Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2014
Ítarlegar leiðbeiningar um hvernig skuli borða íslenska „eina
með öllu“, hvað þær kosta, úr hverju þær eru og allt er snertir
íslenskt pylsuát er efni sérstakrar úttektar sem birtist í einu
virtasta lúxusferðatímariti Breta; Condé Nast, sem kom út í vik-
unni. Greinarhöfundur segir þessa máltíð eiga heima í umfjöllun
lúxustímarits því íslenskar pylsur séu lúxusmáltíð þar sem upp-
staðan sé, ólíkt í öðrum löndum; aðallega lífrænt lambakjöt, kjöt
lamba sem nærist á lúxusfæðu náttúrunnar.
„Ekki hangsa og væflast með pöntun þína,“ stendur í leiðbein-
ingunum um það hvernig skuli fara að því að kaupa og borða ís-
lenskar pylsur. „Það er hungrað fólk sem stendur í röðinni. Ef
þú ert óviss, pantaðu þá bara eina með öllu, það er hvort sem er
það sem þú ert látinn hafa ef þú hikar.“ Þá er fólki ráðlagt að
kaupa tvær pylsur og svekkja sig ekki yfir því að það sé röð all-
an sólarhringinn fyrir framan Bæjarins bestu – Íslendingar
borði jafnvel pylsur í morgunmat.
Í greininni í Condé Nast
er fólki ráðlagt að vera
með reiðufé tilbúið þeg-
ar það kaupir pylsur á
Bæjarins bestu.
Morgunblaðið/Ómar
LÚXUSMÁLTÍÐ Í LÚXUSTÍMARITI
Hangsið ekki í
röðinni
Á morgun eru 10 ár liðin frá einu frægasta augnabliki í
sögu Bæjarins beztu; þegar þáverandi forseti Bandaríkj-
anna, Bill Clinton, fékk sér eina með öllu í Tryggvagötu.
Morgunblaðið/Ómar
Fjölskylda frá Indónesíu hefur
verið sameinuð á ný, tíu árum eftir
að hin hrikalega flóðbylgja skall á
fjölmörgum löndum í Asíu og aust-
urströnd Afríku. Fréttaveitan
AFP greinir frá þessu. Mörg
hundruð þúsund manns fórust, og
milljónir manna þurftu á neyð-
araðstoð að halda.
Þau Septi og Jamaliah héldu að
þau hefðu misst börnin sín,
Raudhatul og Arif sem þá voru
fjögurra og sjö ára, í flóðbylgjunni.
Dóttirin Raudhatul fannst í síðasta
mánuði, orðin 14 ára. Þegar frétta-
menn sögðu þá sögu og sýndu
mynd af Arif í sjónvarpinu kann-
aðist Lana Lestari, eigandi veit-
ingahúss í Payakumbuh við pilt-
inn. Arif, sem nú er 17 ára, svaf
nefnilega stundum fyrir utan kaffi-
húsið hennar og næst þegar hann
kom gekk Lana til hans með mynd
af fjölskyldunni úr dagblaði og
sýndi drengnum. Sagði hann um
leið: „Þetta er mamma.“
Lana hafði samband við frétta-
mann AFP fréttaveitunnar sem
kom drengnum í samband við for-
eldra sína sem fengu því tvöfalt
kraftaverk, eins og þau sögðu sjálf
frá. „Þakka ykkur fyrir,“ var það
eina sem faðirinn gat sagt við
fréttamenn.
FURÐUR VERALDAR
Sonurinn
fannst líka
Dóttirin Raudhatul Jannah, faðirinn Septi Rangkuti með son sinn Jumadi
Rangkuti, mamman Jamaliah og Arif Rangkuti loks saman á fjölskyldumynd.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Guðlaugur Þór Þórðarson
Alþingismaður
HesturPavel Ermolinskij
Körfuknattleiksmaður
3 - IN - 1
MICELLAR
WATER
0%PARABENLITAREFNIILMEFNI
HREINSAR
FJARLÆGIR FARÐA
VEITIR RAKA
ALLT MEÐ 1 HREINSIVÖRU
NIVEA SENSITIVE
FYRIR VIÐKVÆMA HÚÐ: