Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.06.2014, Blaðsíða 12
VIÐTAL Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Markmiðið náðist. Ætlaði mér reyndar að hlaupa hálfmaraþon á innan við tveimur tímum, en að ná þessu á 2:00:55 er innan vikmarka. Meginmálið er samt að vera með því hlaupin eru góður félagsskapur og hreyfingin er frábær,“ segir Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins. Þrek og úthald jukust Góð þátttaka var í Miðnætur- hlaupi Suzuki sem fram fór í 22. sinn sl. mánudagskvöld. Ríflega 2.600 manns tóku þátt og hafa aldrei verið fleiri. Alls 320 hlupu hálft maraþon, en aðrir létu sér nægja að fara 10 eða 5 km. Ætla má að skemmri vegalengdir hafi gjarnan höfðað til fólks sem er að byrja í sportinu eða þeirra sem eru komnir af léttasta skeiði. En Elsa Lára er enginn ný- liði, hún byrjaði að hlaupa fyrir tæp- um sex árum og segir það hafa breytt lífi sínu. „Þetta var haustið 2008; á tíma- punkti þegar ýmsir hlutir voru mót- drægir. Þetta var fyrst eftir hrun; lánin á húsinu höfðu snarhækkað, maðurinn minn missti vinnuna og dóttir okkar greindist á einhverfu- rófinu. Þetta tók á og til þess að létta aðeins á mér fór ég út að hlaupa. Í fyrstu komst ég bara á milli ljósastaura og þurfti svo að kasta mæðinni. Svo jókst þrek og úthald smátt og smátt, úthaldið varð meira og andlega urðu verkefni dagsins auðveldari. Við getum því kannski sagt að ég hafi ekki hlaupist undan vandanum heldur hlaupið hann af mér,“ segir Elsa Lára. Hlaupið milli funda Hlaupagleði Íslendinga er merki um breytingu í þjóðlífinu. Æ fleiri taka á rás, ýmist einir eða með hlaupahópum. Þannig er Elsa Lára, sem býr á Akranesi, í hlaupahópn- um Skagaskokki og segir það starf bæði öflugt og skemmtilegt. „Félagsskapurinn skipir máli. Fólk fær hvatningu hvert frá öðru,“ segir Elsa. Með Skagaskokkurum tók hún þátt í svonefndu Sauðafells- hlaupi í Dölunum um sl. helgi. Næst á dagskrá er Hlaupahátíð Vest- fjarða í júlí, þar sem m.a. verður hlaupið um Óshlíð og skagann milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Síðari hlutann í ágúst er svo Reykjavíkur- maraþon á dagskrá. Þar ætlar Elsa að gera sér lítið fyrir og hlaupa heilt maraþon, það er 42 km. „Starfsfólkið á Alþingi skrifar ýmislegt niður og segir mér að til þessa hafi engin þingkona tekið heilt maraþon. Karlarnir hafa samt verið duglegir í þessu; Steingrímur J. Sig- fússon, Pétur Blöndal, Árni Páll Árnason og fleiri hafa tekið allan pakkann. Þá er Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í frjálsum íþróttum og hefur náð góð- um árangri í millivegalengdum,“ segir Elsa Lára. Hún kveðst oft nota hádegishléið og tímann milli funda á þinginu til þess að hlaupa. Fer þá gjarnan úr miðborginni, vestur í bæ, út á Seljarnarnes og niður í Kvos. Sprettur með eðalmúsík „Þetta eru um 10 km og einn klukkutími. Það dugar til þess að safna orkunni sem þarf, því vissu- lega er starfið á Alþingi krefjandi,“ segir Elsa Lára sem helst sleppir ekki degi úr. „Oft fæðast góðar hug- myndir í skokkinu. Því er ég alltaf með símann á mér, til þess að geta skrifað inn það sem um hugann fer og getur verið innlegg í mál sem eru í deiglunni. Svo er fínt að setja mús- ík í símann – með slíku verður þetta enn skemmtilegra. Það er nefnilega mjög ljúft að taka sprettinn með eð- almúsík í eyrunum; hljómsveitir eins og Sálina, Todmobile og Ný dönsk.“ Frábært að hlaupa af sér vandann  Um 2.600 manns tóku þátt í miðnæturhlaupi í Reykjavík  Elsa Lára Arnardóttir alþingismaður fór hálft maraþon á tveimur klukkustundum  Úthaldið varð meira og verkefni dagsins auðveldari Morgunblaðið/Golli Skokk Þátttaka í Miðnæturhlaupi Suzuki var góð og gleði í andlitum fólks. Sprettur Elsa Lára byrjaði að æfa hlaup fyrir rúmlega fimm árum. Hún segist fljótt hafa fundið muninn og nýtir lausar stundir til æfinga og keppni. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Vaxandi áhugi fólks á hlaupum og virk þátttaka er hluti af almennri lífsstílsbreytingu á Vesturlöndum. „Það eru allmörg ár síðan þetta byrjaði af einhverri alvöru. Tengist auðvitað því að fólk er æ betur meðvitað um heil- brigðan lífsstíl. Þar koma hlaupin sterk inn, enda ein- falt sport þar sem allir geta fundið hvað sér hentar. Auðvitað eru 5 og 10 km vinsælustu vegalengdirnar, en þátt- takendum í heilu og hálfu maraþoni fjölgar jafn og þétt. Þá koma utanvegahlaupin um fjöll, firnindi og alls- konar torfæru æ sterk- ar inn,“ segir Martha Ernstsdóttir frjáls- íþróttakona. Hún er margreynd í sportinu, hefur unnið til fjölda al- þjóðlegra verðlauna og hér heima verið afrekskona í fremstu röð. Líðandi sumar er það 11. sem Martha Ernstsdóttir er leiðbeinandi hlaupa- hópsins Spretts sem leggur upp í Laugardalnum í Reykjavík. Á bilinu 70-80 manns eru á hverjum tíma skráðir í hópinn bæði þaul- vant fólk og nýliðar. „Ég hamra á því að skynsemi og hóf skipti mestu máli. Fólk verður að sníða sér stakk eftir vexti; ofgera sér ekki né slíta sig svo það geti ekkert hreyft sig. Boðskap- urinn er einfaldlega sá að mest sé ekki best,“ segir Martha. Á vegum margra íþróttafélaga á höfuðborg- arsvæðinu er haldið úti skokkhópum sem njóta vaxandi vinsælda. Þá hafa margir með sér óformlega hópa, en þá hittist fólk gjarnan við sundlaug- arnar og leggur þar upp. Raunar er þetta ekki bundið við höfuðborg- arsvæðið; um allt land eru skokkarar og í kringum þetta gaman þeirra hafa myndast ýmsar menningarhefðir. Þegar hér er komið er tæp- ast ofsagt að hlaupaæði renni á landann. Margir nota sum- arleyfið eða góðviðrisstundir eftir vinnu til þess að fara út að klaupa. Fólk reimar á sig striga- skóna, fer í stuttbuxurnar og spyrnir svo af stað. Keppikefli margra í þessu sambandi er að fara í Reykjavíkurmaraþonið – sem í ár verður 23. ágúst. Mest er ekki best HLAUPAÆÐI RENNUR Á LANDANN Á SUMRIN Martha Ernstsdóttir Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 TAX FREE af öllum s nyrtivöru m í júní Komið o g skoðið úr valið Seljum einnig: Peysur, buxur, pils, leggings o.m.fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.