Morgunblaðið - 25.06.2014, Side 11

Morgunblaðið - 25.06.2014, Side 11
Aðstaðan Flugmódelmenn á Akureyri hittast gjarnan og smíða á smíðaverkstæðinu í húsi Grasrót- arinnar. Veturinn er til þess að dunda sér við flugmódelsmíðina og er mörgu komið í verk. unum. „Við getum flogið margir saman í einu og truflum ekkert hver annan. Þetta virkar svipað og far- sími sem leitar að lausum rásum. Áður þurfti maður að vita á hvaða tíðni hinir voru að fljúga og þá var aðeins takmarkað hversu margir gátu flogið í einu,“ útskýrir Árni. Maður getur ímyndað sér að til að fljúga flugmódeli sé betra að sjá þokkalega. „Við höfum nú ekki lent í því að týna vél. Það hefur einhvern tíma komið fyrir en það er sem betur fer mjög sjaldgæft. Þetta kom einu sinni fyrir hér á Akureyri. Vélin flaug bara yfir fjörðinn og í hlíðina hérna hinum megin. Og hún er þar ennþá,“ segir Guðjón. Hvaða vél verður næst? Menn hugleiða eflaust oft hvaða vél skuli setja saman næst til að hafa eitthvað fallegt fyrir hugskots- sjónum. „Þetta eru ofboðslega margar vélar en lítill tími sem maður hefur. Þetta er náttúrlega ofboðs- lega fjölbreytt hobbí og það er nú eitt af því sem er svo skemmtilegt við það,“ segir Árni. Fyrsta vélin sem sett er saman er nokkuð mikilvæg að sögn þeirra félaga. Hún þarf að vera einföld og góð fyrir byrjendur og hefur Flug- módelfélagið staðið fyrir nám- skeiðum í smíði slíkra véla. „Byrj- endavélarnar geta verið alveg frábærar. Bæði léttar, þægilegar og lítið um hrekki. Þegar maður er far- inn að geta flogið henni almennilega er í raun bara spurningin hvað mann langar í næst,“ segir Guðjón. Byrj- endavélarnar sem um ræðir eru í raun ekki módel af einhverri sér- stakri flugvél heldur eru þær ein- faldlega til þess gerðar að nýir flug- menn fái tilfinninguna fyrir fluginu sjálfu og öðlist reynslu. Það er líka vissara áður en uppáhaldsvélin er smíðuð. Að finna sína fjöl í fluginu Það er hægt að kaupa flugmód- elin á ýmsum stigum samsetningar. Sumir, eins og þeir Árni og Guðjón, kaupa teikninguna og saga sjálfir út stykkin. Aðrir vilja kannski kaupa módelin þannig að það sé búið að saga út og þá þarf bara að raða stykkjunum saman. Svo er auðvitað hægt að kaupa þau nánast á loka- stigi og ekkert eftir annað en að setja mótorinn á og ganga frá vélinni að innan. „Sumum finnst meira gam- an að smíða en aðrir hafa kannski ekki tíma til þess, getu eða nennu og finnst aðallega gaman að fljúga. Það finnur bara hver sína fjöl í þessu,“ segir Árni. „Við hérna fyrir norðan, með þessa löngu vetur, erum mikið að smíða.“ Á sumrin fara þeir út og fljúga en hætta samt ekkert að smíða! Aðstaðan sem félagið hefur bæði til að smíða vélarnar og fljúga þeim er ákaflega góð. Smíðaverkstæðið er í kjallara húsnæðis Grasrótarinnar sem er í fyrrverandi skrifstofuhúsi Slippsins. Á Melgerðismelum er fantafínn flugvöllur sem er iðulega vel nýttur á Flugkomu félagsins sem haldin hefur verið aðra helgina í ágústmánuði síð- an 1981. Flugmódelfélögin eru flest mjög virk á sumrin og eru fjölmenn mót og flugkomur haldnar og stund- um koma hingað erlendir meistarar sem leika listir sínar með hinum. Rafmagnið er framtíðin Til eru ýmsar gerðir mótora sem henta á flugmódelin. Bensínmótorar hafa verið algengir í gegnum tíðina en það er mat manna að rafmagns- mótorar séu það sem koma skal. „Það sem hefur verið takmarkandi þáttur þar eru rafhlöðurnar en þær verða betri og betri svo þetta er það sem koma skal. Þá er maður laus við olíuna og það að þurfa