Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 9
24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Láttu drauminn rætast
Glæsilegar lúxussiglingar um Asíu
Ferðaskrifstofan VITA sérhæfir sig í
siglingum með skemmtiferðaskipum um
allan heim. Við skipuleggjum ferðir fyrir
einstaklinga auk þess að bjóða siglingar
með íslenskum fararstjórum.
Japan,Kína, Taiwan
ogHongKong
24. október til 12. nóvember 2014
Fararstjóri: Héðinn S. Björnsson
Verð:699.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
Á mann m.v. 2 í klefa með svölum „Aqua class.“
Innifalið: sjá nánar á vita.is
Verð án Vildarpunkta 709.900 kr.
Suður-Kínahaf,
VíetnamogSingapore
23. janúar til 10. febrúar 2015
Fararstjóri: Sigmundur M. Andrésson
Verð:669.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
Á mann m.v. 2 í klefa með svölum.
Innifalið: sjá nánar á vita.is
Verð án Vildarpunkta 679.900 kr.
Celebrity Millenium Celebrity Century
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Vertu vinur VITA á Facebook
www.facebook.com/vitaferdir
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
VI
T
70
28
4
08
/1
4
*Innifalið: sjá nánar á vita.is. Ef bókað er á skrifstofu bætist við 1.500 króna bókunargjald. Birt með fyrirvara um prentvillur og verðbreytingar.
Karllægari tónlistarstefna enþungarokk er vandfundin.Meðaumkunarlausir karl-
menn að yrkja um bíla, styrjaldir eða
fjöldamorð. Skyrpandi stáli. Fáeinar
konur hafa þó fótað sig í málm-
heimum, þeirra frægust líklega Lita
Ford, sem gerði garðinn frægan fyrir
um aldarfjórðungi.
Ford fæddist í Lundúnum 1958.
Faðirinn var Breti en móðirin ítölsk.
Fjögurra ára flutti hún með for-
eldrum sínum til Bandaríkjanna og
settist að í Los Angeles. Rokkið heill-
aði hana og Ritchie Blackmore ber,
að sögn, mesta ábyrgð á því að Ford
byrjaði að læra á gítar, ellefu ára
gömul.
Snemma var bit í hnyðrunni og að-
eins sextán ára gekk hún í sína fyrstu
hljómsveit, The Runaways, sem ein-
göngu var skipuð stúlkum, þeirra á
meðal söngkonunni og gítaristanum
Joan Jett. Hart rokk var viðfangs-
efnið og sveitin naut nokkurrar lýð-
hylli um tíma. Sendi meira að segja
frá sér fjórar breiðskífur.
Listrænn ágreiningur reis meðal
stúlknanna, Ford vildi spila þunga-
rokk en Jett pönk, og árið 1979 lið-
aðist bandið í sundur.
Árið 2010 var gerð kvikmynd um
ævintýrið, sem kallaðist einfaldlega
The Runaways. Scout Taylor-
Compton fór með hlutverk Litu Ford
og Kristen Stewart lék Joan Jett.
Ford ákvað að herja á rokkþyrsta
á eigin spýtur og fyrsta breiðskífa
hennar, Out for Blood, kom út árið
1983. Það var vindhögg. Dancin’ on
the Edge kom ári síðar og gekk örlít-
ið betur. Það var svo með plötu sem
bar nafn hennar, Lita, árið 1988, að
Ford reis hæst. Komst alla leið í 29.
sæti Billboard-listans. Stiletto, 1990,
gekk bærilega en síðan hallaði hratt
undan fæti.
Ford dró sig í hlé árið 1995 og sneri
ekki aftur fyrr en fjórtán árum síðar.
Sendi frá sér plötur 2009 og 2012 en
því miður fer litlum sögum af þeim.
Svartklædd brúður
Ford átti í umtöluðu ástarsambandi
við „föður þungarokksins“, Tony
Iommi úr Black Sabbath, á níunda
áratugnum og hann tók meira að
segja upp plötu með henni sem aldrei
kom út. Bar hún það Iommi-lega nafn
The Bride Wore Black. Upp úr sam-
bandinu slitnaði með látum.
Ford hélt sig við málmverjana og
gekk að eiga Chris Holmes, gítar-
leikara WASP, snemma á tíunda ára-
tugnum. Því hjónabandi lauk fljótt og
Ford fór að slá sér upp með söngvara
Nitro, Jim Gillette, árið 1994. Gengu
þau í heilagt hjónaband eftir að hafa
aðeins þekkst í tvær vikur. Gillette er
níu árum yngri en Ford Saman eiga
þau tvo syni, James og Rocco Gil-
lette.
Árið 2011 átti fjölskyldan í samn-
ingaviðræðum við sjónvarpsstöðina
TLC um gerð veruleikaþáttar þegar
allt sauð upp úr. Ford vildi fara allt
aðra leið en Gillette og lauk ágrein-
ingi þeirra með skilnaði. Það sem
meira er, synirnir hafa víst ekki talað
við móður sína síðan og eru grunaðir
um að hafa gengið í skrokk á henni.
Sjónvarpsþátturinn rann út í sand-
inn ...
Hvað varð um…
Litu
Ford?
Lita Ford hefur engu
gleymt. Hér er
málmynjan á tón-
leikum árið 2009.
Lita Ford framan á
umslagi vinsælustu
plötu sinnar, Lita,
árið 1988.