Morgunblaðið - 04.07.2014, Síða 20

Morgunblaðið - 04.07.2014, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2014 VINNINGASKRÁ 9. útdráttur 3. júlí 2014 97 10661 17988 30520 40438 51320 63043 72238 397 10738 18293 31864 40681 51841 63637 72250 574 10925 18468 32211 41065 52720 63991 72631 633 11332 18666 32220 41419 53311 64270 72868 790 11502 19330 32393 41619 53550 64572 72913 1284 11524 21052 32648 41706 54401 64585 73886 1443 11761 21596 33013 41904 54437 64792 74208 3170 11974 21758 33033 41941 54643 64889 74914 4128 12116 22156 33483 42286 54786 64931 75245 4174 12425 22596 33720 42477 55669 65089 75260 4572 12580 22972 33737 42739 55855 65183 75654 4605 12779 23320 33852 43545 56398 65220 75775 4634 13082 23559 34296 44157 56419 65542 75945 5820 13678 24633 35078 44203 57309 65743 76036 5891 13736 24709 35307 45222 57382 66793 76539 6338 13898 24917 35912 45327 57572 67476 76792 6654 14032 25035 36217 45346 57901 67719 77113 6748 14048 25300 36412 45788 57911 67793 77800 7643 14495 25752 37589 45894 57990 67920 77860 8960 14560 25759 37632 46570 58183 68147 78165 9103 14622 26077 37996 46776 59117 68797 78403 9262 14635 26645 38177 46920 59964 68817 79059 9263 14802 26673 38547 46944 60163 69034 79363 9352 15251 26681 38596 47594 61073 69063 79417 9579 15325 27091 38820 48750 61198 69754 79817 9706 15494 27359 39001 49185 61435 70399 79882 9900 16255 27733 39050 49269 61517 70751 9920 16258 28572 39184 49496 61779 70914 10414 16677 29038 39490 49701 61916 70943 10488 16757 30184 39782 50439 62032 71004 10542 17342 30349 40120 50665 62061 71037 10615 17894 30380 40316 50688 62723 71058 2583 12188 25728 34044 42476 51001 62911 73816 2878 12363 26424 35966 42804 52973 63614 74640 4190 12632 27519 36736 44516 53677 63809 74705 5495 13086 28741 37476 45485 54610 64084 75229 5716 14294 29449 37556 45588 55150 65224 75750 7252 17531 30061 37967 45737 55267 66493 79141 7498 18070 30230 39102 46018 55817 66634 79505 9433 18644 30370 39367 49149 55957 67491 79621 9826 20001 30884 39479 49720 57456 68491 79980 9972 22362 31029 39935 49770 58300 68784 10517 23027 31042 40453 50058 58326 68956 11123 23104 32872 40979 50521 60735 69532 11685 24431 33172 41104 50709 61337 71267 Næstu útdrættir fara fram 10. júl, 17. júlí, 24. júl & 31. júl 2014 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 13856 40740 45597 63365 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 216 18603 31991 44375 66104 78167 3670 23673 33004 44765 68857 78284 14997 24363 41599 45386 72662 78325 15075 30182 42644 53643 73176 79280 Íbúðar v inningur Kr. 15.000.000 Kr. 30.000.000 (tvöfaldur) 6 4 4 4 9 Í aðdraganda síðast- liðinna sveitarstjórn- arkosninga voru skipu- lagsmál talsvert til umræðu enda er fólk í vaxandi mæli farið að gera sér grein fyrir því hvað skipulag hef- ur áhrif á mörg svið og hversu afleiðingar af vondu skipulagi geta verið afdrifaríkar og til langs tíma. Þetta eru að vísu engin ný sann- indi, en með auknu fjármagni í um- ferð og mikilvirkari vinnuvélum og betri upplýsingum eru áhrifin oft fljótari að koma í ljós enda víða meiri og meiri verðmæti í húfi. Op- inbert skipulag er líka mjög mik- ilvirkt tæki til þess að koma því til leiðar sem vilji okkar sem samfélag stendur til, en ef vel á að vera þurfa að liggja að baki þannig skipulagi viðamiklar rannsóknir og sam- anburður á kostum sem koma til greina. Svo þurfa þessi gögn líka að vera aðgengileg og skiljanleg venju- legu fólki áður en til umræðu og stefnumörkunar kemur. Almenn umræða um svona flókin mál, án undangenginnar sérfræðivinnu, leiðir oft ekki til farsællar nið- urstöðu. Líka er rétt að hafa í huga að nútíma skipulag er ekki meitlað í stein þótt þar þurfi að ríkja ákveðin festa. Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024 var til dæmis meira en áratug í endurskoðun og flestir skipstjórar væru löngu búnir að sigla í strand á mun skemmri tíma ef þeir litu aldrei á áttavitann. Í dag þarf skipulag og sú stefnumótun sem þar er að finna að vera í stöðugri endurskoðun ef vel á að vera, eins og skipstjórar þurfa alltaf annað veifið að líta á áttavitann og taka stöðuna. Þótt vanda- samt kunni að vera að stjórna skipi eru öll þau mál sem opinbert skipulag hefur áhrif á oft miklu flóknari og afdrifaríkari. Einstök mál þarf engu að síður að vera hægt að afgreiða fljótt og vel. Með nútíma tækni er þetta tiltölulega auðvelt mál enda er alltaf ný og betri þekking og aðferð- ir að koma til sögunnar. Íslensk skipulagslöggjöf gerir líka ráð fyrir þessu. Í 35. grein skipu- lagslaga er nefnilega ákvæði þess efnis að þegar að loknum sveit- arstjórnarkosningum skuli sveit- arstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Þetta er auðvitað gullið tækifæri fyrir nýja sveitarstjórnarmenn og sveit- arstjórnir til þess að láta að sér kveða, koma sínum stefnumálum í framkvæmd og ráða nýja sérfræð- inga til verka sem ekki eru eins handgengnir fyrri meirihluta. Oft sér nýtt fólk þessi mál líka í nýju ljósi og reynslan hefur sýnt að jafn- vel bestu sérfræðingar hafa til- hneigingu til þess að verða með- virkir þeim meirihluta sem þeir vinna fyrir. Í Reykjavík er það þannig með ólíkindum ef nýir borgarfulltrúar vilja t.d. ekki endurskoða aðalskipu- lag borgarinna þótt ekki væri nema viðvíkjandi framtíð flugvallarins, byggingu mosku, jarðgöngum í gegnum Öskjuhlíðina, sem enginn veit hvernig eiga að enda og einu stærsta verslunarhverfi Íslands á Örfirisey, sem samkvæmt síðasta aðalskipulagi á að breyta í hafnir, svo eitthvað sé nefnt. Þegar svona aðalskipulag er end- urskoðað væri heldur ekki úr vegi að almenningur væri upplýstur um það hvaða sérfræðingur leggur hvað til – og hvers vegna. Oft hefur það nefnilega brunnið við að farið er að leysa „vandamál“ án þess að þau séu nægilega skilgreind, en það hef- ur iðulega gefist ákaflega illa. Einn- ig er ekki nema sjálfsagt að fólk fái að vita hvaða sérfræðingar séu ábyrgir fyrir framkvæmd skipulags- ins og innan hvaða tíma því annars er hætta á að allt þetta skipulag verði ekki annað en hópvinna óskil- greindra og ónafngreindra aðila og óskadraumar og „framtíðarsýn“ stjórnmálamanna sem enginn vill taka ábyrgð á þegar upp er staðið. Endurskoðun aðalskipulags Eftir Gest Ólafsson Gestur Ólafsson » Þegar að loknum sveitarstjórnar- kosningum skal sveitar- stjórn meta hvort ástæða sé til að endur- skoða aðalskipulagið. Höfundur er arkitekt og skipulagsfræðingur FAÍ, FSFFÍ. Í stjórnartíð fráfar- andi borgarstjórnar var það forgangsverk- efni yfir sumarmán- uðina að loka Lauga- veginum og Skólavörðustíg með því að bolta niður gömul reiðhjól þvert yfir þessar götur, það nægir ekki eitt reið- hjól, nei, þau skulu vera fjögur, eitt á gatnamótum Laugavegar og Vatnsstígs, annað á mótum Lauga- vegar og Klapparstígs, þriðja á mótum Laugavegar og Smiðjustígs og fjórða reiðhjólið sem lokar fyrir bílaumferð er á mótum Skóla- vörðustígs og Bergstaðastrætis. Nú, þegar þetta er skrifað er búið að loka Pósthússtræti fyrir bílaum- ferð. Þetta virðist gert til að vel- gangandi borgarbúar þurfi ekki að óttast árásir ökutækja, sem leið eiga um þessar götur. Þessar lokanir eru bara yfir sumartímann, þegar flestir geta verið á ferli, hreyfihamlaðir jafnt sem velgangandi. Nú er það svo, að með þessum lokunum er frek- lega brotið á réttindum fatlaðra. Á vefsíðu Reykjavíkurborgar stendur skýrt og skorinort: „Óheimilt er að mismuna fólki vegna fötlunar.