Morgunblaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2014 Þegar ég kynntist Svend-Aage Malm- berg fannst mér sjórinn við landið vera spennandi. Jakob fann síldina, Eggert og Garðar veiddu hana, í verstöðvum vann fjöldi ungs fólks við hana og ég var sumarstarfsmaður á Haf- rannsóknastofnun, kominn í leið- angur á Maríu Júlíu. Þar var Svend með nýstárleg tól sem slak- að var í sjó. Þetta voru bjartir dagar. Við vorum samstarfsmenn allt þar til hann lét af störfum, reyndar hvor á sinni fræðaslóð en oft lágu slóðirnar saman. Svend nam fræðin í Kiel hjá Günter Dietrich, einum þekktasta haf- fræðingi eftirstríðsáranna. Að loknu námi hóf hann störf hjá Unnsteini Stefánssyni á Hafrann- sóknastofnum. Í farteski hans voru nýjar aðferðir og tæki til rannsókna á litbrigðum sjávar. Svend hóf einnig mælingar á straumum við landið með ýmsum tækjum, straumrekum (öndvegis- súlum), straummælum sem kenndir voru við frumkvöðulinn Ekman og síðar með nútíma tækj- um. Segja má að mikil tíðindi hafi orðið í hafinu við Ísland á fyrstu starfsárum Svend þegar hafís bar að landi og aðstæður í sjónum gjörbreyttust. Veðurfar snarkóln- aði. Þetta tímabil, 1965-1970, er nefnt hafísárin. Norðurlands- síldin hvarf af miðunum og þjóð- artekjur hrundu. Hafísárin komu óvænt eftir um 45 ára hlýskeið og ástand sjávar, sem og áhrif þess á lífríkið í sjónum, varð þungamiðj- an í rannsóknum Svend þó að hann kæmi vissulega víðar við. Ástandi sjávar lýsti Svend á grundvelli mælinga á seltu og sjávarhita, en þessir eiginleikar ráða eðlismassa. Hann beitti í raun klassískum aðferðum sem uppruna eiga hjá þeim Fridtjof Nansen og Björn Helland-Han- Svend-Aage Malmberg ✝ Svend-AageMalmberg fæddist 8. febrúar 1935. Hann lést 25. júní 2014. Útför Svend-Aage fór fram 3. júlí 2014. sen. Þarna naut þekking á sjógerð- um og innsýn Svend sér vel. Dag einn ár- ið 1969 bauð Svend mér að koma í kvöld- kaffi í Hafnarfjörð til þeirra Elísabetar. Honum var mikið niðri fyrir. Hann hafði hugljómun um það hvernig selta sjávar ræður því hvort ís myndast við kælingu sjávar norðan Íslands eður ei. Þetta skýrði hann fyrir mér ákaft og ítarlega og niðurstöðuna: Að öllu skipti hvort seltan væri ofan eða neðan markanna 34,7. Mörg- um árum síðar heyrði ég erlendan haffræðing ræða lofsamlega þess- ar skýringar og framsetningu Svend. Minningin um kvöldstund- ina í Hafnarfirði er mér ljúf og ekki síður þótti mér gott að þiggja bók frá Svend fyrir skemmstu, það var ópus þeirra Helland-Han- sen og Nansen frá 1909 um Nor- egshaf. Svend hafði brennandi áhuga á því hvernig eðlislægt ástand í sjónum getur mótað líf- fræðilegt samspil og haft áhrif á útbreiðslu mikilvægra fiska, ný- liðun í stofnum þeirra og afrakst- ur. Hann skrifaði fjölmargar greinar um efnið í blöð og tímarit. Hann vildi að tekið væri mið af ástandi sjávar við úttektir á fiski- stofnum við landið. Hann sá hafið við Ísland í stóru samhengi og var alla tíð öflugur og vel metinn í sjó- fræðinefnd Alþjóða hafrann- sóknaráðsins, ICES. Sá vettvang- ur var hornsteinn í starfi hans og veitti ICES honum viðurkenn- ingu í Edinborg haustið 2001. Nú er kveðjustundin runnin upp. Við Sigrún vottum fjölskyldu Svend dýpstu