Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gleymdu því að vera praktískur í
dag. Kláraðu það sem fyrir liggur, annars
áttu á hættu að fá á þig orð fyrir óáreið-
anleika.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert sagnfræðingurinn í hópnum:
sá sem man áríðandi smáatriði sem aðrir
virðast gleyma. Vertu því opinn gagnvart
öðrum og gefðu þér tíma til þess að
þroska sjálfan þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gerðu ekki meiri kröfur til sjálfs
þín en þú ert fær um að standast. Nú er
lag að hreinsa til á skrifborðinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Stundum er nauðsynlegt að gera
sjálfum sér eitthvað til góða, eitthvað
óvænt og öðruvísi. Láttu aðra um þau verk
sem þú þarft ekki að sinna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ný verkefni byrja meiriháttar vel, en
þú veist betur en nokkur annar að endirinn
skiptir mestu. Ekki hunsa nýjar hugmyndir,
framkvæmdu þær.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það væri rangt af þér að svara ekki
beiðni gamals vinar um aðstoð. Fátt er
eins dýrmætt og að kunna að gefa af sér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Settu þér alltaf raunhæf takmörk og
stefndu að þeim hvað sem tautar og raul-
ar. Undirmeðvitundin er á fullu að leysa
vandamálin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú stendur ráðþrota í ákveðnu
máli og ert að því kominn að gefast upp.
Bíddu í svolítinn tíma með að setja fram
kröfur þínar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hvers kyns hugmyndir heilla
þig. Láttu það eftir þér að njóta lífsins og
fara í bíó eða leikfimi með góðum félaga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Af hverju virðist sannleikurinn
ekki heiðarlegur? Skoðaðu málið í víðu
samhengi. Haltu ótrauður þínu striki og þá
leysast þessi vandamál af sjálfu sér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur haldið of lengi aftur af
þér svo nú er kominn tími til að fá útrás og
njóta sín. Gefðu þér tíma til að líta inn á
við og vittu hvort þú kemst ekki að nið-
urstöðu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gættu þess að gaumgæfa smáat-
riðin ekki síður en þau stærri. Haltu þessu
aðskildu því allt hefur sinn stað og stund.
Það er alltaf skemmtilegt aðfletta miðum, blöðum og bók-
um og sjá hvað maður hefur upp úr
krafsinu. Í Vísnasafni Jóhanns frá
Flögu er þessi braghenda:
Kani, tussi, kirna, skjóla,
kola, tessi.
Öll eru þau í einu vessi
„Austfirðinga-sprokin“ þessi.
Vísunni fylgir þessi athugasemd:
„Kani mun á Austfjörðum merkja
trédall eða ask, sem spónamatur er
etinn úr, tussi: lítill poki, tessi:
spónn. Hin orðin eru ekki sér-
austfirsk og munu flestir kannast
við þau.“
Kristín í Haukatungu orti:
Lifað hef ég langa ævi
laus við hroka.
Í lítinn skaufa látin moka
ég lofaði aldrei stórum poka.
Jóhannes á Skjögrastöðum orti,
úrkast:
Fallinn lofar margur maður
margan kauðann,
- ætli ég verði annálaður
eftir dauðann?
Kiðaskarð er fjallvegur milli
Stafns í Svartárdal og Mælifells í
Skagafirði. Þessi vísa er gömul,
sennilega ort fyrir 1800 og hátt-
urinn stuðlafall:
Fylgi þér Drottinn fram í skarðið Kiða,
þó hann skilji þar við þig
það kemur ekki par við mig.
Páll Ólafsson sat á þingi fyrir
Norðmýlinga 1867 og 1873 (vþm) og
síðan 1874-1875 en sagði þá af sér.
Honum hefur fallið þingsetan illa:
Heldur vildi ég hafa í barmi mínum
á hverjum degi hvolpatík
heldur en Íslands pólitík.
Einhverju sinni kom séra Matt-
hías Jochumsson í illu skapi til
kunningja síns og sagði:
Kem ég glíkur Guðmundi
gamla Hóla biskupi
geggjaður af guðrækni,
gönguskríl og mývargi.
