Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 23
24.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
R
únar Páll Sigmundsson tók við sem þjálfari meistara-
flokks Stjörnunnar í knattspyrnu eftir lok síðasta
tímabils en þá hafði Stjarnan náð sínum besta ár-
angri í efstu deild með því að tryggja sér sæti í
Evrópukeppni að ári. Rúnar hafði verið aðstoðarþjálfari við
hlið Loga Ólafssonar en eftir tímabilið fékk hann verð-
skuldað tækifæri til að stýra liðinu sem hann hefur æft og
spilað með frá barnsaldri. Auk þess að þjálfa meistaraflokk
kennir Rúnar íþróttir og sund í Garðaskóla en hann er
íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur margra
ára reynslu þegar kemur að hreyfingu og heilsu. Væntingar
voru því miklar í Garðabænum og vildu menn stefna
hærra á þessu ári og koma liðinu lengra í öllum
keppnum. Rúnar hefur svo sannarlega staðið
undir þeim væntingum sem til hans hafa
verið gerðar og ekki er hægt að segja
annað en að Stjarnan sé þegar búin að
ná lengra en nokkurn tímann í sögu fé-
lagsins. Félagið er í harðri baráttu um
Íslandsmeistaratitilinn, sem yrði sá
fyrsti í sögu félagsins, og er komið í
fjórðu umferð Evrópukeppninnar í
frumraun sinni þar sem liðið dróst á
móti stórliði Inter Milan og fór fyrri
leikurinn fram á Laugardalsvellinum í
vikunni. Þrátt fyrir óhagstæð úrslit í
fyrri leik liðanna á Rúnar eftir að fara
út með Stjörnuliðið til að mæta Inter
Milan á San Siro-leikvellinum fræga og
þar getur allt gerst enda Stjarnan sýnt
það undir stjórn Rúnars að það má aldrei
afskrifa þá.
Hvernig sem síðari leikur þessara stjörnu-
liða fer þá geta allir Garðbæingar verið stoltir
af árangri síns liðs og eiga Rúnari Páli þar mik-
ið að þakka en þessi þriggja barna faðir spilaði
sjálfur með Stjörnunni bæði fótbolta og hand-
bolta upp alla yngri flokka. Þá spilaði hann með
meistaraflokki Stjörnunnar frá 16 ára aldri og síðar með Fram
árið 1993, Sogndal í Noregi árið 1994 og síðan HK árið 2007
en utan þess hefur hann alltaf verið með Stjörnunni, félaginu
þar sem augljóslega hjartað hans slær.
Gælunafn: Rúni Palli, kallar dóttir mín 3 ára mig.
Íþróttagrein: Knattspyrna.
Hversu oft æfir þú á viku? 5-6 sinnum í viku
Hver er lykillinn að góðum árangri? Æfa, borða, hvíla sig
rétt.
Hvernig er best að koma sér af stað? Byrja rólega, setja
sér markmið og fara eftir þeim. Rétt hugarfar skiptir öllu máli.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Að
fólk finni hreyfingu við hæfi og hafi gaman af.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð
í frí? Ég fer eiginlega aldrei í frí, því mið-
ur.
Ertu almennt meðvitaður um matar-
æðið? Já, ég er það en mér þykir gott
að borða.
Hvað borðarðu til að halda þér í
formi? Hafragraut á morgnana, ávexti
í millimál. Ab-mjólk og músli í hádeg-
inu og góðan kvöldmat með fjölskyld-
unni sem er yfirleitt kjúklingatengt.
Hvaða óhollusta freistar þín? Ber-
naisesósa.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill
bæta mataræðið? Borða minni mat-
arskammta, borða meira af ávextum og
grænmeti.
Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig? Góð
áhrif á líkama og sál.
Hver eru algeng mistök hjá fólki við æfing-
ar? Byrjar of geyst og ætlar sér um of. Til er
að einstaklingar fari í einhver átök sem skila
oftast ósköp litlu. Fólk verður að vilja ná ár-
angri í því sem það tekur sér fyrir hendur.
Hverjar eru fyrirmyndir þínar? Pass.
KEMPA VIKUNNAR RÚNAR PÁLL SIGMUNDSSON
Heilinn á bakvið ótrúlegan
árangur Stjörnunnar
Morgunblaðið/Ómar
Hreyfingarleysi skerðir bæði úthald og styrk fólks og hægir á líkams-
starfseminni. Það er talið hafa slæm áhrif á orkujafnvægið og eykur
líkur á fitusöfnun. Einnig er talið að hreyfingarleysi tengist oft nær-
ingarsnauðu mataræði.
Hreyfing og rétt næring*Sigurvegarar gefast aldreiupp og þeir sem gefast uppverða aldrei sigurvegarar.
Vince Lombardi
Sófinn og sjónvarpið heilla marga
eftir langan vinnudag en rannsóknir
benda til að þeir sem eyða miklum
tíma fyrir framan sjónvarpið eiga
frekar á hættu á að bæta á sig auka-
kílóum. Rannsókn sem gerð var á
vegum Brigham Young University
sýndi fram á að sjónvarpsgláp eyk-
ur matarlyst fólks og dregur úr
áhuga á aukinni hreyfingu.
Fram kemur í rannsókninni að
60,7 prósent þeirra sem horfa á
sjónvarp í þrjár klukkustundir á dag
eru of þungir. Á sama tíma eru að-
eins 33,7 prósent þeirra sem horfa
á sjónvarp tvo tíma á daga of þungir
og 30,6 prósent þeirra sem horfa
klukkutíma eða minna á dag.
Auðveld og einföld leið til að
létta sig og bæta heilsuna er því að
draga úr sjónvarpsáhorfi enda segir
í rannsókninni að 62,3 prósent
fólks sem breytir um lífsstíl horfi
minna en 10 tíma á viku á sjónvarp.
Sjónvarps-
gláp fitandi
Drögum úr sjónvarpsáhorfinu og för-
um frekar út að ganga eða spila.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Reykjavíkurmaraþon hefur í meira
en áratug verið fjölmennasta hlaup
hvers árs en forskráðir þátttak-
endur í ár eru 13.003 og er það 9
prósent fjölgun frá því í fyrra. Þátt-
takendur í Reykjavíkurmaraþoni
Íslandsbanka eru á öllum aldri. Þau
yngstu eru innan við árs gömul og
taka þátt í Latabæjarhlaupinu en sá
elsti er 91 árs og tekur þátt í 3 km
skemmtiskokki. Elsti maraþon-
hlauparinn er 88 ára. Reykjavík-
urmaraþon Íslandsbanka er al-
menningsviðburður, sem allir geta
tekið þátt í, ásamt því að vera al-
þjóðlegt keppnishlaup og Íslands-
meistaramót í maraþoni fyrir af-
reksfólk. Þá skemmir það ekki
fyrir að hlaupið er til góðs og
safna hlauparar því áheitum fyrir
fjölda góðgerðarfélaga en rúmlega
4500 hlauparar hafa skráð sig sem
góðgerðarhlauparar á hlaup-
astyrkur.is og er heildarsöfnun
áheita komin yfir 55 milljónir
króna.
Hlaupaleiðir Reykjavíkurmaraþonsins sem fram fer um þessa helgi.
Reykjavíkurmaraþonið