Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.03.2014, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.3. 2014 B jörk Jónsdóttir er skólastjóri Brúarskóla, sem er skóli fyrir börn sem eiga í alvarlegum geðrænum, hegðunar- eða fé- lagslegum erfiðleikum. Brúar- skóli hefur fjórar starfsstöðvar í Reykja- vík og þar eru að jafnaði á milli 55-60 nemendur í 5. til 10. bekk í tímabundinni skólavist. „Þetta er kannski ekki mikill fjöldi nemenda en þörfin er mikil og hér er alltaf biðlisti,“ segir Björk. „Við sinnum einnig ráðgjöf í skólum og leiðbeinum kennurum og þar erum við með þriggja mánaða biðlista. Það er auðvitað ekki gott að ef hringt er í Brúarskóla og óskað eft- ir aðstoð í skóla þá skulum við þurfa að segja að það sé þriggja mánaða bið. Þetta þarf að breytast en það mun ein- ungis gerast með auknum mannskap.“ Hversu mikill er vandi þeirra barna sem koma í Brúarskóla? „Þegar börn koma hingað er vandinn yfirleitt orðinn mjög mikill, þau hafa kom- ið sér í mikinn vanda í skólanum og eru jafnvel farin að beita þar ofbeldi. Óæski- leg hegðun hefur oft staðið í nokkur ár og þess vegna magnast. Hegðunarvanda- mál eru vaxandi áhyggjuefni í skólakerf- inu og þó börn sem glíma við alvarleg hegðunarvandamál séu ekki mörg þá hef- ur hegðun þeirra gríðarleg áhrif á skóla- starfið. Ég heyri úr skólunum að vandinn er að færast niður í fyrsta til þriðja bekk. Við í Brúarskóla höfum ekki mann- skap til að sinna þeim hópi til viðbótar en finnum mjög fyrir aukinni þörf fyrir ráðgjöf á yngri stigum.“ Kunnið þið ekki að vera reið? Kennarar segja örugglega að þeir kunni ekki að taka á vanda þessara barna. Hvaða ráð getur þú gefið kennurum? „Kennara skortir þekkingu á þessu sviði og það vantar fleira fagfólk inn í skólana. Kennarar segja: Við getum unnið með börn með þroskahamlanir og líkamlega fötlun en við vitum ekki hvernig við eig- um að vinna með alvarlegar hegðunar- truflanir. Hér erum við með ýmsar leiðir til að takast á við óæskilega hegðun. Það er festa í skólastarfinu, börn fara strax í ákveðinn ramma og fá markmið til að vinna að. Reglur eru skýrar og vel kynnt- ar fyrir nemendum og þeim framfylgt, því ef settar eru reglur þá verður að fram- fylgja þeim. Við erum ekki með hefð- bundnar frímínútur eða matarhlé, við er- um með börnunum allan skólatímann, förum til dæmis með þeim í mat og í úti- vist og fylgjum þeim í öllu sem þau gera á skólatíma. Við hrósum markvisst fyrir vel unnin verk og hvetjum börnin til dáða. Þetta eru miklir snillingar og við höfum alltaf í huga að við erum ekki öll eins og höfum mismunandi þarfir og það þarf að taka tillit til þess.“ Grípa þessi börn til ofbeldis gagnvart ykkur? „Hingað koma börn sem hafa sýnt al- varlega hegðun en við sjáum lítið af þeirri hegðun. Við trúum því að börn geti lært æskilega hegðun en þegar börn og unglingar missa stjórn á hegðun sinni kemur fyrir að þau beita ofbeldi. Oft ger- ist þetta þegar verið er að gera kröfur til þeirra. Við stöðvum hegðunina með lík- amlegu inngripi að minnsta kosti þriggja starfsmanna. Allt eru þetta yndisleg börn og það er gaman að vinna með þeim því þau eru skemmtileg, skapandi og hugmyndarík. Þau þurfa hins vegar mikið skipulag, hvatningu og hrós. Vandinn er oft orðinn mjög mikill þegar þau koma til okkar og vissulega þyrfti að grípa fyrr inn í. Ég veit að margir kennarar gera eins vel og þeir geta og oft meira en það í almenna skólanum en af því að ég hef haft kynni af svo mörgum skólum þá veit ég líka að kennarar hafa ekki allir þá þekkingu sem til þarf. Það er líka lykilatriði að gengið sé í takt og það gerum við hér. Starfs- fólk heldur reglubundið fundi, fer yfir reglurnar og rætt er um hvernig eigi að bregðast við hinum ýmsu uppákomum. Við lítum á okkur sem fyrirmynd barnanna þannig að okkur ber að fara eftir regl- unum og það hjálpar börnunum að sjá að við erum samkvæm sjálfum okkur.“ Hvað hefur reynst best í samskiptum við þessi börn? „Við erum alltaf að þakka og hrósa fyr- ir það sem vel er gert og þannig styrkja jákvæða hegðun og sjálfstraust barnanna og aðstoða þau við að verða jákvæðir og öruggir einstaklingar. Í byrjun eiga þau oft erfitt með að taka hrósi því þau hafa litla reynslu af því að vera hrósað. Oft spyrja þau: Kunnið þið ekki að vera reið? Hér notum við alltaf rólegu röddina, börnin eru ekki send heim þótt þau missi „Í byrjun eiga þau oft erfitt með að taka hrósi því þau hafa litla reynslu af því að vera hrósað,“ segir Björk Jónsdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Annast einstök börn BJÖRK JÓNSDÓTTIR, SKÓLASTJÓRI BRÚARSKÓLA, SEGIR HEGÐUNARVANDA VERA VAXANDI ÁHYGGJUEFNI Í SKÓLAKERFINU OG VANDINN SÉ AÐ FÆRAST NIÐUR Í FYRSTA TIL ÞRIÐJA BEKK. HÚN VARAR VIÐ MIKILLI TÖLVUNOTKUN BARNA OG UNGLINGA SEM GETI VALDIÐ ÞUNGLYNDI. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.