Morgunblaðið - 25.06.2014, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014
Transformers: Age of Extinction
Fjórða kvikmyndin um hina sk.
Transformers, vélmenni utan úr
geimnum sem geta breytt sér í hin
ýmsu farartæki, verður frumsýnd í
dag og sem fyrr er leikstjóri og
framleiðandi Michael Bay.
Age of Extinction hefst fjórum árum
eftir atburðina og uppgjörið í síð-
ustu mynd, Dark of the Moon. Mark
Wahlberg fer með hlutverk ein-
stæðs föður, Cade Yeager, sem
bannar ungri dóttur sinni að fara á
stefnumót þar sem hún þarf að ein-
beita sér að námi. Yeager er upp-
finningamaður sem notar gamalt
drasl sem efnivið í uppfinningar
sínar. Dag einn kaupir hann gaml-
an trukk og í ljós kemur að þar fer
sjálfur leiðtogi Transformes, Opti-
mus Prime. Þegar óvinir Prime
taka að herja á hann hefst mikil
barátta sem Yeager, dóttir hans og
unnusti hennar fléttast inn í.
Með aðalhlutverk fara Mark Wahl-
berg, Jack Reynor, Kelsey Gramm-
er, Nicola Peltz, Peter Cullen og
Stanley Tucci.
Rotten Tomatoes: 50%
Variety: 50/100
Welcome to New York
Kvikmynd um hneykslismál Dom-
inique Strauss-Kahn, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, sem verður frumsýnd
í bíó og á VOD-leigum í sjónvarpi í
dag. Hinn franski Strauss-Kahn var
árið 2011 ákærður fyrir að áreita
hótelþernu í New York kynferðis-
lega og vakti málið mikla athygli á
sínum tíma líkt og málaferlin sem
fylgdu í kjölfarið. Ísland er með
fyrstu löndum til að sýna myndina
sem var heimsfrumsýnd í Cannes í
síðasta mánuði. Gérard Depardieu
fer með aðalhlutverkið í myndinni
og hefur nafni Strauss-Kahn verið
breytt í hr. Devereaux. Sá stýrir
efnahagslegum örlögum heilu þjóð-
anna og er knúinn áfram af óbeisl-
aðri og villtri kynhvöt, skv. tilkynn-
ingu um myndina. Myndin mun
hafa valdið miklu fjaðrafoki í
Frakklandi. Leikstjóri er Abel
Ferrara og auk Depardieu fara
með helstu hlutverk Jacqueline Bis-
set og Grena De Niro, dóttir leik-
arans Roberts De Niro.
Rotten Tomatoes: 60%
Guardian: 4/5
Hneyksli Gerard Depardieu er í aðalhlutverki í Welcome to New York.
Útrýmingarhætta
og hneykslismál
Bíófrumsýningar
Ný leikgerð á Konunni við 1000° eft-
ir Hallgrím Helgason verður frum-
sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu
26. september nk. Leikgerðina vann
Hallgrímur upp úr bókinni í sam-
vinnu við Unu Þorleifsdóttur, leik-
stjóra sýningarinnar, og Símon
Birgisson dramatúrg.
Í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu
kemur fram að Konan við 1000° lýsi
ótrúlegri ævi einstakrar konu sem
upplifði umrót og hörmungar tutt-
ugustu aldarinnar víða um lönd og
endaði ævina í íslenskum bílskúr.
„Eða eins og hún orðar það sjálf:
„Ég var svo ljónheppin að fá að vera
barn á tímum fasismans og gamal-
menni á tímum græðginnar.“ Her-
björg María Björnsson átti við-
burðaríka daga. Frá bernsku í
Breiðafirði til stríðsloka í Berlín, frá
kvöldverði á Bessastöðum til barns-
missis í Buenos Aires. Sagan byggist
að hluta til á sönnum atburðum en
rétt eins og skáldsagan tilheyrir
leikgerðin skáldskapnum fyrst og
fremst.“
Með hlutverk Herbjargar Maríu
fara Guðrún Snæfríður Gísladóttir
og Elma Stefanía Ágústsdóttir, en
aðrir leikarar í sýningunni eru Bald-
ur Trausti Hreinsson, Edda Arn-
ljótsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir
og Snorri Engilbertsson. Tryggvi M.
Baldvinsson semur tónlist fyrir sýn-
inguna, Eva Signý Berger gerir leik-
mynd og Agnieszka Baranowska
búninga. Magnús Arnar Sigurðar-
son hannar lýsingu og Kristinn
Gauti Einarsson sér um hljóðmynd.
Morgunblaðið/Eggert
Teymi Leikskáldið Hallgrímur Helgason og leikstjórinn Una Þorleifsdóttir.
Ný leikgerð á
Konunni við 1000°
Kvikmyndir bíóhúsanna
Age of Extinction hefst fjórum árum eftir
atburðina og uppgjörið í siðustu mynd, Dark
of the Moon. Mark Wahlberg fer með hlutverk
einstæðs föðurs sem dag einn kaupir gamlan
trukk eða sjálfan Optimus Prime.