samúð og deilum með henni minningu um góðan dreng. Vertu sæll og ljósinu falinn. Jón Ólafsson Mér var verulega brugðið er Gunnar tjáði mér að vinur og fyrr- um samstarfsmaður okkar á Hafró, Svend, væri látinn, en hann lést þá um nóttina. Þeir Svend, Gunnar og Guðni heitinn höfðu allir hlotið sína menntun í Þýskalandi og höfðu þekkst lengi áður, en ég kynntist þeim fyrst er ég fór að vinna á Hafró, frábærir drengir. Að vísu hafði ég hitt Svend í Bergen í Noregi er ég stundaði þar nám og hvatti hann mig til að sækja um starf á Hafró að því loknu, sem ég og gerði og fékk starfið. Við náðum vel saman og unnum okkar starf með vin- semd og virðingu hvor fyrir öðr- um. Svend var mjög víðsýnn mað- ur, viðkvæmur í lund, en gat þó verið þrjóskur þegar við átti og vildi standa við sitt. Hann var létt- ur í skapi, félagsvera og gat hlust- að og leitað þekkingar til annarra þegar við átti. Hann var frábær vísindamaður, skrifaði fjölmargar vísindagreinar, tók þátt í mörgum nefndum á vegum ICES og fékk þar viðurkenningu, enda með þeim betri í sínu fagi sem haf- fræðingur, án þess að varpa skugga á aðra. Svend hlaut einnig Fálkaorðuna fyrir störf sín og var vel að henni kominn. Svend og eiginkona hans Elisabeth eignuð- ust þrjú glæsileg börn er hlutu góða menntun og voru ætíð hjálp- leg föður sínum eftir að móðir þeirra lést. Tekið var eftir því hvað Svend var duglegur að heim- sækja börnin þó að um langan veg væri að fara og nú í ár ferðaðist hann til Svíþjóðar að heimsækja dóttur sína sem þar býr. Ég hringdi í Svend síðasta daginn sem hann lifði og ræddum við lengi saman um ýmislegt sem varðar lífið og tilveruna. Þá sagð- ist hann hafa verið í brúðkaupi og útskrift og væri að fara daginn eftir til Akureyrar í skírnarveislu. Hann komst ekki þangað því hann kvaddi þennan heim þá um nótt- ina. Þetta viðtal okkar á ég í minn- ingu um góðan dreng og vin og mun varðveita það. Svend var ekki við góða heilsu undir lokin, átti erfitt með gang, en var alltaf bjartsýnn og vildi lifa lífinu lifandi og sagði stundum við mig: „Ég skal ná því að vera 80 ára Sóli minn, sannaðu bara til,“ en örlögin gripu hér inn. Maður er víst kominn á þann aldurinn að margir vinir og ættingjar hverfa á braut og þetta er víst gangur lífs- ins, en samt kemur það manni alltaf að óvörum og harmurinn því samfara og því getur góð vinátta hjálpað til. Spámaðurinn Kahlil Gibran segir: „Hin leynda uppspretta sál- arinnar á að brjótast fram og renna til sjávar. Og perlur þinna ómælisdjúpa eiga að birtast í aug- um þínum. En leggðu hina óþekktu dýrgripi þína ekki á metaskálar. Og kanna þú ekki dýpi þekkingar þinnar með staf eða kvarða, því að haf sálarinnar á sér engin takmörk.“ Við vottum börnum, ættingjum og vinum Svend innilegustu sam- úð okkar við fráfall hans og megi minning um góðan dreng lengi lifa. Sólmundur og Astrid. Merkur vísindamaður hefur nú kvatt okkur. Ég kynntist Svend- Aage í starfi mínu sem ungur maður á Hafrannsóknastofnun fyrir mörgum árum. Það voru einkum sjóferðirnar á rannsókna- skipinu Bjarna Sæmundssyni sem gáfu tækifærið að læra á strauma og sjógerðir hafsins við landið undir leiðsögn Svend- Aage. Í hafrannsóknaleiðöngrum umhverfis Ísland og langt norður af landinu kom fram viðamikil þekking hans á náttúrunni sem hafið er og einnig var fátt sem kom honum á óvart í því efni. Hann hafði fágætan skilning á eðlisfræði hafstrauma og var áræðinn í skipulagningu og fram- kvæmdum leiðangra til þess að kanna fáfarnar slóðir með nýjum tækjum með það fyrir augum að auka skilning á eðli hafsins um- hverfis landið. Það voru mikil for- réttindi að starfa með Svend- Aage í slíkum ferðum. Innsýn hans var rík og skapaði alltaf frjó- ar umræður um náttúru hafsins og umhverfi lífríkis og fiskjar. Djúpsjávarmyndun norður af Íslandi er hluti af straumakerfi heimshafanna og framlag Svend- Aage til aukins skilnings á þeim ferlum var mikilvægt. Nákvæmar og reglulega endurteknar sjó- mælingar hafa sagt sögu náttúr- unnar sem Svend-Aage var sífellt að segja okkur hinum og túlka í margvíslegum útgáfum. Trúlega merkasta framlag hans til hafvís- indanna var sú uppgötvun að rekja mátti sveiflur í seltulág- marki í straumkerfi norðurhafa í mörg ár, eða miklu lengri tíma og vegalengdir en menn áður héldu. Þannig setti hann ströng takmörk á hugmyndir manna um blöndun- arhæfni hafsins sem voru að þróa reiknilíkön til að skýra strauma heimshafanna á sínum tíma. Svend-Aage hefur fengið marg- víslegar viðurkenningar frá al- þjóðasamfélagi hafvísindamanna fyrir frumkvöðlastarf sitt á norð- urslóðum. Mér veittist sú ánægja að fá að starfa með Svend-Aage í mörg ár og margs er að minnast sem gerir lífið svo miklu stærra og ríkara en annars hefði orðið og er ég þakk- látur fyrir það. Guð blessi minn- ingu Svend-Aage. Stefán Sólmundur Kristmannsson. Kveðja frá Hafrannsóknastofnun Svend-Aage Malmberg haf- fræðingur er fallinn frá. Hugur- inn hvarflar til liðinna áratuga með þessum gengna eldhuga sem helgaði haffræðinni og þekkingar- leit um eðli strauma og lífríkis á Íslandsmiðum alla starfsævi sína. Svend-Aage var sannkallaður þjónn síns litla lands, hafði hug- fast hve mikilvægt er að þekkja umhverfi hafsins og aðstæður svo land okkar geti eflst og þróast. Svend-Aage Malmberg fædd- ist í Reykjavík 8. febrúar 1935. Hann útskrifaðist frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1955, hélt utan til náms og lauk doktorsprófi í hafeðlisfræði við hHáskólann í Kiel árið 1961. Áður hafði hann þá átt þess kost að starfa í hlutastarfi við hafrannsóknir við fiskideild Atvinnudeildar Háskóla Íslands og þar réð hann sig til starfa árið 1962. Hann var síðar í hópi starfs- manna Hafrannsóknastofnunar þegar hún var sett á stofn árið 1965 og starfaði þar uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Eftir að undirritaður kom til starfa í yfirstjórn Hafrannsókna- stofnunar tókum við Svend oft tal saman um sérsvið hans, hafeðlis- fræðina, sem sannarlega hafði tekið miklum framförum þar und- ir hans forystu. Gagnstætt við fiskirannsóknirnar eiga hafeðlis- fræði og aðrar rannsóknir á vist- kerfi hafsins sér færri talsmenn en útheimta þó mikil útgjöld. Var því oft á brattann að sækja að koma verkefnum í kring á þessu sviði. Staðfesta Svend og áhersla hans á gildi haffræðinnar fyrir skilning okkar á auðlindinni fól í sér þarfa áminningu um að ekki verður hjá því komist fyrir