Morgunblaðið - 28.08.2014, Side 56
56 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2014
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
■ Vinnuþrýstingur
30-160 bör
■ 230-600 ltr/klst
■ 15 m slönguhjól
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
HD 10/25-4 S
■ Vinnuþrýstingur
30-250 bör
■ 500-1000 ltr/klst
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
Ætlaðir til daglegrar notkunar
Háþrýstidælur
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Tilkoma nýs vegar yfir Þröskulda,
sem tengir saman Reykhólasveit og
Hólmavík, hefur leitt af sér miklar
breytingar í sunnanverðri Stranda-
sýslu. Sannarlega er leiðin vestur á
firði orðin góð og greiðfær stærstan
hluta ársins, en hitt leiddi nýr vegur
af sér, að byggð sem áður stóð við
þjóðbraut er nú úr alfaraleið. Þetta
er kaflinn úr Hrútafjarðarbotni að
Tröllatungu, rösklega 110 kílómetra
leið „Sannarlega mátti búast við
breytingum þegar þjóðleiðin var
flutt. Allt sem við sögðum hefur
komið á daginn,“ segir Torfi Hall-
dórsson, bóndi á Broddadalsá.
Morgunblaðið var á ferðinni
vestra í síðustu viku og hitti Torfa á
heimavelli. Hann stóð í vinnugall-
anum við fjárhúsin og var að bjástra.
Og margs þarf búið við. Torfi og
Unnur Þorgrímsdóttir kona hans
eru með um 370 vetrarfóðraðar
kindur og í vor ráku þau um 600
lömb upp á heiðar.
Afurðaverðið þarf að hækka
„Hér er gott undir bú,“ segir
Torfi. Beitarlöndin séu góð og fé
komi vænt úr högum að fjalli. Þetta
sé með öðrum orðum sagt kjörsvæði
fyrir til dæmis sauðfjárbúskapinn.
„Hins vegar er ekki beint spenn-
andi að menn fari hér að reka stórbú.
Þau eru ekki jafnágæt og ætla
mætti. Hófstilltur fjölskyldubúskap-
ur er eftirsóknarverður að mínu
mati og tryggir jafnvægi byggð-
arinnar best. En til þess að einhver
framtíð sé í þessu þarf afurðaverð að
hækka. Nú eru menn að fá kannski
8.000 til 13.000 krónur fyrir lambs-
skrokkinn. Það er alltof lítið. Ef vel
ætti að vera þyrftu bændur að fá
kannski 20.000 og þá gæti ríkið
sleppt beingreiðslunum.“
Matur er ódýr
En hvers vegna er afurðaverðið
svona lágt? Torfi segir skýringarnar
á því eflaust margar, en nærtækt sé
að nefna firringu í nútímanum og
undarlegt verðmætamat. Mat sé í
stórum stíl hent á haugana enda fá-
ist hann ódýrt vegna rangra
áherslna í framleiðslu.
„Menn þurfa að hugsa landbún-
aðarmálin alveg upp á nýtt. Sagt er
að Íslendinga bíði ýmis sóknarfæri í
framtíðinni sakir þess að hér séu
kjöraðstæður til matvælaframleiðslu
á sama tíma og fólki í heiminum
fjölgi jafnt og þétt. Það er sannleiks-
korn í þessu og það eru möguleikar í
stöðunni. Stóru sláturhúsin mega
missa sig. Fólk sýnir heimavinnslu
afurða mikinn og vaxandi áhuga.“
Séu bæir frá botni Hrútafjarðar
norður til Hólmavíkur taldir á landa-
korti er fljótt komið í töluna fimmtíu.
Talningin þessi er lausleg, sumir bæ-
irnir eru komnir í eyði eða aðeins
sumardvalarstaðir. Þó má áætla að á
þessu svæði búi liðlega 100 manns.
Einnig verður að telja Borðeyri með;
minnsta formlega þéttbýlisstað á Ís-
landi en þar bjuggu til skamms tíma
sautján manns í sex húsum.
Galin framkvæmd
Vegurinn nýi um Þröskulda, leið
sem áður var nefnd Tröllatungu-
heiði, var opnaður árið 2010. Mikil
bót hefur þótt að veginum en ekki
má mikið út af bregða á veturna
þannig að leiðin teppist. „Þetta er
nokkuð sem við íbúar hér á sunn-
anverðum Ströndum bentum alltaf
á. Ég segi alltaf að þessi framkvæmd
hafi verið jafn galin og Landeyja-
höfn. Og þegar Þröskuldanir teppast
þá ekur fólk gamla veginn hér suður
Strandasýsluna, segir Torfi. Hann
vekur hins vegar máls á því að vegur
þessi sé ófullkominn. Á köflum sé
þetta braut sem lögð var árið 1946,
þótt annarsstaðar hafi verið bætt úr.
