðfest- ingu og Steinunn Finn- bogadóttir flaug inn í Ljós- mæðraskólann. Hún starfaði sem ljós- móðir á Fæðingardeild Landspítalans, á Sólvangi í Hafnarfirði, Fæðingarheim- ili Reykjavíkur og Vöggu- stofu Sumargjafar. Síðar vann hún skrifstofustörf hjá borgardómara í Reykjavík, Fiskifélagi Íslands og Landssmiðjunni. Hún var „bara húsmóðir“ um all- langa hríð. Steinunn segist hafa verið eins og börnin í gamla daga sem tíndu ull- arlagða til leggja inn í kaupfélagið því svo mörg námskeiðin hefði hún tínt upp í sinn eigin reynslu- banka. Hún gekk m.a. í Fé- lagsmálaskóla Hannesar Jónssonar sem reyndist henni drjúgt veganesti. Hún var aðstoðarmaður Péturs H.J. Jakobssonar yfirlæknis á fæðingardeild Landspítalans um fjöl- skylduáætlanir hjá Ráð- Steinunn Finn- bogadóttir 90 ára ✝ Sigríður Sól-veig Krist- jánsdóttir fæddist 2. desember 1926 í Þverárkoti í Kjalarneshreppi, Kjós. Hún and- aðist á Landspít- alanum 23. febr- úar 2014. Foreldrar henn- ar voru Kristján Benediktsson, verkstjóri í Reykjavík, f. 25. ágúst 1897, d. 9. sept. 1960, og Guðfinna Jónsdóttir, hús- freyja í Reykjavík, f. 22. sept. 1896, d. 9. sept. 1960. og gengu þau í hjónaband í Reykjavík hinn 14. júní 1947. Sæmundur lést 8. janúar 1977 í Reykjavík. Börn þeirra: 1) Ása Elísabet, f. 24. ágúst 1948, eiginmaður hennar er Björn Bjarklind, f. 1. sept. 1946. Synir þeirra: a) Sæ- mundur Bjarklind, eiginkona hans er María Bjarklind. b) Benedikt Bjarklind, eiginkona hans er Rakel Ýr Jónsdóttir. c) Arnar Bjarklind, eiginkona hans er Margrét Jóhönnudótt- ir. Langömmubörnin eru átta talsins. 2) Guðmundur, f. 14. mars 1956, d. 2. des. 1956. Sigríður vann ýmis störf, m.a. hjá Feldinum á sníða- stofu og svo lengst af á skrif- stofu hjá Vöruflutinga- miðstöðinni. Útför Sigríðar fór fram í kyrrþey mánudaginn 3. mars 2014. Sigríður ólst upp frá unga aldri hjá ömmu sinni og afa, Ásu Guðmundsdóttur og Benedikt Ár- mannssyni, á Vesturgötu í Reykjavík. Sigríður gekk í Miðbæjarskól- ann og síðan í Verzlunarskóla Íslands. Um tvítugt kynntist Sig- ríður eiginmanni sínum, Sæ- mundi Sigurðssyni hús- gagnasmið, f. 10. okt. 1925, Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir og bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Guð geymi þig, elsku mamma mín. Þín dóttir, Ása. Nú er hún farin, Sigríður tengdamóðir mín, eftir langa og erfiða sjúkdómssögu. Hún var baráttukona sem öllum vildi vel og mátti ekkert aumt sjá. Fjölskyld- an var henni allt, Ása dóttir henn- ar og ég ásamt barnabörnunum. Ekkert var of gott fyrir þau og nutum við öll af nægtabrunni gæsku hennar. Ég var svo heppinn að komast í kynni við þessa sómakonu þegar ég fór að venja komur mínar til dóttur hennar. Alltaf var vel tekið á móti mér og var mér gjarnan boðið að borða með þeim. Tókust góð kynni með okkur og var hún mér sem besta móðir. Sigríður var stjórnsöm kona og lá ekki á skoð- unum sínum og kastaðist stund- um í kekki milli okkar, en alltaf endaði það með sáttum og kossi og allt varð gott aftur. Sigríður missti eiginmann sinn aðeins fimmtug að aldri og var það mikill missir fyrir hana, enda var mjög kært með þeim. Þau ferð- uðust mikið um landið með tjald og nutu náttúrunnar og fallegra staða með mikilli gleði. Einnig fóru þau mikið í veiðiferðir. Sigríður tók andláti Sæmundar með jafnaðargeði og lagði sig fram um að búa sér fagurt heimili og var gleðin mikil þegar synir okkar Ásu fæddust. Mestur tími hennar fór í að fylgjast með þroska þeirra og uppvexti og bar hún mikla umhyggju fyrir velferð þeirra. Tengdamóðir mín varð fyrir því óláni að missa sjónina og var það mikill skellur. En enn og aftur barðist hún áfram og flutti í Blindraheimilið í Hamrahlíð 17, þar sem hún tók að þjóna öðrum með sömu óeigingirninni og áður. Eftir því sem heilsu hennar hrak- aði og hún gat gefið minna af sér var síminn hennar aðaltæki til að hafa samband við sitt fólk. Á hverjum degi var beðið eftir hringingu frá henni, „hvernig líð- ur ykkur“, og fylltist hún mikilli gleði þegar barnabörnin komu í heimsókn. Hún var lögð inn á Landspít- alann og barðist þar uns yfir lauk. Eftir stendur minning um stór- brotna og elskuríka konu sem lét sér ekkert aumt óviðkomandi. Það var mín gæfa að vera henni sam- ferða um 40 ára skeið. Blessuð sé minning hennar. Björn Bjarklind. Sigríður Sólveig KristjánsdóttirMorgunblaðið birtir minning-argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðs- lógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minning- argreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær út- förin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um for- eldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda mynd- ina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjónarfólki minning- argreina viðvart. Minningargreinar Messur á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.