Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 20
Heilsa og
hreyfing
Borðaðu betur
*Matur veitir okkur nauðsynleg næringarefni tilvaxtar og viðhalds en hefur einnig áhrif á and-lega líðan og líkamlegt heilbrigði. Þess vegnaer mikilvægt að vita hvað við setjum ofan íokkur og hvenær. Í dag er auðvelt að nálgastupplýsingar um mataræði og við höfum engaafsökun fyrir því að leggja ekki á okkur smá
auka vinnu við að bæta mataræðið, t.d. að
skoða síður eins og www.eatingwell.com
Í
umfjöllun um heilsu og hreyfingu er tilhneiging til
að fjalla um ungt og heilbrigt fólk sem hreyfir sig
mikið og getur verið fyrirmynd annarra. Eldri
borgarar gleymast oft í umræðunni og sjaldgæft er
að sjá auglýsingar frá líkamsræktarstöðvum þar sem
eldra fólk er að puða við tækin. Heilbrigði er mála-
flokkur sem á erindi til allra og eftir því sem aldurinn
færist yfir fólk verður enn mikilvægara að stunda
reglulega hreyfingu til að halda sér liðugum og við-
halda góðri heilsu.
Fannar Karvel, íþróttafræðingur, hefur verið með
námskeið fyrir eldri borgara í þrjú ár þar sem hann
leggur áherslu á að styrkja liðleika og þol. Hann segir
vöntun vera á námskeiðum og fræðsluefni fyrir þennan
aldurshóp sem að hans mati er vanræktur. „Mér hefur
þótt þessi hópur samfélagsins vera útundan þegar
kemur að hreyfingu og þjálfun, en það er miður því
hreyfing bætir til muna lífsgæði fólks og bætir heils-
una. Af því litla fræðsluefni sem er til fyrir eldri
borgara um hreyfingu eru gamlir bæklingar frá land-
lækni,“ segir Fannar, sem lét til skarar skríða og tók
saman efni um hreyfingu fyrir eldri borgara í eina bók
sem nefnist: „Hreyfing – æfingar og teygjur fyrir 60
ára og eldri.“ Bókinni skiptir Fannar upp í þrjá hluta
sem byggja á upphitun, æfingum og teygjum en hann
segir æfingarnar eiga að nýtast flestum sem komnir
eru yfir sextugt. „Við megum ekki festa okkur al-
gjörlega í aldrinum þó bókin sé miðuð við 60 ára og
eldri. Ég hef verið með fólk frá 58 ára og upp í 94
ára á námskeiðum hjá mér og getan fer ekkert endi-
lega eftir aldri. Sumir eru illa farnir af hreyfingarleysi
meðan aðrir eru í fantaformi. Hjá mér er t.d. níræð
kona sem gengur í hvern tíma til mín, sama hvernig
viðrar.“
Einblínt á liðleika og grunnstyrk
Æfingarnar sem Fannar leggur upp með eru miðaðar
við að vinna með liðleika og grunnstyrk fólks. „Það
sem hefur mest gildi þegar komið er á efri árin er að
halda sér liðugum og þess vegna vinn ég með bæði
liðleika og styrk í mið- og neðri hluta líkamans. Hné-
beygjur er t.d. eitthvað sem þarf alltaf að halda við
og auðvitað æfingar sem liðka axlir en Íslendingar eru
upp til hópa mjög stirðir í öxlum, svo stirðir að þegar
við erum komin á ákveðinn aldur geta margir ekki
einu sinni lyft höndunum yfir höfuð vegna stirðleika.“
Fannar segist ekki vinna mikið með lóð þegar hann
er með æfingar fyrir eldra fólk og kýs frekar að þátt-
takendur noti eigin líkamsþyngd „Ég vil að fólk noti
eigin þyngd og sérstakar teygjur frekar en að vera í
þungum styrktaræfingum. Þá er ég fyrst og fremst að
horfa til þess að láta fólk gera snúningsæfingar, léttar
beygjur og liðkandi æfingar í tímum hjá mér.“
Hreyfingaleysi er ávísun á verri heilsu með aldrinum
og segir Fannar ávinning hreyfingar fyrst og fremst
vera fólginn í betri lífsgæðum fyrir fólk. „Þjóðfélags-
legur ávinningur er alltaf einhver en þegar við erum
komin á ákveðinn aldur er það bara staðreynd að ým-
islegt fer að gefa sig. Þeir sem hreyfa sig reglulega
eru hins vegar fljótari að ná sér og í því er fólginn
sparnaður fyrir samfélagið. Fyrst og fremst er það þó
aukin lífsgæði fólks að geta hreyft sig meira með
barnabörnum og barnabarnabörnum sínum,“ segir
Fannar, sem telur að allir ættu að hreyfa sig eitthvað
á hverjum degi óháð aldri. „Miðum daglega hreyfingu
við hálftíma og reynum að ná inn 2 til 3 léttum
styrktaræfingum á viku.“ Fannar Karvel segir mikilvægt að boðið sé upp á námskeið í hreyfingu fyrir eldriborgara, þeirra vegna og samfélagsins.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
DAGLEG HREYFING FYRIR ALLA
Í ræktina eftir sextugt
LIÐLEIKI OG STYRKUR ER MIKILVÆGUR FYRIR
FÓLK Á ÖLLUM ALDRI EN MINNA HEFUR
FARIÐ FYRIR NÁMSKEIÐUM FYRIR ELDRI
BORGARA Á LÍKAMSRÆKTARSTÖÐVUM.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Eldra fólk á æfingum í World Class og gefurunga fólkinu ekkert eftir.
Morgunblaðið/Golli
Líkamsræktarstöðin Sparta hefur boðið upp á námskeið fyrir eldriborg-
ara sem enginn annar en Fannar Karval heldur utan um og kennir á.
Morgunblaðið/Styrmir Kári