sjávarútvegsþjóð að verja tíma og fjármunum til vöktunar og rann- sókna á þessu sviði. Svend-Aage miðlaði ötullega af þekkingu sinni í ræðu og riti og var hann afar virkur þátttakandi í alþjóðlegu samfélagi hafeðlis- fræðinga. Athuganir hans á breytingum sem urðu á hafísár- unum og árunum þar á undan nutu mikillar athygli. Slíkar rann- sóknir gera okkur m.a. betur kleift að henda reiður á þeim miklu umhverfisbreytingum sem orðið hafa á Íslandsmiðum nú á síðustu árum. Svend-Aage gegndi ýmsum trúnaðarstörfum hér heima og er- lendis og naut hann viðurkenning- ar samstarfsmanna og hlaut ridd- arakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2003 fyrir framlag sitt til haffræðirannsókna. Fyrir okkur á Hafrannsóknastofnun var hann líka afar góður félagi og þær voru ófáar hugvekjurnar um hafið og önnur mál sem Svend flutti okkur samstarfsfólkinu sem efldu andann og settu ánægjuleg- an blæ á starfsumhverfi okkar. Samstarfsfólkið og viðfangsefnin á Hafrannsóknastofnun voru hon- um hugleikin enda kom hann þangað daglega löngu eftir að formlegu starfi lauk. Svend verður minnst fyrir mik- ilvægt framlag til þekkingar á haffræði Íslandsmiða. Með þessum orðum vill undir- ritaður votta Svend-Aage Malm- berg virðingu og þökk okkar sem störfuðum með honum á Hafrann- sóknastofnun um leið og fjöl- skyldu hans eru sendar innilegar samúðarkveðjur. Jóhann Sigurjónsson. „Úr djúpinu ákalla ég þig Drottinn … Ég vona á Drottin, sál mín vonar, hans orðs bíð ég.“ Svo segir í 130. Davíðssálmi. Dr. Svend-Aage haffræðingur þekkti hafdjúpin vel, einkum Atlantshafsála, eðlisgerð þeirra, seltu og strauma, og var mikils- virtur innan lands sem utan fyrir hafrannsóknir sínar. Haffræðing- ar hafa beinlínis rætt um haf- svæði austur af Íslandi sem Malmbergssvæðið. Svend-Aage rýndi þó jafnframt í djúpin með öðrum hætti en hægt er með mæl- ingaraðferðum vísinda. Hann hugleiddi tilveruundur og lífs- vefnaðinn og leitaði svara í list- rænni skynjun og trúarhugsun. Hann fann til þess hve gagntæk lífsreynsla gleði og sorgar ristir djúpt, snertir kviku við mæri lík- amlegs lífs og fær glætt næmi fyr- ir veru manns, sál og anda. Missir ástkærrar eiginkonu, Elísabethar Pálsdóttur, frá þremur börnum þeirra á bernsku- og unglings- aldri, Ingileifi, Kristínu List og Páli Jakobi, var honum sár en trúarvonin huggaði og glæddi innri sýn út fyrir jarðnesk viðmið og þröngan sjónhring. Svend- Aage tengdist kirkju sinni og ræktaði trúna á Guð í Jesú nafni í helgihaldi hennar. Hann gerðist sóknarnefndarmaður Hafnar- fjarðarkirkju á þeim tímamótum er horft var til þess að byggja safnaðarheimili við hana og studdi mig vel í því baráttumáli og öðr- um er til framfara leiddu sem ég af hjarta þakka. Hann fagnaði því að sjá heimilið, er fékk nafnið Strandberg, rísa og verða að fag- urri grein af stofni kirkjunnar og safnaðarstarfið vaxa og blómgast. Svend-Aage lagði sig fram um að hlúa vel að börnum sínum og rækta með þeim Guðstrú og ábyrga lífsafstöðu og þakkaði lífs- farnað þeirra. Hann gladdist mjög yfir því að Ingileif dóttir hans vígðist til prests. Fyrr hafði hún gifst Þórhalli Heimissyni guðfræðinema í Hafnarfjarðar- kirkju, sem síðar varð prestur og sóknarprestur