Morgunblaðið - 25.06.2014, Síða 1

Morgunblaðið - 25.06.2014, Síða 1
Ný heildarsamtök í sjáv- arútvegi í undirbúningi Unnið er að stofnun nýrra heildarsamtaka í sjávarútvegi með sameiningu Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fiskvinnslustöðva. Málin verða rædd á stjórnarfundi SF í fyrramálið og á aukaaðalfundi LÍÚ, sem einnig verður haldinn á morgun. Fái tillagan brautargengi á fundunum verða stofnaðir sameiginlegir vinnuhópar og síðan er stefnt að samein- ingu á aðalfundum samtakanna í haust. „Það má segja að í þessu felist allsherjarendurmat og uppstokkun. Við vilj- um breikka umræðuna, sem hefur verið of þröng, og horfa á veiðar og vinnslu sem heildstæða atvinnugrein,“ segir einn þeirra sem unnið hafa að undirbúningi samein- ingar. Sameiningin hefur verið í undirbúningi frá því í vetur, en samhliða hefur stefnumótun til framtíðar verið rædd og hvernig nálgast megi alla virðiskeðjuna í sjávarútvegi. Tilgangurinn er að auka slagkraft greinarinnar og ann- ast hagsmunagæslu á breiðum vettvangi. Fiskveiðar og -vinnsla skila nú um þriðjungi útflutningstekna Íslend- inga og innan vébanda fyrirtækja í þessum greinum starfa nú um átta þúsund manns. aij@mbl.is »6  Sameining SF og LÍÚ  Endurmat og uppstokkun M I Ð V I K U D A G U R 2 5. J Ú N Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  147. tölublað  102. árgangur  SMÍÐA VÉLAR SEM EIGA SÉR HÉR SÖGU ÞINGKONA HLEYPUR AF SÉR VANDANN FJÓRÐU PLÖTU ANDRÉSAR ÞÓRS FAGNAÐ MIÐNÆTURHLAUP 12 TÓNLEIKAR 38FLUGMÓDEL 10 Mikið var um dýrðir í Sirkus Ísland þegar ljósmynd- ara Morgunblaðsins bar að garði í gær en þá fór fram generalprufa fyrir sýninguna „Heima er best“ sem verður frumsýnd í kvöld. Sirkusinn hefur sleg- ið upp tjaldi á Klambratúni en leggur land undir fót um miðjan júlí og heimsækir Ísafjörð, Akureyri, Selfoss og Keflavík og lýkur síðan sumrinu aftur í höfuðborginni seinnipart ágústmánaðar. »41 Morgunblaðið/Ómar Sirkuslistir og trúðslæti Baldur Arnarson baldura@mbl.is Seðlabanki Íslands útilokar ekki að taka starfsemi tryggingamiðlara til rannsóknar vegna umsvifa þeirra eftir að gjaldeyris- höftin voru sett 2008. Varða hugsanleg rann- sóknarefni sölu á tryggingasamn- ingum fyrir hönd erlendra trygginga- félaga. Samkvæmt öruggum heim- ildum Morg- unblaðsins leikur grunur á að trygg- ingamiðlarar hafi nýtt sér glufur til að fara á svig við reglur um gjaldeyr- ismál. Breyttar reglur um gjaldeyrismál tóku gildi 19. júní sl. en markmið breyting- anna var að stöðva óheimilaða söfnun sparn- aðar erlendis. Gagnrýnir vinnubrögð Seðlabankans Tekið var fram í tilkynningu SÍ vegna breytinganna að ekki yrði „hafin rannsókn á einstaklingum sem gert hafa samninga um sparnað við erlent tryggingafélag eða þeim gert að innleysa höfuðstól slíkra samninga“. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, sem gæta hagsmuna tryggingamiðlara, gagnrýnir að Seðlabankinn skuli ekki boða næsta upplýs- ingafund fyrr en 3. júlí. „Vinnubrögð þeirra í þessu máli koma manni því sífellt meira á óvart,“ segir Andrés. MTelur Seðlabankann »4 Grunur um brot á lögum  SÍ íhugar að rann- saka tryggingamiðlara 25.000 manns » Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins varðar málið samninga um 25.000 Íslend- inga sem skipta við erlendu tryggingafélögin.  Fjárfestar hafa keypt stærstan hluta húseignarinnar Rauðarárstígs 23 í Reykjavík en á syðri hluta lóð- arinnar er heimilt að byggja 3-4 hæða hús með bílakjallara. Nokkrir fjárfestar sýndu því áhuga að kaupa eignina sem var í eigu Arion banka og herma heimildir Morgunblaðsins að annaðhvort hafi þeir viljað reisa hótel eða íbúðir á byggingar- reitnum. Ekki fékkst uppgefið hvað kaupendurnir hafa í hyggju með lóð- ina. Að undanförnu hafa fjárfestar gert tilboð í fjölda íbúða í nýjum fjöl- býlishúsum og horfa þeir til hækk- andi leigu- og fasteignaverðs. Að sögn fasteignasala leita fjárfestar nú í auknum mæli íbúða í úthverfum til að kaupa til útleigu, ekki sé mikill munur á leiguverði til einstaklinga í úthverfum eða miðsvæðis. »14 Margir vildu reisa hótel við Hlemm Við Hlemm Grænlitaða byggingin sýnir byggingarréttinn á reitnum.  Íslendingar sækja í tóm- stundagaman innandyra þegar rignir. Viktoría Halldórsdóttir, vaktstjóri í Laug- arásbíói, segir að oft sé hægt að ákveða fjölda starfsmanna á hverri vakt eftir veðurspánni. Ef það rignir, þá koma fleiri í kvikmyndahúsin. »16 Íslendingar fara í bíó í rigningunni Votviðri Þá fara fleiri í bíóhúsin.  Eggert Magn- ússon, fyrrver- andi formaður KSÍ, segir það forréttindi að fá að fylgjast með heimsmeistara- mótinu í knatt- spyrnu í Brasilíu. Eggert starfar fyrir Alþjóða- knattspyrnu- sambandið, FIFA, og hefur yfir- umsjón með að allt fari vel fram í og kringum leikina í Fortaleza. „Stemningin hér í Brasilíu fyrir keppninni er ótrúleg og það er frá- bært að fá að upplifa það að vera á staðnum á HM í sjálfri Brasilíu,“ sagði Eggert við Morgunblaðið. » Íþróttir Frábært að upplifa að vera á staðnum Eggert Magnússon orkugjafi MÚLTI SPORT FJÖREFNI FYRIR ÍÞRÓTTAMANNINN eykur kraft www.gulimidinn.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.