Morgunblaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2014
Dreifing:
HÁR EHF
s. 568 8305
har@har.is
REDKEN Iceland á
OIL CARE THAT´S
A CUT ABOVE
3X STERKARA, 2X GLANSMEIRA HÁR
ÁN SÍLIKONEFNA
DIAMOND OIL
Redken kynnir fyrstu sílikonlausu meðferðarolíuna á markaðnum.
Diamond oil gefur óþrjótandi styrk með 3x sterkara hári
áferð með 2x meiri glans og mýkt með 3x meiri næringu.
Þú sérð styrk og fegurð demantsins í hverjum Diamond oil dropa.
Styrkur og glans fyrir
skemmt/viðkvæmt hár
, fallega
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.
SÖLUSTAÐIR
REDKEN
SENTER
SCALA
SALON VEH
SALON REYKJAVÍK
PAPILLA
N-HÁRSTOFA
LABELLA
MENSÝ
MEDULLA
KÚLTÚRA
HÖFUÐLAUSNIR
HJÁ DÚDDA
FAGFÓLK
Kristín Gunn-
laugsdóttir
myndlistar-
maður býður upp
á listamanns-
spjall um sýn-
ingu sína í Flóru,
Hafnarstræti 90
á Akureyri, í
kvöld kl. 20-21.
Kristín fæddist á
Akureyri og
stundaði nám við Myndlistaskólann
á Akureyri, MHÍ í Reykjavík og
Accademia delle Belle Arti í Flór-
ens á Ítalíu. Einkasýning hennar í
Listasafni Íslands á síðasta ári vakti
mikla athygli og hlaut Kristín
menningarverðlaun DV fyrr á
þessu ári fyrir þá sýningu. Á sýn-
ingu Kristínar í Flóru eru málverk
og teikningar frá þessu og síðasta
ári. Nokkur verkanna voru á einka-
sýningu Kristínar í Listasafni Ís-
lands og eru einnig verk á sýning-
unni sem hafa ekki verið sýnd áður.
Listamanns-
spjall í Flóru
Kristín
Gunnlaugsdóttir
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Myndlistarsýningin Dalir og hólar
er nú sett upp í fimmta sinn, en
fyrsta sýningin var sett upp sumarið
2008. Aðsóknin hefur aukist ár frá
ári, enda kann fólk afskaplega vel að
meta það að fá að fara í ratleik eins
og þennan,“ segir Þóra Sigurðar-
dóttir um
myndlistar-
sýninguna Dalir
og hólar – Litur
sem opnuð verður
á morgun kl.
15.00 í Ólafsdal
við Gilfjörð. Þóra
er sýningarstjóri
ásamt Sólveigu
Aðalsteinsdóttur.
Aðspurð segir
Þóra sýninguna
draga nafn sitt af staðsetningu sinni
á svæðinu við Breiðafjörð og í Döl-
um, en sýnt er í sveitarfélögunum
Dalabyggð og Reykhólasveit. Eins
og sjá má á meðfylgjandi korti hér til
hliðar sýna alls fimm listamenn á átta
mismunandi stöðum.
„Ár hvert veljum við tiltekið þema
og listafólkið sem boðið er að vinna
verk fyrir sýninguna út frá því. Þema
sýningarinnar í ár er „litur“ og lista-
fólkið sem þátt tekur á það allt sam-
merkt að hafa unnið mikið með liti í
verkum sínum. En þemað vísar einn-
ig til sýningarsvæðisins, því að lita-
dýrðin hér er ótrúleg. Fjörðurinn er
þannig að hann endurvarpar ljósinu
og býr til listaspil í öllum veðrum
jafnt að sumri sem vetri,“ segir Þóra,
en sýnendur í ár eru Bjarki Braga-
son, Eygló Harðardóttir, Logi
Bjarnason, Tumi Magnússon og
Gerd Tinglum.
Einstök náttúrufegurð
Spurð um val á sýningarstöðum í
ár segir Þóra að þeir séu valdir í sam-
starfi við listafólkið og heimamenn.
„Við höfum ævinlega farið í
vettvangsferð um miðjan vetur með
listamönnunum til þess að þeir geti
valið sér staði, kynnst heimafólki og
kynnt sér aðstæður, náttúru og sögu
viðkomandi staða. Öll verkin eru því í
samtali við þá staði þar sem þau eru
sýnd,“ segir Þóra og tekur fram að
verkin séu staðsett í húsum og á
landsvæðum bænda og landeigenda á
svæðinu.
