Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 39

Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 duxiana.com D U X® ,D U XI A N A® an d Pa sc al ® ar e re gi st er ed tr ad em ar ks ow ne d by D U X D es ig n A B 20 12 . Okkar best varðveitta leyndarmál! Allar götur síðan DUX var stofnað 1926 þá hefur það verið metnaður okkar að framleiða heimsins þægilegust rúm, því það er frábær tilfinning að vakna úthvíldur eftir góðan nætursvefn. Til að ná því marki höfum við hjá DUX þróað DUX Pascal system er samanstendur af útskiftanlegu fjaðramottum sem gera þér kleift að sníða rúmið (stífleikann) að þínum þörfum hvenær sem þú vilt, eins oft og þú villt. Það er leyndarmálið að góðum svefni. DUXIANA Reykjavik, Ármuli 10, 568 9950 » Eftirvæntinginskein úr augum ungra áhorfenda sem fengu að fylgjast með sýningunni Ys og þys í Brúðubílnum við Guð- ríðarkirkju í gærmorg- un. Áhorfendur létu rigninguna ekkert trufla sig, enda öll klædd góðum pollagöll- um. Að vanda fór apinn Lilli fyrir litríku per- sónugalleríi, en meðal þeirra sem skemmtu börnunum í fyrri sýn- ingu Brúðubílsins þetta sumarið voru Dúskur og Krummi auk þess sem sjö kiðlingar kíktu í heimsókn með mömmu sinni. Ys og þys í Brúðubílnum vakti mikla lukku hjá leikskólabörnum í Grafarholti þrátt fyrir vætuna Morgunblaðið/Þórður Tvenna Að vanda sýnir Brúðubíllinn tvær sýningar á hverju sumri, eina í júnímánuði og aðra í júlímánuði. Áhugasöm Brúðubíllinn heillar unga áhorfendur ár eftir ár. Geitamamma Kiðlingarnir sjö mættu ásamt mömmu sinni í Brúðubílinn. Trúður Dúskur á tali við áhorfendur, en þeir yngstu voru í kerrum sínum. Vætusamt Í íslenskri sumarrigningu er nauðsynlegt að vera í pollagalla. Norski rithöfundurinn Gard Sveen hlýtur norrænu glæpasagnaverð- launin Glerlykilinn í ár fyrir bókina Den siste pilegrimen. Sveen er fæddur 1969, hefur starfað í varn- armálaráðuneytinu í Noregi og er bókin fyrsta skáldsaga hans. Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a. að Gard Sveen kynni til sög- unnar sérlundaðan en afar færan lögreglurannsóknarmann að nafni Tommy Bergmann sem fær það hlutverk að finna tengsl milli mannsmorðs sumarið 2003 og beinagrinda sem fundust og voru frá seinni heims- styrjöldinni. Sag- an snertir mörg mál og fjallar meðal annars um hluta af stríðs- sögu Norð- manna. Sam- kvæmt heimildum Hins íslenska glæpa- félags hefur bókaforlagið Draum- sýn tryggt sér útgáfurétt bók- arinnar, að því er segir í tilkynningu. Gard Sveen hlaut Glerlykilinn í ár Leikhópurinn Pörupiltar skemmti á opnunarhátíð Gay Pride í Hels- inki í fyrradag með uppistandssýn- ingu sinni Homo Erectus. Pörupilt- ar tróðu einnig upp í Helsinki í apríl sl., á leiklistarhátíðinni Pop up art house, buðu þar upp á uppi- standið Kynfræðslu Pörupilta. Pörupiltar hafa áður sýnt Homo Erectus í Helsinki og mun aðdá- endahópur þeirra í Finnlandi vera býsna stór. Pörupiltar eru Sólveig Guðmundsdóttir, María Pálsdóttir og Alexía Björg Jóhannesdóttir. Vinsælir Pörupiltar leggja Finnland að fótum sér með kostulegu uppistandi. Pörupiltar á Gay Pride í Helsinki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.