Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 4

Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 „Ég sem íþróttamaður tek við þess- ari viðurkenningu. Ég er mikill keppnismaður en þetta er ekki óska- staðan, þetta er í raun tæknilegur sigur en sigur er alltaf sigur. Ég upplifi mig ekki sem sigurvegara þar sem augnablikið er liðið. Eitt er víst að ég mæti aftur að ári og verð vel undirbúinn,“ segir Árni Björn Páls- son sem var nýverið útnefndur sig- urvegari Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum í einstaklings- keppninni eftir að stjórn deild- arinnar endurútreiknaði stigagjöf- ina. Ástæðan er sú að árangur Þorvaldar Árna Þorvaldssonar í tölt- keppni 6. mars sl. var ógiltur þar sem hann féll á lyfjaprófi lyfjaeft- irlits Íþrótta- og ólympíusambands Íslands. Prófið var tekið eftir tölt- keppnina. Keppnisbannið stytt Áfrýjunardómstóll ÍSÍ stytti þriggja mánaða keppnisbann, sem Þorvaldur hafði hlotið, niður í 30 daga og lýkur því 29. júní næstkom- andi. Engu að síður var árangur hans 6. mars ógildur í Meistaradeild- inni og einnig þau stig sem lið hans, Top Reiter/ Sólning, fékk fyrir árangur hans í deildinni. Sigurbjörn Bárðarson var krýnd- ur sigurvegari einstaklings- keppninnar en þarf nú að afhenda titilinn tengdasyni sínum, Árna Birni Pálssyni, en hann er sambýlismaður Sylvíu Sigurbjörnsdóttur. Einu stigi munaði á þeim eftir endurútreikn- ingana; Árni Björn var með 39 stig og Sigurbjörn 38 stig. Röðin í ein- staklingskeppninni breyttist ekki að öðru leyti. Lið Þorvaldar Árna, Top Reiter/Sólning, sigraði í liðakeppn- inni þrátt fyrir endurútreikningana. Stjórnin harmar afleiðingarnar „Meistaradeildin harmar afleið- ingar sem hafa fylgt í kjölfar á þessu máli og vonar að við stöndum saman í að gera hestaíþróttina að þeirri íþróttagrein sem við getum verið stolt af hvar sem er í heiminum og stutt hvert annað,“ segir í tilkynn- ingu frá stjórn Meistaradeildarinnar. Ennfremur er komið á framfæri þökkum til Sigurbjörns. Eftir niðurstöðu áfrýjunardóm- stóls ÍSÍ sendi Þorvaldur Árni frá sér tilkynningu: „Ég tek fram að ég neytti umræddra lyfja viku áður en mæling fór fram og var ekki undir áhrifum þeirra í keppni. Því er alveg víst að þau höfðu engin áhrif á árang- ur minn. Lyfið mælist aftur á móti við sýnatöku í alllangan tíma eftir neyslu. Ég harma mjög þau mistök mín að hafa brotið lög ÍSÍ um lyfja- mál og hef einsett mér að læra af þessum mistökum þannig að slíkt gerist aldrei aftur.“ LH telur niðurstöðu áfrýj- unardómstóls ÍSÍ skaða Eftir að áfrýjunardómstóllinn mildaði keppnisbannið sendi Lands- samband hestamannafélaga einnig frá sér tilkynningu. Þar furðar sam- bandið sig á niðurstöðunni og „telur hana skaða ímynd íþróttahreyfing- arinnar og þar með talið hesta- íþróttarinnar í landinu“. thorunn@mbl.is Árni Björn nýr sigurveg- ari í Meistaradeildinni  Árangur Þorvaldar Árna ógildur því hann féll á lyfjaprófi Morgunblaðið/hag Sigurvegari Árni Björn Pálsson veifar áhorfendum eftir sigur í A-flokki á hestinum Aris frá Akureyri á landsmótinu á Hellu árið 2008. Læknafélag Íslands og Skurð- læknafélag Íslands hafa vísað kjaradeilum sínum til rík- issáttasemjara. „Það ber enn mikið í milli í þessum viðræðum og við sáum því ekki annan kost en að vísa deilunni þangað,“ sagði Sigurveig Pétursdóttir, formaður samninga- nefndar Læknafélags Íslands, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Sigurveig benti á að læknum á Ís- landi hefði fækkað um u.þ.b. 100 síðustu fjögur árin og fjölmargir læknar sem færu utan til sérnáms skiluðu sér ekki aftur heim. „Maður væntir þess að flæði lækna heim eftir að hafa verið úti við nám sé í ein- hverjum eðlileg- um hlutföllum, en það fer sífellt minnkandi,“ sagði Sigurveig. Þá væru margir læknar í hluta- störfum erlendis. Kjaraviðræður Skurðlæknafélags Íslands hafa engum árangri skilað að sögn Helga Kjartans Sigurðssonar, for- manns félagsins. Kjaradeilum Læknafélagsins og Skurð- læknafélagsins vísað til ríkissáttasemjara Læknar Ósamið er um kaup og kjör. