Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.08.2014, Blaðsíða 10
Landið og miðin
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
sbs@mbl.is
UM ALLT LAND
SNÆFELLSNES
Sveitarfélögin
á Snæfellsnesi
voru á dögunum
tilnefnd til
umhverfisverð-
launa Norður-
landaráðs.
Verðlaunin verða veitt stöðum þar
sem fólk hefur lagt sitt af m
til umhverfisbóta. Á Snæfe
þessi mál verið í brennide
30 tilnefningar til verðlaun
komið fram. Úrslit verða
október næstkomandi.
GOÐAFOSS
Alls hafa 30
milljónir króna
við
fer
fyri
ver
Þingeyj
starfsmanna t
SDFLJÓT
Mikil aðsó
HVOLSVÖLLUR
Kjötsúpuhátíðin verður h
og 30. ágúst og er einn af
liðum hátíðarinnar súpurö
föstudagskvöldi. Þá hafa n
íbúar á Hvolsvelli tekið si
og boðið til súpu, þar sem
getur farið hús úr húsi og
kartöflum, rófum, kryddju
1
fis
Ve
í sumar, e
stangveiði sumarsins þar er nú að
j g þl úka. Hæ t verður ó áfram að
veiða í vötnum sunnan Tungnaár
til 20. september. Á því svæði eru
mörg gjöful veiðivötn, svo sem
Frostastaðavatn og Ljótipollur.
Kommúnisminn er liðinn undirlok fyrir löngu og jeppanumer ekki ætlað að vera póli-
tískur boðberi. Þetta byrjaði upp-
haflega þannig að á Hamingjudög-
um, bæjarhátíðinni hér í þorpinu,
var götum og hverfum skipt upp
eftir litum. Okkar hverfi átti að vera
rautt og ég ákvað að þá skyldi það
líka gilda um jeppann. Og þar sem
hann var framleiddur í Sovétríkj-
unum og rauður á lit ákvað ég að
minnast hins fallna stórveldis og
setti þessa merkingu á,“ segir
Sverrir Guðbrandsson á Hólmavík.
Hamar, sigð og stjarna
Á götunum norður á Hólmavík vek-
ur rauður jeppi af gerðinni Gaz at-
hygli vegfarenda. Einkum og helst
er þetta vegna þess að á lystikerru
þessari er skjaldarmerki Sovétríkj-
anna, það er hamar, sigð og gul
stjarna á rauðum grunni. Því má
með nokkrum sanni tala um Stal-
ínsjeppa á Ströndum.
Jeppinn góði er árgerð 1967 og
kom nýlegur hingað til lands. Var
lengi í eigu fólks norður í landi en
var seldur vestur á Strandir árið
1985. Þá voru, að hætti þess tíma,
settar á bílinn plötur með númerinu
T-247. Sem kunnugt er var T ein-
kennisbókstafur bíla úr Stranda-
sýslu samkvæmt gamla bílnúm-
erakerfinu sem gilti til ársins 1989.
Meðan það var við lýði voru lágar
tölur í kerfinu á margan hátt tákn-
mynd þess hvar viðkomandi bíleig-
andi væri í virðingarstiga þjóð-
félagsins.
„Það eru vissulega ekki margir T-
bílar eftir og númerið fylgdi bara. Í
mínu tilviki fylgir því engin ætt-
arsaga,“ segir Sverrir.
Notaður í hvundagsbrúk
Allir þekkja þjóðsöguna um ham-
arinn hans afa gamla, sem þrisvar
sinnum hafði skipt um skaft og
tvisvar um haus en þó átti afi alltaf
sama verkfærið. Sama gildir að
nokkru um Gaz-jeppann sovéska, en
undir honum er hjólastell af Range
Rover og vél úr Volvo. Og fyrir
margt löngu var hér heima byggt
hús yfir jeppann, sem upphaflega
var blæjubíll.
„Bensíntankurinn og millikassinn
eru upprunalegir svo að sovéski
ískrandi gírkassasöngurinn sem allt-
af hefur einkennt þessa bíla heyrist
enn,“ segir Sverrir. Hann kveðst
enn nota Gazinn góða í ýmislegt
hvunndagsbrúk og innanbæjarsnatt.
Myndi hann þó duga vel í lengri
ferðir, enda upphafleg smíði vönduð
og viðhaldið verið gott.
Sovéskt var vinsælt
Við þetta er því að bæta að bílar
framleiddir í Sovétríkjunum voru
mjög vinsælir hér á landi. Nægir
þar að nefna til dæmis Moskvitch,
sem voru mjög algengir bílar hér á
landi fyrir 30 til 40 árum eða svo.
Síðar ruddi Lada þeim úr sessi og
margir voru á slíkum bílum, sem
Bifreiðar og landbúnaðarvélar buðu
á hagstæðu verði. Til samanburðar
voru fólksbílagerðir Lödunnar í
svipuðum sessi og algengir jap-
anskir smábílar hafa nú. Lada Sport
var eins konar jeppaígildi og al-
gengir bílar úti í dreifbýlinu. Það
var Gaz raunar einnig og lengri út-
gáfan – sem tók 8-10 manns – var
algengur skólabíll í sveitum lands-
ins.
HÓLMAVÍK
Stalínsjeppi í
Strandasýslu
Á HÓLMAVÍK HEYRIST SOVÉSKUR ÍSKRANDI GÍRKASSA-
SÖNGUR ÞEGAR SVERRIR GUÐBRANDSSON ER Á
FERÐ. HANN EKUR UM Á JEPPA AF GERÐINNI GAZ
ÁRGERÐ 1967, SEM ER ENN Í GÓÐU LAGI.
Hamar, sigð og stjarna voru á skjaldarmerki Sovétríkjanna, sem féllu fyrir bráðum aldarfjórðungi. Sverrir málaði þessi
tákn á jeppann góða og fyrir vikið vekur bíllinn alltaf talsverða athygli fólks sem er á ferðinni norður á Hólmavík.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílar sem eru merktir samkvæmt gamla númerakerfinu eru orðnir sjaldséðir.
T-númerið á bíl Sverris Guðbrandssonar vitnar um horfna tíma á Íslandi.
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.8. 2014
* En líf mitt tók skyndilega u-beygju ... þegar égog minn heittelskaði fluttumst á Vaðbrekku íJökuldal til að gerast fjárbændur.
Sigga Lund á austurfrétt.is