Það er erfitt að hugsa sér að
draugar gangi ljósum logum um há-
sumarið, en maður veit aldrei.
Magnús á Tjörn orti:
Hræddu mig ekki, Gunna góð,
með geði fínu.
Liggðu kyrr í leiði þínu.
Loftinu komdu ei nærri mínu!
Heilla Gunna hafðu á þér
hegðun betri;
láttu mig njóta í svörtu setri
ég söng yfir þér í hríðartetri.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur héðan og þaðan
um eitt og annað
Í klípu
„ÞETTA ERU SÍÐUSTU SÓFA-
KARTÖFLURNAR. VIÐ ÆTTUM SVO AÐ
LÁTA ÞRÍFA SÓFANN FLJÓTLEGA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VERTU VÆNN OG STINGDU
ÞESSU Í SAMBAND FYRIR MIG.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að nýta meðbyrinn.
VAKNAÐU
HRÓLFUR!
ÞAÐ ER 20 STIGA
FROST ÚTI OG
OKKUR VANTAR
ELDIVIÐ.
JÆJA, HVAÐ
ÆTLARÐU AÐ
GERA Í ÞVÍ?
ÁTTU EINHVER GÖMUL
HÚSGÖGN SEM ÞÚ VILT
EKKI EIGA LENGUR?
ÞÚ PLATAR
MIG EKKI. HVAÐ?
ÞÚ ERT AÐ
BRALLA EITTHVAÐ.
ALLS
EKKI.
EN NÚ FINNST MÉR AÐ
ÉG VERÐI AÐ GERA
EITTHVAÐ.V
íkverji kann að meta þegar gróð-
urinn er í fullum skrúða. Hann
kann reyndar best að meta sólar-
daga, en hefur ekkert við rigninguna
að athuga svo lengi sem hann er ekki
holdvotur í tjaldi í óbyggðum og
engin leið að þurrka rennblauta
leppa. Í gærmorgun var þó svo
þungskýjað og dimmt yfir að Vík-
verji hélt hann hefði sofið rækilega
yfir sig og komið væri haust.
x x x
Veðrið hefur sín áhrif á hegðunfólks. Í blaðinu í dag kemur
fram að Íslendingar fara frekar í bíó
þegar rignir. Það kemur svo sem
ekki á óvart, en athyglisvert er að í
bíóhúsunum lesa menn spána þegar
þeir ákveða hvernig manna eigi
vaktirnar þann daginn. Þegar sólin
skín eru færri kallaðir til vinnu en á
rigningardögum.
x x x
Víkverji er vissulega meira fyrirútivist í sólskini en rigningu, en
þó finnst honum fátt jafnhressandi
og að teyga að sér hreint loft eftir
væna gróðrarskúr.
x x x
Víkverji hefur reynt að fylgjastmeð HM eftir megni. Mest hef-
ur hann gaman af óvæntum úrslit-
um. Kostaríka hefur komið mest á
óvart af öllum liðum í keppninni,
sem nú fer fram í Brasilíu. Fyrir-
fram var liðið ekki talið eiga meiri
möguleika en skjaldbaka gegn héra.
Liðið gerði sér lítið fyrir og sigraði í
riðli þar sem það þurfti að etja kappi
við þrjá fyrrverandi heimsmeistara,
England, Ítalíu og Úrúgvæ. Spá-
menn afskrifuðu flestir drýginda-
legir Kostaríka og gerðu því skóna
að liðið yrði fallbyssufóður knatt-
spyrnurisanna. Annað kom á daginn.
x x x
Víkverja finnst með ólíkindumhvað oft er skorað á lokamín-
útum leiks, jafnvel eftir að venjuleg-
ur leiktími er liðinn. Víkverji veltir
fyrir sér hvort meira yrði um mörk
ef menn lékju af sömu örvæntingu
og ákafa allan leikinn og þeir gera
þegar leikurinn er að verða búinn.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ef von vor til Krists nær
aðeins til þessa lífs, þá erum vér
aumkunarverðastir allra manna.
(1. Korintubréf 15, 19.)