Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.8. 2014 Þegar Bandaríkin hafa ráðist inn í ríki,Panama, Írak, Líbíu og fleiri, eða íhugaðárásir á önnur svo sem Sýrland, eða komið Kúrdum til hjálpar gegn ISIS nú ný- lega, þá sér heimspressan til þess að við fáum alla vega nasasjón af mismunandi skoðunum heima fyrir um ágæti hernaðaríhlutunar hverju sinni. Sama á við um Bretland, Frakkland, Þýskaland og fleiri ríki þar sem hefð er fyrir lýðræðislegum átökum og opinni frétta- mennsku. Það má vissulega halda því fram að oft fari lítið fyrir frásögnum af efasemdum, gagnrýni og andspyrnu. Þannig fór fréttin ekk- ert mjög víða að það hefðu að öllum líkindum verið Bretar og Þjóðverjar sem sáu stjórn As- sads Sýrlandsforseta fyrir eiturefnunum sem síðar voru notuð gegn andspyrnunni í Sýrlandi. Þá er það ekki mikið rætt að Tyrkir kunni að hafa greitt fyrir vopnaflutningum yfir landa- mærin til Sýrlands þar sem viðtakendur hafa verið ofbeldis-íslamistarnir í ISIS. En þótt ekki hafi alltaf farið ýkja mikið fyrir upplýsingum sem ráðandi öflum í okkar heims- hluta þykja óþægilegar þá eru þær yfirleitt einhvers staðar á sveimi. Fyrir bragðið verða Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Þýskland ekki einsleit og viðbrögð okkar við gjörðum Bandaríkjamanna, Breta, Frakka og Þjóðverja fyrir bragðið ekki eins alhæfingarsöm. Við vit- um að Bush og Blair töluðu ekki í nafni allra Bandaríkjamanna og Breta. En það gerir forsætisráðherra Ísraels ekki heldur. Benjamin Natanyahu talar ekki fyrir hönd allra Ísraela, hvað þá allra gyðinga. Þeir eru margir hverjir einhverjir eindregnustu andstæðingar þjóðernisofsóknanna á hendur Palestínumönnum. Nýlegar skoðanakannanir í Ísrael benda til vaxandi andstöðu við hernaðar- ofbeldið á Gaza. Til eru þeir fjölmiðlar sem segja frá mismunandi sjónarmiðum og afstöðu á meðal Ísraela. Þeir greina jafnframt frá því að andspyrna í Ísrael gegn stríðsrekstri rík- isstjórnarinnar verði sífellt torveldari bæði vegna ofsókna af hendi stjórnvalda og einnig, og þá ekki síður, pólitískra ofbeldishópa sem berji miskunnarlaust alla gagnrýni niður. Flestir þekkja til innbyrðis ágreinings á meðal Palestínumanna en þar er að sjálfsögðu ná- kvæmlega sama uppi á teningnum og í öðrum samfélögum, mismunandi stefnur og viðhorf, friðsamt fólk og ofbeldisfullt. Um allt þetta þurfum við að fá að vita. Ekki til þess að draga niður í mótmælum okkar gegn Ísraelsríki heldur til að koma í veg fyrir að við dæmum alla Ísraela eftir morðóðri rík- isstjórn þeirra; með öðrum orðum að við kom- um ekki fram við þá eins og ísraelsk stjórnvöld koma fram við Palestínumenn – á grundvelli ofbeldis og kynþáttafordóma. Upplýsingar í stað alhæfinga * Benjamin Netanyahutalar ekki fyrir höndallra Ísraela, hvað þá allra gyðinga. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Fjölmiðla- og tónlistarmaðurinn Haukur Viðar Alfreðsson fer óvenjulegar leiðir í að auglýsa tón- leika hljómsveitar sinnar. „Á meðan við spilum í kvöld verður Good Will Hunting í gangi á RÚV og Wall- ander á Stöð 2. Við erum skemmtilegri en bæði. Koddu,“ skrifaði Haukur og benti þannig vinum sínum á að tónleikar Morð- ingjanna væru eflaust mun betri af- þreying en sjónvarpsgláp. Fjölmiðlakonan Kolbrún Björnsdóttir slakar greinilega sjaldan á ef marka má nýjustu Fés- bókarstöðuupp- færslu hennar. „Dreymdi í nótt að ég væri að taka þátt í hjólakeppni. 100 km á fjalla- hjóli. Helsti ótti minn og annarra á svæðinu var að ég myndi fara ranga leið og týnast. (Skilbaraekkertíþví!) Já krakkar mínir, ég hjóla líka á nóttunni...,“ skrifaði ofurkvendið Kolbrún. Líkamsræktarfrömuðurinn Arn- ar Grant svífur um á bleiku skýi þessa dagana ,en hann gekk að eiga unnustu sína, Kristínu Hrönn Guð- mundsdóttur, um síðustu helgi í Dómkirkjunni. „Takk fyrir allar hamingjuóskirnar. Við áttum full- kominn brúðkaupsdag,“ skrifaði Arnar á Fésbókarvegg sinn um leið og hann birti glæsilega ljósmynd af þeim hjónum á stóra deginum. Borgarfulltrúi VG í borginni, Sóley Tómas- dóttir, hleypur 10 km í Reykjarvíkurmaraþoninu, en það var eiginmaður Sóleyjar sem skráði hana til leiks. „Aart Schalk hefur nú skráð íþróttahjónin til leiks í 10 km hlaupi á laugardaginn. Íþróttasóley er smá uggandi þar sem æfingar hafa bara staðið yfir í þrjár vikur og alveg ómögulegt að standa undir kröfum Keppnis- sóleyjar þegar kemur að tíma,“ skrifaði taugatrekkt Sóley. AF NETINU MBA-nám við Háskólann í Reykjavík virð- ist njóta mikilla vinsælda hjá fólki tengdu listum, fjölmiðlum og stjórnmálum. Námið tekur tvö ár og lýkur með gráðunni Master of Business Administration, sem er al- þjóðleg stjórnunargráða. Í MBA-árgang- inum sem útskrifaðist í júní síðastliðnum voru til að mynda leikkonurnar Birna Haf- stein og Marta Nordal auk leikarans Guð- mundar Inga Þorvaldssonar. Auk þess að sinna leiklist hafa þau öll tekið að sér störf þar sem stjórnunarnámið nýtist. Birna gegnir formennsku í Félagi íslenskra leik- ara, Marta er formaður Leiklistarsam- bands Íslands og Guðmundur Ingi er fram- kvæmdastjóri Tjarnarbíós. Í hópnum sem útskrifast vorið 2015 eru meðal annarra fréttakonan Áslaug Guðrúnardóttir og fréttamaðurinn Pálmi Jónasson, sem bæði hafa starfað á RÚV um árabil, Breki Logason fréttastjóri Stöðvar 2 og tónlistarkonan Védís Hervör Árna- dóttir. Í árganginum sem hefur sitt stjórnunarnám í haust má nefna fyrrverandi fréttakonuna Karen Kjartansdóttur sem nú gegnir starfi upplýsingafulltrúa LÍÚ, Katr- ínu Júlíusdóttur þingkonu og fyrr- verandi ráðherra og Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur upplýsinga- fulltrúa Símans og fyrrverandi rit- stjóra 24 stunda. Þessi árgangur verður ekki síður stjörnum prýddur en fyrri árgangar. Í hópi útskrifaðra nemenda má til dæmis nefna Einar Bárðarson sem nú er forstöðumað- ur Höfuðborgarstofu og Þóreyju Vilhjálmsdóttur, annan aðstoðarmann innan- ríkisráðherra. Eiginkona Einars, Áslaug Thelma Einarsdóttir, er einmitt meðal nemenda sem út- skrifast næsta vor. Frægir flykkjast í MBA-nám við Há- skólann í Reykjavík. Morgunblaðið/Kristinn Stjörnurnar vilja læra að stjórna Vettvangur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.