Sambíóin Álfabakka 16:40, 16:40 3D, 18:30 3D, 20:00,
20:00 3D, 22:10 3D ,22:20, 23:15, 23:15 3D
Sambíóin Kringlunni 17:50 3D, 21:10 3D, 22:10 3D
Sambíóin Egilshöll 16:40, 18:30 3D, 20:00 3D, 21:00, 22:00
3D
Sambíóin Keflavík 19:00 3D, 22:15 3D
Sambíóin Akureyri 22:20
Transformers:
Age of Extinction Sögumaður segir frá sögu
valdamikillar álfkonu sem
lifir í mýri skammt frá landa-
mærum konungsríkis
manna.
Metacritic 56/100
IMDB 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 15:40,
17:50, 20:00, ,22:20
Sambíóin Kringlunni 17:50,
20:00
Sambíóin Egilshöll 18:50,
20:00
Sambíóin Akureyri 17:50
Maleficent Hermaður ferðast um
tíma og rúm í stríði við
geimverur.
Mbl. bbbbn
Metacritic 71/100
IMDB 8,2/10
Sambíóin Egilshöll 22:10
Sambíóin Álfabakka
20:00
Sambíóin Akureyri 20:00
Edge of Tomorrow 12
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
The Fault in
Our Stars 12
Myndin segir frá tveimur
unglingum sem eiga ým-
islegt sameiginlegt.
Metacritic 69/100
IMDB 8,5/10
Háskólabíó 17:20
22 Jump Street Eftir að hafa þraukað tvisvar
sinnum í gegnum mennta-
skóla bregða lögregluþjón-
arnir Schmidt og Jenko sér í
dulargervi í háskóla.
Metacritic 71/100
IMDB 8,0/10
Sambíóin Keflavík 22:10
Laugarásbíó 20:00
Borgarbíó Akureyri 20:00.
22:15
Að temja
dreka sinn 2 Þegar Hiksti og Tannlaus
uppgötva íshelli sem hýsir
hundruð villtra dreka ásamt
dularfullri persónu finna þeir
sig í miðri baráttu um að
vernda friðinn.
Mbl. bbbnn
Metacritic 77/100
IMDB 8,6/10
Sambíóin Álfabakka 15:40,
17:50, 16:10 3D, 20:00
Sambíóin Egilshöll 16:40
Sambíón Keflavík 20:00
Laugarásbíó 16:30
Borgarbíó Akureyri 17:40
Háskólabíó 17:45
Vonarstræti 12
Mbl. bbbbm
IMDB 8,5/10
Laugarásbíó 17:00
Brick Mansions 16
Lögreglumaður í dulargervi í
Detroit-borg ferðast með
hjálp fyrrverandi fanga um
hættulegt hverfi sem er um-
lukið vegg.
Metacritic 40/100
IMDB 6,0/100
Laugarásbíó 23:10
Borgarbíó Akureyri 22:15
Jónsi og
Riddarareglan Mbl. bbnnn
IMDB 6,0/10
Sambíóin Álfabakka 15:30
Make Your Move Tveir dansarar í New York
finna sig í miðri hringiðu
deilna á milli aðila í neð-
anjarðardansklúbbi.
Metacritic 40/100
IMDB 5,6/10
Sambíóin Kringlunni 17:40,
20:00
Godzilla 12
Frægasta skrímsli jarð-
arinnar lendir í átökum við
áður óþekktar verur sem
ógna tilvist manna á jörð-
inni.
Mbl. bbbmn
Metacritic 62/100
IMDB 7,2/10
Sambíóin Kringlunni 22:20
Blended Eftir að hafa farið á slæmt
stefnumót lenda Jim og
Lauren í því að vera föst
saman á hóteli með fjöl-
skyldum sínum.
Metacritic 31/100
IMDB 6,2/10
Sambíóin Egilshöll 17:30
Sambíóin Álfabakka 17:30,
20:00, 22:30
A Million Ways to
Die in the West 16
Þegar huglaus bóndi fellur
fyrir dularfullri konu í bæn-
um verður hann að sýna sig
og sanna þegar eiginmaður
hennar snýr aftur til baka.
Mbl. bbmnn
Metacritic 45/100
IMDB 6,3/10
Laugarásbíó 22:20
Harry&Heimir Þokkadísin Díana Klein leitar
ásjájr hjá einkaspæjurunum
Harrý og Heimi þar sem fað-
ir hennar virðist hafa horfið
sporlaust.
Mbl. bbbmn
IMDB 7,6/10
Bíó Paradís 18:00
Monica Z Monica Z fjallar um ævi
djass -söngkonunnar Monicu
Zetterlund sem lést í elds-
voða á heimili sínu í Stokk-
hólmi fyrir átta árum síðan.
Mbl. bbbbn
IMDB 7,1/10
Bíó Paradís 20:00, 22:10
Short Term 12
Fjallar um ungt fólk sem
hugsar um vandræðaungl-
inga á heimili. Myndin greinir
frá vandamálum og öðru
sem kemur upp í lífi þeirra.
Metacritic 82/100
IMDB 8,1/10
Bíó Paradís 18:00, 22:00