Morgunblaðið - 25.06.2014, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 25.06.2014, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Fjölnir Þorgeirsson kominn … 2. Lá í blóði sínu og allir gengu hjá 3. Luis Suárez enn að bíta 4. Fór í lýtaaðgerð fyrir námslánin »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tríó píanóleikarans Sunnu Gunn- laugs er á tónleikaferðalagi um Bandaríkin að fylgja eftir breiðskífu sinni Distilled og birti dagblaðið Washington Post fyrir helgi tvær greinar þar sem sérstök athygli var vakin á tónleikum tríósins þar í borg er haldnir voru í gær. North Shore News í Vancouver nefnir líka tónleika tríósins á Vancouver-hátíðinni næsta sunnudag sem eina af 10 tónleikum hátíðarinnar sem ekki megi missa af. Ljósmynd/Hörður Sveinsson Tríó Sunnu vekur athygli vestra  Tónlistarmað- urinn M-Band gaf í gær út smáskíf- una All is Love og gefur hún for- smekkinn af væntanlegri breiðskífu hans sem kemur út á næstu vikum. Í til- efni útgáfunnar verður haldin veisla í kvöld kl. 21 á skemmtistaðnum Húrra við Laugaveg þar sem M-Band treður upp með samstarfsmönnum sínum Tonik og Nolo. M-Band og félagar fagna skífu á Húrra  Vefurinn Screen Daily segir frá því að tökur á næstu kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Þröstum, hefjist 14. júlí nk. og að þær fari fram í Reykjavík og nágrenni Flateyrar, Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Meðal leikara eru Ingvar E. Sig- urðsson, Atli Óskar Fjalarsson og Rakel Björk Björnsdóttir. Tekur Þresti í júlí Á fimmtudag og föstudag Suðlæg átt, 3-8 m/s. Skýjað sunnan- og vestantil og þokusúld eða rigning en skýjað með köflum og líkur á stöku síðdegisskúrum annars staðar. Hiti 10 til 18 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt. Rigning með köflum A-til en súld eða þokuloft V-til. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast fyr- ir norðan. VEÐUR Grikkland og Úrúgvæ tryggðu sér í gærkvöldi sæti í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu þegar úrslitin réðust í C- og D-riðlum mótsins, en markið sem fleytti Grikkjum áfram kom í uppbótartíma. Mesta at- hygli vakti hins vegar fram- ganga Luis Suárez sem gerði sig enn og aftur sekan um að bíta andstæðing sinn í kappleik. »1, 2 Mikil spenna og þriðja bit Suárez „Ég hélt bara mínu striki og æfði vel og tók margar aukaæfingar í vetur. Ég vissi alltaf að ég gæti skorað mörk,“ segir FH-ingurinn Kristján Gauti Emilsson sem er leikmaður 9. umferðar í Pepsi-deildinni að mati Morgunblaðsins. »4 Tók margar auka- æfingar í vetur Fjórir leikir fóru fram í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi þegar sjötta umferð deildarinnar hófst. Harpa Þorsteinsdóttir fór á kostum og skoraði fjögur mörk þegar Íslandsmeistarar Stjörnunnar sigr- uðu Selfoss, 5:3, og komust um leið í efsta sæti deildarinnar. Þetta var sjö- unda mark Hörpu í tveimur síðustu deildarleikjum. »3 Harpa skoraði fjögur og Stjarnan fór á toppinn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Lauga-ás veitingahús og bistro er fjölskyldufyrirtæki í Laugardalnum en það hefur verið í eigu sömu fjöl- skyldunnar frá stofnun árið 1979. Staðurinn fagnar þeim merku tíma- mótum í dag að vera orðinn 35 ára en að sögn Ragnars Guðmunds- sonar, eiganda Lauga-áss, hefur aldrei verið skortur á viðskiptavin- um frá því staðurinn var opnaður. „Það er alltaf nóg að gera. Rekst- urinn hefur farið upp og niður eins og gengur og gerist í þessum bransa en þegar við opnuðum fyrst héldum við að staðurinn myndi bara lifa sumarið af og deyja svo út. Annað kom í ljós og hann lifir enn,“ segir Ragnar. Aðallega Íslendingar Ragnar hefur í gegnum árin þjónað og matreitt fyrir þúsundir gesta en að hans sögn eru um 90% viðskiptavina Lauga-áss Íslend- ingar. „Ég er ekki staddur í 101 svo ég fæ ekki mikið af útlendingum til mín. Gegnum árin hef ég hins vegar haft óhemjumikinn kúnnahóp hvað- anæva af landinu og ég er með hóp af fastakúnnum sem hafa sumir hverjir komið til okkar frá því í byrjun,“ segir Ragnar en staðurinn er einn fárra veitingastaða á land- inu sem alla tíð hafa verið reknir á sömu kennitölu. „Þetta hefur gengið vel hjá okkur en það virðist vera erfiðara hjá mörgum öðrum veitingastöð- um að vera svona inni í hverfi. Menn þurfa nátt- úrlega að hugsa vel um reksturinn og vera vak- andi yfir þessu og það er mikilvægt að sinna kúnnunum og tala við þá og heyra skoðanir þeirra. Svo hef ég verið mjög heppinn með starfsfólk gegnum árin og það hefur auðvitað mikið að segja um velgengnina,“ segir Ragnar. Íslenskur heimilismatur Lauga-ás hefur frá fyrstu tíð lagt áherslu á að vera fjölskyldustaður en hann var fyrsti veitingastað- urinn á landinu sem bauð upp á sér- stakt barnahorn. Matseðillinn hefur svo ávallt verið með svipuðu móti en óhætt er að fullyrða að íslenskur heimilismatur er sérgrein stað- arins. „Við byggjum mikið á fiski og hann er alltaf mjög vinsæll. Lamba- lærið hefur einnig verið vinsæll réttur hjá okkur og við ætlum því að vera með tilboð á glóðarsteiktu lambalæri í tilefni dagsins,“ segir Ragnar. Sumir hafa komið frá byrjun  Lauga-ás í eigu sömu fjölskyld- unnar í 35 ár Morgunblaðið/Eggert Fjölskyldufyrirtæki Lauga-ás hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá því staðurinn var opnaður fyrir 35 árum. Um 90% viðskiptavina eru úr hópi Íslendinga og íslenskur heimilismatur er sérgrein staðarins. Ragnar stofnaði Lauga-ás ásamt mági sínum, Gunnlaugi Hreið- arssyni, fyrir 35 árum. Seinna meir tók Ragnar alfarið við rekstr- inum ásamt fjölskyldu sinni en aðspurður um framtíð staðarins segir hann: „Mér finnst mikilvægt að stað- urinn verði áfram í eigu fjölskyldunnar. Fjöl- skyldufyrirtækjum geng- ur alltaf best en þegar þau eru seld öðrum aðilum er eins og allt fari úr skorðum.“ Ragnar er bjartsýnn á fram- haldið: „Ég held að maður verði að vera bjartsýnn. Við erum búin að synda í gegnum þetta í öll þessi ár og sjá hvernig mál hafa þróast og erum enn að í dag, en auðvitað er mikilvægt að menn séu í tengslum við fólkið og duglegir að vinna og láta sjá sig svo þetta haldi áfram að ganga upp,“ segir hann. Áfram í eigu fjölskyldunnar BJARTSÝNN Á FRAMHALDIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.