Börnunum fækkar
„Leiðin hér inn sunnanverðan
Kollafjörðinn er gamall slóði og
sama gildir um fleiri kafla á þessari
leið. Úr þessu verður að bæta, eigi
byggðin hér að haldast. Því miður er
þetta allt mjög að brotna upp, þótt
samgöngurnar séu aðeins einn
margra áhrifaþátta í því sambandi,“
segir Torfi. Hann nefnir að á mörg-
um bæjum sé fólk nokkuð við aldur
og bregði það búi komi yngra fólk
með börn sjaldan í staðinn. Með
þessu rofni hringrásin.
„Hér við Kollafjörðinn eru börn á
aðeins einum bæ og þetta er mikil
breyting frá því þegar ég man eftir
mér,“ segir Torfi sem segir það
vekja undrun sína að stjórnvöld
leggi ekki meira kapp á að styrkja
auðlindasvæði eins og Strandir.
Auðlindir eru afgangsstærð
„Ef framtíðin liggur í mat-
vælaframleiðslu þá er Strandasýslan
kjörin, svo góðar eru aðstæðurnar til
sauðfjárbúskapar hér. Ferðaþjón-
ustan hér á sömuleiðis möguleika,“
segir Torfi. „Og vonandi kemur að
því að ráðandi menn sjá þau tromp
sem eru á hendi. Við þekkjum að
upplegg flestra styrjalda er barátta
um yfirráð yfir auðlindunum, sem
hér eru oft á tíðum algjör afgangs-
stærð,“ segir Torfi sem telur mik-
ilvægt að fólk í dreifðustu byggðum
landsins sé jafnsett öðrum um sam-
félagsleg gæði. Öruggur aðgangur
að netinu skipti sé þar mikilvægt at-
riði.
„Ef hið opinbera getur ekki staðið
undir því og tryggt okkur þjón-
ustuna, þá er dreifbýlisafsláttur af
sköttunum sjálfsagt sanngirnismál,“
segir bóndinn á Broddadalsá.
Fjölskyldubúin tryggja jafnvægi
Þjóðvegurinn um Þröskulda tók sunnanverða Strandasýslu úr alfaraleið Byggð á fallandi fæti
en gott undir bú Möguleikarnir eru fyrir hendi Bóndinn vill dreifbýlisafslátt af sköttunum
Strandasýsla
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
H
rú
ta
fjö
rð
ur
M
iðfjörður
Húnafjörður
HÚNAFLÓI
Ko
llaf
jör
ðu
r
Steingrímsfjörður
Staðarskáli
Hólmavík
Borðeyri
Búðardalur
Hvammstangi
Laugarbakki
BroddadalsáÞröskuldar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strandamaður Ef framtíðin liggur í
matvælaframleiðslu þá er Stranda-
sýslan kjörin, svo góðar eru aðstæð-
urnar, segir Torfi Halldórsson.
„Þessi stefnir eftir segulpólnum,“ sagði Torfi bóndi þar sem við stóðum úti í
vegkanti og horfðum til himins. Hátt uppi í himinblámanum sást til stórrar
þotu, sem hvít rák fylgdi eftir. Stefnan var tekin til norðurs, en hvert nákvæm-
lega? Netið í símanum svaraði þessu strax. Þetta var þota frá United Airlines
af gerðinni Boeing 777 – 222 á leiðinni frá Lundúnum til San Francisco. Var í
34 þúsund feta hæð og var á um 750 km. hraða á klukkustund. Milli tveggja
áðurnefndra staða er rúmlega tíu klukkustunda flug.
Þegar vélar fljúga milli heimshluta er jafnan fylgt svokallaðri stórbaugsleið,
þar sem halla jarðarinnar er fylgt og þannig er tekin stysta leið. Og í þessu til-
viki var stefnan frá Bretlandi, yfir Ísland og þaðan um norðanverðan Græn-
landsjökul, inn yfir Kanada og þaðan að vesturströnd Bandaríkjanna. Og á
þessari löngu leið var Broddadalsá í brennidepli. Staðurinn er þá kannski ekki
jafnmikið úr leið og ætla mætti. Afskekkt er alltaf huglægt mat.
Stórbaugsleiðin er á Ströndum
BANDARÍKJAÞOTURNAR FARA BEINT YFIR BRODDADALSÁ
Boeing Á leið til San Francisco