“ Enn fremur: „All- ir eiga rétt á virkri þátttöku í reykvísku borgarsamfélagi.“ Og enn: „Fatlaðir eigi jafnan aðgang að þjónustu og ófatlaðir.“ Reykjavíkurborg virðir ekki eig- in reglur (lög) með þessu framferði sínu. Hvað er til ráða? Eiga hreyfi- hamlaðir að stofna þrýstihóp? Ég efa það, það er aldrei hlustað á svoleiðis hópa. Eiga hreyfihamlaðir að fara í kröfugöngu? Nei það þýð- ir ekki neitt, það skilar engum ár- angri. Skrifa bréf til umboðsmanns Alþingis? Nei, því bréfi yrði bara stungið undir hinn víðfræga stól. Grenja og væla í fjölmiðlum? Kannski, það hefur stundum borið árang- ur ef fréttin er vel skrifuð og blaðamaður sýnir fórnarlömbum samúð. Safnast saman með hjólastóla, göngu- grindur, hækjur og göngustafi og loka Laugaveginum fyrir gangandi umferð og benda vegfarendum á aðrar leiðir, eins og okkur er bent á, ef við viljum kom- ast leiðar okkar? Það gæti orðið vænlegt til árangurs. Varla fara borgaryfirvöld að siga lögreglu á fatlaða einstaklinga og varla mun lögreglan leggja hendur á okkur eða sprauta á okkur úr úðabrúsum. Beinar aðgerðir eru sem eitur í beinum stjórnvalda, því það sýnir vanmátt þeirra og úrræðaleysi, en eitthvað verðum við að gera til að ná rétti okkar. Við eigum ekki að láta stjórn- völd velja leiðir fyrir okkur, né segja okkur hvenær við megum fara um borgina, við erum jafn- rétthá og aðrir. Við höfum fullan rétt á því að fara sömu leiðir og ófatlaðir, það er okkar réttur. Nú er það svo, að þegar ekið er niður Laugaveg frá „Hlemmi“ að Lækjargötu, þá eru einungis fjög- ur bílastæði sem merkt eru fötl- uðum, þar af eru tvö fyrir við- skiptavini Tryggingastofnunar ríkisins, við virðumst vera afgangs- stærð. Þetta er ekki viðunandi. Bílastæðum sem merkt voru fyrir hreyfihamlaða um sumartímann, þegar lokunin var í gangi, var breytt í stæði fyrir almenning eftir sumarlokun. Fækkar hreyfihöml- uðum yfir vetrartímann? Ég held ekki. Þegar loka þarf götum fyrir bíla- umferð í nágrannalöndum okkar vegna verkefna er fötluðum tryggður aðgangur í umferðinni eins og hægt er. Hvenær gerist þetta á Íslandi? Gilda ekki sömu mannúðarsjónarmið hér í Reykja- vík? Bæjarstjórn Akureyrar fer þá leið að leyfa mjög hæga bílaumferð um göngugötu bæjarins og sýnir fötluðum, sem og öðrum, þá virð- ingu og þann skilning sem þeir eiga skilið, en það virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá stjórnendum Reykjavíkurborgar. Góð er sú hugmynd að taka nið- ur reiðhjólin sem loka Laugavegi, Pósthússtræti og Skólavörðustíg og setja í staðinn umferðarmerki sem bannar alla umferð ökutækja tímabundið, um þessar götur, nema þeirra sem eru með merki „fatlaðra“ í framrúðunni. Þessi lausn á „vandamálinu“ ætti að vera öllum þóknanleg og ekki valda neinum vandræðum. Leyfið okkur „hreyfihömluðum“ að njóta þess sama og þið sem far- ið allra ykkar ferða áhyggjulaust og eruð velgangandi. Það eru fjöl- margir hreyfihamlaðir sem vilja fara um Laugaveginn, Póst- hússtrætið og Skólavörðustíginn, en geta það ekki vegna þess að göturnar eru lokaðar og ekki að- gengilegar fyrir hreyfihamlaða. Nú er bara að sjá hvort nýi borgarstjórinn (sem er læknir) bregðist rétt og vel við og afnemi þessar lokanir með öllu. Hann yrði maður að meiri. Þrengt að ferðafrelsi hreyfihamlaðra Eftir Kristján Arnar Helgason »… fjölmargir hreyfi- hamlaðir vilja fara um Laugaveginn, Póst- hússtrætið og Skóla- vörðustíginn, en geta það ekki vegna þess að göturnar eru lokaðar. Kristján Arnar Helgason Höfundur er áhugamaður um aðgengi og ferlimál fatlaðra. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.