Morgunblaðið - 25.06.2014, Síða 19
Sigurjón Örn bendir á að þrátt
fyrir að netverslun hafi aukist, þá sé
hún enn lítill hluti af heildarversl-
uninni. „Margir nýta sér netverslan-
ir til að kynna sér vöruúrval, bera
saman verð og skoða gæðin, en enda
gjarnan í sjálfri versluninni til þess
að kaupa vöruna. Sumir kaupa vör-
una jafnvel á netinu en sækja hana í
versluninni. Þrátt fyrir örar tækni-
framfarir eru verslunarmiðstöðvar
víða um heim með mjög traustan
grundvöll og spretta upp eins og gor-
kúlur,“ segir hann.
Reitir fasteignafélag undirbýr
stækkun Kringlunnar til vesturs inn-
an nokkurra ára. Rætt hefur verið
um að stækka Kringluna um tuttugu
þúsund fermetra, en eftir stækk-
unina yrði Kringlan um sjötíu þús-
und fermetrar.
„Kringlan hefur stækkað þrívegis
í 27 ára sögu sinni. Okkur þykir mik-
ilvægt að hús geti þróast, tekið
breytingum og endurnýjast þannig
að viðskiptavinurinn upplifi alltaf
eitthvað nýtt,“ segir Sigurjón Örn.
Veltan í Kringl-
unni fer vaxandi
Framkvæmdastjórinn segir hart barist um hvert pláss
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kringlan Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, segir að
aðsókn í verslunarmiðstöðina hafi aukist um 4% á fyrstu mánuðum ársins.
FRÉTTASKÝRING
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Mikill kraftur er í verslun í Kringl-
unni og hefur eftirspurn eftir því að
komast inn í verslunarmiðstöðina
aukist verulega á undanförnum
misserum. Sigurjón Örn Þórsson,
framkvæmdastjóri Kringlunnar,
segir að á fyrstu fimm mánuðum árs-
ins hafi meðalvelta í verslunum
Kringlunnar aukist um sjö prósent á
breytilegu verðlagi. Á sama tíma hafi
aðsókn í Kringluna aukist um tæp
fjögur prósent.
„Það er enginn barlómur í okkur.
Við fórum í gegnum kreppuna án
þess að vera nokkurn tímann með
autt bil í húsinu og hér er slegist um
hvert pláss þegar þau losna. Yfirleitt
eru á bilinu fjórir til sex aðilar sem
við getum valið úr þegar pláss losna.
Það mætti segja að þetta væri lúxus-
vandamál og er ég alls ekki viss um
að þetta sé víðar með sama hætti,“
segir hann í samtali við Morgunblað-
ið.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
um helgina var vöxtur í allri verslun,
samkvæmt tölum Rannsóknaseturs
verslunnarinnar á Bifröst, í maí-
mánuði. Þannig jókst velta í dag-
vöruverslun um 3,8% á föstu verðlagi
miðað við sama mánuð í fyrra og um
4,2% á breytilegu verðlagi. Þá hefur
fataverslun aukist að raunvirði um
4,9% það sem af er árinu.
Fram kemur í skýrslum setursins
að raunvirði fataverslunar sé enn
töluvert minna en þegar best lét árið
2007 og bendir það til þess að fata-
verslun hafi ekki enn náð sér á strik.
Sigurjón Örn segir að í fyrra hafi
meðalvelta í Kringlunni aukist um
sex prósent á breytilegu verðlagi og
sjö prósent á fyrstu fimm mánuðum
þessa árs. Í janúarmánuði jókst velt-
an um 10,5% frá sama mánuði í
fyrra, en í apríl var aukningin enn
meiri, eða 11%. „Það virðist gæta
aukinnar bjartsýni meðal lands-
manna, ef marka má þessar tölur, og
er ljóst að meiri kraftur er kominn í
verslunina,“ nefnir hann.
Lítið brot af heildarverslun
Netverslun Íslendinga hefur auk-
ist hröðum skrefum að undanförnu
og sögðu þeir kaupmenn sem blaðið
ræddi við að sú aukning skýrði að
miklu leyti hina dræmu fataverslun.
Netverslun
» Íslendingar keyptu vörur í
erlendum netverslunum fyrir
tæpa þrjá milljarða króna í
fyrra. Velta netverslunar hér á
landi nam 1,4 milljörðum.
» Sigurjón Örn bendir þó á að
netverslunin sé enn lítið brot
af heildarversluninni.
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014
Miðvikudagstilboð
– á völdum einnota borðbúnaði
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 14
Komdu í verslun RVog sjáðu glæsilegt úrval
af einnota borðbúnaði íflottum sumarlitum
Di
sk
ar
Se
rv
íe
ttu
r
G
lö
s
Hn
ífa
pö
r
-Viðhaldsfríir
gluggar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Morgunblaðið/Eggert
Bjartsýni Íslendingar hafa ekki
verið bjartsýnni síðan fyrir hrun.
Væntingavísitala Gallup (VVG) tók
heldur við sér í júnímánuði og fór
upp í sitt hæsta gildi frá því í febr-
úar árið 2008. Vísitalan hækkaði
um átján stig á milli mánaða og
mælist nú 101,8 stig.
Í umfjöllun sinni um málið minnir
greiningardeild Íslandsbanka á að
þegar vísitalan er yfir hundrað
stigum séu fleiri neytendur bjart-
sýnir en svartsýnir.
Fyrir þessa júnímælingu hafði
vísitalan aðeins tvívegis komist upp
fyrir hundrað stig frá því í árs-
byrjun 2008, þ.e. í maí og júní í
fyrra.
Allar undirvísitölur hækka í júní
frá fyrri mánuði. Mest hækkar mat
neytenda á efnahagslífinu, eða um
33 stig, en sú vísitala mælist nú 96,8
stig. Það er hæsta gildi þeirrar vísi-
tölu frá því í janúar 2008. Næstmest
hækkar undirvísitalan sem mælir
mat neytenda á núverandi ástandi
og mælist sú vísitalan nú 65,6 stig,
sem er hæsta gildi hennar frá því í
september 2008.
Greiningardeild Íslandsbanka
segir að af ofangreindu megi sjá að
Íslendingar vænti þess að ástandið í
efnahags- og atvinnumálum þjóð-
arinnar muni batna frá núverandi
ástandi. Við því hafi þeir raunar bú-
ist frá því snemma árs 2008. „Fyrir
hrun var þessu öfugt farið, en frá
miðju ári 2004 til mars 2008 var
gildi vísitölunnar sem mælir mat
neytenda á núverandi ástandi ávallt
hærra en þeirrar sem mælir mat á
væntingum til sex mánaða,“ segir í
umfjöllun greiningardeildarinnar.
„Töldu neytendur þá núverandi
ástand svo gott að það myndi varla
batna upp frá þessu.“ kij@mbl.is
Neytendur ekki
bjartsýnni í sex ár
Væntingavísitalan á hraðri uppleið