Morgunblaðið - 28.08.2014, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Laugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • brynja@brynja.is
SJÖBERGS HEFILBEKKIR
FYRIR SKÓLA OG HEIMILI
Nordic Plus 1450
Verð kr. 79.300
Skápur: 25.910
Skóli-4
Verð kr. 252.600
Einmenningur
Hæðarstillanlegur
Verð kr. 314.500
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
Vesturgata 6-8, sem í rúmlega fimm-
tíu ár hýsti veitingahúsið Naustið
mun öðlast nýtt líf í haust er þar
verður opnað gistiheimili. Eigandi
hússins, Karl J. Steingrímsson, segir
að hann hafi leigt húsið út til rekstr-
araðila og að framkvæmdir séu nú
hafnar. Stefnt er að því að gistiheim-
ilið verði opnað í október. „Þetta
verður blanda af gistiheimili og hos-
teli,“ segir Karl. „Það verða gistirými
fyrir 64, en ekki bara í Naustinu
heldur einnig í efri húsunum, Vest-
urgötu 10 og 10a.“ Ásamt gistiheim-
ilinu mun veitingastaður verða opn-
aður í kjallara hússins, þar sem áður
var Naustkjallarinn. Nýi veitinga-
staðurinn mun taka 120 manns í sæti.
„Núna er byrjað að hreinsa allt út
og teikna staðinn upp og stefnt er að
því að opna í október,“ segir Karl, en
hann hefur átt húsið ásamt húsunum
fyrir ofan frá árinu 1994.
Verslun og saltverkun
Húsalengjan við Vesturgötu 6-8 á
sér nokkuð merkilega og langa sögu.
Athafnamaðurinn Geir Zoëga reisti
húsið árið 1882 en Geir var um-
svifamikill og fékkst meðal annars
við útgerð, verslun og búskap. Geir
var jafnframt fyrstur hér á landi til
þess að gera móttöku ferðamanna að
atvinnu.
Upphaflega voru húsin notuð sem
atvinnuhúsnæði, bæði sem versl-
unarhús og saltverkunarhús.
Árið 1883 byggði Geir við báða
gafla hússins og sex árum síðar
lengdi hann húsið til vesturs. Árið
1897 byggði hann fiskgeymsluhús
við vesturgaflinn sem var síðan
stækkað árið 1902. Þá voru húsin
komin í núverandi stærð.
1915 var settur kvistur á versl-
unarhúsið og gluggarnir stækkaðir
tveimur árum seinna og þar var rek-
in Geirsbúð allt til ársins 1982.
Stofnendur innan við þrítugt
Það var árið 1954 sem veitinga-
staðurinn Naustið var opnaður. Séra
Halldór S. Gröndal var frumkvöðull
að stofnun Naustsins en hann hafði
numið hótelfræði við Cornell-
háskóla í Bandaríkjunum fyrstur Ís-
lendinga. Halldór útskrifaðist árið
1952 og þegar hann kom heim fannst
honum lítið í boði fyrir hann að gera
hjá veitingahúsum landsins. Halldór
átti sér draum að stofna vandað veit-
ingahús og lét hann slag standa 1953.
Þá ræddi hann draum sinn við
gamla félaga úr Verslunarskóla Ís-
lands og vaknaði sú hugmynd að
opna veitingastað í verbúðinni við
Vesturgötu 6 sem var þá enn í eigu
Geirs Zoëga.
Naust hf. var stofnað haustið 1953.
Stofnendurnir voru sjö talsins. Auk
Halldórs voru þeir Eyjólfur Konráð
Jónsson, síðar alþingismaður og rit-
stjóri Morgunblaðsins, Sigurður
Kristinsson stjórnarformaður,
Ágúst Hafberg, síðar stofnandi og
forstjóri Ísarns hf. og Strætisvagna
Hafnarfjarðar, Hafsteinn Baldvins-
son, síðar hæstaréttarlögmaður,
Geir Zoëga, síðar forstjóri Viðlaga-
sjóðs, og Ásmundur Einarsson í
Sindra. Nokkrum árum síðar bættist
Arent Claessen í hópinn. Stofnendur
Naustsins voru allir innan við þrí-
tugt þegar Naustið síðan var opnað
1954.
Þekktast fyrir þorrablótin
Naustið var rekið í rúmlega fimm-
tíu ár við góðan orðstír. Líklegt þyk-
ir að merkasta framlag staðarins til
íslenskrar matarmenningar hafi ver-
ið þorrablótin en þegar að Naustið
opnaði var þorrinn daufur tími í veit-
ingahúsarekstri og þorrablót á veit-
ingahúsum, sem eru árlegur við-
burður í dag, þekktust ekki. Halldór
hafði áhyggjur af þessu og vildi
koma þorramat á veitingahúsin. Árið
1958 fór hann á fund Kristjáns Eld-
járn þjóðminjavarðar sem hreifst af
hugmynd Halldórs um þorrablót og
lánaði Halldóri gömul trog. Voru
smíðuð geirnegld trog eftir þeim og
maturinn borinn fram í þeim. Hverju
trogi fylgdi sjálfskeiðungur og hand-
laug og vakti það mikla lukku.
Þorrablót Naustsins, þar sem
súrsuð svið, hrútspungar, lunda-
baggar, harðfiskur og hangikjöt
voru í aðalhlutverki, voru alltaf vel
sótt. Jafnframt var Naustið þekkt
fyrir skötuveislur á Þorláksmessu og
jólahlaðborð á aðventunni.
Naustið fær nýtt líf
Verður breytt í gistiheimili með 64 gistiplássum Stefnt er að opnun í október Veitingastaður
í kjallara mun taka 120 manns í sæti Húsið á sér langa sögu og hefur hýst ýmsa starfsemi
Naustið Húsin sem um ræðir liggja frá Vesturgötu 10 til 6. Þar mun opna gistiheimili í haust sem rúmar 64 gesti. Jafnframt verður veitingahús í kjallara.
Hæð Á efri hæðinni stóð hinn sögufrægi Símonarbar. Þar starfaði bar-
þjónninn Símon Sigurjónsson í 30 ár. Nú verður þessu breytt í gistiheimili.
Morgunblaðið/Eggert
Salur Eftir að Naustinu var lokað var kínverskur veitingastaður í húsinu.
Trog Ib Wessman, matreiðslumaður
á Naustinu með þorramat 1979.
Myndin birtist í Morgunblaðinu.