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Andrés Magnússon, framkvæmda- stjóri Samtaka verslunar og þjón- ustu, sem gæta hagsmuna trygg- ingamiðlara, segist hafa fengið bréf frá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans síðasta föstu- dagskvöld þar sem hann var boðaður til fund- ar um framhaldið eftir helgi. Honum hafi síðan borist ann- að bréf frá Seðla- bankanum í gær þar sem fundar- boði er seinkað. „Það er búið að boða okkur til fundar eftir hádegi fimmtudaginn 3. júlí. Það er fyrsti tíminn sem Seðlabankinn hefur laus- an. Ég svaraði því til að það gengi ekki að draga fundinn svona mikið. Menn verða farnir í sumarfrí. Það er eins og Seðlabankinn geri sér alls ekki grein fyrir því hversu áríðandi það er að eyða þeirri óvissu sem uppi er sem allra fyrst. Vinnubrögð þeirra í þessu máli koma manni því sífellt meira á óvart.“ Hákon Hákonarson, eigandi Tryggingar og ráðgjafar, sem selur meðal annars líftryggingar fyrir Fri- ends Provident, segir það „algerlega ólíðandi“ að Seðlabankinn skuli taka sér svo langan tíma í að skýra út fyr- ir tryggingamiðlurum hvaða samn- ingar sem þeir hafi gert síðan gjald- eyrishöftin voru sett séu löglegir. Íhuga að rifta samningum „Þetta er dæmigert fyrir vinnu- brögð Seðlabankans í þessu máli. Við ítrekuðum mörgum sinnum í fyrra við Seðlabankann að hann skýrði af- stöðu sína, án þess að fá svar. Við sendum því inn kvörtun til Umboðs- manns Alþingis í janúar vegna vinnubragða Seðlabankans. Þetta eru fádæma vinnubrögð.“ Hákon segir Friends Provident íhuga að rifta öllum samningum um líftryggingar ef Seðlabankinn úr- skurði þá ólögmæta. Hann segir um 12.000 Íslendinga hafa gert slíka samninga síðan gjaldeyrishöftin voru sett í nóvember 2008. Telur Seðla- banka Íslands draga lappirnar  Framkvæmdastjóri SVÞ gagnrýnir SÍ fyrir seinagang í tryggingamálinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Andrés Magnússon Þrír íslenskir uppfinningamenn, þau Elinóra Inga Sigurðardóttir, dr. María Ragnarsdóttir og Valdimar Össurarson, unnu til verðlauna á al- þjóðlegri ráðstefnu uppfinninga- manna, INPEX, sem haldin var í Pittsburgh í Bandaríkjunum 18. til 21. júní sl. Dr. María Ragnarsdóttir hlaut tvenn verðlaun, gullverðlaun (Gold Medal Award of Merit) og einnig sérstök heiðursverðlaun frá Sam- tökum uppfinningamanna í Póllandi. Þau hlaut hún fyrir uppfinningar sínar sem heita ÖHM-Andri og PA Pressure Puffin. Annars vegar er um að ræða tæki sem mælir önd- unarhreyfingar hjarta- og lungna- sjúklinga. Hins vegar tæki sem mæl- ir hreyfingar á milli hryggjarliða. Það auðveldar greiningu og meðferð við sjúkdómum í hryggsúlunni. Elinóra Inga Sigurðardóttir hlaut gullverðlaun fyrir uppfinningu sína, Elinora’s Royal Natural Snack. Það er náttúrulegt snarl fyrir hunda sem unnið er úr fiskroði. Elinóra hefur framleitt hundasnarlið allt frá árinu 1999. Hún hefur þegar selt það til 25 ríkja í Bandaríkjunum. Sú stærsta sinnar tegundar Valdimar Össurarson fékk gull- verðlaun fyrir nýja tegund af hverfli eða túrbínu. Uppfinningin kallast Valorka-hverfillinn. Um er að ræða hægstraumshverfil sem hentar sér- staklega vel til virkjunar sjáv- arfallaorku. Þróun hverfla byggðra á hugmynd Valdimars hófst árið 2008. Fyrirtækið Valorka ehf. var stofnað til að standa að þróunarvinnu og hef- ur það átt í samvinnu við ýmsa aðila. Valdimar hefur áður fengið al- þjóðlega viðurkenningu fyrir þessa uppfinningu sína. Hann fékk fyrstu verðlaun á alþjóðaþingi uppfinninga- manna IFIA í Stokkhólmi árið 2011. INPEX er alþjóðleg sýning nýrra uppfinninga sem haldin er árlega í Pittsburgh. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar. Hún er lokuð al- menningi en opin uppfinningamönn- um, framleiðendum, dreifingarað- ilum og fjárfestum. Elinóra Inga Sigurðardóttir skipulagði ferð íslensku sendinefnd- arinnar á INPEX. Elinóra er for- maður KVENN – Samtaka kvenna í nýsköpun og fyrrverandi formaður SFH, samtaka frumkvöðla og hug- vitsmanna. gudni@mbl.is Ljósmynd/Júlíus Valsson Verðlaun Elinóra Inga Sigurðardóttir (t.v.) og dr. María Ragnarsdóttir. Íslenskar uppfinningar verðlaunaðar vestra  Fengu þrenn gullverðlaun og ein heiðursverðlaun Morgunblaðið/Kristinn Valorka Valdimar Össurarson vann einnig til verðlauna á INPEX. Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is PARKETFLÍSAR ekkert að pússa og lakka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.