Aðspurð segir Þóra auðveldlega
hægt að keyra milli allra sýningar-
staða á einum degi. „Eitt af mark-
miðum sýninganna er að fá fólk hing-
að á svæðið með því að beina
athyglinni að menningunni og nátt-
úrunni hér. Það er einstök nátt-
úrufegurð hér við Breiðafjörð og í
Dölunum. Því miður er ekki mikið
um ferðamenn á þessum hluta Vest-
fjarða en við hvetjum sýningargesti
til ferðalags um svæðið. Um leið
kynnir sýningin verk samtímalista-
manna og nálgun þeirra við viðfangs-
efni sín.“
Verk unnin inn í tóm hús
Eins og síðustu ár eru yfirgefnar
byggingar meðal sýningarstaða.
„Okkur hefur þótt freistandi og gef-
andi að vinna verk inn í þessar tómu
byggingar. Í ár eru tveir slíkir staðir.
Annars vegar er það Staðarhóll í
Saurbæ, sem er yfirgefið sveitabýli
sem stendur autt, en húsið er afskap-
lega fallegt þótt það sé illa farið. Hins
vegar er það Skarðsstöð á Skarðs-
strönd, sem var áður verslunar-
miðstöð fyrir Breiðafjarðarsvæðið og
Skarðsströndina, en þar er sýnt í
gömlu gluggalausu lagerhúsi við
höfnina sem stendur opið og blæs í
gegnum,“ segir Þóra og bætir við:
„Meðal markmiða okkar með sýning-
unni er að vekja athygli á því hversu
vandaðar, fallegar og sérstakar þess-
ar gömlu byggingar eru. Þessi gömlu
hús, svo sem hlöður og fjárhús, eru
iðulega mjög falleg rými og augljóst
að staðið hefur verið mjög vel að
byggingu þeirra á sínum tíma, í
kringum 1930.“
Af öðrum sýningarstöðum má
nefna sundlaugina Grettislaug í
Reykhólum, verksmiðju Norðursalts
í Reykhólum, gamla bankaútibúið í
Króksfjarðarnesi og skemmu í Ytri
Fagradal. „Allir listamennirnir sýna
síðan í Ólafsdal, en þar stendur
óskaplega fallegt, gamalt timburhús
sem reist var 1880 sem fyrsti
búnaðarskólinn á Íslandi. Húsið er
tvílyft á veglegum hlöðnum grunni
og fallega staðsett.“
Þess má að lokum geta að sýningin
stendur til 10. ágúst. Allar nánari
upplýsingar um listafólkið, sýn-
inguna sjálfa og vegakort um
sýningarsvæðið má finna á
dalirogholar.nyp.is. Vegakortið verð-
ur einnig aðgengilegt í útprenti í
upplýsingamiðstöðum á svæðinu,
bensínstöðum og kaffihúsum. Sýn-
ingin er m.a. styrkt af myndlistar-
sjóði og menningarráði Vesturlands.
Ratleikur um samtímalist
Myndlistarsýningin Dalir og hólar opnuð í fimmta sinn á morgun Þema sýningarinnar er litur
Sýnt er á átta ólíkum stöðum, en sýningarskráin er jafnframt vegakort um sýningarsvæðið
Sýning í fæðingu Bændur í Ytri Fagradal kanna staðsetningu fyrir skjávarpann vegna vídeóverks Gerd Tinglum
sem sýnt er í skemmunni. Þess má geta að Tinglum er nýráðinn rektor við Listaakademíuna í Bergen.
Þóra
Sigurðardóttir
Dalir og hólar 2014
Loftmyndir ehf.
1. Byggðasafn Dalamanna, Laugum Sælingsdal, opið 13-18. Gerd
Tinglum. 2. Staðarhóll í Saurbæ, opið 24 tíma. Bjarki Bragason,
Logi Bjarnason. 3. Ytri Fagridalur á Skarðsströnd, opið 12-21.
Bjarki Bragason, Gerd Tinglum, Logi Bjarnason. 4. Skarðsstöð á
Skarðsströnd, opið 24 tíma. Eygló Harðardóttir. 5. Ólafsdalur, opið
13-17. Allir. 6. Króksfjarðarnes, opið 12-17. Tumi Magnússon.
7. Sundlaugin Grettislaug, Reykhólum, opið 15-22. Eygló Harðar-
dóttir. 8. Norðursalt, Reykhólum, opið 24 tíma. Logi Bjarnason.
7
6
5
2
3
4
1
8
BREIÐAFJÖRÐUR
S K
A R
Ð S
S T
R Ö
N D
GILSFJ.
KRÓKSFJ.
BERUFJ.
Reykhólar
Skarðsstöð
Laugar
Saurbær
Ytri Fagridalur
Rúður Sólveig Aðalsteinsdóttir að-
stoðar Eygló Harðardóttur við upp-
setningu verka í Skarðsstöð.
Saurbær Logi Bjarnason spáir í
staðsetningu verka á Staðarhóli.