Morgunblaðið - 04.07.2014, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2014
Í vinnunni Elli kann vel við sig utan við Eymundsson þar sem er kaffihús.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég fékk enga vinnu ísumar en mig langaðitil að gera eitthvað ogþá datt mér þetta í hug,
af því að ég kann að prjóna og
finnst það gaman,“ segir Elías
Bergmann Valgeirsson, úrræða-
góður fimmtán ára strákur norður
á Akureyri sem tók málin í sínar
hendur og situr dagana langa í
sumar og prjónar slaufur. Slauf-
urnar býður hann til kaups þeim
sem eiga leið um stræti Akur-
eyrar, en hann hefur fengið að
vera fyrir utan Eymundsson og
bjóða handverk sitt til sölu. „Ég
þurfti að prófa mig þó nokkuð
áfram áður en ég náði að gera
slaufurnar eins og þær eru núna,
ég þróaði þetta þar til ég varð
ánægður,“ segir Elías og bætir við
að mamma hans, Sara Elíasdóttir,
og ömmurnar báðar, Ásta og
Drífa, hafi vakið áhuga hans á
prjónaskap. „Þær kenndu mér að
prjóna þegar ég var níu ára.“
Slaufurnar hans Elíasar eru
sannarlega fjölnota, þær má nota
sem hefðbundnar þverslaufur á
skyrtum, sem skraut í hár og
einnig sem skraut í hundaólar.
„Ég labba oft með tíkina okkar,
hana Bellu, með mér í bæinn þeg-
ar ég fer að selja slaufurnar, til að
sýna fólki hvað þetta kemur vel
út,“ segir Elías og bætir við að
slaufurnar megi bæði nota sem
skraut á hárteygjum eða sem
skraut á hárspöngum eða hár-
spennum.
Útlendingar hrifnir
Elías segist afar þakklátur að
starfsfólkið í verslun Eymundsson
hafi leyft honum að vera þar fyrir
utan til að bjóða slaufurnar til
sölu. „Þarna er mikil umferð af
fólki á góðviðrisdögum, bæði
heimamönnum og ferðafólki, enda
er kaffihús í Eymundsson bæði
inni og fyrir utan og margir tylla
sér niður. En ég er bara þarna
þegar veðrið er gott, enda ekki
hægt að vera með slaufurnar úti í
rigningu. Á slíkum dögum sit ég
heima og prjóna. Það er nóg að
gera, ég sit við öllum stundum og
prjóna, rétt gef mér tíma til að
borða,“ segir Elías og bætir við að
hann nái að prjóna fimm til sex
Elli prjónar slaufur
allan liðlangan daginn
Hann situr utan við Eymundsson á Akureyri á góðviðrisdögum og hjá honum
liggur gjarnan tíkin Bella og fylgist með þegar hann prjónar slaufur í öllum regn-
bogans litum. Elli er fimmtán ára strákur sem tók málin í sínar hendur þegar
hann fékk enga vinnu í sumar og selur nú slaufurnar sínar líkt og heitar lummur.
Spásserað Elli utan við Eymundsson og Bella skartar slaufu í hundaól.
Fyrir þá sem ekki ætla út úr bænum
um helgina, ætla ekki í útilegu, ekki á
landsmót hestamanna á Hellu og
ekki á þjóðlagahátíð á Sigló, þá er
ýmislegt um að vera í höfuðborginni.
Til dæmis verður köntríhátíð haldin á
Kex hosteli við Skúlagötu. Þetta er í
þriðja sinn sem hátíðin er haldin og
mikið verður um dýrðir fyrir bragð-
lauka, eyru og augu. Kex köntrí er
amerísk menningarhátíð þar sem
boðið verður upp á tónlist, mat og
drykk sem á rætur að rekja til ríkj-
anna Kentucky og Tennessee í
Bandaríkjunum. Fírað verður upp í
grillinu, banjóið stillt og rykið dustað
af smekkbuxunum. Rif, blágresi, lím-
ónaði, kántrítónlist, maísstönglar,
grill og coca-cola á boðstólum. Veit-
ingastaður Kex hostels hefur útbúið
sérstakan köntrímatseðil sem verður
í boði á meðan hátíðin stendur yfir.
Það er vel við hæfi að hátíðin verður
sett í dag kl. 18, á sjálfum þjóð-
hátíðardegi Bandaríkjanna. Tónlistar-
konan Mr. Silla stígur á svið kl. 20,
Snorri Helgason klukkutíma síðar og
kl. 22 spilar Morgan O’Kane. Á morg-
un, laugardag, spilar Illgresi kl. 20,
Morgan O’Kane kl. 21 en síðan verður
sviðið opið frá 22 og aldrei að vita
hvað gerist. Á sunnudag kl. 21 spilar
hin sænsk/íslenska hljómsveit My
bubba og hinn bandaríski Sam Ami-
don er síðastur á svið kl. 22.
Ameríska menningarhátíðin Kex köntrí 2014
Banjóið stillt og rykið dustað
af sveitasmekkbuxunum
Morgan O’Kane Hann fer liprum fingrum um banjóið í kvöld og á morgun.
Sam Amidon Hann kemur frá Bandaríkjunum og ætlar að töfra fram tóna.
Morgunblaðið/Ómar
Mr. Silla Hún er ein þeirra sem koma
fram á köntríhátíðinni.
Hollar vörur úr náttúrunni
Íslensk framleiðsla
H-Berg efh | S. 565-6500
hberg@hberg.is | hberg.is
FRÁB
ÆRT
VERÐ
Hamp fræ Kinoa fræ Chia fræ Möndlumjöl