hennar. Fræði- greinar Svend-Aage um sjó og strauma vottuðu mikla sérfræði- þekkingu hans en einnig auðmýkt gagnvart reglufestu sköpunar- verksins, sem ekki mætti raska til ófarnaðar en virða bæri til lífs- heilla. Þungur undirstraumur fólst í blaðagreinum hans um fræði sín, náttúruvernd og fé- lagsmál, er bar með sér þrá til réttláts samfélags þar sem lífs- virðing, samhjálp og samkennd ríktu í anda frelsarans. Svend- Aage var tilfinninga- og skaprík- ur. Hann reyndi sviptingar, öldu- brot og storma á sjó og lífssigling- unni en var jafnan hjartahlýr. Síðustu æviárin átti hann athvarf í Höfn í Hafnarfirði og þótti miður að holskeflur skullu á henni. Fundum okkar bar síðast saman á fundi um hag þeirra sem þar voru heimilisfastir. Svend-Aage hafði mjög tapað þreki og heilsu en hvatti sem fyrr til réttlætis og sanngirni með glampa í augum. Sigling hans til að rannsaka haf- djúp og strauma í sýnilegum heimi er á enda en einlæg þrá hans um skilning á sálardjúpum og lífsundrum fær nú svör og svöl- un í himneskri höfn við bjarma aftureldingar upprisudags í frels- arans nafni. Guð blessi minningu Svend-Aage og launi honum tryggð hans við Krist og kirkju og lýsi ástvinum hans leiðina fram. Gunnþór Ingason. Mikilhæfur vísindamaður er fallinn í valinn. Gagnmerkt ævi- starf Svend-Aage Malmberg á sviði hafrannsókna varð mikið að vöxtum. Hann sinnti jöfnum höndum þremur helstu þáttum rannsókna; athugunum og mæl- ingum, úrvinnslu gagnanna og túlkun eða kenningasmíð. Í starfsminningum sínum fjallar hann um breytingar á eðlis- ástandi sjávarins við Ísland á 20. öld, sér í lagi svonefnd hafísár 1965-1971 og upptök hita- og seltuferils almennt í sjónum um- hverfis Ísland. Upptök þessara sveiflna á hafísárunum voru rakin allt norður í Íshaf og Framsund. Síðan skiluðu áhrif hins kalda og seltusnauða pólsjávar sér um allt norðanvert Norður-Atlantshaf og að lokum að sunnan inn í Norð- urhaf á tímabilinu frá sjöunda áratug 20. aldar til upphafs hin ní- unda. Var þessi mikla hringrás kölluð „seltufrávikið mikla“. Svend- Aage var meðhöfundur að frægri ritgerð um þessa fjórtan ára hringferð um norðanvert Norður- Atlantshaf. Segir Svend-Aage síð- an: „Ástand sjávar á norðurmið- um var nú kennt við „svalsjó“ sem birtist þannig sem þriðja aflið á eftir „hlýsjónum“ og „pólsjónum“ hvað varðar ástand sjávar á upp- eldis- og fæðuslóð þorsks á norð- urmiðum.“ Svend-Aage stjórnaði ótal leið- öngrum á íslenskum hafsvæðum. Ég átti því láni að fagna að fljóta með í um það bil tylft leiðangra þar sem hann var leiðangurs- stjóri. Ég kynntist honum því vel og tókst með okkur vinátta. Á vegum Veðurstofu Íslands var ég þátttakandi (hafís og víxláhrif hafs og lofts) í svonefndu Græn- landshafsverkefni (Greenland Sea Project) 1987-1991 og Evr- ópska norðurhafaverkefni (Euro- pean Sub-Polar Ocean Project (ESOP I og II)) sem einnig stóð í mörg ár þar sem farnir voru ár- legir leiðangrar. Stjórnaði Svend- Aage gjarnan hinu íslenska fram- lagi í þessum alþjóðlegu rann- sóknaverkefnum. Margs er að minnast frá sjóferðunum. Svend- Aage var röggsamur og lipur stjórnandi og fékkst ómetanlegur fengur upplýsinga og gagna sem síðan var unnið úr smám saman