Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 13
íslensk verk. Við höfum líka leitast
við að frumsýna íslensk verk því ef
við tökum upp verk frá liðnu leik-
ári þá er mjög líklegt að áhorf-
endur séu búnir að sjá þau. Á há-
tíðinni í ár flytjum við inn, í
samvinnu við Reykjavík Dance
Festival, sýninguna Blind Spotting
sem var frumsýnd í Berlín í vor
við gríðarlega góðar viðtökur. Höf-
undur þeirrar sýningar er Margrét
Sara Guðjónsdóttir sem er einn
okkar fremsti danshöfundur á er-
lendri grundu og er á fljúgandi
ferð í list sinni. Nýtt verk eftir
Pétur Ármannsson og Brogan
Davison er á hátíðinni en þar taka
þau fyrir sögu Steina-Petru á
Stöðvarfirði, langömmu Péturs, og
setja í leikrænan búning. Vala
Höskuldsdóttir er með nýtt verk
sem heitir Gudda An Epic Tale
sem fjallar um samskipti hennar
og Guddu, fyrrverandi meðleigj-
anda hennar. Vala og Gudda eru
báðar leiklistarlærðar og Gudda
elskar Shakespeare en Völu hrýs
hugur við að opna Ofviðrið. Gudda
hefur glímt við ýmislegt á sinni
lífsleið og stendur á sviði í sýningu
þar sem hún er sjálf umfjöllunar-
efnið. Við verðum svo með tvær
forsýningar á ensku á verkinu
Flækjur sem Kviss Búmm Bang
frumsýnir í Borgarleikhúsinu í
byrjun september. Við sýnum
einnig Bláskjá og Haraldurinn,
spunahópur Dóru Jóhannsdóttur,
sem er um tuttugu manns, sýnir
og tekur fyrir viðfangsefnið póli-
tík.“
Erindið og búsetan
Þú bjóst í New York á sínum tíma
og vannst að leiklist og þar er
örugglega allt annað umhverfi en í
Reykjavík og á Akureyri. Sérðu
aldrei eftir því að hafa ekki verið
þar áfram heldur komið heim?
„Ég hef aldrei séð eftir því að
koma heim. Ég bjó mjög lengi í
Bandaríkjunum, var í BA námi í
Iowa og mastersnámi í Minnesota
og eftir átta ár kom ég til New
York sem er stórkostleg borg. Þar
vann ég með hæfileikaríku fólki en
samkeppnin er gríðarleg og harkið
svakalegt og ég vaknaði upp á
hverjum morgni og spurði: Er
þetta þess virði? Ef maður svarar
þeirri spurningu með jái þá heldur
maður áfram. Ég var ekki á leið-
inni heim en einn daginn sá ég
auglýsingu í blaði þar sem auglýst
var eftir deildarforseta leiklistar-
og dansdeildardeildar Listaháskóla
Íslands, ég sótti um og fékk starf-
ið. Ég pakkaði þrettán árum niður
og flutti til Íslands. Meðan ég hef
ákveðið erindi get ég búið hvar
sem er. Aldrei grunaði mig samt
að ég yrði leikhússtjóri á Akureyri,
ekki einu sinni hálfum mánuði áð-
ur en það varð. Mín niðurstaða er
sú að affarasælast sé að fylgja
innsæi sínu og loka aldrei á það.“
„Meðan ég hef ákveðið erindi get
ég búið hvar sem er. Aldrei
grunaði mig samt að ég yrði
leikhússtjóri á Akureyri, ekki einu
sinni hálfum mánuði áður en það
varð,“ segir Ragnheiður.
Morgunblaðið/Kristinn
24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13