að kaupa rán- dýrt eldsneyti,“ segja þeir. Nokkrir í félaginu fóru yfir í rafmagnsmótora á síðasta ári og hafa þeir reynst vel. Ekki er hægt að fjalla um flug- módel án þess að minnast á þotur og þyrlur. Reyndar eru þeir ekki marg- ir sem eru að fljúga þyrlum á Akur- eyri en þó eru þeir nokkrir. Þyrl- urnar, rétt eins og flugvélarnar, eru til af ýmsum stærðum og gerðum en það er mat flestra að mjög ólíkt sé að fljúga þeim og jafnvel býsna stremb- ið. Þoturnar komast ógnarhratt og eru þær til nokkrar á landinu þótt engin sé á Akureyri. Það er tilkomu- mikil sjón að sjá flinka flugmenn fljúga þotunum en eins gott að vera ekki að þvælast neitt fyrir! Sé einhver að velta því fyrir sér hvort engar konur séu í þessum ágætu flugmódelfélögum sem starf- andi eru hér á landi þá hafa þær nú ekki verið sérlega áberandi. Víða er- lendis eru konur virkar í þessu sporti og margar alveg sérlega fær- ar. Hver veit nema konunum fjölgi í félögunum hér á landi eftir því sem vinsældir þessa áhugamáls fara vax- andi. Mikið lagt í útlit vélanna Þegar flugmódel eru skoðuð nánar má oft sjá að í þeim eru vel tilhafðir flugmenn. Oft eru þeir tálgaðir út býsna nákvæmlega og eru gjarnan kunnuglegir karakter- ar. Þetta á þó aðeins við þegar vélin sjálf er ekki líkan af annarri vél. Þá hafa eigendur frjálsar hendur eins og mátti sjá dæmi um í einni af vél- um félaga klúbbsins þar sem Dil- bert situr einbeittur við stýrið. „Einn félagi okkar tálgaði Dilbert og hann situr þarna með bindið út í loftið og með tölvu fyrir framan sig. Á skjá tölvunnar stendur „How to fly in three easy lessons“,“ útskýrir Árni. „Það er allt til í þessu. Meira að segja er hægt að panta sjálfs- myndir. Ef ég sendi fjórar ljós- myndir af höfðinu á mér til manns í Englandi býr hann mig til í hvaða stærð sem er,“ segir Guðjón sem hefur þó ekki látið verða af því að panta sjálfsmynd. „Þetta áhugamál er svo víðfeðmt og fjölbreytt að það gætu nánast allir fundið sér hillu í því,“ segja þeir Guðjón og Árni að lokum. Þeir sem vilja fylgjast með þeim viðburðum sem framundan eru hjá félaginu geta farið inn á vefsíðu Flugmódelfélags Akureyrar, slóðin er www.flugmodel.is, og má þar auk þess fræðast enn frekar um félagið. Kúnstir Hægt er að öðlast mikla færni í módelfluginu. Hér lék heimsmeistarinn Ali Machinchy listir sínar í Grindavík þegar hann heimsótti landið fyrir tveimur árum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Mörg eru undrin, stór og smá, í ver- öldinni. Í Nýju-Delí á Indlandi var ný- lega heljarinnar þrumuveður og fór þá margt úr skorðum, til dæmis féll stórt tré til jarðar og við það fór líf dýranna sem þar áttu sitt ból úr skorðum. En sumum þeirra var bjargað, meðal ann- ars þessum kornunga og agnarsmáa íkorna. Í gær var þessi mynd tekin þar sem var verið að mata litla mun- aðarleysingjann með kirsuberi. Bjargað eftir þrumuveður AFP Hlúð að litla lífinu í lófanum Hvern ætlar þú að gleðja í dag Í Manila á Filippseyjum er hefð fyrir því að slökkviliðsmenn sprauti vatni yfir fólk á götum úti í tilefni mikillar hátíðar sem haldin er í nafni heilags Jóns babtista (Saint John the Bapt- ist). Vatnsgjörningurinn er ekki til að kæla fólk í hitanum, þó það gagnist vissulega ágætlega líka þar, heldur trúir fólk að með því að verða fyrir þessum vatnsgusum á degi hins heil- aga Jóns babtista, þá öðlist það guðsblessun. Tilvalin aðferð til að blessa marga í einu AFP Guðsblessun dreift með vatni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.