strax og færi gafst. Þótt Svend-Aage væri einarður og vel skipulagður við sín vísindi var síður en svo að hann leiddi ekki hugann að öðru. Hann var fræðari í eðli sínu og skrifaði at- hyglisverðar og greinargóðar greinar fyrir almenning, í blöð og tímarit, um hafrannsóknir og náttúruvernd. Hann hafði sínar skoðanir á þjóðmálum og lét til sín taka. Svend-Aage var trúmaður og ófeiminn að láta það í ljós. Frá því er við lukum störfum fyrir nokkrum árum skiptumst við á jólakveðjum og er við hitt- umst á málþingum voru fagnaðar- fundir. Kveð ég nú með söknuði eftirminnilegan samferðamann með þakklæti fyrir löng og góð kynni. Við hjónin vottum skyld- mennum samúð í söknuði þeirra. Blessuð sé minning Svend-Aage Malmberg. Þór Jakobsson. HINSTA KVEÐJA Afi okkar, elsku Svend- Aage Malmberg, kvaddi okkur miðvikudaginn 25. júní. Afi Svenni var húm- oristi, heimspekingur, haf- fræðingur og góður afi! Núna er afi Svenni samein- aður ömmu Elísabethu, glaður og dansandi. Við söknum þín, hvíldu í friði, elsku afi Svenni. Rut Malmberg og Ýmir Aage Malmberg. Jón Her- mannsson fæddist 12. ágúst 1924 á Glitstöðum í Norð- urárdal en flutti barn að aldri í Borgarnes ásamt móður sinni, Sigríði Jónsdóttur frá Einifelli, og yngri systur, Est- er Mörtu, í upphafi efnahags- kreppunnar miklu. Kjörin voru kröpp en Sigga var einstakur dugnaðarforkur og sá fyrir heim- ilinu með þrotlausri vinnu. Nonni var enn á unglingsárum þegar hann réð sig til vegavinnu og síðan annarra starfa og hagur heimilisins breyttist til hins betra. Kaup voru fest á litlu húsi við Eg- ilsgötu, sem nú er horfið, og þang- að fluttu systkinin ásamt móður sinni. Í minningu minni var húsið við Egilsgötu þó ekki lítið, það var höll menningar og gestrisni sem birtist á margvíslegan hátt á vist- legu heimili þar sem pönnukökur ilmuðu og sagnaarfur ævintýra og þjóðsagna varð ljóslifandi. Árin liðu og Nonna biðu önnur störf. Síðari hluta starfsævinnar eyddi hann hjá Sparisjóði Mýrasýslu þar sem hann varð aðalféhirðir og Jón Hermannsson ✝ Jón Her-mannsson fæddist 12. ágúst 1924. Hann lést 26. apríl 2014. Útför Jóns fór fram 6. maí 2014. fjölskyldan flutti sig um set í fallegt hús við Skúlagötu. Nonni var á allan hátt einstakur mað- ur, traustur, vand- aður og fágaður og auk þess fjölhæfur námsmaður. Á hefð- bundinni langskóla- göngu voru engin ráð en það bætti hann sér upp með sjálfsnámi af fágætri einurð. Hann varð víðlesinn um lönd og lýði, lagði sérstaka stund á tungumál og varð mæltur á margar erlendar tungur. Það gilti einu hvað hann lagði fyrir sig, öllu var sinnt af stökustu alúð hvort sem það var nám, störf eða samverustundir með fjölskyldu og vinum. Ester og Nonni sinntu börnum og unglingum í kringum sig á óviðjafnanlegan hátt og þreyttust hvorki á að gleðja né fræða. Þau voru vinmörg og vin- áttan var bundin þeim böndum sem endast til síðustu stundar. Vonandi auðnast okkur sem feng- um að njóta samverunnar að bera arfleifð þeirra áfram. Að leiðarlokum kveð ég Nonna með söknuði og þakklæti fyrir allan þann tíma sem mér hlotn- aðist í návist hans, Esterar og Siggu. Blessuð sé minning þeirra. Gunnvör Sigríður Karlsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.